22.03.1961
Sameinað þing: 55. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í D-deild Alþingistíðinda. (2497)
137. mál, endurskoðun á lögum um vegi
Frsm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Svo sem nál. fjvn. ber með sér, leggur hún til, að till. þessi verði samþykkt, en þó nokkuð breytt.
Svo sem hv. þm. mun kunnugt, var fyrir nokkru eða á árinu 1958 samþykkt hér á Alþingi þál. um það, að gerð yrði heildarathugun á ástandi vegakerfis landsins. Síðan þessi till. var samþykkt, hefur af hálfu vegamálastjórnarinnar verið framkvæmd töluverð athugun á þessu máli, og liggja þegar fyrir allmiklar upplýsingar og þá fyrst og fremst um ástand vegakerfisins. Af þessum upplýsingum og athugunum er ljóst, svo sem raunar flestum mun kunnugt um af eigin reynd, að mjög mikið vantar á, að vegakerfi landsins sé komið í viðunandi horf, og þarf mjög mikil og stór átök til þess, að svo megi verða.
Samkvæmt athugun þeirri, sem fyrir liggur, er t.d. talið, að þjóðvegir, sem eru ekki bílfærir, nemi 732 km, óbílfærir sýsluvegir séu 463 km og óbílfærir hreppavegir 351 km. Þetta segir þó ekki nema hluta sögunnar, vegna þess að einnig verður að hafa það í huga, að meðal þeirra vegaframkvæmda. sem nú er unnið að og brýn nauðsyn verður að vinna að í náinni framtíð, eru mjög dýrar framkvæmdir, sem kosta milljónir og milljónatugi, og kemur sérstaklega til athugunar, þegar farið er að vinna að lagningu vega úr varanlegu efni, eins og það er kallað, að þá verður þar um að ræða útgjöld og kostnað við vegagerð, sem nemur áður óþekktum upphæðum í vegagerðarkostnaði hérlendis.
Loks er og þess að geta, að enn er ógerður mikill fjöldi brúa. Það er talið, að á s.l. ári hafi verið ógerðar 97 stærri brýr á þjóðvegum, 84 á sýsluvegum, 34 á hreppavegum og að auki hafi verið ógerðar smábrýr: á þjóðvegum 232, 112 á sýsluvegum og 24 á hreppavegum. Ég nefni aðeins þessar tölur hér og þessi atriði til þess, að mönnum sé ljóst, hversu stórt viðfangsefni er hér við að fást.
Á undanförnum árum hafa með nokkurra ára millibili verið gerðar breytingar á vegalögum, allar í þá átt að fjölga mjög tölu þjóðvega. Það er nú nokkuð langt síðan vegalög voru síðast opnuð, og hafa komið á hverju þingi síðan fram till. um að taka nýja vegi í þjóðvegatölu. Nú síðast á þessu þingi hafa komið fram till. um að taka í þjóðvegatölu vegi, sem nema 1058 km.
Þá hafa einnig á þessu þingi komið fram ýmis frv. um vegamál og á undanförnum árum einnig. Það hafa komið fram frv. og verið mikið rædd t.d. um hina miklu erfiðleika sýsluvegasjóðanna, en einmitt fjárhagserfiðleikar þeirra valda því, að það hefur verið því meiri ásókn á að koma vegum í þjóðvegatölu.
Þá hafa komið fram ýmis frv., sem sýna. hve þörfin er brýn að ýta hér áleiðis framkvæmdum, þar sem lagt hefur verið til að taka meiri háttar lán til þess að hraða vegagerðum í einstökum landshlutum eða til þess að leggja tiltekna vegi.
Það hefur komið hér fram og er á þessu þingi til meðferðar frv. um sérstakar ráðstafanir til að greiða fyrir jarðgangagerð á þjóðvegum, en þar er um að ræða mjög kostnaðarsamar framkvæmdir.
Með hliðsjón af þessum vandræðum og miklum viðfangsefnum í vegagerð hafa að vonum augu manna beinzt að því, hvernig hægt væri að afla fjár til þess að þoka þessum málum meira áleiðis. Ég hef áður minnzt á þær till., sem fram hafa komið um lántökur. Þá hafa enn fremur komið fram hugmyndir um það, að vissir tekjuliðir ríkissjóðs og þá fyrst og fremst af umferð væru látnir renna til vegagerðar óskiptir. Þar væri vissulega um allverulegt nýtt fé að ræða. En þess ber þó að geta í því sambandi, að þarna er einnig um að ræða verulega tekjustofna fyrir ríkissjóð, og eins og sakir standa, þá er ekki sýnilegt, hvernig hann má án þeirra tekjustofna vera, nema þá annað tveggja sé gert, að sjá ríkissjóði fyrir nýjum tekjustofni eða þá að lækka útgjöld ríkissjóðs sem þessu nemur.
Öll þessi mörgu atriði leiða það glöggt í ljós, að hér er um að ræða víðtækt vandamál. sem er ekki hægt að búast við að auðið sé að afgreiða á viðunandi hátt með því að samþykkja hin einstöku mál. sem imprað hefur verið á í sambandi við umbætur í vegamálum, og eru þau þó öll góðra gjalda verð. Hér þarf augljóslega að koma til heildarathugun á þessum mikla vanda, sem við er að glíma, og það leiðir beinlínis af þeirri þál., sem ég áðan minntist á, frá 1958, að það er eðlilegt, að einmitt sú heildarathugun vegalaga fari fram, sem gert er ráð fyrir í þessari þáltill.
Það er einnig vitanlegt, að í mörgum gildandi lögum, bæði um vegi og brýr. eru ýmis atriði, sem þurfa beinlínis endurskoðunar við. Þessi lagaákvæði eru orðin alldreifð og nauðsynlegt að samræma þau og færa saman á einn stað.
Fjvn. leggur því til, að till. þessi verði afgr. svo sem segir í nál. hennar. Þar er um að ræða efnislega það sama og í upphaflegu till. segir, að því viðbættu, að athugunin er færð út á víðari grundvöll. Hún er ekki aðeins takmörkuð við þjóðvegi. heldur við athugun á öllum gildandi lögum um opinbera vegi og brýr, og jafnframt að athuguð verði hugsanleg úrræði til þess að afla fastra tekjustofna til vegagerðarframkvæmda. í framtíðinni. Undir þetta falla að sjálfsögðu gildandi lög um þessi atriði, bæði vegalögin og lögin um brúargerðir, einnig viss atriði í girðingalögum, að sjálfsögðu einnig lögin um sýsluvegasjóði, og þá er eðlilegt, að komi til athugunar þær hugmyndir, sem fram hafa komið á Alþingi á undanförnum árum, bæði í ár og síðustu ár, varðandi þessi mál. og þá m.a. sérstaklega., svo sem vikið er að í nál., þar sem það er till., sem til fjvn. hefur verið vísað að við þessa athugun verði tekið til athugunar, hvort ástæða sé til þess að gera hina sérstöku reiðvegi, sem flutt hefur verið hér sérstök þáltill. um og ég fjölyrði ekki frekar um, en þetta nál. fjvn. telst einnig afgreiðsla á því máli.
Ég sé ekki ástæðu, herra forseti, til þess að orðlengja frekar um málið, enda þótt um það mætti margt og mikið segja. Þetta er víðtækt vandamál, sem mikil nauðsyn er að taka til rækilegrar athugunar. Ég vil leyfa mér að vænta þess, að bæði hv. flm. geti fallizt á þá breytingu, sem hér hefur verið gerð á þeirra upphaflegu till., og einnig að hv. Alþingi geti fallizt á að afgreiða till. í því formi, sem fjvn. leggur til, og síðan verði lögð rík áherzla á að hrinda þessu máli áleiðis — þessari rannsókn — með þeim hraða, sem auðið er.