31.10.1960
Neðri deild: 13. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í C-deild Alþingistíðinda. (1988)

62. mál, eftirlit með happdrættum og almennum fjársöfnunum

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Frv. um eftirlit með happdrættum og almennum fjársöfnunum á þskj. 67 var flutt snemma á þessu þingi af Pétri Péturssyni, meðan hann sat hér sem varaþm. Frv. þetta hafði hann áður flutt á árinu 1958, en náði þá ekki fram að ganga.

Eins og hverjum manni er kunnugt, er mjög algengt hér á landi, að ýmiss konar félagsskapur efni til happdrætta til að afla fjár. Það er mikið um þessi happdrætti, og sum þeirra eru stórfyrirtæki. Nákvæmar skýrslur munu ekki vera fyrir hendi um það, hversu miklir fjármunir fara um hendur þeirra, sem standa fyrir happdrættum, en öruggt mun að segja, að þjóðin verji árlega tugum milljóna til kaupa á happdrættismiðum.

Þetta frv. er þess efnis, að tekið verði upp opinbert eftirlit með happdrættum, þannig að það sé fylgzt með, hvernig hvert þeirra gengur, hversu miklir fjármunir þar koma inn, hvernig þeim er varið og hve mikill hagnaður verður eftir. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara mörgum orðum um það fyrirkomulag, sem hér er gert ráð fyrir, en það er eins einfalt og hægt er að hafa slíkt eftirlit. Með þessu frv. er ekki verið að kasta rýrð á nokkra þá, sem hafa staðið fyrir happdrættum, eða gefa tilefni til neinnar tortryggni, en aðeins bent á það, að hér sé um þátt í þjóðlífinu að ræða, sem dregur til sín svo mikla fjármuni, að það sé verulegur ábyrgðarhluti að hafa ekki nákvæmara eftirlit með happdrættum en gert hefur verið hingað til.

Ég legg til, að þessu frv. verði vísað til fjhn.