31.01.1961
Neðri deild: 53. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í C-deild Alþingistíðinda. (2097)

166. mál, kirkjuorganleikarar og söngkennsla í barna- og unglingaskólum

Frsm. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Menntmn. þessarar hv. d. hefur flutt frv. á þskj. 290 að beiðni hæstv. kirkjumrh. Frv. ásamt grg. þeirri, sem prentuð er með því, er komið frá kirkjuþingi. Við, sem sæti eigum í menntmn., höfum ekki tekið afstöðu til frv. efnislega og áskiljum okkur rétt til að flytja eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma.

Með örfáum orðum vil ég rekja efni frv., en því mun ætlað að finna sameiginlega lausn á tilteknu vandamáli tveggja aðila, kirkju og skóla. Hér er um að ræða skort þann, sem verið hefur á hæfum mönnum til að standa fyrir tónlistarlífi safnaðanna annars vegar og til að annast hina lögboðnu tónlistar- eða söngkennslu í barna- og unglingaskólum hins vegar. Frv. fjallar um. að einn maður skuli í hverju byggðarlagi hafa með höndum þetta tvíþætta hlutverk. Til þessa hafa söfnuðirnir greitt laun organleikara og kostnað, en mörgum söfnuðum er fjárhagslega ofviða að fá færa menn til organleiks. Samkv. upplýsingum fræðslumálastjóra hefur söngkennurum aftur á móti verið greitt eins og venja er til um stundakennslu. Í frv. þessu er lagt til, að þeir, sem tækju að sér þetta tvíþætta hlutverk, yrðu launaðir úr ríkissjóði eins og kennarar við barna- og unglingaskóla.

Þetta er sem sé aðalefni þessa frv., og nefndir áskilur sér, eins og ég sagði áðan, rétt til frekari athugunar á því, en n. þótti rétt að leggja það fyrir Alþingi til athugunar á þessu stigi, eins. og það kom frá kirkjuþingi.

Ég leyfi mér að leggja til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr.