02.03.1961
Neðri deild: 71. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í C-deild Alþingistíðinda. (1879)

7. mál, löggilding bifreiðaverkstæða

Frsm. meiri hl. (Jón Pálmason):

Herra forseti. Ég skal nú ekki mjög mikið lengja þessa umr., sem hér hefur farið fram, því að ef ég ætti fyrir nefndarinnar hönd að fara að svara öllu út í æsar, sem hér hefur verið spurt um og talað um, þá gæti það orðið nokkuð löng ræða. En ég ætla þó að gera nokkrar athugasemdir út af því, sem fram hefur komið í ræðum þeirra manna, sem hér hafa talað, sem eru víst orðnir fjórir.

Í ræðum minna meðnm., hv. 11. landsk. þm. og hv. 4. þm. Sunnl., kom ekki neitt nýtt fram umfram það, sem um hafði verið rætt í n., og aðallega það, sem fram hefur komið í nál. hv. 11. landsk. En það upplýstist þó við ræðu hv. 4. þm. Sunnl., að hann er samþykkur till. hv. 11. landsk. um að vísa þessu frv. til hæstv. ríkisstj.

Hv. 11. landsk., minni hluti n., kom inn á það, sem fleiri ræðumenn hafa og vikið að, að þeirra andstaða gegn frv. sé í rauninni aðallega sprottin af því, að það gangi ekki nógu langt, því að þeir leggja allir áherzlu á, að það verði að afnema þessi orð úr 1. gr. frv.: „gegn greiðslu“, og það yrði skilyrðislaust að taka undir ákvæði frv. þau viðgerðarverkstæði, sem ýmis stór fyrirtæki halda uppi til þess að gera við eigin bifreiðar, sem eru reknar á þeirra vegum, svo sem vegamálastjórnin, Landleiðir, olíufélögin, Strætisvagnar Reykjavíkur o.s.frv. Þetta atriði var mjög mikið rætt í n., og eins og hv. 11. landsk. skýrði réttilega frá, var ekkert samkomulag um að taka þessi orð: „gegn greiðslu“ — út úr frv., og það er ekki í neinu ósamræmi við það, sem nefndin að öðru leyti hefur látið í ljós.

Hv. 11. landsk. lét það í ljós, sem við vitum allir að er rétt, að það er víða góð þjónusta, bæði hér í höfuðstaðnum og víðs vegar úti um land, á viðgerðarverkstæðum, svo að það er mikil furða, hvað þessum verkstæðum þrátt fyrir óhæga aðstöðu hefur tekizt að koma sinni starfsemi í fullkomið horf. En það er þó öllum ljóst, að ýmsu er ábótavant á þessu sviði, og aðaltilgangur þessa frv. er að koma því til leiðar, að menn geti átt völ á að snúa sér til verkstæða, sem hafa hin fullkomnustu verkstæði, góðan húsakost og eru í sem fullkomnustu lagi. Hins vegar er vert að geta þess, sem hv. 11. landsk. vék að, að það væri farið fram á það af ýmsum, að það væri hækkað verð á þessari þjónustu. Nú er það kunnugt, að viðgerðir bifreiða eru undir verðlagseftirliti. Og því er ekki að leyna, að þeir aðilar, sem mest mótmæla þessu frv., telja, að það mundi gefast betur að hækka bara álagninguna á vinnuna og hugsa ekkert um löggildingu, ef vinnan væri seld nógu dýrt, þá mundi allt komast í bezta lag. Þetta er ein aðalröksemdin hjá þeim, sem mæla mest á móti frv., og á því geta menn séð, hvað álitsgerðir þessara manna stangast hver við aðra. Krafan er einmitt sú frá þessum mönnum, að það sé um að gera að hækka þessa þjónustu í verði sem allra mest, þá komist allt í gott lag. Meiri hl. hv. allshn. er ekki þessarar skoðunar, því að það er ekki nein vissa fyrir því, að það sé öruggt, að þjónustan verði þeim mun betri sem verðhækkuninni á henni nemur. Þar gildir sama regla og ég hef oft heyrt talað um í launamálum ýmissa stétta, að það sé alveg víst, að þær vinni betur, ef þær fá nógu mikið hækkuð laun. Við höfum margfalda reynslu fyrir því, að þetta er ekkert öruggt atriði.

Hv. 11. landsk. vék að því, að það yrði að sjá um, að þeir, sem stjórna bifreiðum, væru allsgáðir og með réttu ráði. Ég verð nú að segja það, að hvað fullkomin sem verkstæðin verða og hvað sem líður öllu okkar bifreiðaeftirliti, þá getum við aldrei ætlazt til þess, að það verði á þeirra verksviði að sjá um það, að menn séu allsgáðir og með réttu ráði. Það er óviðkomandi þessu máli, því að það er lögreglumál og lagamál, eins og allir vita um.

Hv. 4. þm. Sunnl. vék að því, að það væri mjög mikil ástæða til að ætla og væri raunar víst, að aðstaðan í þessum efnum væri gagnólík úti á landi við það, sem hún er hér í höfuðstaðnum og í þéttbýlinu. Þetta vitum við allir að er rétt. Þess vegna er samkv. þessu frv., 1. gr. þess, alls ekki víst, þó að dómsmrn. hafi heimild til að löggilda einhver verkstæði, að það yrði gert alls staðar á landinu. Það er talað um, að það megi gera á vissum stöðum, þó að það sé ekki gert á öðrum.

Að nefndin hafi eitthvað vanrækt í því að senda ekki frv. þetta til athugunar út um allt land, það get ég ekki fallizt á. Hér eru svo stór og þekkingarmikil félög í höfuðstaðnum, sem hafa fjallað um þetta mál, að þeirra álit á að geta gilt nokkuð öruggt fyrir alla, eins þótt þeir séu úti á landi.

Þá minntist hv. 4. þm. Sunnl. á varahlutaspursmálið, og það er náttúrlega alls ekki að ófyrirsynju, að minnzt sé á það, en það er bara allt annað mál með þann mikla vanda, sem þar er um að ræða. Við vitum, að það hefur verið mjög mikill hörgull oft og einatt á því að fá varahluti flutta inn, og þeir hafa verið seldir mjög háu verði, jafnvel hlutfallslega miklu hærra verði en svarar til verðs á bifreiðunum nýjum. Það vita allir, að það er nauðsynlegt og áríðandi að fá sem bezt úr þessu greitt, að það sé sem allra óhindraðastur innflutningur á varahlutum, bæði í bifreiðar, traktora og aðrar aflvélar, sem notaðar eru víðs vegar um okkar land. Og það er ekkert til fyrirstöðu varðandi afgreiðslu þessa frv., að það sé ekki jafnmikil nauðsyn á því eftir sem áður, þó að það verði samþykkt.

Aðeins vil ég segja nokkur orð við minn góða vin, hv. 1. þm. Vestf. Hann byrjaði sína ræðu á því að láta það í ljós, að sér sýndist, að allshn. skildi ekki málið, skildi ekki, hvað þetta frv. ætti við. Ég vil nú segja það, að ef ég þekkti ekki þennan þm. sem greindan og glöggan mann, þá mundi ég hafa haldið það eftir ræðu hans, að hann hefði aldrei lesið frv. og því síður að hann skildi það, því að hann talaði um þetta eins og þetta ættu að vera ákvarðandi lög um öll þau atriði, sem hann minntist á og spurði um. Þess vegna vil ég segja það, að það lítur út fyrir, að hann hafi ekki lesið t.d. 5. gr. frv., sem ákveður, að framkvæmdin í þessu máli á að ákveðast með reglugerð. Það er ekkert um það í þessu frv., hvernig á að vera framkvæmdin á því í einu eða neinu, annað en það, að það er heimilt fyrir dómsmrn. að löggilda ákveðin verkstæði, sem hafa fullkomna aðstöðu í húsakosti, vélum og öðru, sem nauðsyn ber til þess að geta gert við bifreiðar á þann hátt, svo að í lagi sé.

Þá var þessi hv. þm. að tala um það, að hann hefði rætt hér við 1. umr. um nauðsyn þess eð sameina bifreiðaeftirlitið og starfsemi þeirra verkstæða, sem yrðu samkv. þessu frv. löggilt, og var með ásakanir í garð hv. allshn. fyrir það, að hún skyldi ekki hafa tekið neina afstöðu til þessa máls. Þetta er alveg frjálst og því fremur frjálst, ef frv. verður samþykkt, eins og það liggur fyrir. Það er ætlazt til þess, að það verði bifreiðaeftirlitið, sem hefur aðalframkvæmdina á þessum lögum, og það er ætlazt til þess, að það sé bifreiðaeftirlitið, sem hefur mest úrskurðarvald við að undirbúa þá reglugerð, sem ætlazt er til að dómsmrn. setji um framkvæmd þessa máls, sem er aðalatriðið. Hér er ekki fyrir þessari hv. deild neitt frv. til reglugerðar um það, hvernig framkvæmdin á að vera á þessu máli. Hér er bara um að ræða heimild til þess að setja reglugerð, og á henni veltur framkvæmdin, og það er þess vegna alveg ótvírætt og óumdeilanlegt, að það er rétt, sem ég tók hér fram áðan, að hvort þetta mál verður til góðs eða ills, ef þetta frv. verður samþykkt, það fer alveg eftir framkvæmdinni, alveg eins og yfirleitt gerist um öll heimildarlög. Það fer eftir því, hvernig sú heimild verður notuð, sem heimildarlagafrv. gefur, sem samþ. yrði á Alþ.

Þá er það atriði, sem hv. 1. þm. Vestf. vék að. Hann var að tala um, að sér sýndist sönnun fyrir því, að við hefðum ekki skilið frv. í hv. allshn., að við gerðum ráð fyrir því, að það væri hægt að framkvæma þetta þannig, að þeim verkstæðum, sem ekki fengju löggildingu, væri ekki bannað að gera við bifreiðar. En þetta er einmitt það atriði, sem við tökum alveg greinilega fram í okkar nál., og okkur sýnist, að það þurfi ekki að gera neina brtt. við frv. sjálft til þess, því að það er nóg, að meiri hl. nefndarinnar, sem mælir með frv., gerir ráð fyrir því, að reglugerðin, sem sett verður, og framkvæmdin á þessu máli verði á svo frjálslegan máta, að það verði löggilt nokkuð mörg verkstæði hér í höfuðborginni og hvarvetna annars staðar, þar sem þess þætti þörf eða nauðsynlegt eða hægt, og svo geti menn, sem þurfa á viðgerðum að halda, alveg valið um það að snúa sér til annarra verkstæða, sem ekki hefðu fengið löggildingu, enda þótt þau væru með ófullkomnari aðstöðu. Það er út af fyrir sig nokkuð til í því, að það, sem aðallega er á móti þessu, er það, að hætt væri við því, að þegar væri búið að löggilda einhver ákveðin verkstæði sem fullkomin, þá þætti öllum bifreiðaeigendum og bifreiðastjórum svo mikið eftirsóknarmál að sækja til þessara löggiltu verkstæða, að hin, sem ekki hefðu fengið löggildingu, dæju út alveg sjálfkrafa. En þetta er engan veginn víst, og það mundi velta algerlega á því, hve mörg bifreiðaverkstæði verða löggilt og hvað miklar líkur væru til, að þau gætu fullnægt þeirri eftirspurn, sem um er að ræða.

Þá var hv. 1. þm. Vestf. að spyrja, hvort ætti að löggilda verkstæði úti um allt land. Það fer alveg eftir framkvæmdinni eins og annað í þessu máli. Það fer eftir því, um hvað samkomulag verður hjá dómsmrn. og bifreiðaeftirlitinu. Hann var líka að tala um það, þessi hv. þm., hvað bifreiðaeftirlitið væri dýrt. Og það er satt, það er dýr stofnun, og það þarf ekki að búast við öðru en með meiri starfsemi fari eins hjá þeirri stofnun og öllum öðrum ríkisstofnunum, að eftir því sem meira verk er lagt í þeirra hendur, eftir því verði hærri þeirra rekstrarkostnaður. En ég sný ekki að neinu leyti aftur með það, sem fram er tekið í okkar nál. og ég tók fram líka áðan, að ég ætlast til þess og við í meiri hl. allshn., að þegar reglugerðin er samin og frá henni gengið og ákveðið um það, hvernig framkvæmd þessa máls verði, þá verði það gert á frjálslegan máta, en alls ekki harkalega. Hv. 1. þm. Vestf. var að tala um, að það liti út fyrir, að nefndin hefði gert þessa samþykkt af því, að hún hefði gott traust á núverandi hæstv. dómsmrh. og byggist við því, að það yrði alltaf góður maður í því embætti. Ég skal nú ekki leyna því, að ég hef ágætt traust á núverandi dómsmrh. og treysti honum til alls þess bezta í þessu sem öðru, sem hann starfar að. En ég er ekki svo svartsýnn, að ég búist við því, þó að skipt verði um dómsmrh., að það fari nokkurn tíma maður í það embætti, sem beiti sínu starfi til þess að gera mönnum til ógagns eða bölvunar, bara til þess að þjóna sinni lund. Ég ætlast til þess, að þegar reglugerð er sett, sem á að ákveða algerlega um framkvæmd þessa máls, þá verði hún þannig útbúin, að það sé frjálslega frá því gengið.Og eins og ég áðan tók fram, þá veltur alveg á framkvæmdinni í málinu, og framkvæmdin á að ákveðast í reglugerð, en alls ekki með þessum lögum. Það hefði orðið nokkuð hörð deila og langt mál, ef hefði átt að fara að ákveða í þessum lögum, hvernig framkvæmdin öll yrði. Það er ætlazt til þess, að það sé gert með reglugerðinni.

Hv. síðasti ræðumaður, 3. þm. Vesturl., gat um það, sem alkunnugt er og er eitt aðalatriði, sem stendur til grundvallar fyrir þessu frv., að margar viðgerðarstöðvar bifreiða bæði hér í höfuðstaðnum og hvarvetna úti um land eru ekki svo fullkomnar, að það sé alltaf hægt að treysta því, að viðgerðin á bifreiðinni sé algerlega örugg. Og þessi hv. þm. vék að því, sem er líka kunnugt, að einmitt vegna þeirra hluta, að það er ekki svo öruggt sem skyldi, að viðgerðirnar á biluðum bifreiðum séu alltaf í fullkomnasta lagi, þá er á því nokkur hætta, að það geti stundum stafað slys eða árekstrar af þeim orsökum. Og einmitt öll viðleitni, sem hafin hefur verið af þeim mönnum, sem hafa undirbúið þetta frv. og ætlazt til þess, að það verði gerð ný gangskör að því að bæta þarna úr, þá er það þeirra tilgangur auðvitað, að úr þessu verði bætt sem allra víðast á landinu, að það sé betur en verið hefur fært fyrir alla aðila að treysta þeim, sem fást við það vandasama verk að gera við bilaðar bifreiðar. En mér er kunnugt um það, og ég veit, að mörgum hv. þm. öðrum er það kunnugt, að þeir menn, sem fást við þetta starf, þeir sem hafa fengið lærdóm í því að vera bifvélavirkjar og starfa á verkstæðum og sumir utan verkstæða, hafa aldrei frið fyrir ásókn, því að bilanirnar á öllum þeim þúsundum bifreiða, 18–20 þús. bifreiðum, sem reknar eru hér í landinu, bilanirnar eru svo algengar og tíðar, að eins og sakir standa hefur það verið svo, að þeir menn, sem fást við viðgerðirnar, hafa ekki við ásókninni.

Það kom fram hjá hv. 3. þm. Vesturl. eins og þeim, sem höfðu talað á undan honum, að það virtist svo sem honum fyndist, að frv. gengi ekki nógu langt, af því að það væri ekki alveg skylt að taka undir það þau verkstæði, sem væru rekin eingöngu til að gera við bifreiðar þeirra fyrirtækja, sem þau reka, eins og t.d. vegagerðar ríkisins, Strætisvagna Reykjavíkur o.s.frv. En n. gat alls ekki fallizt á, að það yrði svo langt gengið í þessu máli, og vill heldur mæla með því, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir, í því trausti, að sú reglugerð, sem er aðalatriðið og á að setja samkvæmt frv., verði þannig úr garði gerð, að það sé hægt að gera ráð fyrir því, að frá málinu verði vel gengið.

Varðandi þá till., sem fram kom frá hv. 1. þm. Vestf., að þessari umr. verði frestað og því vísað til allshn. aftur, þá er það mál, sem hæstv. forseti auðvitað algerlega ræður, hvernig meðferðin verður. Ég sé ekki neina ástæðu til þess, þó að umr. verði frestað og jafnvel þótt málið verði tekið af dagskrá og aldrei tekið á dagskrá aftur, þá sé ég enga ástæðu til að vera að vísa því til n., fyrr en þá á milli 2. og 3. umr., en það getur auðvitað komið til mála, ef það eru einhver viss einstök atriði, sem væri þá talin ástæða til að hv. n. tæki til athugunar. En ég er hræddur um, að það væri nokkuð tafsamt, ef það ætti að fara inn á að ræða það, hvort það væri í allshn. eða annars staðar hér í hv. Alþingi, hvernig ætti að vera skipunin á þeirri reglugerð, sem á að ákveða framkvæmdir í þessu efni.

Ég skal svo ekki fjölyrða meira um þetta vandamál, og enda þótt ég búist við því, að ýmsir aðrir taki hér til máls aftur, þá býst ég við, að fyrir hönd meiri hl. n. sé ekki nein ástæða til að ræða þessa hluti meira við þessa umr.