16.02.1961
Neðri deild: 64. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 98 í C-deild Alþingistíðinda. (1811)

38. mál, loðdýrarækt

Frsm. (Gunnar Gíslason):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér er til 2. umr., fjallar um breyt. á núgildandi lögum um loðdýrarækt, og er sú breyting fólgin í því að nema úr lögunum þau ákvæði, sem banna minkaeldi. Landbn. leggur einróma til og þá einnig hv. flm., sem átti sæti í nefndinni, þegar hún afgreiddi málið, að þessu máli verði vísað til hæstv. ríkisstj. í trausti þess, að hún láti endurskoða lögin um loðdýrarækt og leggja fyrir næsta reglulegt Alþingi frv. til laga um loðdýrarækt, þar sem svo sé ráð fyrir gert, að innflutningur minka og minkaeldi verði leyft hér á landi.

Áður en n. afgreiddi málið, höfðu henni borizt umsagnir frá fjórum aðilum. Samband ísl. samvinnufélaga og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna mæltu með því, að frv. yrði samþykkt. Stjórn Búnaðarfélags Íslands mælti hvorki með frv. né á móti því, en óskaði eindregið eftir því, að málið yrði ekki afgreitt héðan úr þinginu, fyrr en búnaðarþing hefði fjallað um það. Ef till. n. um það, að málinu verði nú vísað til hæstv. ríkisstj. til frekari athugunar og undirbúnings, verður samþ., þá getur að sjálfsögðu búnaðarþingið, sem kemur hér saman innan tíðar, tekið það til athugunar og rætt þá spurningu, hvort leyfa eigi eða ekki minkaeldi hér á landi. Í umsögn Sveins Einarssonar veiðistjóra kemur fram, að hann er ekki mótfallinn því, að minkarækt verði leyfð, ef tryggilega er frá öllu gengið að því er varðar vörzlu dýranna og um allt eftirlit með rekstri búanna, svo að hér megi verða um gagnsaman atvinnuveg að ræða, en ekki hitt, að minkaeldi, ef það yrði leyft hér á ný, leiddi til þess að auka það tjón, sem villiminkurinn hefur unnið í landi okkar. Og þetta er það sjónarmið, sem þegar kom fram í landbn., er hún tók að ræða þetta mái. N. var þegar ljóst, að fara þurfti að öllu með gát og undirbúa, svo sem kostur er á, minkaræktunina, ef hún yrði leyfð aftur. Því er það, að n. leggur nú til, að málið verði afgreitt á þennan hátt, að því verði vísað til ríkisstj. til frekari athugunar og undirbúnings.

Ég geri ráð fyrir því, að ýmsir telji eðlilegt, þegar rætt er um það, hvort leyfa skuli innflutning minka og minkaeldi hér á landi, og telji sig þurfa að rifja upp ýmis atriði úr sögu loðdýraræktarinnar, meðan hún var stunduð hér á landi sem atvinnugrein. Ég ætla mér ekki að rifja upp þessa sögu, því að hún er um flest fremur óskemmtileg. Í þeirri sögu má finna mörg dæmi um mistök, um fákunnáttu í starfi og raunar dæmi um vitaverðan trassaskap. Ég vil þó taka fram, um leið og ég tek svo stór orð mér í munn, að þessi orð eiga vissulega ekki við um alla þá, sem þennan atvinnuveg stunduðu. Það voru líka til men, sem ráku loðdýrarækt af myndarskap og sér til hagsbóta. En mistökin voru mörg, og því minni ég á þau, að vitin eru til varnaðar. Ég tel það engan greiða fyrir minkaeldi, þegar það kemur nú aftur á dagskrá, að reyna að blekkja sig eða dylja fyrir sér það tjón, sem minkurinn hefur valdið hér á landi. Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa úr umsögn veiðistjóra nokkuð um þetta tjón, ekki sízt fyrir þá sök, að þegar þetta mál var til l. umr. hér í hv. d., þá kom fram ósk um það, að landbn. aflaði sér upplýsinga um, hversu þetta tjón er orðið mikið. Ég býst nú raunar við, að það sé ekki á neins manns færi að telja það tjón fram, svo að rétt sé, en ég vil, eins og ég sagði, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp, hvað veiðistjóri, Sveinn Einarsson, segir um þetta:

„Tjón það, sem minkar hafa valdið hér á landi, verður ekki metið í beinum tölum. En víst er, að það er mjög mikið og snertir ýmsar mikilvægar atvinnugreinar landsmanna, eins og t.d. hænsnarækt, æðarvörp, silungs- og laxaveiði. Minkur hefur einnig gereytt svartfugli, öndum og öðrum nytjafugli á stórum svæðum. Segja má, að öllu fuglalífi landsins sé hætta búin af honum. Tjón á sauðfé af völdum minks er að vísu ekki mikið, en vitað um, að hann á auðvelt með að drepa unglömb, og í því sambandi stafar mikil hætta af villtum minkum. Það er staðreynd, að minkar gera margfalt meiri skaða hér á landi heldur en í öðrum löndum, þar sem þeir hafa mun fleira um að velja til átu. Á Norðurlöndum t.d. lifir villtur minkur mikið á ýmsum skordýrum, krabbafiski og froskum, ásamt mörgum tugum af misjafnlega gagnsömum fisktegundum í ám og vötnum og sjó.“

Og enn fremur segir í umsögn veiðistjórans, með leyfi hæstv. forseta:

„Það, sem hér hefur verið sagt um skaðsemi minksins, sannar, að það er ekki að ástæðulausu, að nokkurs uggs gæti hjá mönnum vegna hins nýja frv., því að öllum er kunnugt, hve hörmulega til tókst með minkaeldi hér áður, og eðlilegt, að menn óttist, að hið sama endurtaki sig nú. Höfuðskilyrði fyrir því, að svo verði ekki, er, eð sett verði ströng ákvæði um vörzlu dýranna og þeim ákvæðum framfylgt. Útbúnaður á minkabúrum mun nú víða orðinn það vandaður, að ekki ætti að vera mikil hætta á, að dýrin sleppi úr haldi. Þó tel ég vissara að gera ráð fyrir, að það kunni að koma fyrir, og er því ekki ráðlegt að leyfa minkaeldi í þeim landshlutum, sem enn eru lausir við villta minka. Væri að mínum dómi meira öryggi í því að hefja minkaeldið í stórum stíl á fáum stöðum heldur en gera það frjálst öllum, sem vilja, hvar sem er á landinu. Við þau skilyrði yrði bæði erfitt og kostnaðarsamt að framfylgja því eftirliti, sem nauðsyn er á.

Þetta segir veiðistjórinn, Sveinn Einarsson, í umsögn sinni. Og nú spyrja menn ef til vill: Hvernig getur nokkur maður mælt með því, að minkaeldi sé aftur leyft, eftir að hann hefur hlýtt á skýrslu sem þessa og veit, að hún er sönn? Því einu er til að svara, að villiminkurinn er til í landinu. Honum verður ekki útrýmt með neinum þeim ráðum, sem við kunnum enn, — og hvaða ástæða er þá til þess að banna mink í búrum? Mér finnst þetta eðlilegt sjónarmið. Og sem betur fer, hefur okkur tekizt á síðustu árum, eftir að verðlaun fyrir veiddan mink voru hækkuð og eftir að tekið var að nota minka hunda, að halda villiminknum allvel í skefjum. Við, sem búum úti í sveitunum og sjáum þess gleðilegan vott, að fuglalíf glæðist á ný, þar sem það var áður nær horfið vegna minkaplágunnar, vitum, að þessu er þannig farið.

Ég vil einnig í þessu sambandi skýra frá því samkvæmt þeim upplýsingum, sem veiðistjórinn lét n. í té, að kostnaður við minkaeyðingu hefur verið á undanförnum árum um 900 þús. kr. á hverju ári, og þar af hefur ríkissjóður greitt 2/3 hluta eða um 600 þús. kr. Á eyðingu villiminksins má að sjálfsögðu ekki slaka, enda þótt hún kosti mikið fé, en ef til vill er ekki óhugsandi, ef vel tekst til um minkaeldið, að það geti að einhverju leyti a.m.k. borið uppi þann kostnað, sem eyðing villiminksins hefur í för með sér.

Um minkaeldið sem framleiðslugrein er í rauninni ekki mitt að ræða. Á því hef ég að sjálfsögðu mjög takmarkaða þekkingu. En ég vil leyfa mér að benda hv. þm. á skýrslu þá, sem fylgir nál. okkar, skýrslu Árna G. Eylands um minkaeldi í nágrannalöndum okkar, Danmörku, Noregi og í Svíþjóð. Þar er okkur sagt, eins og við raunar vissum áður, að í öllum þessum þremur löndum er þetta mikilsverð atvinnugrein, — atvinnugrein, sem gefur af sér miklar tekjur og það tekjur í dýrmætum gjaldeyri. Hver um sig flutti þessi þjóð út minkaskinn á árinu 1959 og raunar hafa þær gert það á undanförnum árum — fyrir upphæðir, sem nema mörgum hundruðum milljóna króna í okkar gjaldeyri. Að þessar þjóðir hafa náð svo glæsilegum árangri í þessum atvinnuvegi, virðist mér af skýrslu Árna G. Eylands vera fyrst og fremst því að þakka, að unnið hefur verið að minkaræktinni með samstilltum samtökum og skipulagi og þar hefur ekkert handahóf verið látið ráða, heldur þekking og kunnátta. Í skýrslu Árna G. Eylands segir m.a. frá því, að einmitt nú sé verið að vinna að því að efla minkaræktina í Norður-Noregi, og þar sem mér sýnist, ef til minkaræktunar kemur hér, að þá geti það orðið lærdómsríkt fyrir okkur að fylgjast með því, hvernig frændur okkar, Norðmenn, vinna að þessum málum þar heima hjá sér, þá vil ég leyfa mér að vekja athygli hv. þm. enn nánar á þessu með því að lesa upp — með leyfi hæstv. forseta — nokkrar málsgreinar úr skýrslu Árna G. Eylands, en þar segir svo, þar sem ræðir um þessi mál í Norður-Noregi:

„Nefnd manna hefur verið skipuð þar á norðurslóðum til þess að leggja á ráðin um, hvernig sé hægt að efna til og skipuleggja minkarækt með góðum árangri. Það, sem talið er að hái minkarækt í nyrztu fylkjum Noregs mest, er vöntun á samvinnu um öflun og nýtingu fóðurs. Er mjög athyglisvert það, sem sagt er um þá hluti. Stór minkabú, þar sem eru í eldi yfir þúsund dýr eða meira, geta við réttar aðstæður staðið á eigin fótum við fóðurkaup og geymslu. Þau hafa ráð á því að hafa frystigeymslur og afla fóðurs með stórum tökum og tryggja þannig reglubundna og jafna fóðrun, sem er mjög áríðandi. Smærri minkabú, einstök, eiga oft við mikla erfiðleika að etja um fóðuröflun og geymslu. Betur hentar, að slík bú séu fleiri og nokkuð mörg á takmörkuðu svæði í sama byggðarlagi og hafi með sér full samtök um fóðuröflun og frystigeymslu eða hafi sameiginlegt samband við frystihús. Þannig telja þeir, er að þessum málum vinna í Norður-Noregi, mjög áríðandi, að ekki sé látið skeika að sköpuðu með það, hvar og hvernig efnt er til minkaeldis. Hér þarf samtök og skipulag til þess að tryggja örugga og góða framleiðslu án óþarfa kostnaðar.

Annað atriði, sem mikið er rætt, er þekking og kunnátta. Norðlendingar eða réttara sagt forráðamenn þeirra í þessum málum gera sér ljóst, að án kunnáttu, mikillar kunnáttu og starfsþekkingar, er voði að efna til minkaeldis í verulegum mæli. Minkaeldið krefst nákvæmni og þekkingar, þar má ekkert reka á reiðanum. Í þessu sambandi er þess að geta, að mjög er um það rætt að efna til loðdýraeldis með kennslusniði við bændaskóla Finnmerkur í Tana, til þess að þar sé hægt að efna til námskeiða og halda uppi kennslu í öllu, er varðar þessa atvinnugrein.

Ef allt fer að líkum, mun minkaeldi sem atvinnuvegur þróast þannig í beinu og óbeinu sambandi við fiskveiðar og fiskiðju í Norður-Noregi á næstu árum, að annars vegar rísa upp stór minkabú í beinu sambandi við fiskiðjuna og í nágrenni fiskiðjuveranna og hins vegar smærri minkabú, víðast nokkuð í hverfum, nálægt fiskiþorpum og fiskiðjuverum, hafandi með sér félagssamtök um fóðurkaup og öflun. Kemur þar jafnvel til „félagsleg matargerð“ fyrir minkabúin, eins konar minkaeldhús. Slíkur háttur hefur verið tekinn upp á nokkrum stöðum í Noregi, þar sem þéttbýlt er að minkabúum, og þykir gefast vel.

Mér virðist ljóst vera, að um tvennt megum vér á Íslandi líta til þess sama og gert er í Norður-Noregi varðandi væntanlega minkarækt: að staðsetja búin skynsamlega með tilliti til fóðuröflunar og gera oss það fullljóst, að það þarf kunnáttu til þess að fást við minkaeldi. Hennar þarf að afla þegar í upphafi. Það getur orðið dýrt að læra eingöngu af eigin reynslu.“

Þetta var úr þessari skýrslu Árna G. Eylands, sem ég raunar þurfti ekki að vera að lesa upp, því að hún er prentuð hér sem fylgiskjal, en mér sýnist hún vera eftirtektarvert innlegg í þessu máli. Og það er augljóst af þessu, sem hér segir, að Norðmenn leggja áherzlu á þetta: Búin þurfa að vera stór. Með því geta þau verið sjálfum sér nóg um fóðuröflun og frystigeymslur. Ef um minni bú er að ræða, þá verða þau að vera staðsett á takmörkuðu svæði, til þess að þau geti haft samtök sín á milli um fóðurkaup og frystigeymslur, verkun skinnanna og fleira, sem þessu við kemur. Og Norðmenn leggja höfuðáherzlu á, að því er minkaræktunina snertir, að það þurfi að viðhafa samtök og skipulag og þekkingu. Ég tel því mjög athugandi þá hugmynd, sem fram kemur einmitt í skýrslu Árna G. Eylands, að komið verið upp litlu minkabúi, einhvers konar kennslubúi, við bændaskólana, t.d. á Hvanneyri, þar sem kennd verði meðferð dýranna og annað það, er þessum atvinnuvegi við kemur. Við Íslendingar eigum í landi okkar mikið af góðu minkafóðri, sem er fiskúrgangurinn frá hraðfrystihúsunum og innmaturinn, sem fellur til í sláturhúsunum. Að þessu leyti stöndum við vel að vígi að taka upp minkarækt aftur hér á landi sem atvinnuveg. En okkur skortir ýmislegt annað, sem ég hef nú þegar bent á, — annað, sem verður að vera fyrir hendi, ef þessi framleiðslugrein verður aftur upp tekin. Því er það, að við nm. í landbn. teljum ekki tímabært að samþykkja þetta frv., og við væntum þess, að hv. þd. geti fallizt á það sjónarmið okkar, að réttast sé að vísa því til hæstv. ríkisstj. til frekari undirbúnings. Ég vil svo geta þess að lokum, að landbn. hefur aflað sér ýmissa gagna um þessi mál frá hinum Norðurlöndunum, t.d. laga og reglugerða og ýmislegs annars, og ætti það að greiða fyrir því, að þessi athugun geti farið fram sem fyrst.