19.12.1960
Sameinað þing: 26. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í B-deild Alþingistíðinda. (230)
1. mál, fjárlög 1961
Forseti (SA):
Það eru töluvert alvarlegar sakir, sem hv. 6. þm. Sunnl. ber — ég veit ekki, hvort það er á núv. hæstv. ríkisstj. eða fyrri hæstv. ríkisstj. Ég a.m.k. ber fullt traust til núv. hæstv. ríkisstj., að hún fari ekki út yfir það, sem launalög ákveða hverju sinni, og hef þar engu við að bæta.