01.11.1960
Efri deild: 14. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 806 í C-deild Alþingistíðinda. (2261)
68. mál, Ræktunarsjóður Íslands og Byggingarsjóður sveitabæja
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Ég var ekki hér í hv. d. í gær, þegar þetta frv. kom til umr., en ég hef heyrt, að það hafi verið allfjörugar umræður og margt af því, sem fram kom hjá hv. ræðumönnum, hafi verið utan við efnið.
Það er alveg rétt, sem hæstv. viðskmrh. sagði hér áðan, að það er mikill vandi á höndum að leysa úr því fjárhagsöngþveiti, sem sjóðir landbúnaðarins eru í. Ég hygg, að það sé sama, í hvaða flokki menn eru, menn verði að viðurkenna, að hér er úr vöndu að ráða. Þetta mál verður áreiðanlega ekki leyst með stóryrðum einum, heldur aðeins með raunhæfum aðgerðum. Þetta mál verður ekki heldur leyst, þótt leitað sé að þeim seku eða sekasta, hvers vegna hagur sjóðanna er eins og raun ber vitni. Það er ekki í raun og veru aðalatriðið. Aðalatriðið er að finna lausn til þess að leysa úr vanda þessara sjóða, til þess að þeir geti áfram verið sú lyftistöng fyrir landbúnaðinn, sem þeim hefur ávallt verið ætlað að vera.
Ég býst ekki við, að nokkur hér í hv. d. spyrji að því, hvort þörf sé fyrir þessa sjóði, hvort landbúnaðurinn hafi þörf fyrir öfluga lánasjóði. Og ég býst varla við, að nokkur hv. þm. spyrji að því, hvort þessi þörf sé minnkandi eða vaxandi. Við hljótum að viðurkenna, að um leið og verðlagið hækkar, þá er þörf fyrir meira fé til útlána. Það má vel vera, að menn hafi misjafnlega góðan skilning á högum landbúnaðarins og gildi hans, en sá skilningur er því aðeins eitthvað misjafn, að þekking manna á þessum atvinnuvegi er eðlilega nokkuð misjöfn.
Ég hef oft verið að velta því fyrir mér, hvernig á því stæði, — en sem betur fer, þá fer þeim röddum mjög fækkandi, — hvernig á því stæði, að það heyrist þó einstöku sinnum rödd um það, að landbúnaður á Íslandi sé í rauninni ekki mjög nauðsynlegur fyrir íslenzku þjóðina. Það er þó þannig, að með núverandi verðlagi á landbúnaðarvörum mun landbúnaðarframleiðslan vera um 900 millj. kr. á ári. árlítið af þessari framleiðslu er flutt út, ekkert af mjólkurafurðum, en aðeins örlítið af kjöti. Framleiðsla mjólkurafurða dróst saman eftir aðgerðirnar 1958 og dróst enn saman 1959 vegna afleiðinga af aðgerðunum 1958, þannig að mjólkurframleiðslan varð ekki nóg. Það hefur orðið að flytja inn smjör. Ég vil minna hv. 1. þm. Vesturl. á þetta, vegna þess að hann var að tala um, að aðgerðir núv. ríkisstj. verkuðu sem samdráttur á landbúnaðarframleiðsluna. Hv. þm. getur ekki ásakað núv. ríkisstj. fyrir þann samdrátt, sem var í framleiðslunni eftir aðgerðirnar 1958 og síðan 1959. Það getur hann ekki. Það tekur enginn trúanlegt. Hitt ber svo að viðurkenna, að það eru ekki líkur til, að það verði neinn skortur á þessari framleiðslu að þessu sinni, ekki líkur til, að það þurfi að flytja inn smjör að þessu sinni, en ég skal viðurkenna, að góðærið, sem hefur verið, á sinn þátt í því, um leið og ég fullyrði þó, að aðgerðir núv. ríkisstj. verka ekki meira til samdráttar nú í bili en aðgerðirnar 1958. Það væri heimskulegt að viðurkenna ekki, að það hefur verið þrengt að bændum eins og öllum stéttum þjóðfélagsins með aðgerðunum, sem gerðar voru. Það hefur verið þrengt að landsfólkinu í bili og nauðsynlegar aðgerðir gerðar til þess að forðast hrun og vandræði, til þess að koma í veg fyrir það, að fólk hér í landi búi við varanlega erfiðleika, og sem betur fer, þá munu bændur ekki síður en aðrar stéttir þjóðfélagsins taka skynsamlega á þessu, enda þótt ýmsir geri allt, sem þeir geta, til þess að draga kjark úr bændum og öðrum þegnum þjóðfélagsins.
Ég sagði, að ég undrast það, þegar maður, þótt sjaldan sé, heyrir menn efast um, að landbúnaðurinn sé nauðsynlegur og að það sé þörf á að efla lánasjóði landbúnaðarins. Við getum alveg gert okkur grein fyrir því með léttum dæmum, hvernig þessum málum er varið. Við skulum segja, að mjólkurframleiðslan sé nægileg nú, en hún er að minnsta kostí ekki of mikil, víð skulum segja, að hún sé nægileg. Nú búa í landinu um 170 þúsund manns. En eftir 30–40 ár búa í landinu 350–370 þúsund manns eða helmingi fleiri eða meira en helmingi fleiri en núna. Af þessu leiðir, að það þarf að tvöfalda mjólkurframleiðsluna í landinu, til þess að þjóðin hafi nægilega mjólk og mjólkurvörur. Engum dettur í hug, að farið verði að flytja inn mjólk og mjólkurvörur og eyða gjaldeyri í það. Þetta gerist ekki nema með því, að ræktunin aukist að sama skapi. Hún verður að aukast að sama skapi. Við flytjum nú út aðeins örlítið af kindakjöti, en eftir örfá ár hverfur sá útflutningur, nema framleiðslan aukist, og til þess að hafa nóg af kjöti handa landsfólkinu þarf kjötframleiðslan að aukast í hlutfalli við fólksfjölgunina. Aðeins þetta ljósa dæmi getur leitt okkur í fullan sannleika um það, að við verðum að halda áfram að rækta, við þurfum að halda áfram að auka landbúnaðarframleiðsluna. Það getur enginn efazt um það, sem skoðar þessi mál í réttu ljósi. Og það getum við ekki gert, nema lánasjóðir landbúnaðarins geti gegnt hlutverki sínu. Ég segi þetta ekki vegna þess, að ég búist við því, að nokkur efist um þennan sannleika, en ég held samt, að það sé hollt að gera sér grein fyrir því, að á 30–40 árum þurfum við að tvöfalda mjólkurframleiðsluna í landinu, og það gerist ekki nema með aukinni ræktun. Þá er spurningin: Hvernig getum við farið að því að koma lánasjóðum landbúnaðarins sem og öðrum stofnlánasjóðum atvinnuveganna á réttan og öruggan grundvöll, þannig að þeir geti verið atvinnuvegunum sú lyftistöng, sem þeim hefur verið ætlað? Ræktunarsjóður skuldar í dag tæpum 23 millj. kr. meira en eignir hans eru, og þetta er ekki gott. Rekstrarhalli byggingarsjóðs og ræktunarsjóðs fer með sama áframhaldi og verið hefur stöðugt vaxandi, vegna þess að útlánin eru bundin til fleiri ára en þau lán, sem þessir sjóðir hafa tekið, og í sumum tilfellum er lánað út með lægri vöxtum en sjóðirnir þurfa að borga, og svo kemur það, sem hefur verið talað um: tap þessara sjóða vegna gengislækkunarinnar.
Hæstv. viðskmrh, minntist á það áðan, hvað satt væri í því, að þessir sjóðir hefðu tapað 90 millj. vegna breytinga á gengisskráningunni á s.l. vetri, og skal ég ekkert fara út í það. Út ef fyrir sig er það heldur ekkert aðalatriði, hvort þessir sjóðir hafa tapað við gengisbreyt. 1958 eða 1960. Aðalatriðið er, að þeir hafa tapað og að þeir eiga ekki fyrir skuldum. Það er aðalatriðið. Hitt ber svo bara vott um veikleika í málflutningi, þegar verið er að falsa tölur og reyna að koma sök á þann, sem er ekki sekur. Finnst mér, að hv. framsóknarmenn ættu að temja sér hóf í slíku.
Það mætti segja, að það bærí vott um traust til núverandi ríkisstj. að flytja þetta frv., sem hér er um að ræða, vegna þess, að hv. framsóknarmenn hafa verið i stjórn, þeir voru í ríkisstjórn 1958, þegar 55% yfirfærslugjaldið var lagt á, og þá vissu þeir, að það var verið að féfletta þessa sjóði um 30 millj. kr. með þeirri lagasetningu, en þeir hreyfðu ekki hönd eða fót þá og ekki heldur í ársbyrjun 1957, þegar 16% yfirfærslugjaldið var lagt á, en það gilti líka stórt tap fyrir sjóðina. Af hverju var ekki flutt frv. í sama anda og þetta frv., um leið og yfirfærslugjaldið var lagt á, til þess að tryggja öryggi sjóðanna? Það getur ekki verið af viljaleysi þáverandi hæstv. forsrh., form. bankaráðs Búnaðarbankans. Var það vegna þess, að þáverandi hæstv. forsrh. og formaður bankaráðs Búnaðarbankans vildi vera laus við óþægindin, sem af því leiddi að bera frv. fram, eða var það vegna þess, að hann treysti sér ekki til þess að koma því fram í þeirri ríkisstjórn, sem hann veitti forustu? Vissulega hefði verið hægara að koma frv. í gegn 1958, sem fór þó ekki fram á meira en 30 millj., heldur en frv., sem fer fram á 160 millj. Vissulega hefði verið hægara fyrir þá, sem vildu fá eftirgjöf á þessum skuldum sjóðanna, að taka þetta í áföngum heldur en allt í einu. Þeir, sem telja sig alveg sérstaklega málsvara landbúnaðarins, hefðu ekki átt að veigra sér við að taka á sig óþægindi og reyna að koma slíkum málum fram, á meðan þeir voru við völd, ekki geyma kröfurnar, þangað til þeir voru farnir frá völdum, og setja þannig alla sína von á aðra. Ég hygg, að framsóknarmenn í hjarta sínu séu alveg samþykkir því, að þetta mál sé erfitt og að það sé alls ekki eðlilegt, að það gangi tregðulaust í gegn að fá það samþ.
Ég hygg, að hv. 2. þm. Vestf. (HermJ) hafi reynt nokkuð á það í vinstri stjórninni og viti alveg um það, hvernig ástatt var þá í þessum málum, og að hann geti þess vegna alveg eins gert sér grein fyrir því í dag, að það sé erfitt að fá svo stóran bita, 160 millj., úr því að hann gat ekki 1958 fengið 30 millj.
Ég vil upplýsa það, að ríkisstj. hefur rætt um lánasjóði landbúnaðarins og það er vilji innan ríkisstj. að koma lánasjóðum landbúnaðarins á réttan kjöl. Dæmið, sem ég nefndi áðan um þörf á hinni miklu framleiðsluaukningu landbúnaðarvara, sannar það og sýnir, að allir ábyrgir stjórnmálamenn og ríkisstjórn á hverjum tíma hljóta að gera sér grein fyrir því; að það er þjóðarnauðsyn, að þessir sjóðir geti haldið áfram að lána. Og ég verð að segja það, að það er gremjulegt, hvað mikið fer af því fé, sem aflað er til þessara sjóða, í vexti og afborganir. Það skiptir tugum milljóna, sem þarf að afla árlega í vexti og afborganir af skuldum þessara sjóða, áður en nokkur peningur er fyrir hendi til þess að lána. Það skapar hverri ríkisstjórn erfiðleika. Sannarlega er mikil þörf á því að koma þessum málum þannig fyrir, að þessir sjóðir hafi fastar og tryggar tekjur árlega, sem fari ekki að mestu leyti í vexti og afborganir af skuldum. Til þess að ræktunin geti aukizt og framleiðsla landbúnaðarvara aukizt, er náttúrlega ekki nóg, að bændurnir geti fengið lán. Til þess að fólk vilji stunda landbúnað og geti stundað landbúnað, þarf það að fá ]án, og það þarf að skapa grundvöll, til þess að þessi lán verði greidd, og það má gerast með því, að landbúnaðarvörurnar séu seldar á því verði, sem kostar að framleiða vörurnar.
Hv. 1. þm. Vesturl. var svo smekklegur hér áðan, að hann vildi gefa í skyn, að verðlag landbúnaðarvara hefði hækkað óeðlilega lítið á þessu ári eftir gengisbreyt. og það væri sök núverandi ríkisstj. Ég hélt, að maður í bændastétt og fulltrúi á aðalfundi Stéttarsambands bænda væri betur að sér en kemur fram í svona fullyrðingum. Hefur núverandi ríkisstj. haft afskipti af afurðaverði landbúnaðarins í ár? Hefur núverandi ríkisstjórn eitthvað spillt þeirri lagasetningu, sem á að tryggja bændum það grundvallarverð, sem sex manna nefndin reiknar út? Núverandi ríkisstjórn skipti sér af lagasetningu um afurðaverð landbúnaðarins, en það var fyrir gengisbreytinguna. Það var þegar verið var að leysa þann vanda, sem stafaði af brbl., sem ræðumaður minntist líka á. Þá voru þessi lög bætt það mikið, að það er nú í fyrsta sinn, sem líklegt má telja, að bændur geti fengið grundvallarverðið.
Ég ætlast ekki til, að hv. 1. þm. Vesturl. þakki núv. ríkisstj. fyrir þessa lagfæringu, sem framsóknarmenn gátu ekki komið í gegn, á meðan þeir fóru með þessi mál. En hann hefði átt að vita það, að ríkisstj. verðleggur ekki landbúnaðarvörurnar. Hann hefði átt að vita það, að í 17 ár hefur 6 manna nefnd, 3 fulltrúar frá bændum, 3 fulltrúar frá neytendum, samið um verðlag á landbúnaðarvörunum. Og hann hefði átt að vita það, að 6 manna nefndin kom sér saman um verðlagið á þessu ári og enginn ágreiningur varð. Átti ríkisstj. að grípa inn í og skapa ágreining, þegar fulltrúar bænda og neytenda komu sér saman? Ætlaðist þessi hv. ræðumaður til, að ríkisstj. gripi inn í og segði: Nei, þetta er ekki nógu hátt verð, þið verðið að breyta grundvellinum? — Eða vill hv. þm. hverfa frá þeirri aðferð, sem viðhöfð hefur verið um verðlagningu landbúnaðarvara undanfarin 17 ár, með því samkomulagi, sem um semst í 6 manna nefnd? Fulltrúar bænda hefðu getað gert ágreining og visað til yfirdóms, ef ekki hefði verið samkomulag um verðgrundvöllinn.
Ég var á aðalfundi Stéttarsambands bænda í haust á Bifröst, og þar var deilt um afurðaverðíð. En það var enginn fulltrúi á aðalfundi Stéttarsambands bænda, sem deildi á ríkisstj. fyrir það. Allir fulltrúar á aðalfundi Stéttarsambands bænda voru svo skynsamir, að þeim datt ekki í hug að áfellast ríkisstj. fyrir það, þó að þeim fyndist afurðaverðið vera of lágt. Þeir töluðu um það, að verðgrundvöllur landbúnaðarvara væri ekki réttur. En hvorki núverandi ríkisstj. né aðrar ríkisstjórnir hafa skapað þann grundvöll. Og það, sem núv. ríkisstj. hefur gert, er að tryggja það, að bændur fái grundvallarverðið, sem aðrar ríkisstjórnir hafa ekki gert. Og hún gerir það með því að taka ábyrgð á útflutningsverðinu og borga útfluttu vörurnar á ekki lægra verði en þær, sem seljast innanlands. Áður báru bændur mikið tap af þessum útflutningi og fengu þess vegna ekki það verð, sem um samdist í 6 manna nefndinni.
Ég bjóst alls ekki við því, að hv. 1. þm. Vesturl. leyfði sér að koma með slíka fullyrðingu sem þetta, vægast sagt svo heimskulega, af því að ég hafði ástæðu til þess að ætla, að hann vissi betur, og ekki heyrði ég hann tala í þessum tón á aðalfundi Stéttarsambands bænda frekar en aðra fulltrúa, sem þar voru mættir, því að sú samkoma var þannig skipuð, að ætla má, að þeir, sem þar voru, hafi vitað með öllu skil á því, hvernig afurðaverð landbúrnaðarins er fundið á hverjum tíma, og þess vegna algerlega tilgangslaust að sakast við ríkisstj. um, þótt bændum finnist það of lágt.
Ég get verið samþykkur hv. 1. þm.. Vesturl. um, að það væri æskilegt fyrir bændur að fá hærra verð. Það geta þeir aðeins fengið með því að telja fram alla kostnaðarliði við búreksturinn og fá það sett inn í verðgrundvöllinn, þegar afurðaverðið er reiknað út. Bændur á aðalfundi Stéttarsambands bænda ræddu mikið um, að þetta væri að nokkru leyti sök bændanna sjálfra, að þeir fengju ekki fullt verð, það væri vegna þess, að á skattskýrslunum kæmu ekki fram allir kostnaðarliðir við búreksturinn, eins og vera bæri. Þetta verður ekki lagað nema með því móti, að að því verði unnið á hinn rétta og eðlilega hátt, að fram komi allur kostnaður við búrekstur bóndans.
Það kom líka greinilega fram á aðalfundi Stéttarsambandsins, að fulltrúar þar mátu mikils þá breyt., sem gerð hefur verið á afurðasölulögunum. Þeir skildu, að útflutningstryggingin var bændunum mikils virði. Þeir skildu það líka, að það er mikils virði fyrir bændur nú í fyrsta sinn, ef kauphækkanir verða, að þurfa ekki að bíða heilt ár með að mega hækka afurðaverðið, eins og áður hefur verið, en að taka megi tillit til þess litlu eftir að kauphækkanirnar hafa farið fram. Aðalfundur Stéttarsambands bænda skildi það líka, að það var mikils virði fyrir bændur að geta komið inn í verðgrundvöllinn ársfjórðungslega hækkun á rekstrarvörum, ef þær hækka í verði. En það gátu þær ekki áður, nema einu sinni á ári, og urðu þeir stundum að bíða í 9, 10 eða jafnvel 11 mánuði eftir réttmætri hækkun, ef rekstrarvara hækkaði t.d. í október eða nóvember, því að það mátti ekki taka tillit til þess fyrr en næsta haust.
Ég segi þess vegna, að eins og afurðasölulögin eru nú orðin, eiga þau að tryggja bændum uppbót á þeirri dýrtíð, sem verða kann hverju sinni, ef verðgrundvöllurinn er réttur og kostnaðarliðirnir við búreksturinn koma fram í grundvellinum. En ef kostnaðarliðirnir koma ekki allir fram í grundvellinum, þá vitanlega verður bóndinn snuðaður. En bændurnir sjálfir — verða að gera þetta. Það verður að heimta það af þeim, eins og kom fram á aðalfundi Stéttarsambandsins, að þeir tryggi það, að allir kostnaðarliðir komi fram, því að því aðeins er hugsanlegt, að landbúnaðurinn geti blómgazt hér í landinu. Það er þetta tvennt, að bændur fái rétt afurðaverð gegnum lagfærð og betri afurðasölulög, sem þeir nú hafa fengið, og að þeir geti i gegnum lánasjóði landbúnaðarins fengið eðlilega fyrirgreiðslu þar.
Hv. 1. þm. Vesturl. talaði um 90 milljónirnar, sem reyndar var búið að ræða um áðan og ég þarf ekki að fara nánar út í. — Hann sagði, að bændur mundu ekki fá hærri lán úr Búnaðarbankanum að þessu sinni. þrátt fyrir dýrtíðina heldur en þeir hefðu fengið áður og að ríkisstj. hefði fyrirskipað, að virðing á framkvæmdum væri gerð eftir sama stiga og áður, þrátt fyrir verðhækkun á byggingarefni og byggingarkostnaði. Ég mótmæli þessu. Ríkisstj. hefur ekki gert það. Ríkisstj. hefur ekki gripið þannig inn í stjórn Búnaðarbankans að gera þetta, og það veit ég, að sá hv. bankaráðsmaður, sem hér er staddur, er fús, til að viðurkenna. Það var í morgun, sem ég talaði við Þóri Baldvinsson og spurði hana að því, eftir hvaða stiga væri metið nú, — því að ég vissi, að fulltrúi bankans er byrjaður að ferðast um Suðurland og virða byggingar, — og ræddi um það við Þóri Baldvinsson, að það dygði ekki að miða við sama stiga og var fyrir 4 árum, þannig að ég hef vakið athygli bankans á þessu máli, og ætlaði byggingameistari bankans að ræða um þetta við bankastjóra. Þetta gerðist áður en hv. 1. þm. Vesturl. minntist á þetta hér áðan heldur ósmekklega, vegna þess að hann er ekki svo minnislaus, þar sem hann var í bankaráði Búnaðarbankans 1958, að enda þótt byggingarkostnaður þá væri hækkaður stórkostlega, gerði hann sem bankaráðsmaður engar ráðstafanir til þess, að þeim stiga, sem byggingar eru virtar eftir, væri breytt. Eftir ráðstafanirnar 1958 fengu bændur ekkert hærri lán út á byggingarframkvæmdir en áður en 55% yfirfærslugjaldið kom til framkvæmda. En það er ekki í fyrsta sinn, sem það kemur fram hjá þessum hv. þm., að hann gerir meiri kröfur til annarra en sjálfs sín og sinna flokksbræðra. Skyldi það ekki vera í fyrsta sinn núna, sem athugað er í alvöru að hækka stigann á þeirri virðingu, sem fram fer á framkvæmdunum, og þar með þá að gera ráðstafanir til, að það fáist hærra lán í krónutölu, eins og ég tel alveg nauðsynlegt vera, ef bændur eiga að geta haldið framkvæmdunum áfram?
Hv. 1. þm. Vesturl. ræddi mikið um þáð hér áðan, að efnahagsaðgerðirnar s.l. vetur ógnuðu öllum almenningi í landinu og öllum atvinnustéttum. Þetta er náttúrlega ekkert nýtt úr munni framsóknarmanna, því að maður getur lesið í sama Tímablaðinu fullyrðingar með feitum fyrirsögnum, þar sem sagt er: Bændur geta ekki búið, — útgerðarmenn geta ekki stundað sína atvinnu, — og ekki fá kennarar nóg laun, til þess að þeir geti lifað. — Það er þannig komið, að áliti Tímans, að það geti enginn þjóðfélagsþegn eða þjóðfélagsstétt lifað í þessu landi. Það er svo illa komið að hans dómi. Um þetta kenna framsóknarmenn aðgerðunum s.l. vetur. Væri nú ekki fróðlegt fyrir þessa hv. menn að gera sér grein fyrir því, hvers vegna aðgerðirnar s.l. vetur voru gerðar, voru framkvæmdar? Voru þær gerðar að nauðsynjalausu? Voru þær gerðar af slæmri ríkisstj., sem hafði það helzt á stefnuskrá sinni að skapa erfiðleika? Eða voru þær gerðar af nauðsyn? Og hvers vegna var þetta nauðsynlegt? Hvers vegna var hag okkar þjóðar þannig komið, að það var nauðsynlegt að gera svo stórtækar ráðstafanir sem raun ber vitni? Satt að segja hefði ég haldið, að það væri ekki þörf á að minna hv. 1. þm. Vesturl. á þetta. En það er eins og svo margt annað með þennan mann, að hann virðist vera gleyminn og hann virðist vera ákaflega lítið gagnrýninn á sjálfan sig og sinn flokk. En jafnvel þótt hann sé gleyminn, ætti hann að muna það, að hans flokkur hafði stjórnarforustu á árunum 1956 til ársloka 1958, og þótt hann sé gleyminn, þá ætti hann líka að vita það og muna, að hv. 2. þm. Vestf. og hv. 1. þm. Austf. fóru ekki úr ríkisstj. 1958 af því, að þeir vildu ekki áfram, vera við völd, heldur vegna þess, að þeir réðu ekki við verkefnin. Það var allt komið í hnút, þjóðarskútan var strönduð. Þessir ágætu flokksbræður hv. 1. þm. Vesturl. björguðu sér í land, það gerðu þeir. En hvað varð um skútuna? Hún var í brimgarðinum, og það voru aðrir, sem skyldu taka við og koma henni aftur á flot. Vera má, að hv. 1. þm. Vesturl. hafi hugsað, að þetta gæti gengið þrautarlaust, það mætti koma skútunni aftur í lygnan og djúpan sjó, án þess að nokkur fyndi til. Það gæti vel verið, að hv. þm. vildi segja hér á eftir: Ja, stukku í land, — jú, þeir fóru í land. En það voru svo slæmir menn, sem þeir unnu með, og þeir vildu hvíla sig og þeir vildu líta til lofts og gá til veðurs, hvort það væri ekki betra að taka sér smávegis frí. En ef hann hugsar þannig og vill bera það á borð fyrir hv. þd., þá er ekki hægt að komast hjá því að minna hv. 1. þm. Vesturl. á, hvað fyrrv. hæstv. forsrh., flokksbróðir hans, hv. 2. þm. Vestf., sagði. Hann sagði, að það væri skollin yfir verðbólgualda, og hún reis hátt, sú alda. (HermJ: Hverjir reistu hana?) Verðbólgualda er skollin yfir, óviðráðanleg. (HermJ: Hverjir reistu hana?) Þá stökk hv. 2. þm. Vestf. í land, kannske til þess, að verða ekki undir öldunni, þegar hún félli, en undir öldunni varð hann vitanlega eins og allir landsmenn. Við urðum öll undir öldunni, og við súpum seyðið af þessari öldu, og það, sem í þessari öldu var, það var bragðvont, það var súrt. Og það er það, sem við erum að glíma við núna.
Það voru fleiri en hv. 1. þm. Vestf., sem gerðu sér alveg ljóst, hvernig var. Hvernig var með gjábarminn, sem lýst var? Hvernig var með gjábarminn, sem efnahagsmálaráðunauturinn lýsti? Þjóðin var á gjábarmi, og þessi gjá var djúp, og ef ekki væri snúið við strax, þá hlutum við að lenda niðri í gjánni. Sem betur fór, höfum við ekki lent í gjánni, og sem betur fer, erum við ekki á gjábarminum í dag. Ef við viljum vera samtaka menn, sem reynum að bjarga okkur, og þjóðin öll, þá munum við ekki fara ofan í gjána.
Það, sem hefur gerzt síðan, er kunnugt. Og það er kokhreysti hjá hv. framsóknarmönnum, þegar þeir bæði á Alþ. og á mannfundum úti um land koma fram sem einhverjir verndarar þjóðhagslegra hagsmuna hér í landi og bjóðast til þess að taka við völdum aftur til þess að bæta úr því, sem aflaga hefur farið. Það er mikið traust á gleymni almennings í landinu, þegar þessir hv. menn eru að bjóðast til þess að taka völdin aftur. Ég hygg, að allur almenningur hafi gert sér grein fyrir því, að þessir menn hafi verið reyndir til þrautar, og að almenningur óskar ekki eftir því að afhenda þeim aftur lyklana að stjórnarráðinu. Allur almenningur veit, að það verður ekki til bóta. Hitt er svo alveg ljóst, að almenningur hefur fundið það súra bragð, sem var af þeirri dýrtíðaröldu, sem reist var i tíð vinstri stjórnarinnar. (ÁB: Af sjálfstæðismönnum.) Almenningur hefur fundið það bragð, og það hefðu engir erfiðleikar verið, ef hún hefði ekki kostað nokkurn sársauka, sú aðgerð, sem nauðsynleg var á s.l. vetri og núv. ríkisstj. með stuðningi sinna stjórnarflokka hefur framkvæmt.
Það var sagt í Tímanum, um það leyti sem þetta var gert, að hrunið mundi koma eftir örfáa mánuði. Það mundi, verða samdráttur. í öllu atvinnulífi og það mundi verða atvinnuleysi. Hv. 1. þm. Vesturl. sagði hér áðan, að aðgerðirnar stefndu að samdrætti. Nú var hann hættur við þá fullyrðingu, að það kæmi atvinnuleysi, enda vita allir, að allur almenningur í landinu hefur nægilega atvinnu, og sú breyting hefur orðið á, að það eru fleiri Íslendingar nú, sem vinna að arðbærum störfum, heldur en áður var. Í tíð vinstri stjórnarinnar voru hér nærri 2000 Færeyingar á íslenzka fiskiskipaflotanum, en það voru náttúrlega ákaflega margir, sem voru þá við óarðbæra. vinnu. Á s.l. vetri, eftir að aðgerðirnar höfðu verið gerðar, voru hér aðeins örfáir Færeyingar, en ýmsir Íslendingar, sem ekki voru við arðbær störf, fóru á sjóinn, því að bátarnir og togararnir gengu á vertíðinni eins og áður. Það getur líka verið alveg ljóst öllum hugsandi mönnum, að það er ekki hægt fyrir okkur að búa í landinu sem sjálfstæð þjóð með því að taka útlendinga til þess að vinna að framleiðslustörfum; en að Íslendingar sjálfir geri eitthvað annað, sem gefur ekki af sér arð.
Aðgerðir ríkisstj. á s.l. vetri miðuðu að því að koma atvinnuvegunum á heilbrigðan og styrkjalausan grundvöll. Uppbótakerfið var gengið sér til húðar, og útgerðarmenn, sem vissulega eru nú í erfiðleikum, óskuðu ekki eftir uppbótakerfinu. Flestir útgerðarmenn eru þannig hugsandi, að þeir vilja reka sína atvinnu á eigin ábyrgð og styrkjalaust. Ef útgerðin hefði ekki orðið fyrir því áfalli að þessu sinni, að bæði fiskimjöl og lýsi hefur lækkað tilfinnanlega, þá væri útgerðin ekki svo illa stödd sem raun ber vitni í dag. Er ekki eðlilegt, að það valdi erfiðleikum hjá útgerðinni, þegar svo stórar framleiðslugreinar eins og lýsi og fiskimjöl lækka um 50–60%? Það hlýtur að koma við. En þetta mun samt ekki verða til þess; að uppbótakerfið verði tekið upp aftur, og útgerðarmenn munu ekki óska eftir því. Útgerðarmenn munu hins vegar vera fúsir til þess að berjast við þá erfiðleika, sem að þeim steðja nú í bili vegna verðlækkunar á þessum afurðum, og komast yfir þá stundarerfiðleika, sem það hefur skapað.
Ég held, að það sé ástæðulaust að fara öllu fleiri orðum um þetta frv. að svo stöddu. Ég hef hér aðeins minnzt á nokkur atriði varðandi landbúnaðinn, varðandi nauðsynina á því, að landbúnaðarframleiðslan geti haldið áfram að aukast í hlutfalli við fólksfjölgunina. Ég hef drepið á nauðsynina á því, að lánasjóðum landbúnaðarins, sem nú eru mjög illa staddir fjárhagslega, verði bjargað úr því öngþveiti, sem þeir eru í, og ég hef upplýst það, að ríkisstj. er að athuga þessi mál, þannig að orðið geti til frambúðar, að þessir sjóðir búi við þann hag að hafa fé til útlána og að þeir megi eftirleiðis uppfylla þær vonir, sem bændur hafa jafnan gert til þessara sjóða.
Um frv. sjálft þarf ég ekki meira að segja. Ég hef minnzt á það, að hv. 2. þm. Vestf., þegar hann var forsrh., þegar hann var landbrh. og formaður bankaráðs Búnaðarbankans, þá gat hann ekki komið því i gegn, að þessum sjóðum væru gefnar eftir 30 millj, kr. 1958. Hann gat það ekki. Þess vegna veit ég,. að hann undrast ekki, þótt það gangi ekki erfiðleikalaust í gegn að fá nú eftir gefnar 160 millj. kr. í einu lagi, þegar hann er farinn úr ríkisstj. og ekki lengur formaður bankaráðsins. En eins og ég sagði áðan, er þetta frv. að vissu leyti traustsyfirlýsing á núv. ríkisstj., því að hv. 2. þm. Vestf. hefði ekki verið meðflm. að þessu frv., ef hann hefði ekki búizt við því, að nokkur von væri um að fá þetta mál fram. En þar sem hann gat ekki fengið í gegn 30 millj. kr. 1958, þá er hér um stærri bita að ræða, og þá veit ég, að hann skilur, að þetta er dálítið stór biti að kyngja.
Ef ekki væru neinir aðrir möguleikar en þessi fyrir hendi til þess að bjarga sjóðum Búnaðarbankans frá þeim voða, sem þeir eru í, þá væri náttúrlega, — það er ég alveg viss um, — öruggt fylgi allra þm. með frv., því að ég veit, að hv. alþm. eru sammála um það, að án þessara sjóða í starfhæfu formi getur landbúnaðurinn ekki verið. En það hefur komið fram, að menn eru ekki á einu máli um það, hvernig eigi að leysa þennan hnút, og það þarf ekki að tala um, að það sé endilega af illgirni við landbúnaðinn, þótt menn greini á um þetta. Menn geta bent á ýmsar leiðir og sitt sýnzt hverjum, enda þótt þeir stefni að sama marki og telji nauðsynlegt að koma fótum undir sjóðina. Og ég vil endurtaka það, að þetta mál, þetta vandamál sjóða landbúnaðarins, það er í athugun hjá ríkisstj. til lausnar, og ég vænti farsællar lausnar.
Það mun hafa verið fyrrv. ríkisstj., stjórn Emils Jónssonar, sem skipaði hagfræðinganefnd til þess að gera tillögur um rekstur og úrbætur á fjárfestingarsjóðum, ekki aðeins landbúnaðarins, heldur og öðrum fjárfestingarsjóðum. Þessi nefnd hefur ekki enn skilað áliti. Hún hefur ekki skilað áliti enn og þá væntanlega ekki lokið störfum. Ég skal ekkert segja um, hvaða úrlausnir hún hefur fram að bera. Ég tel gott, ef hún hefur nokkra lausn á takteinunum. En eigi að síður vil ég upplýsa það, að ríkisstj. hefur án þessarar nefndar þetta mál til sérstakrar athugunar, þar sem það þolir ekki langa bið. Og ég vænti þess, að hvort sem tekst eða ekki að koma með raunhæfar tillögur nú í þessum mánuði til lausnar þessum vanda, þá vænti ég þess, að sjóðir bankans geti að þessu sinni nú fyrir jólin eins og að undanförnu lánað út á framkvæmdir þessa árs. Ég vænti þess, hvað sem líður endanlegum úrbótum og lausn á þessum mikla vanda.
Ég endurtek nú það, sem ég sagði hér í upphafi. Það er aðalatriði þessa máls, að það megi takast að leysa úr þessum vanda, að það megi takast að koma þessum nauðsynlegu lánastofnunum á réttan kjöl og gera þeim fært að vera lyftistöng fyrir landbúnaðinn. Það er aðalatriðið. Hitt er miklu minna atriði, hver á eða hverjir eiga sök á því, að svona er komið, enda þótt það sé eðlilegt og það sé hollt að gera sér fulla grein fyrir því. Sérstaklega vakna ýmsar spurningar upp í huga manns, þegar hlustað er á hv. þm., eins og t.d. hv. 1. þm. Vesturl., þegar slíkir þm. leyfa sér að tala í vandlætingartón, eins og hann og hans hv. flokksbræður séu ekkert nema sakleysið eitt, eygi enga sök hjá sér, en það séu bara sjálfstæðismenn og núverandi stjórnarflokkar, sem beri eiginlega sök á öllu, sem aflaga fer.
(Gripið fram í.) Þetta er ákaflega leiðinlegur málflutningur, og ég held; að það væri sæmst fyrir þennan hv. þm. sem og aðra hv. framsóknarmenn að viðurkenna, að þeir eiga vitanlega sina sök á því, hvernig komið er, bæði um hag þessara sjóða og hag atvinnuveganna og landsmanna allra. Og það er nauðsynlegt, að sá hópur, sem samanstendur af framsóknarmönnum, taki þannig sinnaskiptum og hætti því fullkomna ábyrgðarleysi, sem þeir hafa sýnt á undanförnum vikum og mánuðum í því að rífa niður það, sem núv. stjórnarflokkar eru að byggja upp. Þetta væri því eðlilegra sem öllum landsmönnum er ljóst, að þessi hv. flokkur, Framsfl., með hv. 2. þm. Vestf. í fararbroddi hefur beðíð algert skipbrot, þegar hann veitti vinstri stjórninni forustu, og að þeir erfiðleikar, sem nú er við að stríða, eru afleiðing af þessu skipbroti. Allur almenningur skilur, að þegar þessi stjórn undir forustu hv. 2. þm. Vestf. hafði strandað þjóðarskútunni, siglt alveg í strand, þá kostaði það átök að ná henni út aftur og koma henni á réttan kjöl og kostaði sársauka. Allar stéttir þjóðfélagsins hafa fundið þennan sársauka. Það er undir þjóðinni sjálfri komið, hvort þetta sár grær fljótt eða hvort það grær seint. Ef þessar aðgerðir fá að vera í friði, munu þær gróa tiltölulega fljótt og sársaukinn hverfa, og þá mun okkar atvinnuvegum takast að blómgast og þjóðin ná sér upp úr því foræði, sem hún var komin í. Og það er illt hlutverk, sem framsóknarmenn hafa valið sér, ef þeir ætla sér að reyna að setja fótinn fyrir það, að þessi uppbygging megi takast og nýir og góðir tímar geti komið yfir þjóðina.