16.12.1960
Sameinað þing: 25. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í B-deild Alþingistíðinda. (225)

1. mál, fjárlög 1961

Frsm. 1. minni hl. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Það eru nokkur orð út af ræðu hv. 6., þm. Norðurl. e., frsm. meiri hl., sem ég vil segja þetta:

Í fyrsta lagi talaði hv. þm. um ráðstöfun okkar á fé á 16. gr. fjárlaga, þar sem við leggjum til, að því verði ráðstafað eins og segir í till. okkar, ef greiðsluþörfin á þeim liðum verður ekki eins mikil og gert er ráð fyrir. Í sambandi við þetta mál vil ég segja það, að mér er ekki kunnugt um það þau ár, sem ég hef setið hér á hv. Alþ., að það hafi legið jafngreinilega fyrir og nú, að þarna mundi verða nokkur afgangur, og minnist ég þess, að árið 1959, við fjárlagaafgreiðslu þá, var það kannað, hvernig horfur væru um þennan lið, og var hann lækkaður í samræmi við þá könnun. Ég tel ekkert óeðlilegt við það, þó að Alþingi leggi til, að þessu fé verði varið á þann hátt, sem við leggjum til, ef fyrir því er þingmeirihluti og það reynist svo, að greiðsluþörfin á þessum fjárlagaliðum verður ekki eins mikil og ráð er fyrir gert. Þetta er því eðlismunur á fjárveitingu. Þessi heimild kemur því aðeins til framkvæmda, að það þurfi ekki að nota féð í því skyni, sem fjárlögin gera ráð fyrir. Eins og ég tók fram í framsöguræðu minni í dag og hef gert hér áður, þá eru þessar till. okkar fluttar af brýnni þörf og sem þrautaleið til þess að fá einhverja jákvæða afgreiðslu á þeim, og ég sé ekkert við það að athuga, þó að þrautaleiðir séu reyndar, þegar venjulegar leiðir eru ekki færar.

Út af hinu atriðinu, sem hv. þm. ræddi hér um, form. fjvn., út af till. okkar á þskj. 225 um að heimila ríkisstj. að gera þær bráðabirgðabreytingar á launakjörum starfsmanna ríkisins, sem þar er lagt til, þá taldi hv. þm., að það væri hæpið, að þær gætu staðizt frá lagalegu sjónarmiði. Nú ætla ég mér ekki að fara að gefa hér lagaskýringar, en fyrir því eru þó dæmi, að með fjárlagaheimild hefur breyting verið gerð á greiðslum til starfsmanna ríkisins. Hér er ekki um það að ræða að breyta launalögum, þar sem hér er aðeins um að ræða að gefa ríkisstj. heimild til þess að framkvæma þetta atriði laganna á næsta ári. Með því að fjárlögin falla úr gildi, þá er þessi heimild líka fallin úr gildi, og ég sé ekki eðlismun á því, þó að þetta sé gert með þeim hætti, sem við leggjum til, eða því, þó að við segðum, að á laun starfsmanna ríkisins í þessum launaflokki skyldi greiða þessa prósenthækkun á næsta ári. En þannig hafa verið framkvæmdar slíkar breytingar, og ég hefði haldið það, að starfsmenn ríkis og bæja, sem hafa í stjórn sinna samtaka lagt til að fá þessar breytingar, hafi líka gert sér grein fyrir því, að þær mundu. ekki verða til þess að spilla samkomulagi meðal starfsmanna ríkisins og bæjarfélaganna, þar sem þetta er frá þeim komið. Þess vegna sé ég ekki ástæðu til, að það þurfi að kvíða því, og ég sé ekki heldur, að hér sé verið að breyta neinum lögum, þó að með heimild í fjárlögum sé verið að gefa ríkisstj. vald til þess að framkvæma þetta svo á næsta fjárlagaári. Launaflokkarnir standa eftir sem áður, og það gerist ekkert annað en að ríkisstj. er heimilt að greiða þessu fólki uppbætur á sín laun, af þeirri einföldu ástæðu, að flest er það í þeim launaflokkum, að það er ekki hægt að una við slíkt, enda hygg ég, að í framkvæmdinni sé því víða þannig háttað, að það sé hlaupið yfir þessa launaflokka, t.d. þegar nýr starfsmaður er ráðinn. Með þessari heimild gæti ríkisstj. líka komizt hjá því að missa úr þjónustu ríkisins marga ágæta starfsmenn, sem nú þegar eru að segja upp starfi.

Ég lít því svo á, að ef að því yrði horfið, sem formaður vék lauslega að, að vísa þessum till. frá, þá væri það ekkert annað en viljayfirlýsing hv. meiri hl. í málinu, en ekki af því, að hæstv. ríkisstj. treysti sér ekki til þess að framkvæma þessar till. Ég hygg, að það muni eitthvað vefjast meira fyrir henni heldur en framkvæmd á þeim, ef til er þingstyrkur fyrir að veita þessa heimild. Og ég hefði haldið, að það væri betra fyrir hæstv. ríkisstj. að hafa þessa heimild til þess að koma sér hjá mörgum vanda, sem kann að bíða hennar; ef slík samþykkt verður ekki gerð.

Þess vegna endurtek ég það, sem ég áðan sagði, að ég treysti á það, að hv. Alþingi verði við vilja ríkisstarfsmannanna, sem hafa óskað eftir að fá þessar breytingar fram nú og ekki frekari breytingar að sinni.