18.10.1960
Neðri deild: 6. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í C-deild Alþingistíðinda. (1984)
39. mál, vegalög
Björn Fr. Björnsson:
Herra forseti. Á þskj. 50 á ég ásamt tveim öðrum hv. þm. Suðurlands brtt. við frv. til l. um breyt. á vegalögunum frá 1947. Þar er lagt til, að nokkrir sýsluvegir í Suðurlandskjördæmi verði teknir í þjóðvegatölu.
Ekki mun þess þörf að viðhafa mörg orð um nauðsyn góðra vega og þeir séu sem víðast um byggðir landsins. Það er undirstaða þess, að fólkið fái lifað og starfað á heilbrigðan og eðlilegan hátt í stóru, en strjálbýlu landi. Þetta vita allir og skilja margir. Alþ. hefur á undanförnum áratugum átt sinn ríka þátt í því að halda uppi og færa út vegakerfið. Og oft hafa verið lagðir miklir fjármunir af mörkum í því efni og mikið áunnizt. Þó er að sjálfsögðu margt eftir, og ætíð þarf að halda við þessu viðamikla vegakerfi. Allt kostar þetta mikið fé, nýbyggingar vega og brúa ásamt viðhaldi hvors tveggja. Það er því mjög athugavert, þegar svo er komið, að framlög til þessara framkvæmda fara á síðustu tímum ört lækkandi, um leið og þörfin fyrir aukinn styrk í þessu efni er vaxandi og aldrei meiri. Það er auðsýnt, að vegna aukinnar tækni og hraða í verklegum efnum öllum ásamt síauknum og öflugri farar- og flutningskosti færist sífellt í aukana nauðsyn traustara og öruggara vegasambands. M.a. þarf tvennt að ske. Annars vegar að leggja fullan þunga á fjárframlögin til þessara framkvæmda og spara sízt. Það má þess vegna engan veginn eiga sér stað, að slíkt framkvæmdafé verði dregið inn undir aðra rekstrarþætti ríkisbúskaparins. Það getur ekki gengið til lengdar, án þess að stórtjón verði að og óbætanlegt, að halda þá braut, að vega- og brúakerfið fái ekki það fjármagn, sem því er brýnasta nauðsyn að ná til sín. Og þjóðin getur ekki þolað heldur þá stefnu, því að slíkt leiðir vitaskuld að lokum til hörmungarástands og landauðnar. Í þessu efni þurfa fjárlögin að taka fjörkipp, sem verulega munar um. Hins vegar þarf svo að leggja stóraukið kapp á að byggja vegina upp úr varanlegu efni og traustara en verið hefur. Við það sparast viðhaldsféð að sjálfsögðu til mikilla muna, sem kæmi haganlegum nýbyggingum mjög til góða. Auk þessa yrði allur farkostur, sem slíkra vega nýtur, margfalt endingarbetri. Mundi það spara stórfé, bæði einstaklingum og þjóðfélaginu. Allt er þetta okkur að sjálfsögðu ljóst, og þetta er engin ný kenning. En eftir er að fylgja fram þessum nauðsynjamálum frekar en verið hefur. Allt, sem horfir þar til bóta og gert er til hægri verka, kemur aftur margfaldlega til þjóðarbúsins í aukinni hagsæld fólksins og atvinnuveganna. Ríkisfé getur ekki orðið betur varið.
Þá vil ég leyfa mér að víkja örfáum orðum almennt að þeim tillögum, sem eru á þskj. 50. Svo sem kunnugt er, er óvíða í landi hér utan Reykjavíkur og nágrennis meiri umferð en á Suðurlandsundirlendinu. Á Suðurlandi eru fjölbýl héruð og blómleg mjög. Landbúnaður er þar rekinn í stóru sniði og flutningaþörfin alveg geysileg. T.d. eru daglegir flutningar mjólkur um svo að segja allt Suðurlandsundirlendið. Þarna eru svo margs kyns umsvif önnur og atvinnurekstur, og vafalaust bíður þessa landshluta mikil framkvæmdaöld og framfara sakir landkosta og legu. Hafnleysi við strendur fyrir Suðurlandi hefur svo orsakað, að vegaþörfin er í þessum héruðum mun meiri og ríkari en annars staðar. Á Suðurlandi eru af þessum sökum einhverjir stærstu sýsluvegasjóðir og mikill fjöldi sýsluvega og hreppavega. T.d. í Rangárvallasýslu einni eru 87 sýsluvegir fyrir utan hóp af hreppavegum, og í Árnessýslu eru 110 sýsluvegir, og er sá sjóður, sýsluvegasjóður Árnesinga, sá stærsti hér á þessu landi. Það er því ofur eðlilegt, þegar vegalög eru tekin til athugunar og endurskoðunar, að frá þessum héruðum komi óskir um upptöku sýsluvega í þjóðvegatölu til þess að létta á þeim þrýstingi, sem er heima fyrir, svo að hægt verði þá samsvarandi að taka við nýjum sýsluvegum.
Um einstaka vegi í þessum brtt. tel ég ekki ástæðu til á þessu stigi máls að ræða. Þeir eru úr Árnessýslu 6 talsins, 16 úr Rangárvallasýslu, 4 úr Vestur-Skaftafellssýslu og einn úr Vestmannaeyjum. Það má segja um Vestmannaeyjar, að þær hafi ekki verið þungur baggi í vegalegu tilliti á ríkissjóði. Aftur á móti hefur ríkissjóður gert mjög mikið fyrir vegi hjá okkur á Suðurlandsundirlendinu, og það vil ég strika undir. Það sýnist rétt að láta þessar till. fara til n., sem verður sjálfsagt samgmn. Ef að venju lætur og þar eð um svona marga sýsluvegi er að ræða, þá er það skiljanlegt, að fáir einir þeirra verði teknir inn í senn. Er það mikið vandamál að velja úr, sérstaklega úr þeim vegum, sem eru á þskj. 50, því að erfitt er að gera upp á milli flestra þessara vega. En það verður þá að vera háð samkomulagi þm. kjördæmisins, hverjir vegir verða fyrir því, ef vegalög verða opnuð á annað borð.
Ég vil svo að lokum vænta þess, að hv. samgmn., sem þessar till. væntanlega ganga til, taki vel og myndarlega á þessum málum.