16.01.1961
Sameinað þing: 16. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í D-deild Alþingistíðinda. (2355)
72. mál, byggingarsamvinnufélög
Frsm. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Sú þáltill., sem hér liggur fyrir á þskj. 79, var til meðferðar í hv. allshn. sameinaðs þings á fyrri hluta þessa þings og var þar afgreidd samhljóða á þann veg, að nefndin öll mælir með því, að hún nál samþykki.
Efni hennar er það að fara fram á að fela ríkisstj. að láta endurskoða lög um byggingarsamvinnufélög. Þessi lög eru nokkurra ára gömul og hafa verið í mikilli framkvæmd víðs vegar, og þykir nauðsyn til bera að taka þau til endurskoðunar.
Nefndin fékk um þetta umsögn frá Sambandi íslenzkra byggingarfélaga og húsnæðismálastjórn ríkisins, sem bæði mæla með þessari tillögu. Mér er kunnugt um, að starfsemi þessara byggingarfélaga er orðin býsna víðtæk, og m.a. er ríkissjóður í ábyrgð fyrir þau fyrir skuldum, sem nema sam tals nokkuð á þriðja hundrað millj. kr., og auk þess hafa sumar ríkisstofnanir verið látnar lána byggingarsamvinnufélögum alíverulegar upphæðir.
Nú er það svo, að hvort sem hæstv. ríkisstj. lætur starfsmenn stjórnarráðsins endurskoða þessi lög eða setur í það sérstaka menn, þá er ekkert um það í þessari tillögu, hvernig sú endurskoðun verði, og eðlilega hljóta þær brtt. að ganga í gegnum Alþingi, þegar þar að kemur. En þó að ég sé nú í rauninni ekki lengur í þeirri nefnd, sem um þetta fjallaði, þá er mér óhætt að mæla með því fyrir nefndarinnar hönd, að þessi till. verði samþykkt eins og hún liggur fyrir.