10.03.1961
Efri deild: 70. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (1912)

22. mál, sveitarstjórnarkosningar

Jón Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. 3. þm. Norðurl. v. (ÓlJ) fyrir þá ábendingu um formshlið þessa máls, sem sjálfsagt er að taka til athugunar fyrir 3. umr., þó að þetta komi að vísu seint, þar sem þessi hv. þm. átti sæti í n., sem fjallaði um málið. Um boðun þessa fundar, þegar þessi hv. þm. var fjarverandi, þá fól ég skrifstofu þingsins að boða þann fund, — ég gerði það ekki sjálfur, — og það mættu allir nm. nema þessi hv. þm., og þeir höfðu allir fengið boð. En hvort boðin hafa misfarizt til hv. þm., það get ég auðvitað ekki sagt um né borið neina ábyrgð á. Þá er líka, að það er alllangt síðan þessu nál. var útbýtt, svo að hv. þm. hefði átt að geta fylgzt með afgreiðslu málsins.

En um efnishlið þessa sérstaka frv., sem hér er til umr., um breyt. á l. um sveitarstjórnir, vildi ég leyfa mér að fara nokkrum orðum. Og þá vil ég fyrst og fremst leyfa mér að vitna til grg. hegningarlaganefndarinnar, sem fylgdi frv. um breyt. á almennum hegningarlögum, sem lagt var fram á þingi haustið 1957–58, og ég vil þar einmitt leyfa mér að lesa nokkurn kafla óbreyttan, með leyfi hæstv. forseta:

„Þess er fyrr getið, að óflekkað mannorð sem kosningarréttarskilyrði og kjörgengis var numið úr lögum í Svíþjóð á árinu 1936. Er ekki sýnilegt, að það hafi sætt sérstakri gagnrýni né gefizt illa. Í álitsgerð og till. dönsku og norsku hegningarlaganefndanna frá 1950 var og lagt til, að hliðstæð ákvæði væru afnumin í Danmörku og Noregi, og hefur það nú verið gert. Í Danmörku þurfti til þess stjórnarskrárbreytingu, að því er varðar kosningu til ríkisþingsins, og átti sú breyt. sér stað 1953. Hegningarlaganefndin leggur til, að ákvæðum laga um kosningar til sveitarstjórna verði breytt svo, að óflekkað mannorð sé fellt niður sem kosningarréttarskilyrði og kjörgengis, sbr. frv. á þskj. 229. Að því er kjörgengi varðar sérstaklega, þá virðist ekki vera varhugavert að láta kjósendum það eftir að virða fyrir sitt leyti, hvort þeir treysti dómfelldum manni fyrir umboði sínu eða ekki. N. leggur einnig til, að það skilyrði sé afnumið úr lögum um prestskosningar, að kjósandi þurfi að hafa óflekkað mannorð, sbr. frv. á þskj. 219. Er það leitt af rökum þeim, sem greind eru hér að framan. Um skilyrði kosningarréttar og kjörgengis til alþingiskosninga og annarra stjórnarskrárbundinna kosninga hagar svo til sem fyrr greinir, að þeim ákvæðum verður ekki þokað nema með stjórnarskrárbreyt. N. er þeirrar skoðunar, að frá sakfræðilegu sjónarmiði sé óæskilegt að beita sviptingum almennra þjóðfélagsréttinda sem viðurlögum við brotum, og með vísan til þeirra raka, sem reifuð eru hér að framan, telur n. rétt að nema úr lögum óflekkað mannorð sem skilyrði kosningarréttar og kjörgengis við alþingiskosningar og aðrar þær kosningar, sem rætt er um í stjórnarskrá. Beinir n. þessu til þeirra, sem sýsla um endurskoðun á stjórnarskránni.“ Þetta var kafli úr grg. hegningarlaganefndarinnar, sem ég las.

Ég vil endurtaka, að það er sjálfsagt að athuga ábendingar hv. 3. þm. Norðurl. v., áður en þetta mál fer til 3. umr. En þó get ég að vísu ekki fallizt á, að það sé þá um frekari mistök að ræða hjá þessari n., sem fjallað hefur um málið, heldur en hjá þeim n., sem fjalla um hitt frv., þar sem þessa atriðis hefur ekki verið gætt, að þarna eru tvö frv. á ferðinni fyrir Alþingi, sem e.t.v., — ég skal ekki fullyrða það að óathuguðu máli, — sem e.t.v. geta ekki farið saman.