21.02.1961
Neðri deild: 67. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í C-deild Alþingistíðinda. (1834)

49. mál, jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Hv. 2 þm. Sunnl. var að ljúka máli sínu og sagði, að þeir hv. þm., sem vilja efla ræktun í landinu, eigi að samþykkja till. minni hl., en fella till. meiri hl. Ætli þetta sé alveg víst, að það sé landbúnaðinum fyrir beztu að samþykkja frv., sem hér um ræðir? Gæti ekki verið, að það væri landbúnaðinum betra að fresta samþykkt laga í þessu efni, samþykkja nú till. meiri hl. hv. landbn. og nota tímann til þess að þreifa fyrir sér betur um, hvað heppilegast er, til þess. að ræktun í landinu megi halda áfram með sem mestum krafti? Eða lætur hv. 2. þm. Sunnl. sér detta í hug, að þótt hans frv. verði samþ., þá sé það eitt út af fyrir sig nóg til þess að tryggja áframhaldandi ræktun í landinu? Ég held ekki. Ég held, að það þurfi miklu fleira að koma til, og þrátt fyrir góðan vilja þessa hv. þm., sem mér dettur ekki í hug að efast um, verði hann að líta lengra, ef hann ætlar sér að tryggja áframhaldandi framhald ræktunar í landinu, því að þetta frv. hans er aðeins bundið við það eitt að styrkja kaup á vélum vegna ræktunarsambandanna. Það er í sama formi og áður. Ég býst við því, að þótt ræktunarsamböndin ættu nú kost á því að fá styrk að vissu marki samkv. þessu frv., þá næði það ef til vill skammt, eftir því sem hv. þm. var að lýsa hér áðan.

Hv. þm. harmar það, að ekki skuli vera flutt frv., sem ég minntist á við hann á s.l. hausti að e.t.v. væri von á, frv. mþn. Það er rétt, að mþn. hefur skilað áliti í þessu máli, og tillögur hennar eru þær, að það verði veittur nokkur styrkur, en þó í stærri stíl lán. Till. hennar voru, að styrkur og lán samanlagt yrðu allt að 60 eða 65%, a.m.k. ekki undir 50%. Ég álít, að mþn. hafi starfað vel, og það kom ýmislegt fram í nál. fleira til breytingar á þessum lögum, sem gæti orðið undirstaða frekari lagasetningar. En ég tel þó að athuguðu máli, vegna þess hversu hér er um mikilsvert mál að ræða, að það beri ekki að flýta lagasetningu í þessu efni svo mjög, að ekki gefist tóm til að fá tillögur hinna beztu manna, sem yfirsýn hafa yfir þessi mál, og dettur mér þá í hug búnaðarþing, sem kemur saman nú eftir fáa daga, að það sé eðlilegt, að það fái álit mþn. til athugunar, og ég hef ákveðið, að það fái það. Ég efast ekkert um, að búnaðarþing, samkoma bændanna, hefur ýmislegt um þetta að segja, og þeir vita það vel, eins og hv. 2. þm. Sunnl. og ég, að eitthvað þarf að gera í þessu efni. En ég tel, að þetta mál sé leyst í bili á viðunandi hátt.

Ég hef átt tal við ýmsa forustumenn ræktunarsambandanna, og ég hef spurt þá um það, hvort þetta væri ekki nokkuð góð lausn á málinu í bili, ef styrkur og lán gætu samanlagt orðið allt að 60%. Við það bætast fyrningarsjóðir, sem ræktunarsamböndin eiga, því að lögum samkvæmt er skylt að leggja í fyrningarsjóð, eftir því sem vélarnar slitna og eldast. Mat þessara forustumanna ræktunarsambandanna hefur verið það, að með því að fá þessa lausn á málinu, styrkinn og lánið, þá muni þeir geta endurnýjað vélakostinn.

Það er ekki rétt, sem hv. 2. þm. Sunnl. sagði hér áðan, að það væru um 20 ræktunarsambönd, sem biðu nú eftir því að endurnýja vélakostinn. Það kemur að því, að þau þurfi að gera það, en það liggur ekki nærri, að það séu 20 vélar í pöntun nú. Ég hef kynnt mér þetta nokkuð, og það eru nokkur ræktunarsambönd, sem hafa hug á því að panta vélar og gera það, því að það er nokkuð langt síðan forustumenn þessara sambanda hafa komið að máli við mig og þeir hafa fengið vitneskju um það, hvers þeir mættu vænta.

Það er ekki rétt, sem hv. 2. þm. Sunnl. sagði hér áðan, og mér leiddist, að hann skyldi koma með svo ótímabæra fullyrðingu, að lausnin á þessu máli sé aðeins þessi eina milljón, sem er á fjárlögunum. Það er ljóst, að það er ekki nóg út af fyrir sig. Það þarf meira til að koma, og hafi hv. þm. lesið nál. meiri hl., þá sér hann að það er meira, sem kemur þarna til, og mér er kunnugt um, að ýmsir forustumenn ræktunarsambandanna telja eðlilegt, að það sé farið inn á lánaleiðina. Þeir telja það á ýmsan hátt heilbrigðara. Og það vill svo til, að ræktunarsjóður hefur heimild til þess að lána út á þessar vélar. Ég býst við, að hv. 2. þm. Sunnl. segi: Ræktunarsjóður lánar ekki út á vélarnar, nema hann hafi fé til þess. — Og það væri út af fyrir sig eðlileg aths. En hv. þm. verður að gera sér ljóst, að þeir, sem standa að meiri hl. í hv. landbn., vita það líka. Þeir vita, að ræktunarsjóður lánar því aðeins, að hann hafi fé til þeirra hluta. Og hv. 2. þm. Sunnl. er mér sammála um það, að ræktunarsjóður verður að fá fé, ekki aðeins í þessu skyni, heldur til þess að fullnægja öðrum skyldum, sem á sjóðnum hvíla, þannig að ekki þyrftum við að vera að deila um það út af fyrir sig.

Það eru út af fyrir sig gleðitíðindi, að ræktunarsamböndin eiga nú kost á því að kaupa mun — ódýrari vélar en áður. Nú er hægt að fá þýzkar og enskar ræktunarvélar á mun lægra verði en þær amerísku vélar, sem áður hafa verið fluttar inn og hafa verið í notkun ræktunarsambandanna. Ég hef talað við vélaráðunautinn, Harald Árnason, og hann fullyrti við mig, að þessar ódýrari vélar fullnægðu ræktunarsamböndunum í sambandi við ræktunarframkvæmdir. En þær væru ekki eins heppilegar til vegagerðar, en ræktunarsamböndin hafa undanfarin ár drýgt tekjur sínar með því að lána þær til vegagerðar. Hefur það komið sér vel fyrir ræktunarsamböndin. Það hefur gert þeim léttara að standa undir kostnaðinum, og það hefur einnig komið sér vel fyrir vegagerðina, þar sem vélakostur hennar hefur verið af skornum skammti. En mér er kunnugt um, að nú er hægt að fá heppilegar ræktunarvélar, sem samsvara hinum amerísku, fyrir rúmlega 400 þús. kr., en amerísku vélarnar, þessar stærri, sem áður hafa verið keyptar, munu kosta um eina millj. kr. Ég vil þess vegna segja það við hv. 2. þm. Sunnl., að það er bezt að kasta frá sér öllu vonleysi í því efni, að ræktun landsmanna muni nú stöðvast að fullu, ef ekki sé samþ. frv. hans. Eins og ég sagði áðan, jafnvel þótt frv. verði samþykkt, þá mundi ræktun í landinu stöðvast, ef ekki kemur ýmislegt fleira til.

Hitt þykir mér svo leiðinlegt, að jafnmætur maður og hv. 2. þm. Sunnl. skuli vera að tala um það, að bændurnir beri mjög skarðan hlut frá borði vegna viðreisnarinnar og að vegna viðreisnarinnar muni þeir gefast upp og landbúnaður á Íslandi eiga litla framtíð. Það er leiðinlegt, þegar menn, sem hafa tilhneigingu til þess að vera sanngjarnir og eru það í eðli sínu, eru að elgja sig upp hér á hv. Alþ. með fullyrðingar, sem eiga ekki neina stoð í veruleikanum. Ég veit, að hv. 2. þm. Sunnl. er það sanngjarn, að þegar hann lítur í eigin barm og þegar hann rifjar upp aðeins stutta sögu, sem öllum er í fersku minni, — og skal ég ekki fara mörgum orðum um það, — þegar hann ber það saman, þá veit hann, að það hefur nú verið betur séð fyrir hlut bændastéttarinnar en var, á meðan hann studdi ríkisstj. og gert var það, sem kallað var — ekki viðreisnarráðstafanir, heldur bjargráð, og í rauninni er ástæðulaust fyrir okkur hér á hv. Alþ. að vera að deila um þetta. Hér er ekki það, sem kalla má kjósendafund. En bændurnir þurfa ekki að hlusta á okkur deila, þótt við mundum frekar gera það, ef þeir hlustuðu á okkur, því að þeir vita, þegar þeir bera þetta saman, að það var allt öðruvísi að þessu staðið í sambandi við viðreisnartillögurnar heldur en bjargráðin 1958. Þess vegna hefði hv. 2. þm. Sunnl. átt að sleppa þessu. Ég er viss um, að hv. 2. þm. Sunnl. hefur gert sér það ljóst, hvers vegna þurfti að gera viðreisnarráðstafanirnar. Hann veit sem bóndi og kunnugur bændum, að ýmsir hinir skynsamari bændur hafa spurt: Hvernig væri okkar hlutur í dag, ef stefna vinstri stjórnarinnar hefði ráðið áfram?

Hv. 2. þm. Sunnl. veit, að bændur hefðu ekki þolað vinstri stefnu eitt ár í viðbót. Það er ekki ástæða til að eyða mörgum orðum um það. Við vitum, hvert stefnt var. Það var stefnt í fullkomna ófæru í þessu efni. Dýrtíðarskrúfan var laus, og það mátti ekki lengur dragast að gera ráðstafanir, sem komu við alla, að sjálfsögðu bændurna líka. En það væri rangt að segja, að í sambandi við viðreisnina hefðu verið lagðar þyngri byrðar á þá en aðra landsmenn. Og vegna þess að þetta liggur í augum uppi og bændurnir vita það og hv. 2. þm. Sunnl. veit þetta, þá skal ég ekki eyða fleiri orðum að því að sinni.

Það má vel vera, að hv. 2. þm. Sunnl. vilji koma hér upp í ræðustól á eftir og fullyrða, en þá ætla ég að biðja hv. þm. um að láta fylgja nokkur rök fullyrðingunum, meiri en áðan, og ég tei. að nál. meiri hl. sé þannig, að hv. Alþ. geti með góðri samvizku samþykkt það. Sú lausn, sem hér er bent á, er sæmileg lausn í bili, sem forustumenn ræktunarsambandanna sætta sig við. Það, sem síðar kemur, verður byggt á frekari tillögum hinna reyndustu manna. Nál. mþn. fer til búnaðarþings, búnaðarþing lýsir sínum vilja og sínum till. í þessu efni, og það, sem lengi skal standa, það skal vel vanda. Það er ekki aðalatriðið, hvort við fáum lög um þessi mál í vetur. Aðalatriðið er lausnin. Aðalatriðið er það, sem reyndar hv. 2. þm. Sunnl. sagði hér áðan, að málið leysist. Hér hefur verið bent á lausn málsins í bili, og við skulum vona, að frekari lausn málsins verði betri, því að vissulega má bæta úr þessu. En þá skulum við byggja á till. hinna færustu manna og þeirri reynslu, sem fyrir liggur.