31.01.1961
Neðri deild: 53. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 508 í C-deild Alþingistíðinda. (2098)

166. mál, kirkjuorganleikarar og söngkennsla í barna- og unglingaskólum

Gunnar Gíslason:

Herra forseti. Ég stend aðeins upp til þess að lýsa ánægju minni yfir því, að frv. þetta á þskj. 290 um kirkjuorganleikara og söngkennslu í barna- og unglingaskólum utan kaupstaða skuli vera flutt hér í þinginu, og ég vil leyfa mér að þakka hæstv. kirkjumrh. og hv. menntmn. fyrir flutning þess.

Hér á Alþingi er nær daglega fluttur fjöldi tillagna og frv. um hin margvíslegustu efni. Flest snerta þau þó og fjalla um atvinnumál, efnahagsmál og fjármál, og um öll þessi mál verða svo hér langar og stundum snarpar umr., og er það að vonum. Öll þessi mál snerta að meira eða minna leyti efnahagslega afkomu þjóðarinnar, og þeim er að sjálfsögðu ætlað að efla og styrkja eða ýta úr hlaði nytsömum framkvæmdum í landi okkar. Ekki vil ég amast við flutningi slíkra mála, síður en svo. En ég tel það líka nokkurs virði, að hér séu einnig flutt mál, sem minna okkur hv. þm. á það, að fleira hefur gildi en það eitt, sem í askana er látið, og þetta litla frv., sem hér er til umr., gerir einmitt þetta og raunar fleiri mál, sem eru á dagskrá d. í dag.

Við, sem vinnum úti í sveitunum að þeim málum, sem frv. þetta snertir, finnum oft til þess okkur til ama og leiðinda, hversu margt er ábótavant hjá okkur í menningarlegum efnum og hversu erfiðlega vill ganga í fámenninu að halda uppi þróttmiklu og þroskavænlegu félagslífi. Eitt af því, sem veldur okkur ama, er það, að söngurinn í kirkjunum okkar er allt of víða næsta lélegur söngur. Ekki mun þetta þó stafa af því, að söngkrafta vanti, þeir munu víðast vera til, heldur miklu fremur hitt, að það skortir menn, sem á hverjum stað geta séð um þessi mál, verið forsöngvarar, eins og það er gjarnan nefnt, menn, sem vekja áhuga fyrir söng og eru færir um að leiðbeina á þessu sviði.

Það er raunar ekki undarlegt, þótt deyfð ríki yfir safnaðarsöngnum víða úti í fámenninu, þar sem fá verður menn að láni úr fjarlægð til þess að koma í það og það skiptið til þess að leika á kirkjuorgelið, en svona er nú þetta víða, svo sem réttilega er drepið á í grg. frv.

Og svo er það söngkennslan í barnaskólunum. Það á að kenna söng í barnaskólum. Söngur er lögboðin námsgrein. En hvað skyldu þeir vera margir, barnaskólarnir í sveitunum, þar sem söngur er kenndur? Ég hygg, að þeir séu ekki ýkjamargir, og það, að þessi námsgrein er vanrækt, leiðir til þess m.a., — ég segi m.a., því að það er fleira, sem kemur til, — að iðkun söngs og hljóðfæraleiks á heimilum víðast hvar um landið fer mjög minnkandi, eins og stendur í grg. frv. Þetta er alveg rétt, og það er líka alveg rétt, að það er miklu minna um það nú en áður, að ungt fólk læri að leika á harmoníum. Og sannleikurinn mun líka vera sá, að margir sóknarprestar í sveitunum og söfnuðir þar eiga í örðugleikum með að fá fólk, karla eða konur, til forsöngvarastarfs, og þessir örðugleikar eiga fyrir sér að vaxa, en ekki að minnka í náinni framtíð, ef ekkert er að gert. Því er það mér vissulega fagnaðarefni, að þetta frv. skuli koma fram, og mér sýnist, að hér sé lagt til á raunhæfan hátt að leysa í einu þau vandkvæði, sem víða eru á að halda uppi sæmilegum söng í sveitakirkjunum, og stuðla að því, að börn okkar sveitamanna fari ekki á mis við þann þroska og menningarauka, sem iðkun söngs og söngnám er.

En um leið og minnzt er á vanda og örðugleika, á það, sem miður fer og hefur farið í þessum efnum, finnst mér rétt og skylt að minnast líka hins, að fyrir þau mál, sem frv. snertir, hefur verið og er unnið mikið og merkilegt starf víða hjá okkur úti í strjálbýlinu. Einkum á þetta þó við um kirkjusönginn, þó að honum sé í ýmsu áfátt. Víða eru starfandi, þó að í fámenni sé, myndarlegir kirkjukórar, sem eiga tilveru sína fyrst og fremst að þakka einstæðum áhuga einstakra manna. En það, sem verst er þó, er það, að flestir þessir áhugamenn eru ekki af yngri kynslóðinni, og þegar þeir hætta eða hverfa, skortir menn, sem taka upp merki þeirra. En ég vænti þess, að þetta frv., ef að lögum verður, stuðli að því, að ávallt verði til nægilega margir menn, sem vilji sinna þessum menningarstörfum fyrir okkur úti í fámenninu.

Ég vil svo ekki heldur láta hjá líða, þegar minnzt er á þessi mál hér, mál, sem snerta kirkjusönginn í landinu, sönglíf og söngkennslu, að nefna nafn hins nýlátna söngmálastjóra þjóðkirkjunnar, Sigurðar Birkis. Hann vann okkur á þessu sviði mikið og gott starf, og ég tel, að Alþingi heiðri á verðugan hátt minningu þess mæta manns og þakki honum vel farsæl og mikilsverð menningarstörf, unnin í þágu þjóðarinnar, með því að samþykkja þetta frv., og ég efast ekki um, að hv. Alþingi muni gera það.