20.10.1960
Neðri deild: 7. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í C-deild Alþingistíðinda. (1915)

43. mál, úthlutun listamannalauna

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Síðan Alþingi tók að veita fé á fjárlögum til listamannalauna, hafa jafnan orðið deilur og stundum miklar um skiptingu þessa fjár. Hefur ýmiss konar skipulag verið haft á ákvörðunum um, hverjir hljóti listamannalaun. Ýmist hefur Alþingi sjálft skipt fénu eða falið það öðrum aðilum. Alþingi hefur hins vegar aldrei sett fastar meginreglur um það, hvernig fé þessu skuli úthlutað. Ef Alþingi setti slíkar almennar reglur, ætti það að geta dregið úr deilum um úthlutunina, a.m.k. óþörfum deilum, þó að við hinu megi að sjálfsögðu ávallt búast, að sitt sýnist hverjum um ráðstafanir um ákvörðun listamannalauna, og er í sjálfu sér ekkert við því að segja. En úr ástæðulausum deilum mætti eflaust eitthvað draga með því, að Alþingi setti fastar almennar reglur um úthlutunina.

Þetta virðist hafa verið skoðun ýmissa þingmanna undanfarinn áratug, því að nokkur þingmannafrv. hafa verið flutt um þetta efni á síðari árum. Á þingunum 1948–51 flutti ég frv. um þetta efni. Á árunum 1949 og 1950 flutti Magnús Kjartansson einnig frumvörp um úthlutun listamannalauna, og á árinu 1951 fluttu þeir Jónas Árnason og Ásmundur Sigurðsson þetta sama frv. Á þinginu 1955–56 flutti Gunnar Thoroddsen enn fremur frv. um listamannalaun. Ekkert þessara frv. hlaut hins vegar afgreiðslu.

Skömmu eftir að ég tók við forstöðu menntmrn., eða í okt. 1956, skipaði ég nefnd til þess að gera tillögur um, hvernig veiting listamannalauna verði felld í fastara form og betur að skapi þeirra, sem launanna njóta, en verið hefði. Í nefnd þessa skipaði ég sjö listamenn, og var þar um að ræða fulltrúa frá öllum helztu listgreinum, svo og prófessorinn í nútímabókmenntum við háskólann, en formaður nefndarinnar var formaður menntamálaráðs Íslands.

Síðast í janúar 1957 skilaði nefndin áliti til menntmrn., og hafði hún orðið sammála um tillögur sínar. Ráðuneytið athugaði till. nefndarinnar rækilega og ræddi þær við ýmsa aðila. Gerði ráðuneytið nokkrar breytingar á þeim og samdi frv. það, sem hér er nú flutt öðru sinni.

Þetta frv. sendi ráðuneytið Bandalagi ísl. listamanna til umsagnar í september 1958. Stjórn bandalagsins svaraði í október 1958 og lýsti sig í öllum höfuðatriðum samþykka frv., og er bréf þess þar að lútandi prentað með frv. sem fskj. Jafnvíðtæk samstaða um nýskipun á þessum málum mun ekki áður hafa náðst. Gerði ég mér því nokkrar vonir um, að málið mundi geta náð fram að ganga á Alþ., og fór þess á leit við hv. menntmn. Nd., að hún flytti frv. á þinginu 1959–60. Nokkur ágreiningur varð hins vegar um málið í nefndinni og hlaut það ekki afgreiðslu. Er málið nú flutt öðru sinni.

Ég er sannfærður um, að það væri til mikilla bóta, að Alþingi setti einhverjar fastar reglur um úthlutun listamannalauna, og óska þess því eindregið, að Alþingi afgreiði nú málið. Hins vegar get ég mjög vel skilið, að mönnum geti sýnzt nokkuð sitt hverjum um það, hverjar þessar reglur skuli vera, t.d. hverjir skuli úthluta listamannalaunum, hversu margir flokkar launanna skuli vera og hver launaupphæðin í hverjum flokki. Það er og engan veginn óeðlilegt, að mönnum sýnist sitt hverjum um það, hvort ástæða sé til þess, að þeir, sem föstu heiðurslaunin hljóta, skuli skipa listráð, og þó að menn séu á þeirri skoðun, þá geti menn greint á um, hvernig til þess skuli valið.

Ég vil taka skýrt fram, að ég er fyrir mitt leyti engan veginn þeirrar skoðunar, að þau ákvæði í þessum efnum, sem felast í þessu frv., séu hin einu réttu. Ég er fyrir mitt leyti fús til að fallast á ýmsar breytingar á ákvæðum þessa frv. Ég get jafnvel gengið svo langt að segja, að í mínum augum er aðalatriðið, að settar séu einhverjar fastar reglur um úthlutun listamannalaunanna, og þær fái síðan að haldast óbreyttar um nokkurt skeið, en ekki hitt, hverjar þessar reglur séu.

Ég vil þess vegna mjög mælast til þess, að þetta frv. verði afgreitt í einhverju formi á þessu þingi, því að ég er sannfærður um, að lagasetning um úthlutun listamannalauna mundi skapa aukna festu í þessum efnum og draga úr hinum hvimleiðu deilum, sem hér hafa orðið undanfarið um þessi mál.

Ég skal nú víkja nokkuð að efni frv. og þeirri skipulagsbreytingu, sem það gerir ráð fyrir á úthlutun listamannalauna frá því, sem nú er. Gert er ráð fyrir því, að 10 listamenn skuli hljóta föst heiðurslaun árlega, 35 þús. kr. á ári. Aðeins tveir listamenn njóta nú 33220 kr. launa samkv. fjárlagaákvæði, þeir Gunnar Gunnarsson og Halldór Kiljan Laxness, en fimm aðrir sömu launa samkv. ákvæðum úthlutunarnefndar Alþingis. Þótt hefur eðlilegt, að þeir listamenn, sem slíkra fastra heiðurslauna njóta, inni af hendi nokkra þjónustu við ríkisvaldið. Er því í frv. gert ráð fyrir, að þeir skipi listráð og séu ríkisvaldinu til ráðuneytis um listmál.

Í 2. gr. frv. eru ákvæði um, hverjir hljóta skuli þessi föstu heiðurslaun og þar með sæti í listráðinu. Á val þeirra að vera í höndum 12 manna, sem tilnefndir séu af menntmrh., háskólaráði, menntamálaráði og stjórn Bandalags ísl. listamanna, þrír menn frá hverjum aðila.

Að öðru leyti en snertir hin föstu heiðurslaun listráðsmanna, skal listamannalaunum úthlutað í þrem flokkum, og er launaupphæð hvers flokks ákveðin í 1. gr. frv., 20 þús. kr. 12 þús. kr. og 6 þús. kr. Enn fremur er kveðið svo á, að ekki færri en 25 listamenn skuli njóta 20 þús. kr. launa. Úthlutun þessara árlegu listamannalauna skal gerð af fimm manna nefnd, er skipuð sé til þriggja ára hverju sinni. Menntmrh. á að skipa formann n. án tilnefningar, en hina fjóra nefndarmennina samkv. tilnefningu heimspekideildar Háskóla Íslands, menntamálaráðs, listráðs og fulltrúaráðs Bandalags ísl. listamanna. Þetta eru aðalatriði frv.

Til samanburðar má geta þess, að við síðustu úthlutun listamannalauna voru flokkar launanna fjórir, 33220 kr., sem fimm menn hlutu auk þeirra tveggja, sem Alþ. ákveður sjálft laun til, 20 þús. kr., þá upphæð hlutu 17 menn, 10 þús. kr., þá upphæð hlutu 56 menn, og 5 þús. kr., þá upphæð hlutu 32 menn. 110 mönnum var á þessu ári úthlutað listamannalaunum, að frátöldum þeim tveim, sem sérstök ákvæði eru um í fjárlögum. Helzti gallinn, sem menn hafa yfirleitt verið sammála um, að verið hafi á úthlutun listamannalauna undanfarin ár, er sá, að sú fjárhæð, sem Alþingi hefur veitt í þessu skyni, hafi skipzt í of marga staði og upphæð launanna því yfirleitt verið of lág til hvers einstaks. En nú eru veittar í fjárlögum 1 millj. 260 þús. kr. til listamannalauna. Í þessu frv. er að vísu gert ráð fyrir því, að 350 þús. kr. verði varið til hinna föstu heiðurslauna og ekki minna en 500 þús. kr. til launa í hæsta flokknum, sem árlega yrði úthlutað í, svo að 850 þús. kr. yrði varið árlega til ekki færri en 35 listamanna. Allt að 410 þús. kr. yrðu því til úthlutunar í 12 þús. kr. og 6 þús. kr. flokkunum, miðað við óbreytta fjárlagaupphæð. E.t.v. mundi af samþykkt þessa frv. leiða, að njótendum listamannalauna fækkaði eitthvað, þótt talan sé hins vegar ekki bundin við neitt hámark, svo að það verður í raun og veru alveg á valdi úthlutunarnefndar, svo sem verið hefur, hvort eða um hversu mikla fækkun launþega yrði að ræða.

Þá skal ég fara fáeinum orðum um það, að hvaða leyti þetta frv. er frábrugðið upphaflegum tillögum nefndar þeirrar, sem ég gat um í upphafi máls míns:

1) Nefndin taldi nauðsynlegt að fækka verulega þeim, sem njóta listamannalauna. Hún gerði ráð fyrir því, að flokkarnir yrðu þrír og launin ákveðin í hverjum flokki. Tillögur n. hefðu þýtt það, að launþegum hefði fækkað úr rúmlega 100 í um það bil 60. Mér þótti hér vera um of mikla fækkun að ræða. Eru því ákvæðin þannig, að það er á valdi úthlutunarnefndar samkv. frv., hvort eða um hversu mikla fækkun launþega yrði að ræða. Persónulega er ég þeirrar skoðunar, að réttara sé að hækka launin til hvers einstaks, en fækka þeim, sem þeirra njóta.

2) N. hafði ætlað 12 mönnum sæti í listráði, en í frv. er sú tala lækkuð í 10.

3) Í frv. n. var menntmrh. ætlað að eiga sæti í kjörstjórn kjörráðs o,g listráðs. Hér er gert ráð fyrir því, að ráðuneytisstjóra menntmrn. sé ætlað slíkt sæti.

4) N. gerði ráð fyrir því, að listamannalaun skyldu vera skattfrjáls. Það er hins vegar ekki eðlilegt að breyta ákvæðum skattalaga í frv. um úthlutun listamannalauna. Í fyrra skiptið, þegar þetta frv. var flutt, var hins vegar tekið í það ákvæði um, að listamannalaunin skuli breytast í hlutfalli við breytingar á kaupgjaldsvísitölu. Þar eð síðan hefur verið bannað með lögum, að kaupgjald breytist sjálfkrafa í samræmi við breytingar á kaupgjaldsvísitölu, hefur þetta ákvæði nú verið fellt niður.

Þá skal ég að síðustu fara fáeinum orðum um þau þingmannafrv., sem áður hafa verið flutt um þetta efni og ég gat um áðan. Sameiginlegt þeim öllum var að gera ráð fyrir fækkun launaflokka frá því, sem verið hafði hjá úthlutunarnefndunum. Í frv. mínu var gert ráð fyrir því, að launaflokkarnir yrðu fjórir, og í frv. þeirra Magnúsar Kjartanssonar, Jónasar Árnasonar og Ásmundar Sigurðssonar var gert ráð fyrir aðeins þrem launaflokkum. Í frv. Gunnars Thoroddsens var gert ráð fyrir 4 föstum launaflokkum, sem í væru samtals 36 menn, en auk þeirra launa, sem þeir hljóti, sé kveðið á um árlega úthlutunarupphæð. Í frv. Magnúsar Kjartanssonar, Jónasar Árnasonar og Ásmundar Sigurðssonar voru engin ákvæði um upphæð listamannalaunanna, en hins vegar hlutföll milli launaflokka, og voru þau tölurnar 5, 3 og 1. En í frumvörpum okkar Gunnars Thoroddsens voru nefndar ákveðnar upphæðir í hverjum flokki, 20 þús. kr., 15 þús. kr., 12 þús. kr. og 8 þús. kr. í frv. Gunnars Thoroddsens, en 18 þús. kr., 9 þús. kr., 6 þús. kr. og 3 þús. kr. í frv. mínu. Í þessu sambandi er þess að geta, að frv. Gunnars Thoroddsens var flutt 1955, en mitt upphaflega 1948. Í frv. mínu var ákvæði um það, að launin í fyrsta flokki skuli alltaf veitt 12 mönnum og skuli þau vera heiðurslaun. Þeir, sem hlotið hafi þau í fimm ár, skuli njóta þeirra ævilangt og skipa listráð, sem sé menntamálaráðuneyti og menntamálaráði til ráðuneytis um mál, er varða listir. Í frv. þeirra Magnúsar Kjartanssonar, Jónasar Árnasonar og Ásmundar Sigurðssonar var kveðið svo á, að listamaður, sem hefði komizt fimm sinnum í annan hvorn hærri flokkanna, verði ekki lækkaður í flokki úr því. Samkv. frv. Gunnars Thoroddsens skyldi tekið tillit til tekna og efnahags listamanna, þegar þeim væru ákvörðuð laun, en slík ákvæði voru ekki í hinum frumvörpunum. Skv. frv. mínu skyldi sameinað Alþingi ákveða, hverjir listamenn hljóti heiðurslaun, en menntamálaráð annast árlega úthlutun listamannalauna að öðru leyti. Þó skyldi það leita umsagnar listráðs og heimspekideildar Háskóla Íslands um tillögur sínar, áður en þær verði endanlega samþykktar. Í frv. Magnúsar Kjartanssonar, Jónasar Árnasonar og Ásmundar Sigurðssonar var úthlutun listamannalauna falin nefnd, sem skipuð væri fulltrúum frá menntamálaráði, formanni Bandalags ísi. listamanna og einum manni úr háskólaráði. Samkv. frv. Gunnars Thoroddsens skyldu þeir sex menn, sem njóta hæstra launa, kosnir af sameinuðu Alþingi, en hina skyldi menntmrh. ákveða eftir tilnefningu menntamálaráðs og heimspekideildar Háskóla Íslands, eða fimm manna, sem hún kýs. Listamannafé, sem veitt er árlega, skyldi samkv. frv. Gunnars Thoroddsens úthlutað af þingkjörinni nefnd eftir nánari ákvæðum í fjárlögum, en að fengnum tillögum menntamálaráðs og fimm manna nefndar kosinnar af fulltrúaráði Bandalags íslenzkra listamanna.

Svo sem af þessu sést, hefur þingmönnum á undanförnum árum sýnzt nokkuð sitt hvað um, hvaða hátt skuli hafa á þessum málum, og má búast við, að þeim sýnist svo enn. Þó eru viss meginatriði sameiginleg öllum þeim þingmannafrumvörpum, sem flutt hafa verið rúman síðasta áratug, og þessu frv.

Ég vil að síðustu leggja áherzlu á, að hv. menntmn., sem væntanlega fær þetta mál til meðferðar, reyni að ná sem víðtækastri samstöðu með flokkum og þingmönnum um einhverja lagasetningu um þetta efni. Ég veit, að samtökum listamanna er það sérstakt áhugamál, að lög verði sett um þetta mál. Þótt samtökin hafi að vísu enn þá meiri áhuga á því, að sjálf upphæð listamannalaunanna sé hækkuð, en um hana fjallar þetta frv. ekki, þar eð hún er ákveðin í fjárlögum, þá munu listamannasamtökin gera sér ljóst, að aukin festa í þessum efnum horfir til bóta, svo sem meðmæli stjórnar Bandalags íslenzkra listamanna með þessu frv. frá því í október 1958 sýna.

Um leið og ég leyfi mér að leggja til, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn., vildi ég mega mælast til þess við n., að hún leitist við að skapa sem víðtækasta samstöðu um lagasetningu um úthlutun listamannalauna, og ég fyrir mitt leyti er reiðubúinn til allrar þeirrar samvinnu við n., sem orðið gæti til þess að stuðla að slíku.