17.10.1960
Neðri deild: 5. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í C-deild Alþingistíðinda. (1920)
44. mál, áburðarverksmiðja
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er gamall kunningi okkar frá í fyrra og fékk þá slíkar móttökur í þinginu, að þótt stjórnarfrv. væri, var það ekki afgr., og enginn í fjhn. virtist vilja styðja að því, að þetta frv. yrði afgr.
Nú er þetta frv. flutt á ný, og það er ekki nema rétt, að nú þegar við 1. umr. þess verði nokkur umr. um þann framgangsmáta, sem þetta frv. ber vott um. Það var svo, að á meðan við höfðum þetta frv. til meðferðar í fjhn., þá bárust okkur reikningar áburðarverksmiðjunnar fyrir 1959. Það var greinilegt af þeim reikningum, að þar hafði ekki verið farið að lögum. Í reikningum áburðarverksmiðjunnar fyrir 1959 höfðu lög verið brotin. Sem stendur er nákvæmlega fyrir mælt, hvernig fyrningarafskriftir skuli fara fram, í lögunum um áburðarverksmiðjuna, nr. 40 frá 23. maí 1949, og þar er svo fyrir mælt, með leyfi hæstv. forseta, í 10 gr.: „Framlag áburðarverksmiðjunnar til fastra sjóða hennar skal vera á hverju ári sem hér segir: a) Til fyrningarsjóðs 2½% af kostnaðarverði húsa, lóðar og annarra mannvirkja og 7½% af kostnaðarverði véla og annarra áhalda. b) Til varasjóðs allt að 3% af kostnaðarverði framleiðslunnar.“
Þegar reikningar áburðarverksmiðjunnar í fyrra fyrir árið 1959 eru athugaðir, þá kemur í ljós, að þar ern uppfærðar fyrningarafskriftir upp á 14 millj. og 981 þús. kr., eða tæpar 15 millj. kr. Samkvæmt ákvæðum laganna mundu framlögin til fyrningarsjóðs vera um 8 millj. kr. á árinu 1959. Fyrningarafskriftirnar á árinu 1959 eru því í reikningunum settar tvöfalt hærri en lög gera ráð fyrir.
Það er eftirtektarvert, að á þessu var vakin athygli hér á Alþingi í fyrra, en mér er ekki kunnugt um, að þessu hafi verið breytt, og ég vil spyrja þá menn, sem þykjast sérstaklega standa á verði fyrir lög í þessu landi, hvort einni stofnun, jafnvel þótt ríkisstofnun sé, geti haldizt það uppi í sínum reikningum að þverbrjóta lög, og alveg sérstaklega vildi ég beina þeirri fsp. til hæstv. landbrh., sem þessi stofnun heyrir undir og ég held þar að auki að eigi sæti í stjórn stofnunarinnar. Mig minnir, að í framsöguræðu, sem hann hélt fyrir þessu máli hér í fyrra, hafi hann sagt, að sér hafi verið bent á, að þetta mundu vera nokkuð litlar afskriftir, svo dýrmæt sem þessi verksmiðja væri orðin. Spurningin stóð ekki um það, hvort einhver ákvæði væru skynsamleg eða óskynsamleg. Spurningin var um það, hvort þau væru lög og hvort ein stjórn, sem stjórnar stofnun eins og áburðarverksmiðjunni, eigi að fara að lögum eða ekki, eða hvort hún eigi að geta farið að sínum eigin geðþótta. Það kann oft að vera, að einhverjum stjórnendum finnist eitthvað annað rétt og skynsamlegt en það, sem eru lög. En almennt er ekki álitið í þjóðfélaginu, að þeir hafi leyfi til þess að fara eftir því, og þess vegna var þetta borið fram í fyrra af hæstv. ráðh., að hann vildi láta breyta lögunum, þótt búið væri áður að brjóta þau, og ætlaði þannig að láta löghelga lögbrotið eftir á. Það tókst ekki þá. Nú virðist eiga að reyna að gera þetta á árinu á eftir.
Hvernig stendur nú á þessu? Hvernig stendur á þessu lögbroti hjá stjórn áburðarverksmiðjunnar? Hvað er það, sem stjórn áburðarverksmiðjunar vill reyna að dylja og kannske hæstv. ríkisstj. eða einhver hlutinn af henni hefur áhuga á að dylja í sambandi við þessi mál? Á reikningum áburðarverksmiðjunnar fyrir árið 1959, þar sem niðurstöðutölurnar eru rúmar 48 millj., kemur í ljós, að öll vinnulaun við þessa verksmiðju eru tæpar 5 millj. kr., 4.9 millj. kr. Það kemur enn fremur í ljós, að þeir vextir, sem stofnunin verður að greiða, eru líka tæpar 5 millj. kr., 4.7 millj., rétt 200 þús. minni en öll vinnan. Og þar að auki kemur í ljós, að með þessari vaxtagreiðslu og með því að færa til fyrningarsjóðanna afskriftir upp á 15 millj., þá er samt sem áður tæpra 4 millj. kr. hreinn gróði.
M.ö.o.: svo framarlega sem farið hefði verið að lögum við reikninga áburðarverksmiðjunnar í fyrra, þá hefðu fyrningarafskriftirnar verið 7 millj. kr. minni en fært er á reikningunum, gróði áburðarverksmiðjunnar því 11 millj. kr. Það virðist alveg sérstaklega eiga að reyna að dylja það, að þetta fyrirtæki græði á árinu 1959 11 millj. kr. fyrir utan að borga til vissrar fjármálastofnunar tæpar 5 millj. kr. í vexti. Þetta stendur e.t.v. eitthvað í sambandi við það, að hæstv. ríkisstj. og hennar stuðningsflokkar voru búnir að breiða út þau ósannindi, m.a. í lögum og grg. hér frá Alþingi, að verkamenn í landinu hefðu of há laun, en auðmagnið í landinu, fjármagnið sem sagt, ekki nægilegt í sinn hlut. Fjármagnið í landinu fékk í sinn hlut frá áburðarverksmiðjunni 11 millj. kr. í hreinan gróða plús 5 millj. kr. í vexti af fénu, alls 16 millj, kr. Á sama tíma fá verkamennirnir, sem vinna vinnuna í þessari verksmiðju, 5 millj. kr. í laun, og í upphafi þessa reikningsárs, 1959, höfðu laun þeirra verið lækkuð með lagaboði um ½ millj. kr. á síðasta ári til þess að auka gróða verksmiðjunnar, af því að því var haldið fram af hálfu stjórnarvaldanna, að atvinnulífið í landinu stæði ekki undir hinu háa kaupgjaldi verkalýðsins.
Ofan á allar þær blekkingar og öll þau ósannindi, sem flutt hafa verið almennt í sambandi við alla efnahagsvitleysu ríkisstj., þá var því bætt ofan á í sambandi við áburðarverksmiðjureikningana að falsa reikninga og brjóta lög til þess að reyna að dylja, hvernig arðurinn, sem verkalýðurinn í landinu skapar, skiptist. Laun, sem verkamennirnir höfðu haft, upp á tæpar 5½ millj. kr. á ári, voru lækkuð um ½ millj., en reynt síðan að fela 7 millj. kr. af gróðanum, sem þessi áburðarverksmiðja hafði á sama tíma. Þetta var greinilega allt með ráðum gert. Það á að reyna að halda áfram að básúna það út hér, að atvinnulífið í landinu geti ekki borið sig og að verkalýðurinn í landinu megi ekki hækka kaupið, til þess að stórgróðamenn landsins og fjármagnið í landinu geti mokað til sín auði. Og þegar svo lög, eins og lögin um áburðarverksmiðju, fyrirmælin um fyrningarafskriftirnar, koma í bága við þetta, þá eru einfaldlega lögin brotin og það af þeim sömu háu herrum, sem alltaf þykjast standa á verði um, að lögin séu haldin, og sjálf ríkisstj. tekur þátt í þessu.
Við höfum hér eitt gott dæmi, eitt af þeim fáu dæmum, þar sem við höfum reikninga eins fyrirtækis, og ég hafði við umr. í fyrra lýst eftir að fá reikninga fleiri fyrirtækja hér lagða fram, til þess að það væri ekki hægt í sífellu að reyna að blekkja almenning í landinu um, að það væri kaupgjald verkalýðsins, sem væri að setja atvinnulífið á hausinn. Það er fégræðgin og svindlið hjá þeim stjórnendum, sem ráða yfir verksmiðjum eins og þessari, sem leikur atvinnulífið illa, svo illa meira að segja, að þeir kunna varla við að sýna sjálfir, hvílíkum ofsagróða þeir eru að safna til sín. Þess vegna álít ég, að þegar þetta mál er lagt fyrir Alþingi nú, þá hefði borið, ekki sízt hæstv. landbrh. og stjórnanda verksmiðjunnar, að skýra nokkuð frá því, hver háttur hefði verið hafður á um reikninga síðasta árs, og biðja afsökunar á því, hvernig frá þeim reikningum var gengið.
Það liggur sem sé í augum uppi um þetta fyrirtæki, eitt helzt stóriðjufyrirtæki í landinu, að af 48 millj. kr. veltu eru vinnulaunin 5 millj. tæpar, en hlutur fjármagnsins í hreinan gróða 11 millj. og í vexti til banka 5 millj., eða hlutur fjármagnsins samanlagt 16 millj. Og vegna þess að vissir menn í blekkingaskyni dirfast að halda því fram, að laun verkalýðsins í landinu séu of há, þá eru þau lækkuð með lögum um hálfa millj. á árinu 1959.
Þetta er hvað snertir reikningana 1959. En mætti ég nú biðja um, fyrst þetta mál fer í n., sem ég á sæti í, að fyrir þá n. verði lagðir reikningar áburðarverksmiðjunnar, eins og þeir standa í dag, eins og þeir standa nú í október 1960?
Það var lítið, sem stolið var, þegar Alþfl.-stjórnin sat að völdum, það var ekki nema hálf milljón, sem var stolið af verkamönnunum í áburðarverksmiðjunni. Síðan núv. hæstv. ríkisstj. tók við völdum, hafa orðið miklar framfarir á þessu sviði þjófnaðarins. Þá hafa launin verið lækkuð, þannig að þau hafa farið lækkandi með hverjum mánuði á árinu 1960. Og hvað hefur gerzt á sama tíma gagnvart bændum og almenningi? Ég veit ekki betur en áburðarverð hafi verið hækkað og jafnvel svo kannske aukin um leið niðurgreiðsla úr almenningssjóði á áburðarverði, sem þýðir raunverulega líka hækkun. Mikið var tekið af verkamönnum og bændum með lækkuðum launum og hækkuðu áburðarverði á árinu 1959, en meira mun hafa verið tekið á árinu 1960.
Það hefði verið eðlilegt, þegar verksmiðja gefur eins mikið af sér og þessi, að annaðhvort hefði verið gert eða hvort tveggja, að hækka laun við verkamenn í verksmiðjunni og að lækka verð á áburðinum til bændanna. En það, sem er gert, er það, að í viðbót við ránið, sem framið var 1959, er ránið aukið á árinu 1960.
Ég sé ekki betur en það sé sannarlega tími til kominn fyrir verkamenn og bændur að taka höndum saman um að skakka leikinn, þennan gróðaleik auðmagnsins hér á Íslandi, verkamenn að hækka sín laun, og bændur að fá lækkað verð á sínum áburði. Ég sé ekki betur en 16 millj. kr. fúlgan, sem reynt var að fela á reikningunum 1959, muni vera allmiklu hærri á árinu 1960 og mun gera mitt til þess að upplýsa það mál, ef ekki á að halda leyndum öllum reikningum ríkisfyrirtækja fyrir Alþingi.
Nú vilja menn kannske spyrja: Hvernig stendur nú á því, að þeir menn, sem annars kannske hafa ekkert sérstaklega mikinn áhuga á að ríkisfyrirtæki beri góðan ávöxt, skuli leggja sig svo fram um að lækka laun verkamanna í áburðarverksmiðjunni og hækka áburðarverð til bænda, að arðræna bæði verkamenn og bændur í einu, en safna því meiri gróða til verksmiðjunnar, sem er ríkisfyrirtæki og ríkiseign? Það er máske ekkert óeðlilegt, að menn spyrji að því, hvaðan komi þessum stjórnendum og hæstv. ríkisstj. áhuginn á að auka svo þennan gróða. Og það hefði kannske verið hægt að upplýsa, hver ástæðan var, jafnvel þótt hv. 1. þm. Vestf. (GíslJ) hefði ekki verið svo elskulegur að koma með þær brtt., sem hann ber hér fram. Það er greinilegt, hvaðan áhuginn kemur um að auka gróða þessarar verksmiðju. Hann kemur frá sömu mönnunum sem vilja stela þessari verksmiðju úr eign ríkisins, sem vilja brjóta þau lög, að verksmiðjan sé sjálfseignarstofnun, og gera hana að eign lítils hlutafélags. Fyrst á að safna þarna auði, 11 millj. kr. á ári og kannske meir, á kostnað verkamanna og bænda. Samtímis á að hindra, að gert sé út um það endanlega, að ríkið sé eigandi þessarar verksmiðju, eins og það er lögum samkvæmt. Og svo á að nota heppilegt tækifæri til þess að stela henni algerlega úr eigu ríkisins.
Við þekkjum þennan leik. Það hefur verið reynt að leika þetta á Alþingi áður. Það efaðist enginn um, að þessi áburðarverksmiðja væri ríkiseign, upphaflega, þegar lögin voru sett. Forsrh. þeirrar stjórnar, sem setti lögin, gaf ótvíræða og skýra yfirlýsingu um það. Núv. forseti Íslands gaf ótvíræða og skýra yfirlýsingu um þeirra skilning á þessum lögum. Það voru þeir Stefán Jóh. Stefánsson og Ásgeir Ásgeirsson. Það er enginn efi á því, að eftir lögunum er þetta eign ríkisins. En þegar Marshallsamningarnir hófust hér á Íslandi, þegar afskipti og yfirráð amerísks einkaauðvalds byrjuðu í okkar þjóðfélagi, þá var reynt að koma því svo fyrir, að ríkisfyrirtækin væru tekin úr eign ríkisins og sett í eign einstakra manna. Að slíku undirlagi var 13. gr. laumað inn við meðferð málsins vordagana 1949, og vegna slíks ágangs var sementsverksmiðjan tafin í tvö ár, af því að erindrekar amerísks auðvalds á Íslandi heimtuðu, að hún yrði einkafyrirtæki, en ríkisstj., sem þó var afturhaldssöm ríkisstjórn þá, stóð á móti því og lét aldrei undan með það. En þegar stofna átti Framkvæmdabankann, átti að afhenda áburðarverksmiðjuna einkaaðilum um bakdyrnar. Þá var í upphaflegu frv. ríkisstj. lagt til að afhenda hlutabréf ríkisins í rekstrarfélaginu Áburðarverksmiðjunni h/f, og Benjamín Eiríksson kom þá upp um það, að það væri meiningin að selja þau á nafnverði seinna meir, og svo átti auðvitað að koma yfirlýsing um, eins og raunar var þá komin frá vissum ráðherrum, að áburðarverksmiðjan væri eign hlutafélagsins. Það átti að lauma henni úr eign ríkisins á þennan hátt.
Það má þó hv. 1. þm. Vestf. eiga, að hann gengur hreint til verks. Með tillögu sinni, sem hann mælti fyrir áðan, vildi hann, fyrir utan að lýsa því yfir sem sinni skoðun, að verksmiðjan væri eign hlutafélagsins, rekstrarhlutafélagsins, láta safna ótakmörkuðu hlutafé og selja það á nafnverði. Það er þægileg aðferð til að verða ríkur fyrir þá, sem kaupa slík hlutabréf. Verksmiðjan er 245 millj. kr. virði í dag, eða endurnýjunarverð hennar mundi a.m.k. verða það, segir ríkisstj. 10 millj. kr. eru hlutafé. Að kaupa hlutabréf í slíku fyrirtæki á nafnverði, það er góður gróði. Og meira að segja datt hv. 1. þm. Vestf. í hug, að jafnvel ætti að setja það inn í lögin að greiða venjulega útlánsvexti. Er vaninn að setja það ákvæði um almenn hlutafélög einkafjármagnsins hér á Íslandi? Er það bara til þess að tryggja auðmennina gagnvart bændunum í landinu, að ætti að setja það inn?
Slík aðferð, sem þarna er stungið upp á, er ný tilbreyting frá aðferðinni, sem átti að nota, þegar Framkvæmdabankinn var stofnaður, til þess að ná þessu fyrirtæki úr eign ríkisins. Mér sýnist, að það, að svona tillaga skuli koma fram hér nú, sýni okkur, hver yfirgangur fjármagnsins er að, verða á Íslandi. Og það er tími til kominn að verkamenn og bændur í landinu, þeir menn, sem skapa hér verðmæti upp á tugi millj. kr., en fá sjálfir fyrir sína vinnu 5 milljónir, fari að segja til, að þeir þoli þetta ekki lengur.
Hver milljónatugurinn, sem áburðarverksmiðjan græðir, gerir hana auðvitað girnilegri í augum braskaranna hér í Reykjavík. Og það er ósköp þægileg aðferð, eftir að búið er með lögum að stela af verkamönnum kaupi þeirra, upp undir tveggja ára tímabil nú, að ætla svo með lögum að gefa einkaauðvaldinu í landinu möguleika til þess að ná ríkisfyrirtækjunum undir sig og það svona ódýrt.
Mér sýnist svindlið vera farið að færast nokkuð mikið upp á skaftið hér, meira að segja í þingsölunum nú. Hins vegar kann ég betur við, að þetta komi fram sem svona brtt. eins og hjá hv. 1. þm. Vestf., heldur en einhverjir ráðherrar séu að gefa yfirlýsingar um það, að þessi verksmiðja sé ekki ríkiseign, heldur eign þessa hlutafélags. Það er auðséð á öllu, að það þolir enga bið, að ákvarðanir verði teknar í þessum efnum, um eignarréttinn á þessari verksmiðju.
3. gr. laganna er ótvíræð, hún hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Verksmiðjan er sjálfseignarstofnun, er lýtur sérstakri stjórn. Verksmiðjuna má hvorki selja né veðsetja, nema heimild sé veitt til þess af Alþingi.“
Þegar mitt frv., sem oft hefur verið flutt hér áður, var afgreitt í fyrra, var því vísað til ríkisstj., og í þeirri greinargerð, sem meiri hl. fjhn. samdi þá, var tekið, einmitt frá þeirra sjónarmiði, af fullri ábyrgðartilfinningu á þessu vandamáli. Nefndarálit meiri hluta fjhn. hljóðaði svo, með leyfi hæstv. forseta, — það voru fjórir meðnefndarmenn mínir, sem fluttu það:
„Sams konar frv. eða svipað hefur áður verið flutt á þingi, en ekki hlotið afgreiðslu. Verður að viðurkenna, að hér er um mjög veigamikið mál að ræða, þar sem eigi er talið ótvírætt um eignarrétt áburðarverksmiðjunnar samkv. 3. og 13. gr. áburðarverksmiðjulaganna. í 3. gr. er svo ákveðið, að verksmiðjan skuli vera sjálfseignarstofnun. Í 13. gr. eru hins vegar ákvæði um, að ríkisstj. sé heimilt að leita eftir þátttöku félaga eða einstaklinga um hlutafjárframlög og verksmiðjan skuli þá rekin sem hlutafélag. Eftir að þessi heimild var notuð, hafa komið fram á Alþingi nokkuð skiptar skoðanir um eignarréttinn að verksmiðjunni. Meiri hluti fjhn. telur rétt, að málið fái afgreiðslu á þinginu, og leggur til, að því sé vísað til ríkisstj. til athugunar.“
M.ö.o.: þessu frv. mínu, sem taka skyldi af öll tvímæli um eignarréttinn á áburðarverksmiðjunni, stærsta fyrirtækinu á Íslandi, 245 millj. kr. fyrirtæki, því var vísað til ríkisstj. af hennar eigin stuðningsmönnum og öðrum í fjhn. með ákaflega velviljaðri og skynsamlegri grg. frá þeirra hálfu, til þess að ríkisstj. athugaði þetta mál.
Nú er komið hér fram frv. frá hæstv. ríkisstj. um breytingu á lögunum um áburðarverksmiðju. því er ekki farið einu einasta orði, ekki einu einasta grein, sem tekur af tvímælin um, hver sé eigandi áburðarverksmiðjunnar. Ég leyfi mér því að beina þeirri fsp. til hæstv. landbrh., sem þetta mál sérstaklega heyrir undir: Hefur ríkisstj. athugað það frv., sem til hennar var vísað? Hefur hún talið það þess vert, þegar skiptar skoðanir hafa komið fram á Alþingi í 10 ár og aldrei fengizt úr því skorið, hver skoðun hefði við lög að styðjast, þar sem tvær lagagreinar að ýmissa áliti stangast á, — og ég álít, að 3. gr. sé ótvíræð og ráði í þessum efnum, — hefur hæstv. ríkisstj. álitið það rétt að taka þetta mál til athugunar, að ræða þetta mál, koma sér niður á sína eigin skoðun í þessu máli, hverjir séu eigendur þessarar áburðarverksmiðju?
Mér er ósköp vel kunnugt um, að það hefur ekki verið neinn meiri hluti fyrir þeim skilningi, sem oft hefur verið haldið hér fram af sumum, að áburðarverksmiðjan væri eign hlutafélagsins. Það hefur enginn meiri hluti verið fyrir því á Alþingi. Það hefur meira að segja aldrei verið meiri hluti fyrir því í fjhn. þessarar hv. deildar. En það er alveg óhugsandi að láta þetta ganga svona langt. Og þó að við hv. i. þm. Vestf. séum mjög ósammála um stefnuna í þessum málum, þá býst ég við, að hann sé mér sammála um það, að ef samþykkja ætti hans brtt., þá mundi hann vafalaust vilja vita og þeir menn, sem ættu að leggja fram hlutafé, hvort þeir væru að leggja fram hlutafé í hlutafélag, sem ætti áburðarverksmiðjuna, eða í hlutafélag, sem ætti bara að sjá um reksturinn á henni. Það er tvennt alveg ólíkt. Annað væri mjög gróðavænlegt fyrirtæki, hitt væri kannske ekki allt of öruggt. Þess vegna er það alveg ótvírætt, að þetta mál þolir enga bið lengur og er satt að segja búið að bíða allt of lengi.
Þetta vildi ég segja viðvíkjandi höfuðmálinu í sambandi við þetta, viðvíkjandi fyrningarafskriftunum, viðvíkjandi eigninni á verksmiðjunni, sem verður alltaf aðalmálið, hvenær sem frv. um áburðarverksmiðju verður lagt hér fyrir, þangað til úr því er endanlega kljáð.
En svo kemur annað mál. Ef samtímis því sem Alþingi tæki nú af öll tvímæli um, hvað væru lög í þessum efnum, og slægi föstum eignarrétti ríkisins á áburðarverksmiðjunni, þá kemur spurningin um, hvort þessar fyrningarafskriftir séu réttar og eðlilegar út af fyrir sig. Þó að menn þá vissu handa hverjum þeir væru að afskrifa þetta, hvort það væri handa ríkinu sjálfu eða hvort það væri handa einhverjum einkaaðilum, er þá rétt að fara inn á það að veita svona miklar fyrningarafskriftir, þannig að það sé tekið upp á því að afskrifa fyrirtæki með hliðsjón af því, hvað kosti að endurnýja það?
Sú regla, að afskrifa fyrirtæki með hliðsjón af því, hvað kostar að endurnýja það, er, eftir því sem ég bezt veit, — og ef einhver hv. þdm. veit betur, þá vona ég, að hann upplýsi það, — hún er hvergi nokkurs staðar til viðvíkjandi neinum fyrirtækjum á Íslandi. Menn hafa rétt til þess að afskrifa fyrirtæki eftir sérstökum lögum, skattalögunum eða öðrum sérstökum lögum, og því er yfirleitt mjög strangt framfylgt. Allt er þetta miðað við kostnað fyrirtækisins. Þetta kann að vera rangt, þetta kann að vera óþægilegt, þetta kann að vera óskynsamlegt eða annað slíkt. Um það má deila endalaust. En eitt er víst, að það eru alveg ákveðin lög um, hvernig fyrningarafskriftirnar séu, og þær miðast við kostnaðarverð fyrirtækisins.
Ef nú áburðarverksmiðjan ætti að fá alveg sérstaka heimild viðvíkjandi afskriftum, allt öðruvísi en ýmis önnur fyrirtæki, er þá ekki eðlilegt að athuga um leið, hvort önnur fyrirtæki, sem eitthvað svipað stendur á um, eigi ekki að njóta þess sama? Það, að áburðarverksmiðjan yfirleitt græðir og gengur sæmilega hér á Íslandi, stafar ekki hvað sízt af því, hve ódýrt rafmagn hún fær. A.m.k. áður en nýjasta Sogsvirkjunin tók til starfa, þá var uppundir helmingurinn af öllu því rafmagni, öllum þeim kílówattstundum, sem framleiddar voru, sem fóru til áburðarverksmiðjunnar og var selt á 3 millj. kr., sem var oft og tíðum kannske lítið yfir 10. hluti af andvirði alls rafmagnsins. M.ö.o.: áburðarverksmiðjan sem stóriðjufyrirtæki fær rafmagn margfalt ódýrara en nokkurt iðjufyrirtæki í bænum eða nágrenni bæjarins. Hvernig skyldi nú líta út, ef farið væri að framfylgja svona ákvörðunum, eins og hér er lagt fyrir í 2. gr. stjórnarfrv., viðvíkjandi Sogsvirkjun? Og hvernig ætlar hæstv. ríkisstj. að standa á móti því, ef hún léti svona stjórnarfrv. ganga í gegn um eitt ríkisfyrirtæki, eða hvernig sem hún liti annars á, að fyrirtækið væri, — hvernig ætlar hún þá að standa gagnvart því, að Sogsvirkjunin og önnur fyrirtæki fái slíkt hið sama? Eða jafnvel ef ríkisstj. liti á áburðarverksmiðjuna sem einkafyrirtæki, að eitthvert hlutafélag úti í bæ ætti hana, 10 millj. kr. hlutafélag, hvernig ætlar hún þá að verja sína afstöðu gagnvart öðrum einkafyrirtækjum, ef hún ætlar að gefa þessu fyrirtæki svona sérréttindi, og hvernig mundi lita út með skatta hér í þjóðfélaginu, ef það væri yfirleitt innleitt, að menn mættu alltaf afskrifa svo að segja miðað við endurnýjunarverð? Þó að endurnýjunarverð sé ekki nefnt í þessum lögum, þá er það í grg. ríkisstj. gert að aðalatriði fyrir því að breyta 2. gr., þess vegna er 2. gr. frá hreinu lagalegu sjónarmiði í þessu efni ákaflega óviturleg.
Rökin, sem þarna liggja til grundvallar, eru að vísu auðsæ, að svona fyrirtæki eigi að eignast nægilegan gróða til þess að geta byggt á ný seinna meir og stækkað sig fyrir þann gróða. Frá sjónarmiði þeirra manna, sem vilja gera þetta fyrirtæki að einkaeign nokkurra aðila, lítur þetta þannig út, að verkamenn og bændur eigi með launalækkunum og áburðarverðshækkunum að gefa tilvonandi eigendum þessa fyrirtækis, eins og þeir eru frá sjónarmiði þeirra, sem vilja gera þetta að einkafyrirtæki, nægan gróða til þess að byggja verksmiðjuna seinna meir upp. Þetta er þokkaleg féflettingaraðferð. Þessa féflettingu er verið að framkvæma á sama tíma og verið er að lýsa því yfir, að atvinnulífið í landinu gangi á tréfótum, að enginn græði neitt, að vinnulaun verkalýðsins séu allt að drepa og jafnvel kröfurnar frá bændum um að lækka áburðarverð og annað slíkt séu ósvinna og lagður á almenning söluskattur til þess m.a. að fá peninga handa ríkisstj. til þess að borga niður áburðarverðið.
2. gr. nær þess vegna ekki nokkurri átt, svo að ekki sé tekið tillit til hins, hver frekja það er að byrja fyrst á því að framkvæma lögbrot, koma síðan eftir á til Alþingis og segja: Löggildið þið lögbrot. — Kannske það sé fyrirmyndin, sem eigi að fara að nota, þegar menn komast að því, að illa sé farið að í stjórnum voldugra fyrirtækja?
Þá felst það enn fremur í þessu lagafrv., að áburðarsölu ríkisins skuli leggja niður.
Maður skyldi þó a.m.k. hafa ætlað, að um leið og verið væri að ræða um það af hálfu hæstv. ríkisstj. að láta áburðarverksmiðjuna taka við af Áburðarsölu ríkisins, þá hefði þó hæstv. ríkisstj. gert sér það ljóst, hvort áburðarverksmiðjan væri ríkiseign eða ekki. Áburðarsalan er ríkisfyrirtæki. Var meiningin að afhenda það í hendurnar á öðru ríkisfyrirtæki, áburðarverksmiðjunni, eða var meiningin að gera það að einum undirlið í starfsemi einkahlutafélags, sem fengi áburðarverksmiðjuna að gjöf um leið? Hvort var meiningin? Það er máske ekki alveg sama, frá sjónarmiði þeirra, sem eitthvað hirða um hagsmuni verkamanna og bænda í landinu, hvort það ætti að skella saman tveim ríkisfyrirtækjum, sem ríkið réði algerlega áfram, eins og áburðarverksmiðju ríkisins og Áburðarsölu ríkisins. Það mætti finna viss rök fyrir því. En að taka einkasöluna á áburði og afhenda í hendur einstaklinga, sem áburðarverksmiðjan síðan gerir, það er þó nokkuð annað.
Það er alveg óhjákvæmilegt, þegar rætt er um áburðarverksmiðjuna og hvers konar tillögur, sem fram koma í sambandi við hana, að það fáist útkljáð endanlega, að ríkið eigi þessa áburðarverksmiðju og að hlutafélagið, sem stofnað var eftir kröfum Bandaríkjamanna, þegar þeir náðu tangarhaldi á okkar efnahagslífi og ætluðu að breyta þeim reglum, sem við íslendingar höfum haft um ríkisfyrirtæki, sé rekstrarfélag. Áburðarverksmiðjan hefur allan þann tíma, sem frv. um hana hefur verið flutt á Alþingi, frá því fyrst 1934, þegar minnzt var á hana, alltaf verið hugsuð sem ríkisfyrirtæki, og líka þegar ríkisstjórnin lagði frv. fyrir 1949. Það er ekki óeðlilegt, í hvert einasta skipti sem frv. kemur fram viðvíkjandi breytingu á lögunum um áburðarverksmiðju, að þetta mál komi samstundis á dagskrá. Það er óhjákvæmilegt að láta skera úr um þetta. Það hefur orðið til stórtjóns nú þegar, hve lengi þetta hefur dregizt. Ég efast ekki um, að þeir menn, sem lögðu fram hlutafé í rekstrarhlutafélagið Áburðarverksmiðjuna h/f 1949–52, munu sumir hverjir jafnvel gera kröfu til þess, að þeir skoðist sem eigendur verksmiðjunnar. Þeir munu jafnvel höfða mál á hendur ríkisstj., þegar Alþingi að lokum vonandi ber gæfu til að taka af öll tvímæli um, að hún sé ríkiseign. Ég upplýsti, að í fyrra hefði jafnvel af hálfu vissra matsmanna í skattanefndum í sambandi við stóreignaskattinn komið til tals að meta hlutabréf þessara manna á sjöföldu verði. Og í því lagafrv., sem ég flutti þá, vildi ég einmitt gefa ríkisstj. og nefnd, sem okkar Alþingi skipaði, heimild til þess að semja við þessa menn, þessa hluthafa, til þess að tryggja sæmilega samninga við þá, jafnvel þótt borgað yrði meira en nafaverð hlutabréfanna; bara til þess að freista að fá þetta mál út úr heiminum. Og nú kemur það fram, sem annars hefur sjaldan komið fram alveg ótvírætt af hálfu nokkurs þm. hér, en kom fram áðan í yfirlýsingu hv. 1. þm. Vestf., að hann virtist eiginlega ganga út frá því, skildist mér, að verksmiðjan væri eign hlutafélagsins, því að ella hefði hann varla lagt fram þá till., sem hann hefur lagt fram. Ég hef því borið fram mínar fyrirspurnir og deilt á þá aðferð, sem höfð er í frammi í sambandi við þetta frv. og fyrningarafskriftirnar, og ég vil nú vonast til þess, að það fáist útkljáð við meðferð þessa máls nú í þinginu, að áburðarverksmiðjan, eins og 3. gr. l. mælir fyrir, sé ótvíræð ríkiseign. Ég veit, að þegar það yrði gert, þá mundu eigendur hlutabréfanna í rekstrarhlutafélaginu að mörgu leyti missa sinn áhuga og því sé rétt, að þeim sé bættur sá skaði og keypt upp þau hlutabréf. En þá veit ég líka um leið, að afstaðan um fyrningarafskriftirnar muni kannske verða nokkur önnur frá sjónarmiði þeirra, sem nú leggja til að gera þær svona miklar. Ég held þess vegna, að forsendan fyrir því, að nokkur afgreiðsla fáist á þessu máli, sé, að tekin séu af öll tvímæli um eignarréttinn á áburðarverksmiðjunni. Þess vegna geri ég þetta að umtalsefni nú við 1. umr. málsins, vonast til þess, að hæstv. landbrh. svari mínum fyrirspurnum. Og komi ekki fram ótvíræðar yfirlýsingar um þetta mál nú, þá mun ég freista þess að fá þær fram við meðferð málsins í fjhn.