19.12.1960
Sameinað þing: 26. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í B-deild Alþingistíðinda. (231)

1. mál, fjárlög 1961

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég vil aðeins spyrja, vegna þess að það kom ekki fram í ræðu síðasta ræðumanns, hvort hér er um að ræða einstök tilfelli eða lögin eru þannig framkvæmd almennt, að allir, sem störfuðu í viðkomandi launaflokki, væru teknir inn eins og samsvaraði tveimur aldurshækkunum tveggja ára, því að það er auðvitað sitt hvað. Ef einstakir menn koma inn í launaflokk, þá er það auðvitað ekkert óeðlilegt, ef þeir hafa verið teknir úr öðrum launaflokkum eða hafa þá reynslu að öðru leyti í starfi hjá ríkinu eða öðrum, að þeir geti komið inn í launaflokkinn, þó að þeir byrji ekki í lægsta launaflokknum. En eins og ég segi, ég veit ekki, hvort hv. þm. átti hér við einstök tilfelli, einstaka menn eða framkvæmdina í heild, og það skiptir máli og sker úr í þessu sambandi.