22.03.1961
Sameinað þing: 55. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í D-deild Alþingistíðinda. (2456)
63. mál, rafmagnsmál á Snæfellsnesi
Frsm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Fjvn. hefur haft til athugunar till. til þál. á þskj. 69 um að hraða framkvæmdum í rafmagnsmálum á Snæfellsnesi.
Það líður nú senn að því, að tímabili hinnar svokölluðu tíu ára áætlunar í rafvæðingarmálum landsins ljúki. Það er því tími til þess kominn að gera sér grein fyrir því, sem þá tekur við, og að gaumgæfilega sé athugað, á hvern hátt það muni vera heppilegast og framkvæmanlegast að leysa þessi mikilvægu framfaramál þjóðarinnar í næstu framtíð. Á undanförnum árum hefur þróunin í notkun rafmagnsins á þeim stöðum, þar sem orkuveitur hafa verið byggðar, verið svo ör, að hver aukning, sem átt hefur sér stað, hefur svo til jafnóðum verið fullnýtt. Sérstaklega hefur þetta átt sér stað í hinum ýmsu kaupstöðum og kauptúnum víðs vegar um landið, þar sem hvers konar stóriðnaður í sambandi við sjávarútvegsframleiðsluna hefur stóraukizt, og hefur á þeim stöðum oft komið til þess, að um verulega vöntun á rafmagni hefur verið að ræða.
Í verstöðvunum á Snæfellsnesi, sem tillaga þessi m.a. fjallar um, er ákveðið að auka raforkuna verulega á yfirstandandi ári. Verður það gert með því að bæta tæplega 300 kw. rafstöð við í Stykkishólmi og um 930 kw. stöð til viðbótar í ólafsvík. Er þá gert ráð fyrir, að þessar aflaukningar nægi til þess að mæta og sjá fyrir neysluþörfinni á norðanverðu Snæfellsnesi til ársins 1965.
Fjvn. leitaði umsagnar raforkumálastjóra ummálið og fékk þar staðfestar þessar upplýsingar, en í niðurlagi bréfs raforkumálastjóra segir svo til viðbótar, með leyfi hæstv. forseta:
„Að þeim tíma liðnum verður annaðhvort aukið dísilafl, vatnsvirkjun eða lína frá heildarkerfi Suðvesturlandsins að vera komin til viðbótar. Þær áætlanir, sem gerðar hafa verið um virkjun og línu, eru nú orðnar nokkurra ára gamlar og voru þá lauslegar, svo að ekki er hægt að byggja á þeim nú. Ég er því flm. þáltill. sammála um, að tími sé kominn til þess að taka rafmagnsmál Snæfellsnes til nýrrar athugunar.
Hvað viðvíkur sveitunum sunnan fjallgarðsins,“ segir raforkumálastjóri, „skal á það minnt, að í núverandi tíu ára áætlun er ekki gert ráð fyrir línulögnum um þær. Á mælikvarða rafvæðingarinnar geta þær sveitir því miður ekki talizt þéttbýlar. “
Þegar raforkumálastjóri talar hér um, að miðað við mælikvarða rafvæðingarinnar, á hann að sjálfsögðu við þann ramma, sem settur var í sambandi við tíu ára áætlunina. Að henni lokinni má fullvíst telja, að hinum blómlegu byggðum í sveitum á sunnanverðu Snæfellsnesi verði skipað framarlega, í þeirri framkvæmdaáætlun, sem þá tekur við og ríkisstj. hefur nú með höndum að láta undirbúa og gera tillögur um.
Fjvn. er í aðalatriðum sammála tillögumanni um nauðsyn þessa máls og leggur til, að till. verði afgreidd með nokkurri orðalagsbreytingu, sem n. hefur leyft sér að flytja á þskj. 503. Er þar sérstaklega lögð áherzla á þá hlið málsins, sem veit að því, að ríkisstj. láti hið allra fyrsta fara fram rækilega athugun á því, hvernig auðið sé að leysa á viðunandi hátt raforkumál Snæfellinga.