19.01.1961
Neðri deild: 46. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í C-deild Alþingistíðinda. (2069)

150. mál, ferðaskrifstofa ríkisins

Flm. (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Ég álít, að þessi aths. hæstv. menntmrh. sé á misskilningi byggð, af þeirri ástæðu, að Ferðaskrifstofa ríkisins kemur til með að halda áfram umræddri starfsemi, þó að þetta frv. verði samþykkt. Hún kemur til með að hafa áfram samband við þær erlendar ferðaskrifstofur, sem hún hefur áður haft, og vinna að því að greiða fyrir ferðum útlendinga hingað til landsins, og það er engin ástæða til að ætla, að það drægi neitt úr þeirri starfsemi, þó að fleiri aðilar bættust þarna við. Það, sem mundi gerast fyrst og fremst, væri, að ef fleiri aðilar tækju að vinna að þessum málum, mundi verða aukning á ferðum ferðamanna hingað til landsins. Sú aukning færi kannske að einhverju leyti fram á vegum annarra aðila en ferðaskrifstofunnar. En í þeirri samkeppni, sem væntanlega yrði í þessum efnum á milli ferðaskrifstofunnar og einkaskrifstofa, sem kynnu að starfa hér, á ferðaskrifstofan, ef hún er sæmilega rekin, að geta haldið sínum hlut og fullkomlega þeim hlut, sem hún hefur haft að undanförnu. Það, sem nýju ferðaskrifstofurnar mundu fyrst og fremst taka að sér og koma til leiðar, væri aukning á ferðamannastraumnum hingað. En hagur eða hlutur Ferðaskrifstofu ríkisins ætti ekki að þurfa að skerðast neitt a.m.k. frá því, sem hann er núna, ef hún er sæmilega rekin. Þess vegna held ég, að það sé alveg óhætt að ganga út frá því nokkurn veginn gefnu, að tekjur ferðaskrifstofunnar ættu ekki að þurfa að minnka, þótt þetta frv. væri samþykkt. Það væru hins vegar líkur til þess, að meira af ferðamönnum kæmi hingað og að hlutur ferðaskrifstofa einstaklinga mundi beinast að því að fá það í sinn skerf.