15.11.1960
Efri deild: 22. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 870 í C-deild Alþingistíðinda. (2282)

68. mál, Ræktunarsjóður Íslands og Byggingarsjóður sveitabæja

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessar umr., enda hygg ég, að báðir málsaðilar séu búnir að færa fram þau efnisrök, sem þeir telja ástæðu til þess að koma á framfæri, svo að ég mun hér ekki gefa tilefni til áframhaldandi almennra rökræðna um þetta mál, hygg, að það sé upplýst fyrir alla, sem með málflutningnum hafa fylgzt.

En það var eitt atriði í ræðu hv. 4. þm. Vestf., sem ég tel óhjákvæmilegt annað en leiðrétta, því að hann fór þar með, — svo að ég orði það mildilega, gaf tilefni til þess, að áheyrendur misskildu algerlega það, sem er efni þessa máls, sem hér er um að ræða. Hann vildi andmæla því, sem ég hafði haldið fram um, að sá hluti heildarkostnaðar Búnaðarbankans, sem reiknaður er á ræktunarsjóð og byggingarsjóð, sé óeðlilega hár. Til þess að sanna það mál mitt hafði ég tekið raunverulegan rekstrarkostnað fiskveiðasjóðs, veðdeildar Landsbankans og Framkvæmdabankans. Hv. þm. talaði þannig eins og lántakendurnir borguðu þennan kostnað. Það var ómögulegt að skilja orð hv. þm. öðruvísi, enda væri þá ekkert vit í hans reikningsdæmi, þar sem hann reiknar þá meðalkostnaðartölu, sem ég hafði gefið upp og er ómótmælanlega rétt hjá ræktunarsjóði og fiskveiðasjóði, og miðar við ákveðin lán, 50 þús. kr. lán hjá bónda og 3 millj. kr. lán hjá útgerðarmanni. Af því er ómögulegt að draga aðra ályktun en að hér sé hann að gera samanburð á þeirri byrði, sem þessir tveir aðilar bera. En ég þarf ekki að útlista það nákvæmlega, að í slíkum samanburði er ekki minnsta vit.

Nú vill svo undarlega til, að ef athugaður er hlutur tveggja lántakenda við lántöku, annars í ræktunarsjóði og hins hjá fiskveiðasjóði, þá er það svo, að lántakandi úr ræktunarsjóði greiðir 1 % lántökugjald þegar við lántökuna og sama gerir lántakandi í byggingarsjóði, en lántakandi í fiskveiðasjóði greiðir ekkert lántökugjald, eins og hv. 4. þm. Vestf. veit jafnvel og ég, því að hann er þar öllum hnútum mjög kunnugur. Það er meira að segja þannig, að fyrir utan vextina, sem báðir aðilarnir greiða og hafa verið hagstæðari hjá ræktunarsjóði og byggingarsjóði en hjá fiskveiðasjóði s.l. áratug, þá leggja sjóðir landbúnaðarins sérstakt lántökugjald á sína lántakendur, en fiskveiðasjóður ekki.

Þetta er þó í raun og veru aukaatriði eða a.m.k. ekkert aðalatriði í málinu. Hitt er auðvitað aðalatriði í málinu, hver heildarkostnaðurinn við rekstur þessara opinberu fjárfestingarsjóða er, og þeir eru fimm: ræktunarsjóður, byggingarsjóður, Framkvæmdabankinn, veðdeild Landsbankans og fiskveiðasjóður. Það er ómótmælanlegt, að á sama tíma sem sá kostnaður, sem ræktunarsjóði er reiknaður af heildarkostnaði Búnaðarbankans, er 2.5 millj. kr. og sá kostnaður, sem byggingarsjóði er reiknaður af heildarkostnaði Búnaðarbankans, er 2.1 millj. kr., þá er raunverulegur kostnaður Framkvæmdabankans 2 millj. kr. og reiknaður kostnaður veðdeildar Landsbankans 816 þús. kr., en raunverulegur kostnaður fiskveiðasjóðs aðeins 612 þús. kr. Ef þessar tölur eru bornar saman við heildarútlán, er þessi reiknaði kostnaður sjóða Búnaðarbankans frá þrem og upp í fimm sinnum hærri en hann er hjá hinum stofnununum samtals. Nú hefur verið sagt, að þetta sé ósanngjarn samanburður, vegna þess að tala lánanna hjá t.d. ræktunarsjóði og byggingarsjóði sé mun meiri en hjá Framkvæmdabanka og fiskveiðasjóði, og þetta er rétt. Tala lána fiskveiðasjóðs er mun lægri en tala lána hjá ræktunarsjóði og byggingarsjóði. En að vísu segir það ekki alla söguna, því að það er kostnaðarmeira, því fylgir meira umstang, því fylgir meiri kostnaður að veita eitt stórt lán en eitt lítið. Kostnaðurinn er ekki í réttu hlutfalli við tölu lánanna, heldur hefur upphæð lánsins líka mikið að segja og það, sem nauðsynlegt er að gera í því sambandi, frágangur á veðum og því um líku. Ég lýsi því ekki.

Til að taka af öll tvímæli um staðhæfingar mínar um algerlega óeðlilegan kostnað ræktunarsjóðs og byggingarsjóðs er nægilegt og bezt að bera kostnaðinn saman við veðdeild Landsbankans. Þar eru mál að öllu leyti sambærileg. Kostnaðurinn er þar að verulegu leyti reiknaður hjá báðum aðilunum, — að vísu hefur veðdeildin nokkra sérstaka starfsmenn, — en að verulegu leyti er það reiknað sem hlutdeild í kostnaði hjá Landsbankanum yfirleitt. Ef við athugum þessar tölur, kemur í ljós, að meðan kostnaður ræktunarsjóðs er 2.5 millj. og kostnaður byggingarsjóðs 2.1, þá er kostnaður veðdeildar Landsbankans 0.8 — aðeins 800 þús. kr. Svo að ég beiti nú mælikvarða hv. 4. þm. Vestf. og taki tölur lánanna, þá er sannleikurinn sá, að tala lánanna hjá veðdeild Landsbankans er hærri en hjá ræktunarsjóði. Ég hef hér upplýsingar um tölu veittra lána 1959 hjá veðdeildinni. Tala veittra lána var 1656. Tala veittra lána hjá ræktunarsjóði, nýrra lána, var 1052. Það eru meira en helmingi fleiri ný lán, sem veðdeildin hefur veitt á s.l. ári, heldur en ræktunarsjóður, og samt sem áður er hinn reiknaði kostnaður ræktunarsjóðs þrisvar sínnum hærri en kostnaður veðdeildarinnar.

Dæmið verður enn þá óhugnanlegra, ef byggingarsjóður er skoðaður, því að tala nýrra lána hjá honum 1959 var ekki nema 122 lán, en reiknaður kostnaður 2.1 millj. kr. Til að gera myndina fullkomna væri rétt að taka tillit til tölu útistandandi lána, sem auðvitað þarf að taka við afborgunum af og taka við endurgreiðslu á og þar fram eftir götum. Þær tölur hef ég því miður ekki nákvæmlega. Það er hægt að fá þær með nokkurra daga fyrirvara, og það gæti ég vel gert, en ég veit, að þær breyta þessari mynd ekki. Tala nýrra lána í veðdeild og tala gamalla lána í veðdeild er mun hærri en tala nýrra lána og gamalla lána í byggingarsjóði, og samt sem áður eru kostnaðartölurnar svona.

Það er því algjörlega óhagganlegt, sem ég hef sagt um þetta mál, og skýringin á því er ofur augljós. Sannleikurinn er sá, eins og ég hef áður sagt og undirstrikað, að hér er ekki um að ræða raunverulegan kostnað ræktunarsjóðs og byggingarsjóðs. Raunverulegur kostnaður þessara sjóða, væru þeir sjálfstæðir, gæti aldrei komizt upp í 2.5 millj. hjá ræktunarsjóði og 2.1 millj. hjá byggingarsjóði. Það væri útilokað. Tölurnar eru svona háar af því, að þetta er sú byrði, sem á þessa sjóði er lögð af stjórnendum Búnaðarbankans, þetta er reiknuð hlutdeild þeirra í heildarkostnaði Búnaðarbankans. Mergur gagnrýni minnar hefur verið sá að segja, að þessi ákvörðun stjórnar Búnaðarbankans, yfirstjórnenda bankans, sé óforsvaranleg og henni þurfi sem fyrst að breyta. Það hefur því engu orði verið haggað af því, sem ég sagði um þetta efni, og raunar ekki neinum kjarna í mínum málflutningi. Annað læt ég alveg hjá líða að tala frekar um, en ég gat ekki látið hjá líða að leiðrétta þann misskilning, sem um þetta efni kom fram hjá hv. 4. þm. Vestf.