17.10.1960
Neðri deild: 5. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í C-deild Alþingistíðinda. (1923)
44. mál, áburðarverksmiðja
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir, að hann leitaðist þó við að svara, þótt ekki væri það nú rétt myndarlegt hjá honum.
Hæstv. ráðh. byrjar með því að vara við því að nota allt of sterk orð viðvíkjandi því, sem opinber stjórnarvöld geri og jafnvel ráðherrar, og menn ættu þá helzt að gera það utan þingsalanna. E.t.v. er hæstv. ráðh. kunnugt, að það eru ein sérréttindi, sem alþm. hafa í stjórnarskránni, og það er að geta mælt hér á Alþ. mál og sagt hreint út það, sem getur varðað við lög annars. Og af hverju heldur hæstv. ráðh., að það hafi verið sett inn í stjórnarskrána? Það hefur verið sett inn í stjórnarskrána vegna þess, að frá gömlum tíma konunglegs embættisaðals er réttur embættismanna svo hár í hegningarlögunum, að það er vart hægt að segja satt orð um þá og þeirra framferði, án þess að það varði við lög, enda beinlínis tekið fram í hegningarlögunum, að það sé hægt að dæma menn fyrir að segja satt, ef embættismenn eiga í hlut. Við alþm. höfum þann rétt samkv. stjórnarskránni, að geta sagt hreint út og nefnt hlutina réttu nafni, til þess að það sé einhver staður á Íslandi, þar sem óhætt sé að fletta ofan af hneykslunum, líka á æðstu stöðum.
Þegar þess vegna hæstv. ráðh. talar um ákæruvaldið í þessum efnum, — ég sá, að dómsmrh. sat hér áðan og hefur heyrt það, sem hér fór fram, og heyrði það raunar líka í fyrra og sá það í þingskjölum, — þá gátu menn nú kannske búizt við því, að stjórn áburðarverksmiðjunnar mundi bæta sinn hag og breyta reikningunum eftir á, þegar þeir voru ekki samkvæmt lögum. Nú hefur hæstv. dómsmrh. heyrt, hvað ég sagði. Og ég vonast til þess eftir áskorun hæstv. ráðh., landbrh. og stjórnanda áburðarverksmiðjunnar, að það verði látin fara fram rannsókn á því, hvort stjórnendur áburðarverksmiðjunnar hafa gerzt brotlegir við lög eða ekki. Ég vonast til þess, að ég þurfi ekki utan þessara þingsala að fara að höfða slík mál. Ég vonast til þess, að það, að ég segi slíkt í krafti þess réttar, sem stjórnarskráin gefur mér hér, að ráðh. áheyrandi, það nægi til þess að viðbættri áskorun hæstv. ráðh., að rannsókn verði látin fram fara.
Hæstv. ráðh. byrjar svo á því að reyna að verja sig gagnvart hinum væntanlegu ákærum, sem dómsmrh. mun sjá um að fram fari. Og hann segir: Ég hef talað við prófessora. — Það eru ekki prófessorar, sem setja lög. Það er Alþingi, sem setur lög. Og það er engin afsökun í þessu efni, ef hæstv. ráðh. tekur þátt í því að brjóta lög, þó að hann hafi ráðgazt við prófessora um að brjóta lög. Ég er hræddur um, að ef í öllum þeim svindlmálum, sem uppi eru á Íslandi nú, yrði alltaf tekin sem næg afsökun fyrir mann, sem máske er staðinn að einhverju svindli eða einhverjum lögbrotum, að hann hefði talað við hálærðan fyrsta flokks lögfræðing, jafnvel prófessor, — ég er hræddur um, að þá yrðu nokkuð margar afsakanir til. Ég gæti nefnilega vel trúað því, að ákaflega mikið af öllu því svindli, sem hér er framið, sé gert í samráði við fyrsta flokks lögfræðing, og með fullri virðingu fyrir lögfræðingastétt landsins, þá vil ég bara kasta fram þeirri fyrirspurn til hæstv. landbrh., hvort hann hefur aldrei ímyndað sér t.d., að einhver lögfræðingur hafi einhvern tíma hjálpað einhverjum manni með skattsvik.
Ég held þess vegna, að hæstv. ráðh. eigi ekki að tala með allt of miklum þjósti um þetta. Það erum við hér á Alþ., sem setjum lögin, og ef hæstv. ráðh. vill endilega fara að vitna í einhverja menn, sem eitthvað viti, hvað þeir séu að gera, og ráði einhverju um andann, þá hef ég vitnað í tvo menn alveg sérstaklega og það ekki aldeilis flokksbræður mína um þetta mál. Ég hef vitnað í þann mann, sem var forsrh. þeirrar stjórnar, sem setti þessi lög um áburðarverksmiðjuna, Stefán Jóh. Stefánsson, sem átti sæti með mér í fjhn. hér, þegar þetta mál bar fyrst á góma, að nokkur maður færi að efast um það, að áburðarverksmiðjan væri eign ríkisins, og hann gaf alveg ótvíræða yfirlýsingu. Og ég hef vitnað í annan mann, núverandi forseta Íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, sem átti sæti með mér í fjhn. þessarar hv. d. líka og lengi og gaf alveg ótvíræða yfirlýsingu um afstöðu sína til þessa máls. Ég hef nefnt þessa menn hér hvað eftir annað, forsrh. landsins, þegar lögin eru sett, og forseta landsins. Svo kemur hæstv. ráðh. og segir: Ég hef talað við prófessora, og svo er hv. 3. þm, Reykv. að tala með þjósti hér. — Kannske það sé bezt, að hæstv. ráðh. nefni prófessorana.
Ef einhverjir prófessorar fara að gefa yfirlýsingar um, hver andi laganna sé, þá held ég, að þeir ættu fyrst að athuga, hvernig lögin eru til orðin, undir hvaða forsendum. Andinn kemur líklega einna rækilegast í ljós í því, hvernig þetta var allt saman undirbúið. Fram að miðjum maí 1949 hefur aldrei í öll þau skipti, sem frv. um áburðarverksmiðju hefur verið flutt á Alþ., staðið annað í því frv. en áburðarverksmiðjan væri ríkiseign. Fyrst þegar hugmyndirnar koma fram um hana í Rauðku gömlu 1934–35, þegar þessi frv. eru flutt á Alþ., ef ég man rétt, bæði af utanþingsstjórninni og seinna Framsfl. og seinna vísað til nýbyggingarráðs, — allan þennan tíma, í öllum þeim mismunandi frumvörpum, sem flutt eru um mismunandi stóra áburðarverksmiðju og slíkt, er alltaf gengið út frá því, að hún sé ríkiseign. Og hvernig er það, þegar þetta frv. er lagt fyrir Alþ. af ríkisstj. Stefáns Jóh. Stefánssonar á þinginu 1948–49? Það er lagt fram sem ótvírætt ríkiseignarfrv. 13. gr., sem nú er, er þá ekki til í l. Og það gengur í gegnum þessa hv. deild, Nd. sem slíkt frv. Við 2. eða 3. umr. í Ed. er 13. gr. smyglað inn, liggur mér við að segja, þegar fæstir taka eftir því einu sinni, hvað verið er að gera, alveg á síðustu annadögunum, rétt áður en þinglausnir og kosningar byrja. Og engum dettur annað í hug en það sé verið að tala þarna um rekstrarfélag og þetta sé eins konar sýndarverk, vegna þess að það var vitað, að amerískir bankar, sem höfðu mikil tök hér á Íslandi þá, gerðu það að eins konar prinsipatriði, að það ætti endilega að líta þannig út að einhverju leyti, að þetta væri einkafyrirtæki, þótt ekki væri nema reksturinn á því. Þannig er þetta til komið.
Ég vildi gjarnan tala við þá prófessora, sem segja að andi l. sé sá, að þessir menn, sem hafa lagt fram hlutafé í fyrirtækið, 4 millj. kr., ættu að eiga 2/5. Ég vildi gjarnan tala við þá. Ef hæstv. ráðh. hefur talað við þá út af fyrningarafskriftum, sem eru nokkrar milljónir, einar 7 millj. í ár, þá skil ég varla í öðru en hann hafi talað við þessa hálærðu menn, sem vita, hver andi laga er, um það, hver eigi þessa verksmiðju. Hann hefur þó a.m.k. lítið farið eftir því, sem Alþ. hefur samþykkt hér, þegar þessu frv. var vísað til ríkisstj.
Ég held þess vegna, að það sé bezt að tala varlega um það, að prófessorar eða einhverjir fyrsta flokks lögfræðingar eigi að ákveða, hvað séu lög.
Það er Alþ., sem ákveður, hvað séu lög. Og svo vil ég benda hæstv. ráðh. á eitt. Ef hann fær þessa yfirlýsingu frá einhverjum prófessor, með allri virðingu annars fyrir prófessorum, — ef hann fær þessa yfirlýsingu, að það hljóti að hafa verið andi laganna, að þetta fyrirtæki gæti endurnýjað sig, mundi þá ekki þessi sami prófessor gefa sams konar yfirlýsingu út af einhverju öðru fyrirtæki? Ég man ekki eftir neinum sérstökum anda í áburðarverksmiðjunni, sem sé allt öðruvísi en andinn í öllum öðrum fyrirtækjum, sem gæfi rétt til endurnýjunar þar, en bannaði slíkt alls staðar annars staðar. Ég held, að ef þessi prófessor trúir svona mikið á andann í þessu, þá hljóti hann að geta fundið þann anda í öllum mögulegum öðrum lögum og öðrum fyrirtækjum, að það væri ákaflega heilbrigt í þjóðfélaginu, að öll fyrirtæki gætu endurnýjað sig sjálf. Getur þá ekki hvaða prívatmaður sem er og á eitthvert hlutafélag úti í bæ og fær ekki að afskrifa af því nema takmarkað samkv. lögum, farið til prófessorsins og lýst því yfir, að það hljóti að vera andi laga, skattalaganna t.d., að menn geti endurnýjað sín fyrirtæki? Nei, það er ekki til neins að koma með svona hlut. Það er ekki til neins, það styðst ekki við nokkurn skapaðan hlut. Ef þetta ætti að vera einhver yfirlýsing, þá ætti það að vera almenn yfirlýsing, sem alls staðar gilti, og það hefur engum manni dottið hérna í hug.
Ég spurði víst hæstv. ráðh. að því í fyrra, þegar hann var að afsaka sig með þessu: Því eruð þið þá að breyta lögunum, ef andi laganna er svona ótvíræður? Ég veit, að hæstv. ráðh. var í nokkrum vandræðum, rak sig nefnilega á það hér undireins við 1. umr. málsins í fyrra, að hans eigin flokksmenn voru ekki einu sinni sammála um það og að þeir mátu meira vald Alþ. um að ákveða lög og setja lög heldur en andatrú hinna og þessara prófessora — með allri virðingu fyrir þeim.
Hvernig fór fyrir þessu frv., þrátt fyrir það að þau meðmæli fylgdu því í fyrra hér við 1. umr., að einn prófessor segði, að þetta væri andi laganna? Fjhn. afgreiddi málið aldrei. Henni leizt ekkert á þetta, ekki einu sinni stjórnarmeirihlutanum. Ég held þess vegna, að það sé alveg óþarfi fyrir hæstv. ráðh. að vera með nokkurn þjóst út af þessu. Alþ. verður að taka ákvarðanir um þetta, og það að hafa gert þetta, án þess að Alþ. gæfi lagaheimild til þess, það er lögbrot, og þar með eru reikningarnir falsaðir, þeir eru rangir. Það er náttúrlega hægt digurbarkalega af einum ráðh. að segja hér: Bóndi uppi í sveit, sem kaupir áburð, getur farið í mál við ríkið um, að áburðurinn hafi verið seldur honum dýrara en lögin heimila., — En það er lítið lýðræði í því að ætla að láta einn bónda standa undir þeim málarekstri. Það væri nær, að ákæruvaldið sjálft hlutaðist til um það, og það er þá máske nær, að sú ákæra, sem ég hef borið fram hér í þessu efni, sé tekin fyrir hér í þingsölunum og svarað öðruvísi en með því að vitna til einhverra og einhverra prófessora.
Svo talaði hæstv. ráðh. um eignarréttinn á verksmiðjunni, og þó að hann segði aldrei alveg ákveðið, hver væri hans skoðun, þá sýnist mér hann nú vera að færast meira og meir í þá áttina að ætla að gefa þessa verksmiðju einkahluthöfum. Hann segir orðrétt: „Ríkið á 3/5 hluta í verksmiðjunni.“ M.ö.o.: einkaaðilar í þessu rekstrarhlutafélagi eiga þá að hans áliti 2/5. Ef honum hefur ekki orðið mismæli eða ekki gáð vel að sér, þá virðist hann vera á þeirri skoðun, að það sé hlutafélagið, sem eigi verksmiðjuna, þvert ofan í 3. gr. laganna, sem mælir fyrir, að hún skuli vera sjálfseignarstofnun, og ofan í 13. gr. laganna, sem mælir fyrir, að hún skuli aðeins rekin sem hlutafélag.
Vill nú hæstv. ráðh. athuga afleiðingar af yfirlýsingu sinni. Ég hef nú bráðum í 10 ár verið að finna að því, að einn ráðh., sem þá var landbrh., gaf þá yfirlýsingu, að hlutafélagið ætti verksmiðjuna, og þess vegna hef ég allan þennan áratug verið að reyna að fá tekin af öll tvímæli, vegna þess að ég áleit þessa yfirlýsingu þáverandi landbrh. stangast á við lög. Alþfl. hefur alltaf verið alveg ákveðinn í þessu máli í fjhn. Hann hefur alltaf staðið með því, að þetta væri hrein ríkiseign og hlutafélagið væri aðeins rekstrarfélag. En mér hefur satt að segja fundizt, að líka fulltrúar Sjálfstfl. í fjhn. væru venjulegast á þeirri skoðun, að það væri, ef ekki ótvírætt rétt, að ríkið væri eigandinn, þá nauðsynlegt að koma því í það horf, að ríkið væri það.
Ég spurði hæstv. ráðh., hvort hann hefði leitað lögfræðinga hvort hann hefði athugað frv. sem vísað var til hans í fyrra, frv. mitt. Ég skildi af hans ummælum, að það hefði ekki verið athugað, a.m.k. hafði ekki verið haft svo mikið við að tala við andafróða lögfræðinga um það mál, og hæstv. ráðh. sagði ekkert um, hvað þeir álitu um anda laga í þeim efnum.
Hæstv. ráðh. sagði, að það væri tilgangslaust að þrátta um þetta. Það er ekki tilgangslaust. Meðan ekki fæst úr þessu skorið, mun ég halda áfram að berjast fyrir því. Mér er sama, þó að ein ríkisstj. sé þannig sinnuð, að hún álíti sig ekki eiga að standa vörð um eignir ríkisins, heldur geti horft upp á, að stærstu og dýrmætustu eignum ríkisins sé hent í einstaklinga. Mér er sama um, þó að ein ríkisstj. svíkist þannig á verði. Ég álít það skyldu mína sem alþm. að standa vörð um það, að íslenzka ríkið eigi þau fyrirtæki, sem það lögum samkvæmt á að eiga, og það sé ekki verið að spila þeim fyrirtækjum út úr höndum ríkisins.
Má ég beina athygli hæstv. ráðherra að afleiðingunum af því, sem hann sagði áðan. Hann sagði: Ríkið á 3/5 hluta í verksmiðjunni. — Samflokksmaður hans, hv. 1. þm. Vestf., flytur hér tillögu um, að hlutabréfin skuli seld, sem sé gefin út ný hlutabréf í verksmiðjunni til viðbótar við þessar 10 millj. kr. og þau séu seld hverjum sem hafa vill á nafnverði. Hlutabréf, sem hafa tvítugfalt gildi máske, ef svona væri litið á, eiga að seljast í staðinn fyrir 2000 kr. á 100 kr. o.s.frv., og það mundi þýða, að það mundu vafalaust vera margir um boðið. Ég efast ekki um, að það yrði góður markaður fyrir þau hlutabréf. Menn kaupa gjarnan 2000 kr. seðil á 100 kr. Hver yrði afleiðingin? Jú, afleiðingin yrði, að hinir og þessir einkaaðilar eignuðust þarna 20 milljónir til viðbótar, og við skulum segja, að sú stefna réði, sem nú virðist eiga nokkuð mikil ítök í ríkisstj., að ríkið sé ekki að fara í kapphlaup við einstaklinga, sem hafi áhuga á að leggja fé í gróðavænleg fyrirtæki. Ríkið ætti þá þarna 6 millj., og svo væri hlutaféð komið upp í 20, upp í 30, upp í 40 millj., og ríkið ætti þá eftir skilningi hæstv. ráðherra þriðja hluta, fjórða hluta, fimmta hluta í verksmiðjunni og hluti þess væri alltaf síminnkandi.
Það er ekkert hægt að gera í þessu nema taka af öll tvímæli um eignarréttinn á þessari verksmiðju, að það er ríkið, sem á hana, eins og lög mæla fyrir um, þó að ráðherrar gefi einhverjar vitlausar yfirlýsingar, bæði nú og fyrr. Og það hefði sannarlega verið ástæða til þess fyrir hæstv. landbrh. að leita álits lögfræðinga um þetta og tjá Alþingi álit um það.
Ég vona, að hæstv. ráðh. skilji það, að með því að lýsa áburðarverksmiðjuna sem eign hlutafélagsins, þá er um leið verið að stofna til þess, að einkaaðilar eignist þessa verksmiðju. Þó að ríkið kynni að eiga nú 3/5 hluta, þá þarf ekki nema litlar ráðstafanir til þess að breyta því þannig, að sá meiri hluti sé kominn úr höndum ríkisins. Það getur meira að segja verið, þótt hann sjálfur vildi stuðla að því, að þetta héldist svo, að hann réði ekkert við það seinna meir. Því segi ég það: Ef fyrirtæki, sem íslenzka ríkið á og er nú yfir 200 millj. kr. virði, er kastað út til einkaaðila, — hvort það er fyrir 10, 20 eða 30 millj. kr., það er mér sama um, — þá er það sama sem að leyfa þessum mönnum að stela þessu fyrirtæki úr eigu ríkisins. Það er hægt að gera þetta á fínan hátt, það er jafnvel hægt að gera það með lögum, en verknaðurinn væri sá sami. Þess vegna notaði ég þung orð hér áðan, vegna þess að verknaðurinn, sem verið er að fremja gagnvart íslenzka ríkinu með þessu, er ljótur, og það er hart, að þeir menn, sem eiga að vernda hagsmuni ríkisins undir svona kringumstæðum, skuli leggjast á sveif á móti ríkinu, þeir skuli vilja hjálpa til þess að ná slíku fyrirtæki úr eigu ríkisins.
Svo segir hæstv. ráðherra, að það þurfi ekki að álíta, að þetta sé fjárplógsfyrirtæki, áburðarverksmiðjan sé ákaflega hóflegt og skikkanlegt fyrirtæki. Já, látum vera, að hún vilji gjarnan vera það, því að ég sýndi fram á hér áðan, að þetta fyrirtæki græðir og borgar í vexti 16 millj. kr., græðir 11 millj., borgar í vexti 5 millj. kr., á sama tíma sem það borgar tæpar 5 millj. kr. í verkalaun og launin eru lækkuð hjá verkamönnunum, sem vinna þar, og á sama tíma sem áburðarverðið er hækkað til bændanna, þó að laun bændanna séu líka lækkuð, á sama tíma og áburðarverðið er hækkað svo mikið, að það eru brotin lögin um fyrningarafskriftirnar til þess að geta hækkað verðið til bændanna. Það er alveg óþarfi af hæstv. ráðh. að ætla að halda þessu fram sem einhverju hugsjónalegu fyrirtæki, sem eigi ekkert skylt við fjárplógsstarfsemi. Það er auðséð, að það er að nálgast fjárplógsstarfsemina meir og meir einmitt með þessum aðförum. En þó mun þetta aðeins lítið hjá því, sem verða mundi, ef skoðun sú, sem hæstv. ráðherra lét í ljós áðan, yrði ofan á, að þetta fyrirtæki yrði gert að eign hlutafélagsins.
Ef einstakir hluthafar eru búnir að ná undir sig þessu fyrirtæki, sem meðan það á þó að heita ríkisfyrirtæki er byrjað á svona fjárplógsstarfsemi, hvernig mundi starfsemin verða þá, ef meiri hlutinn væri ekki einu sinni kosinn af Alþingi lengur? En hins vegar sú fjárplógsstarfsemi, sem ég hef hér gert að umtalsefni, hefur ekki verið fyrst og fremst sú, að áburðarverksmiðjan taki svona hátt verð og kúgi kaup og annað slíkt og græði svona mikið, á sama tíma sem skorið er við neglur sér við verkamenn og bændur. Fjárplógsstarfsemin, sem ég hef verið að deila á, er að reyna að ná þessu fyrirtæki úr eigu ríkisins. Það er svívirðilegasta fjárplógsstarfsemin.
Ég mun ekki þreytast á því að halda þessu máli vakandi. Ég mun skoða það sem skyldu mína, meðan ég á sæti hér á Alþingi og meðan ekki er búið að ganga ótvírætt frá því, að þetta stærsta fyrirtæki ríkisins sé ríkiseign, að halda áfram að vekja máls á því. Það má vel vera, að hæstv. ráðherra sé orðinn þreyttur á slíku, og væri það þó slæmt, því að hann fyrst og fremst ætti að standa vörð um þetta fyrirtæki sem fulltrúi ríkisins.
Hæstv. ráðherra segir, að ég þjóni ekki verkamönnum og bændum með þessu. Jæja, við getum nú athugað það. Eru ekki einhverjir, sem hafa haldið því fram, að kaup verkamanna megi ekki vera hærra? Hef ég ekki sýnt fram á hér, að áburðarverksmiðjan gæti borið sig, þótt þar væri tvöfalt kaup á við það, sem nú er? Var ekki hæstv. ríkisstj. í sumar að hækka verðið á áburðinum til bænda? Hef ég ekki sýnt fram á hér, að það hefði verið hægt að lækka það? Ég held, að ég þjóni hagsmunum verkamanna og bænda með því að sýna fram á, að verkamenn gætu fengið hækkað sitt kaup og bændur gætu fengið lækkað sitt áburðarverð og samt væri meira en löglegur gróði eftir hjá áburðarverksmiðjunni. Ég tel mig einmitt vera að þjóna verkamönnum og bændum með því að afhjúpa, hvers konar fjárplógsstarfsemi á sér stað hér, ekki aðeins sú, sem felst í þessum gróða, sem þarna er ranglega og með lögbrotum verið að taka af verkamönnum og bændum, heldur með því að það er verið að reyna að ná þessu fyrirtæki úr eigu íslenzka ríkisins yfir í eigu lítils hlutafélags. Og hverjum er hæstv. ráðherra að þjóna með slíkum yfirlýsingum? Ekki verkamönnum og bændum. Það eru þeir fésýslumenn, sem langar til að kaupa hlutabréfin á nafnverði, kaupa á 100 kr. það, sem væri 2000 kr. virði.
Svo fór hæstv. landbrh. að tala um heilbrigðan atvinnurekstur og tyggja upp gamla tuggu um, að verkamönnum væri ekki nein þægð í að fá fleiri krónur, ef þær væru minna virði. Nei, verkamenn vilja fleiri krónur og meira virði, og það er auðséð, að áburðarverksmiðjan getur borgað það, og það skal verða munað.
Hæstv. ráðherra fór í því sambandi að tala um, að illa hefði verið farið með verkamenn. Á ég að lofa honum að heyra, hvernig útlitið er og hverjir það eru, sem fara illa með verkamenn, hvernig kaupmáttur launanna hafi staðið núna síðustu árin? Hann var sérstaklega að tala um 1958 og svo núna til samanburðar 1960. Meðaltal ársins 1958 í kaupmætti tímakaupsins var 98.8, miðað við 1945 sama sem 100. Meðaltal 1957 var 95.8. Það hefur hækkað um eitt stig meðaltalið frá 1957 til 1958. Hvernig er svo útlitið núna 1960, eftir að hæstv. ríkisstj., sem hæstv. landbrh. á sæti í, tók við? Þá hefur kaupmáttur tímakaupsins mánuð fyrir mánuð breytzt á eftirfarandi hátt: Í janúar var hann 99, í febrúar 99, þá komu bjargráðin, ef ég man rétt. Í marz var hann 98, í apríl var hann 93, í maí var hann 92, í júní var hann 89 í júlí var hann 88, í ágúst var hann 88, í september er hann 87.5. Það er orðin lækkun um 13% Í kaupmætti tímakaupsins, það sem af er þessu ári, tæp 13%. Hvenær hefur það verið verra á Íslandi? Ég skal lofa hæstv. ráðherra að heyra það. Kaupmáttur tímakaupsins 1945 var 100. 1946 var hann 100. 1947 var hann 102.7. 1948 var hann 98. 1949 var hann 101. 1950 — þá var gengislækkun eins og í ár — fór hann í 92. 1951 var hann 84.7 1952 var hann 84.9. Síðan fer hann að hækka, þegar verkalýðssamtökin tóku í taumana. 1953 var hann 91, 1954 90, 1955 97, eftir stóra verkfallið, 1956 97, 1957 95, 1958 96.8. Þetta er breytingin. Aðeins tvö ár af síðustu 15 árum hafa verið verri en haustmánuðirnir núna hvað kaupmátt tímakaupsins snertir, — aðeins tvö ár: atvinnuleysis- og vesældarárin 1951 og 1952.
Hvað var svo hæstv. ráðherra að segja hér áðan, þegar hann var að tala um, hvenær það hefði verið allra verst? Hvenær var það verst? Það var þessi ár, 1951 og 1952. Núna er það að fara niður í það sama. Það er komið í 87.5, farið að nálgast það, sem þá var, þegar það var á milli 84 og 85. Það er bezt fyrir hæstv. ráðherra að tala ekki sérstaklega digurbarkalega um þessi mál. Það sést, hvert þróunin stefnir núna. Og samfara þessari kaupkúgunardýrtíð, sem þarna fer fram, á sér svo stað það svívirðilegasta gróðabrask, sem nokkurn tíma hefur tíðkazt á Íslandi, sem einmitt kemur fram í því m.a. núna, að þetta fyrirtæki upp á 245 millj. kr. á að lokka og blekkja út úr eigu ríkisins og fá í hendur einstaklingum. Það er ekkert undarlegt, þó að ég álíti það skyldu mína einmitt gagnvart verkamönnum og bændum að afhjúpa þessi fyrirtæki, ekki aðeins þá launakúgun og þá ólöglegu dýrtíðarhækkun viðvíkjandi áburðinum, sem þarna fer fram, heldur líka það rán, sem verið er að fremja með því að reyna að ná áburðarverksmiðjunni úr eigu ríkisins og gera hana með alls konar klækjum að eign einstakra hluthafa. Ég vil þess vegna vonast til þess, að meira að segja hæstv. landbrh. átti sig á hvað hér sé um að ræða, honum renni blóðið til skyldunnar sem ráðherra íslenzka lýðveldisins og komi til með að skoða það sem skyldu sína að standa vörð um eignir ríkisins, en ekki hjálpa til þess, að þeim sé fleygt með lögbrotum í hendur einstakra gróðabrallsmanna.