01.11.1960
Efri deild: 14. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í C-deild Alþingistíðinda. (2259)

68. mál, Ræktunarsjóður Íslands og Byggingarsjóður sveitabæja

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Hæstv. viðskmrh. hélt hér alllanga ræðu í gærdag í þessu máli og lýsti m.a. stefnu hæstv. ríkisstj. í málefnum landbúnaðarins í framtíðinni. Sú. stefna var, að því er varðar lánastarfsemi landbúnaðarins, á þá leið, að bændum bæri að taka á sig gengisbreytingu undanfarinna ára og einnig í framtíðinni af þeim erlendu lánum, sem stofnlánasjóðir Búnaðarbankans hafa tekið, enn fremur, að bændum bæri að greiða almenna viðskiptavexti af þeim lánum er sjóðir þessir veita. Þetta var boðskapur hæstv. ríkisstj., sem viðskmrh. boðaði hér í gær, og hér er því um algera stefnubreytingu að ræða í málefnum landbúnaðarins, þar sem ráðherra lýsti þessum kostakjörum eða hitt þó heldur fyrir hönd þeirrar íhaldsstjórnar, sem búin er að herská hér í landinu í tvö undangengin ár.

Hæstv. viðskmrh. hefur valið sér ömurlegt hlutskipti í þeim ríkisstj., sem hann hefur setið í, en það er að vera ber að því að vilja hefta framfarir og skerða rétt bændastéttarinnar umfram rétt annarra stétta í landinu.

Alþýðuflokksmenn mynduðu minnihlutastjórn á degi heilags Þorláks árið 1958, en sú stjórn naut í öllu stuðnings Sjálfstfl. og naut hans stuðnings í öllum málum og auk þess í einu veigamesta málinu naut sú stjórn fylgis Alþb., þ.e. í kjördæmamálinu. Og þetta var eina von hæstv. ríkisstj. til þess að bjarga Alþfl. frá bráðum dauða. Svo aumur var þessi flokkur þá orðinn, að þeir eygðu ekki neitt annað ráð honum til lífs og bjargar í framtíðinni. En hver var ástæðan fyrir þessum vesaldómi Alþfl? Hún var sú, að foringjarnir gleymdu, fyrir hverja þeir voru að vinna, og vöknuðu seint og illa við vonda drauma, sem voru á þá leið, að þeir gætu ekki lengur lifað. Allur vinnandi lýður var frá þeim farinn, aðeins nokkrir embættismenn eftir, menn, sem mátu eigin stöður og embætti meira en hagsmuni fólksins í landinu. Þeir höfðu glatað þeirri stefnu sem Jón Baldvinsson mótaði, þegar hann réð ríkjum í Alþfl., og það er táknrænt fyrir upphaflega stefnu Alþfl. í landinu, þegar hann vann með Framsfl. að málum á árunum 1934 og þar á eftir, að þá eru lögfest einhver þau beztu lög, sem hafa átt sér stað fyrir bændurna og alþýðustéttirnar í landinu. Svo gersamlega hafa þessir leiðtogar Alþfl. nú snúið við blaðinu. Þá voru lögfest kjötsölulögin og mjólkursölulögin og þau lög færðu neytendum tryggingu fyrir auknum og betri vörugæðum, ásamt því sem þau tryggðu betri sölu á landbúnaðarafurðum fyrir hönd bændanna í landinu. Svo gersamlega hefur þessi flokkur snúið við blaðinu.

En hvað skeði svo á því herrans ári 1959, þegar minnihlutaíhaldsstjórn — stjórn Alþfl. hélt því hiklaust fram, að hún væri eiginlega þegar búin að lækna dýrtíðina í landinu? Þeir Alþýðuflokksmenn héldu því hiklaust fram fyrir kosningarnar, að þeir væru búnir að lækna dýrtíðina í landinu. Hvers vegna þurfti að gera það, sem gert var þá á eftir, úr því að þeir voru búnir að því? Svo óforskammaðir voru þeir og skrökvuðu sig inn á þing í nafni þess, að þeir mundu tryggja sömu lífskjör hjá fólkinu í framtíðinni og voru á því herrans ári 1959. Og það er táknrænt líka fyrir þessa stjórn, að hún gaf út bráðabirgðalög, Alþfl. og Sjálfstfl., um það að banna hækkun á landbúnaðarvöruverði, gegn lagabókstaf framleiðsluráðslaganna um verðlagningu landbúnaðarafurða. Þetta var eina afrek þessarar hæstv. ríkisstj. og undirstrikaði mjög vel það, sem áður var vitað, að hún vildi traðka á rétti hinnar fámennu bændastéttar fremur en öðrum stéttum þessa lands.

Hvert var svo næsta skrefið, eftir að skipt var um höfuð á ríkisstj., eftir að hæstv. Ólafur Thors settist í forsætisráðherraembætti eftir forsrh. Emil Jónsson? Ja, það hefur margt skeð síðan, þótt ekki sé langur tími liðinn, þótt ekki sé liðið nema tæpt ár, því að enn þá hefur ekki þessi hæstv. ríkisstj. haldið upp á eins árs afmæli sitt, enda bera flest hennar verk blæ þess, að hún er enn þá barn í vöggu og veit lítið. Það er hin einkennilega viðreisnarstefna, sem er á þann veg, að hún ógnar öllum þorra þjóðarinnar svo, að þess verður skammt að bíða, að aðrir hafi aðeins til hnífs og skeiðar en hæstv. ríkisstj. og hennar útvalda lið. Minnihlutastjórn Alþfl. hafði nefnilega ekki læknað dýrtíðina, eins og hún hélt fram fyrir kosningarnar. Hún hafði hins vegar komið á óreiðu í landsmálum, sem hún duldi þá fyrir þjóðinni og kom ekki í ljós fyrr en eftir kosningarnar, að ný stjórn hafði verið mynduð. Síðan hefur Alþfl. stutt íhaldsstefnuna, sem grundvallast á því, að fjármagnið renni eftir farvegi, sem íhaldsöflin í landinu hafa myndað. Og eitt af fyrstu verkum þessarar hæstv. stjórnar var það að fella gengi íslenzkrar krónu um 182% og stöðva framkvæmdir í stórum stíl hjá öllum almenningi og hjá ríkinu sjálfu. En nú er svo komið eftir þessa viðreisnarstefnu, að það rekur að því, að atvinnulífið sjálft, rekstur þess, er að stöðvast, og sína kannske fyrirsagnir í einu stjórnarblaðanna í dag, Alþýðublaðinu, gleggst, hvert stefnir í þeim málum, þar sem stendur, með leyfi forseta:

„Bátaflotinn boðinn upp. — Útlit er fyrir, að svo til allur bátafloti landsmanna lendi undir hamri uppboðshaldarans innan tíðar vegna vangreiddra tryggingargjalda af bátunum, er nema milljónatugum.“ Enn fremur stendur: „160 milljónir til bænda.“

Þetta segir kannske nokkuð um það, hvernig atvinnuvegum landsmanna er komið undir því viðreisnarstarfi og undir þeim viðreisnaráætlunum, sem hæstv. ríkisstj. hefur viljað vera láta, því að þessi viðreisn er fólgin í því, að það er enginn atvinnuvegur í landinu, sem getur þrifizt til framtíðar undir því kerfi nema með óteljandi nýjum ráðstöfunum, sem ríkisstj. veigrar sér við að láta koma í ljós, vegna þess að þá er hún um leið búin að opinbera, hvernig ástatt er. En þetta skýzt fram í Alþýðublaðinu annað slagið, af því að Alþfl. vill vera láta, að hann sé hvíti sauðurinn í stjórninni, en Sjálfstfl. sá svarti.

Það er ekki að undra, þótt liggi illa á hæstv. viðskmrh. út af þessum málum, þegar allt, sem hann hefur áður reiknað út með sínum reikningsstaf, fer út um þúfur.

Út af þeim umræðum, sem féllu hér í gær, þykir mér ekki óviðeigandi að lýsa nokkuð, hvernig þær efnahagsráðstafanir, sem hæstv. ríkisstj. hefur beitt sér fyrir og áttu að koma atvinnuvegunum á réttan kjöl, sem hún kallaði, hvernig þær ráðstafanir hafa farið og verka á bændur landsins og landbúnaðarframleiðsluna. Mér finnst, að það geri ekkert til, þótt hæstv. ríkisstj. reyni annað veifið að gera sér einhverja grein fyrir þeim hlutum.

Það má vel vera, að maður hafi ekki búizt við miklu, þegar það var yfirlýst stefna sjálfstæðismanna, að það ætti að fækka bændum um helming, eins og einn foringi þeirra hér í bænum lét í ljós 1. maí fyrir nokkrum árum. Og enginn efast heldur um það, að Alþfl. gerir sitt ýtrasta til þess, að svo megi verða. Hans saga á liðnum árum gefur ekki tilefni til annars en þess. Ofan á 50–90% hækkun á vöruverði var almennum vaxtakjörum breytt þannig, að ef maður tekur bónda, sem skuldaði í viðskiptareikning allt árið 1959 50 þús. kr., þá greiddi hann í vexti af þeirri upphæð 4 þús. kr., — greiddi fjögur þúsund krónur. Ég geri ekki ráð fyrir, að hlutaðeigandi bóndi geti mikið sparað við sig, þó að dýrtíðin hafi hækkað og það vörumagn, sem kostaði 50 þús. 1959, kosti ekki undir 75 þús. kr. á þessu herrans ári 1960. Og til viðbótar 25 þús. kr. hækkun á vöruverðinu verður hlutaðeigandi aðili að greiða 125% hækkun í vexti, því að hann þarf að greiða — ekki 4 þús., heldur 9 þús. í vexti, það er 5 þús. kr. hækkun. Allt bætist þetta á vöruverðið. Þetta eru þau kostakjör, sem Sjálfstfl. hefur boðið þjóðinni upp á eftir leiðinni til bættra lífskjara, sem hann lofaði þjóðinni í fyrra fyrir kosningarnar.

Við getum haldið áfram: Útlánsvextir úr hinum almennu sjóðum, ræktunarsjóði og byggingarsjóði, hækkuðu um 2½% á s.l. vetri, og annað var einnig gert, það var styttur lánstíminn úr ræktunarsjóði úr 25 árum niður í 15 ár, og er það samkvæmt þeirri stefnu, sem hæstv. viðskmrh. auglýsti hér í gær. En hvernig lítur þá dæmið út hjá bónda, sem er að byggja íbúðarhús á þessu ári og fær hækkun á byggingarefni um 50–70%? Þannig, að ætla má, að 300 fermetra íbúðarhús, sem byggt er í ár, kosti ekki undir 300 þús. kr., og þar af er hækkun vegna gengisbreytingar og söluskatts nálægt 90 þús. En hvað verður lánið, sem þessi bóndi fær út á slíkt íbúðarhús? Enn þá veit enginn um það, því að það er ekkert lán farið að veita, en ef það fer eins með þessi lán eins og lánin úr ræktunarsjóði, að þau megi ekki hækka, þá má ætla, að hann fái 75 þús. kr. út á íbúðarhús. Það vantar þá nokkuð, til þess að það nægi fyrir hækkuninni, sem varð í ár á byggingarefni. Þetta er rausnarskapur hæstv. ríkisstj. til þeirra, sem eru að byggja. Hitt verður hlutaðeigandi bóndi að borga, það sem hann tekur að láni, með 12% vöxtum, ef hann hefur ekki átt neitt fé fyrir til framkvæmdanna sjálfur, sem varla er við að búast. Fasta lánið verður því 25% af heildarkostnaði hússins, á meðan lagaheimildin gerir svo ráð fyrir, að lána megi allt að 75% af kostnaðarverði íbúðarhússins. Þetta eru staðreyndir, sem tala sínu máli og sýna vel vilja og hug þessarar hæstv. ríkisstj. til bændastéttarinnar í landinu.

Það er hægt að halda áfram. Ég get tekið annan bónda, sem er að byggja fjárhús, sem kostar nú í ár 320 þús. kr., en kostuðu í fyrra 240 þús. yfir jafnmargt fé. Hækkun á efni er því um 80 þús. kr. En hvað hækkar lánið, sem þessi bóndi fær nú í Búnaðarbankanum? Hér er sagt, að hæstv. ríkisstj. sé búin að fyrirskipa að reikna út kostnað við framkvæmdir í ár eftir sama stiga og viðgekkst á árinu sem leið. Það gefur því auga leið, hvílíkir erfiðleikar eru á ferðinni hjá þeim, sem standa í framkvæmdum nú, þegar bóndi, sem byggir í ár, verður að taka á sig 80 þús. með 12% vöxtum fram yfir það, sem verið hefði, hefði hann byggt í fyrra. Auk þess á hann að fá lán aðeins til 15 ára með 6½% vöxtum nú, í staðinn fyrir, að hefði hann byggt í fyrra, hefði hann fengið lán til 25 ára með 4% vöxtum. Þetta eru þau kostakjör, sem bændunum er boðið upp á, samhliða því, að þeirra afurðaverð hefur sáralítið hækkað.

Það má líka lengur telja, því að ríkisstj. hefur lækkað afurðalánin til bændanna. Til sjávarútvegsins eru þau 85%, en aðeins 67% út á landbúnaðarafurðir, en hafa lækkað á ull og gærum niður í 50%. Svona er á þessu sviði líka búið að bændunum. Það er ekki ein báran stök, hvar sem maður lítur í húsakynni bændastéttarinnar í landinu, að því er varðar afskipti hæstv. stjórnarvalda af þeirri atvinnustétt.

Það þarf ekki að lýsa, hvert stefnir hjá bændastéttinni. Stefna hæstv. ríkisstj. sér um það, ef hún heldur svona áfram, hvert bændur fara, áður en mörg ár líða.

Hæstv. viðskmrh. talaði mikið um óreiðu hjá stofnlánadeildum Búnaðarbankans, lagði sér það í munn oft og mörgum sinnum. Og hann sagði, að annað eins þekktist hvergi. Ég held, að hæstv. ráðh. hafi ekki gert sér fulla grein fyrir því, hvað hann var að segja. Ég efast mjög um það. Það liggur ekkert falið hjá stofnlánasjóðum Búnaðarbankans. Þar er allt á sínum stað og hægt að benda á hverja einustu krónu, hvernig henni hefur verið eytt og hvernig hennar hefur verið aflað. Þar er ekki um neina óreiðu að ræða. En hvaða óreiða skyldi þá eiga sér stað? Getur verið, að nokkur óreiða önnur eigi sér stað? Óreiðan, sem er, ef nokkur óreiða er þá, hún er hjá hæstv. ríkisstj. sjálfri fyrst og fremst og engum öðrum, því að hún liggur í stjórnarfari hæstv. ríkisstj. sjálfrar. Stjórnin hefur ekki frekar á þessum vettvangi en öðrum varðandi þjóðmálin haft afskipti af málefnunum til bóta. Hæstv. núv. ríkisstj. og þeir flokkar, sem að henni standa, hafa ráðið ríkjum hér í landinu í tvö ár, en þeir hafa algerlega vanrækt að taka þessi mál til athugunar, þrátt fyrir það að þeir hafa vitað, hvernig ástatt var í þessum málum. Það eina, sem þeir hafa gert og hefur verkað á gagnstæðan veg, er að auka á skuldbindingar þessara sjóða um allt að 90 millj. kr. Það er þeirra eina afrek í þessum málum, sem verkar líkt og annars staðar hjá þessari hæstv. stjórn. En sá er munurinn, að þegar framsóknarmenn voru í ríkisstj., höfðu þeir þessi mál alltaf í huga og börðust fyrir þeim, þótt oft væri við ramman reip að draga, þar sem innan ríkisstj. var kannske einn og einn hagfræðingur, sem hafði reikningsstaf í hendi, og þessi reikningsstafur var látinn ráða. Það er ekki lífið sjálft og þarfir og geta fólksins, sem tillit er tekið til, heldur er reiknað út frá einhverjum óþekktum staðreyndum, sem enginn botnar í, og getur slíkt aldrei leitt til neins góðs.

Það eru líka staðlausir stafir hjá hæstv. viðskmrh., að rekstur stofalánasjóðanna eigi sér engan líka. Þetta er sagt af illgirni af ráðþrota ráðherra, sem tínir allt til, hvort sem það er rétt eða rangt, enda gerði hann enga viðleitni til að sanna þetta mál. Hann kom ekki með neinn samanburð, svo að þetta mál er því ósannað og verður vafalaust, áður en lýkur, marghrakið, ef hann gerir sér far um að kynna sér hliðstæður annars staðar hjá bönkum og í landinu sjálfu.

Þess er skemmst að minnast, að landbúnaðarframleiðslan var ekki nægjanleg fyrir þörf þjóðarinnar árið 1950. En fyrir framsýni mest ráðandi manna í bændastétt hefur það áunnizt, að við gerum nú heldur betur en að framleiða fyrir þjóðarþörfina og flytjum út nokkuð af landbúnaðarvörum. Og það er eftirtektarvert, og það vil ég að hæstv. ríkisstj. geri sér ljóst, að sá útflutningur, sem hefur verið á undanförnum árum á landbúnaðarframleiðslu, hefur alveg staðið undir þeim rekstrarvörum, sem landbúnaðurinn hefur þurft að fá frá öðrum löndum, þannig að landbúnaðurinn hefur á þann hátt síður en svo verið ómagi við gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Það er öðru nær. Landbúnaðarframleiðslan nemur nú í dag um 800 millj. kr., og það er ekki svo lítið, sem bændur landsins inna af hendi og leggja fram í þjóðarbúið, og eru þeir fyrir það alls góðs maklegir. Fróðir menn hafa reiknað út, að ef það hefði verið stöðnun í landbúnaðarframleiðslunni allt frá 1950, ef ekki hefði átt sér stað sú uppbygging og framleiðsluaukning, sem hefur verið með eindæmum góð, þá mundi þurfa að flytja inn landbúnaðarafurðir nú á þessu ári fyrir um 300 millj. kr. Og ég vil segja, að þetta er mikið innlegg hjá bændastétt landsins til þeirrar ríkisstj., sem fer vítt og breitt um allan heiminn til þess að snapa alla sjóði til þess að geta fengið nauðsynlegan gjaldeyri og geta séð þjóð sinni fyrir brýnustu lífsnauðsynjum. Þetta er hreint ekki svo lítið, þegar þess er gætt, að mjólkuraukningin frá árinu 1950 til 1958 er á hvern íbúa í landinu 14.52% og kjötaukningin á sama tíma 34.92%, og á sama tíma er aukningin á vinnandi mann í landbúnaði í kjöti 70%, en í mjólkurafurðum um 40%. Þetta er m.a. til komið fyrir hagsýni og dugnað bændastéttarinnar í landinu og þeirra félagasamtaka, ásamt því, að félagsmálabarátta bændanna hefur oftast mátt sín mikils hjá æðri stjórnarvöldum, þannig að það hefur algerlega skipt um tón hjá stjórnarvöldunum til bændastéttarinnar nú, með tilkomu þeirrar hæstv. ríkisstj., sem nú ræður ríkjum í landinu.

Ég vil segja það, að fyrir ríkisstj., sem vill þjóð sinni vel og einnig landbúnaðinum, verður að skipta um stefnu í þessum málum. Það verður að gera það, svo að bændastéttin verði á næstu 10 árum þess megnug að standa jafnvel í stöðu sinni og hún hefur gert á s.l. 10 árum, svo að hægt sé að sjá þjóðinni fyrir þeim hollu vörum, sem framleiddar eru hjá bændastétt landsins. En nú blasir við hins vegar hjá bændum eins og öðrum gífurlegur samdráttur og alger uppgjöf hjá sumum þeirra, ef ekki kemur til eitt af þrennu, áður en langir tímar líða, og það er, að lánin, sem stofnlánasjóðir landbúnaðarins veita, verði til langs tíma með mjög hagkvæmum kjörum og auknir verði styrkir til landbúnaðarins, og í þriðja lagi, að hækkað verði verðlag á landbúnaðarvörum. Það verður að koma til eitt af þessu þrennu eða allt samverkandi, ef landbúnaðurinn á að geta sinnt sínu hlutverki í framtíðinni eins og hann hefur gert til þessa. Það er ekkert annað, sem þýðir. Það er líka skylda stjórnarvalda að hugsa um velferð sinna þegna og efla þá til drengskapar og dáða, en löðrunga þá ekki við hvert einasta fótmál, sem þeir stíga til framfarabaráttu í þjóðfélaginu.

Það er skylda hæstv. ríkisstj. að samþykkja það frv., sem hér liggur fyrir, eða að öðrum kosti gera aðrar ráðstafanir, sem jafngilda þessum eða gera betur. En ég mótmæli þeirri stefnu, sem ríkisstj. boðar bændum nú, því að slík samdráttarstefna samrýmist ekki þjóð, sem telur sig vera á meðal lýðræðisþjóða.