14.11.1960
Efri deild: 21. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 850 í C-deild Alþingistíðinda. (2276)

68. mál, Ræktunarsjóður Íslands og Byggingarsjóður sveitabæja

Bjartmar Guðmundsson:

Herra forseti. Mál það, sem hér er til umr., var rætt hér nokkuð fyrir meira en viku, og hafa talað tveir framsóknarmenn m.a. hv. 1. þm. Norðurl. e. og hv. 1. þm. Vesturl., og ég vil segja það strax, að málflutningur þeirra bar miklu meiri vott um storkun í garð hæstv. ríkisstj. en vilja að leysa vandasamt mál. Þetta mál, fjármálaástand Búnaðarbankasjóðanna, er að áliti a.m.k. allra bænda mjög stórt mál og nauðsynlegt, að hægt sé að leysa það á viðunandi hátt. En að halda hér ræður eins og t.d. hv. 1. þm. Norðurl. e. flutti hér á dögunum um móðuharðindin miklu 1960, það er ekki til að greiða fyrir málum, að þau vinnist eða að hægt sé að leiða þau farsællega í höfn.

Hæstv. viðskmrh. gerði hér mjög glögga grein fyrir því, hvernig högum þessara sjóða er nú komið, sjóða Búnaðarbankans, ræktunarsjóðs og byggingarsjóðs, og ég taldi mjög nauðsynlegt að gera einmitt glögga grein fyrir, hvernig þetta stæði, því að það kom ekki nógu glögglega fram í grg. né heldur ræðum flm. þessa frv., sem hér er um að ræða, og þessi skýrsla hæstv. viðskmrh. var, eins og ég sagði, greinargóð og að mestu leyti án áreitni í garð þeirra manna, sem með stjórn þessara sjóða hafa farið á undangengnum allt að tíu árum, og við vitum nú, hvernig niðurstaðan er af því, hvernig þessum sjóðum hefur verið stjórnað. Ég ætla ekki að fara hér að kasta neinum steinum að þeim mönnum, sem með stjórn sjóðanna hafa farið, sem er bankaráð Búnaðarbankans og sá ráðh., sem farið hefur með. búnaðarmálin á þessu tímabili lengst af. En við vitum, að það er mjög illa komið fyrir sjóðunum og að það er að áliti okkar bænda a.m.k. óumflýjanlegt, að ríkið gefi stórfé með þessum stofnunum, eins og lagt er til í þessu frv., sem hér um ræðir. En málið er ekki að heldur leyst á fullkominn hátt, því að þá er eftir framtíðin.

Eftir því sem ég tók eftir í ræðu hæstv. viðskmrh., gekk hann út frá því sem gefnu, að það yrði að koma sjóðunum á réttan kjöl. Hins vegar vék hann að því með almennum orðum, hvernig þessu mundi verða bezt fyrir komið í framtíðinni. Það voru aðeins bollaleggingar, hugmyndir, sem rétt væri að tala um, á meðan verið væri að finna framtíðarlausn á vandamálum sjóðanna. Það kom einnig fram í ræðu hjá hæstv. landbrh. síðar, að þetta mál er einmitt á umræðustigi hjá stjórninni, og ég held, að hæstv. d. eða hv. þm., sem telja sig vera fyrst og fremst fulltrúa bænda, bæti ekki fyrir málinu með því að flytja ræður eins og þeir hafa flutt hér, hv. 1. þm. Vesturl. og hv. 1. þm. Norðurl. e.

Eins og ég sagði áðan, vil ég ekki kasta neinum steinum að stjórn Búnaðarbankans né heldur ráðh. í þessu efni, þó að það verði að viðurkennast, að mjög illa er komið fyrir þessari stofnun, eins og ætíð fer, þegar mál eru látin dankast ár frá árí í stað þess að leysa þau í áföngum jafnóðum, og eðlilegast hefði verið að afla þessum sjóðum tekna á undangengnum árum í áföngum. En þessari stofnun er nokkur vorkunn, þó að fyrir henni hafi farið eins og öðrum stofnunum í þessu landi á sama tímabili. Það mun vera leitun á þeirri stofnun í landinu, sem hefur ekki látið fjármál meira og minna dankast til óheilla á þessu tímabili, og ég vil aðeins til samanburðar taka æðstu stofnun ríkisins, ríkið sjálft. Ég hef verið að blaða í ríkisreikningum 1957, 1958 og 1959 og rekið mig þar á glöggt dæmi um, hvernig stjórnmálaástandið hefur verið og hvernig á málum hefur verið haldið. Það eru ríkisábyrgðirnar. Þær eru í dag hátt í 1600 millj. kr., og það hefur verið bætt á þennan lið ríkisábyrgðanna árlega á þessu tímabili alveg furðulegum upphæðum. Þetta er komið í slíkt óefni, að það verður í tauma að taka. Á árinu 1957 greiddi ríkissjóður upp í ábyrgðarskuldir 22 millj., 1958 24 millj., 1959 29 millj., og nú er talað um, að í ár verði ríkið að greiða 40 millj., og mér kæmi ekki á óvart, þó að það þyrfti að greiða 50 millj. á árinu 1961. Ég tek þetta aðeins sem dæmi um það, hvernig fjármálunum hefur verið stjórnað á þessu undangengna tímabili. Og virðist stjórn Búnaðarbankans hafa verið ákaflega svipuð og á mörgum öðrum sviðum. Ég get ekki farið nánar út í það, hvernig fjármálastjórn bankanna er, því að mig brestur þar kunnugleika til.

Ég endurtek það, að þetta ástand Búnaðarbankasjóðanna er mjög alvarlegt og mjög nauðsynlegt, að hægt sé að leysa þar úr á farsælan hátt, og held ég, að það verði bezt gert með rólegu umtali og rólegri yfirvegun, en ekki með storkunaryrðum í garð hæstv. ríkisstj., sem ég veit að er að reyna að leysa málið.

Svo kemst ég ekki hjá, úr því að ég minntist á hina furðulegu ræðu, sem 1. þm. Norðurl. e. flutti hér á dögunum, að taka þá ræðu svolítið betur til athugunar, áður en ég lýk máli mínu, ekkí sízt þar sem blað hans, Tíminn, hefur gert honum þann óleik að útvatna ræðu hans í þremur eða fjórum blöðum og blaðið Dagur á Akureyri hefur einnig tekið undir það.

Þm. tilfærði orð eftir bónda einum einhvers staðar í einhverjum dal, líklega þröngum dal án viðsýnis: „Það er hart að þurfa að lifa móðuharðindi af manna völdum.“ Þessi orð áttu að hafa verið töluð á mannfundi í kjördæmi hans. Þau gerði ræðumaður að sínum orðum eins og hver önnur aðfengin snilliyrði. Enn fremur kryddaði hann ræðu sína með skáldlegu erindi eftir Jón Helgason um óþverrann upp úr Laka. Þessir voru textarnir og niðurstaða útleggingarinnar á þessa leið: Ástandíð í Þingeyjarþingi og annars. staðar í kjördæmi þessa hv. þm. haustið 1960 er eins og móðuharðindin 1783 og 1784. Vorið 1784 hefur fengið nafnið „dauðavorið.” Nafnið eitt segir svo ömurlega sögu, að um hana ætti að tala á annan veg en þessi hv. þm. gerir. Hvernig var ástandið í þessum landshluta þá og veturinn og sumarið á undan? Eitrað gras, öskudyngjur, ólyfjan í lofti, ónýt hey nema fyrningar, fénaður féll unnvörpum í haga og húsi og landslýðurinn hópum saman á eftir af bjargarskorti.

Vel má vera, að orð bóndans og samlíking sé rétt eftir höfð. Þó þarf það ekki að vera. Líklegra er, að þm. hafi verið haldinn misskilningi og tekið tvíræð orð bóndans öðruvísi en vera átti. En látum það liggja á milli hluta. Engan bónda þekki ég, sem dytti í hug að jafna saman því dýrðarsumri 1960 og dauðavorinu 1784, nema máske einn, sem bjó við útsker á Tjörnesi eins og Þórarinn Nefjólfsson, en er nú hættur. Þessi hv. þm. er oft beinskeyttur, þegar hann beinir geiri sínum eða leggur ör á streng, en nú geigar ör hans miklu meir en örin góða hjá Hemingi Áslákssyni, þegar hann skaut eplið á kollinum á barninu án þess að skadda höfuð þess né heldur börkinn á eplinu. Það var fallegt skot.

Allar sveitir eru líka að fara í eyði, segir þessi hv. þm., og þorpin líka, skilst manni. Tíminn segir: já, já, já — og hjálparkokkar í ýmsum áttum segja líka: já, já, já, já, —- og allt af völdum illra verka Íslandsstjórnar 1960. Það var einu sinni maður, sem hét Axlar-Björn. Hann varð fyrir þeim ósköpum að geta ekki séð sólina í heiðskíru veðri og var þó alsjáandi á allt annað. Hannes Hafstein segir, að hjartans ís sé miklu verri en landsins forni fjandi, sem Matthías kvað um, hafísinn.

Á fjölmennum slægjufundi um veturnæturnar síðustu í einni mikilli sveit í kjördæmi þessa hv. þm. sagði einn framámaður framsóknarmanna í aðalræðu, að framkvæmdir á árinu 1960 og umbætur í þeirri sveit hefðu verið viðlíka og á árinu á undan eða engu minni. Hið sama get ég sagt úr minni eigin sveit, sem líka er stór og fjölmenn. Ekki nefndi þessi maður móðuharðindin. Á þennan hátt er landeyðingin, sem um er talað.

Ég þykist vera nokkuð kunnugur í sveitum og veit vel, að þar skein sól með allra mesta móti í sumar. Þó vil ég ekki gera lítið úr örðugleikum margra bænda, sem stafa mjög, þegar rétt er rakið, af margs konar mistökum í stjórnarfari undangengin ár.

Axlar-Björn tapaði sjón á sólinni vegna eigin misgerða. 1. hv. þm. Norðurl. e. virðist ekki sjá framar neina sól yfir sveitum, aðeins bláa móðu og eitraða. Ekki er það þó fyrir eigin misgerðir, því að þar er enginn misgerðamaður á ferð. En hvers vegna? Okkar maður, bóndinn, sem vitnaði í móðuharðindin, hefur, að ég hygg, átt við allt annað en þm. hélt. Hann hefur átt við móðu blekkinganna, sem sumum finnst að fyllt hafi loftin blá lævi nú um 11 mánaða skeið — og lengur þó. Sú móða hefur ollið upp úr bræðrum tveim: Tímanum og Þjóðviljanum, í 600–700 tölublöðum hina síðustu mánuði, þó að ekki komist hún samt í neinn samjöfnuð við móðuharðindin 1783–84. Máske hefur bóndinn okkar líka kynnzt einhverju þess konar í einhverju samkomuhúsi, þar sem ollið hafa vondar gufur upp úr einhverjum Laka og fyllt samkomusalinn. Móðan mikla eitraði allt Ísland 1783 og 1784. Hún eitraði klaufir kinda og kúa, svo að þær duttu af, fæturna, granirnar, tennurnar, skepnuna alla, unz hún lá dauð í haga eða við jötu. Það, sem á eftir kom, er of hörmulegt til að gera það að fíflskaparmálum og jafna við dýrðarhaustið 1960. Að fara með slíkt er aðeins að draga burst úr eigin nefi og stappar nærri sagnfræði Vellygna-Bjarna. En Bjarni var fyndinn maður í sínum sögum, en hvað eigum við að kalla svona sagnfræði og málafylgju?