26.01.1961
Neðri deild: 50. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 364 í C-deild Alþingistíðinda. (1994)
69. mál, vega- og brúarsjóður
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Skömmu eftir að Alþingi hóf störf sín í haust, flutti ég ásamt nokkrum öðrum þm. frv. til laga um vega- og brúasjóð. Máli þessu var útbýtt hér á Alþingi þann 25. okt. s.l. og tekið til 1. umr. 1. nóv. s.l. Þann dag var því vísað til hv. samgmn., og síðan hef ég ekkert af málinu heyrt. Þar sem liðnir eru nær þrír mánuðir, síðan þetta mál fór til samgmn., vil ég leyfa mér að fara þess á leit við hæstv. forseta d., að hann grennslist um það, hvað störfum nefndarinnar líður um afgreiðslu á þessu máli, og hlutist til um, að n. skili áliti um það sem fyrst.