20.03.1961
Neðri deild: 78. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 348 í C-deild Alþingistíðinda. (1975)

35. mál, skólakostnaður

Forseti (BGr):

Út af þessari ósk, sem kom fram hjá síðasta ræðumanni, er nokkur vandi á höndum. Skömmu áður en hann tók til máls, kom fram bein ósk um það frá einum hæstv. ráðh., að 3. umr. færi ekki fram, nema hæstv. menntmrh., sem er fjarverandi þrjá eða fjóra daga, geti verið viðstaddur. Ég mun reyna að verða við þeirri ósk hans, en verða jafnframt við þeirri ósk hv. þm., að það verði ekki til þess að stöðva málið.