16.12.1960
Sameinað þing: 25. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í B-deild Alþingistíðinda. (220)
1. mál, fjárlög 1961
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Tveir hv. þm. hafa gert Keflavíkurveg að umtalsefni, en sú vegargerð er hafin fyrir nokkru. Þeir hafa beint þeirri fsp. til mín, hvernig fjár sé aflað til þeirrar vegargerðar, og skal ég svara þeirri fsp.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að afla fjár til þessarar vegargerðar af láni því, sem venjulega er kennt við PL-480 og m.a. er ákveðið um í 22. gr. fjárlaga nú, 30. lið, sem er heimild til ábyrgðar á þeirri lántöku samkvæmt samningi, sem gerður var í aprílmánuði s.l. Hvort fjár verður aflað að öllu leyti til vegargerðarinnar af þessu lánsfé, get ég ekki sagt um að svo stöddu, en til þeirra framkvæmda, sem nú eru í gangi, er ætlunin að afla fjár af þessu láni.