22.03.1961
Sameinað þing: 55. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í D-deild Alþingistíðinda. (2500)

137. mál, endurskoðun á lögum um vegi

Helgi Bergs:

Herra forseti. Hv. meiri hl. og hv. minni hl. fjvn., sem hafa skilað áliti um þetta mál, leggja báðir til að það verði samþykkt með nokkurri breytingu. Það má því gera ráð fyrir því, að önnur hvor þessara tillagna verði samþykkt og verði þannig Þetta mikla mál í nefnd til næsta þings.

Ég vildi ekki láta þetta mál fara fram hjá mér án þess að vekja, athygli á því, sem ég tel vera stærsta verkefnið í samgöngumálum okkar nú, en það er að gera fjölförnustu vegina úr varanlegu efni. Það er nú mjög vart vaxandi skilnings á þessu atriði, og menn eru að gera sér það ljóst, að við verðum að fara að gera vegi okkar á sama hátt og aðrar þjóðir, sem hafa tekið í þágu sína vélknúin farartæki, og þessu verður ekki öllu lengur á frest skotið.

Okkur Íslendingum vex það oft í augum, hve vegakerfi okkar er tiltölulega langt vegna strjálbýlisins í landinu, og ég skal ekki gera litið úr því, að það er nokkur baggi. En við megum nú vera þess minnugir, að vegakerfi okkar er eina samgöngukerfið, sem við höfum á landi, en aðrar þjóðir þéttbýlli, þó að þær hafi styttra vegakerfi, mega gjarnan bera kostnað af járnbrautum, jafnvel viðhaldi skipgengra fljóta, skipaskurða, skipastiga og annars slíks, en við getum helgað okkur vegunum einum í okkar samgöngum á landi. Þess vegna er fyllsta ástæða til fyrir okkur að leggja nokkuð á okkur til þess að sýna vegakerfinu fullan sóma. Akfærir vegir í landinu eru nú á annan tug þúsunda km. og það er vissulega engin ástæða til þess að hugsa sér, að það verði lagt á þá alla varanlegt slitlag. Vegirnir eru svo ákaflega mismunandi fjölfarnir, að mjög stór hluti umferðarinnar fer fram á tiltölulega mjög stuttum vegaköflum. Það er mjög mikill hluti umferðarinnar, sem fer fram á vegaköflum, sem eru ekki mikið yfir 200 km. og á ég þar við vegina í næsta nágrenni Reykjavíkur, Vesturlandsveg upp undir Kjalarnes, Suðurlandsbrautina austur á Suðurlandsundirlendið og Reykjanesbrautina suður með sjó, og auk þess mun vera mjög fjölfarinn vegarkafli í kringum Akureyri, sem ástæða væri til að gefa gaum í þessu sambandi. Við Íslendingar eigum hlutfallslega: fleiri bifreiðar en flestar aðrar þjóðir, en kunnugum kemur saman um það, að ending farartækja okkar sé miklu minni og viðhaldskostnaður þeirra miklu hærri en annars staðar vegna slæmra vega. Þetta leiðir til mikils kostnaðar við innanlandsflutningana, og við megum ekki gleyma því, að það hefur þýðingarmikil áhrif á alla verðlagsmyndun í landinu, bæði landbúnaðarafurða og fleiri hluta.

Bifreiðar landsmanna eru nú yfir 20 þús., og þær eru áreiðanlega ekki ofmetnar á 2000 millj. kr. Það er því fljótséð, að það skiptir ekki neinum hégóma, hvort þessar bifreiðar endast árinu lengur eða skemur. Viðhaldskostnaður þessara farartækja nemur á hverju ári líklega nokkur hundruð milljónum króna, og það skiptir ekki heldur litlu máli, hvort einhvern hluta þeirrar upphæðar mætti spara.

Þess vegna er það hafið yfir allan vafa, að fé er vel varið til framkvæmda til endurbóta á vegakerfinu, sem gætu leitt til sparnaðar í rekstri ökutækjanna.

Í þessu sambandi vil ég minnast þess, að það var einmitt af þessum ástæðum almennt fagnaðarefni, þegar það var tilkynnt á s.l. hausti, að ríkisstj. hefði ákveðið að hefjast þegar handa um að steinsteypa Reykjanesbraut. Menn gerðu sér þá vonir um það, að þetta mundi verða upphaf að myndarlegum aðgerðum í þessum efnum og verkinu mundi verða haldið áfram af miklum hraða og því lokið fljótt, svo að röðin kæmi sem fyrst að öðrum vegum, sem jafnmikil eða meiri nauðsyn er á að bæta.

Þó virðist, að of lítill skriður sé á þessu máli, og undirbúningur virðist á ýmsan hátt hafa verið ónógur. Það var samkvæmt frásögn í einu dagblaðanna gert ráð fyrir því að taka fyrir tiltölulega stutta spotta í einu og vinna verkið með heldur frumstæðum tækjum, enda var varla á öðru völ, því að um það leyti sem tilkynnt var, að verkið væri að hefjast, réð vegagerð ríkisins ekki yfir neinum fullkomnum tækjum til vegagerðar af þessu tagi. og árangur sá, sem nú má sjá, er einnig í samræmi við þetta. Það hefur verið ýtt upp í kringum 1 km. löngum grjóthrygg rétt fyrir sunnan Hafnarfjörð, og við það situr. Með þessum hætti yrði auðvitað bæði seinlegt og kostnaðarsamt að vinna þær framkvæmdir, sem verður ekki komizt hjá að gera. Það er nauðsynlegt að afla fullkomnustu tækja, og þó að þau séu ekki mjög dýr, þá eru þau nógu dýr til þess, að það dugir ekki að taka fyrir smáspotta hér og hvar, heldur verður að skipuleggja framkvæmdirnar nokkuð fram í tímann, og það verður að skapa öruggan fjárhagsgrundvöll, sem nú er ekki til fyrir áframhaldandi framkvæmdum af þessu tagi.

Ég er að minna á þetta hérna vegna þess, að mér virðist þetta hljóta að verða eitt meginverkefni þeirrar nefndar, sem gera má ráð fyrir að verði skipuð eða kosin, að gera sér grein fyrir, hvernig skipun þessara mála yrði bezt fyrir komið. Það er alveg ljóst, að kostnaður við að gera varanlegt slitlag á þá þjóðvegi, sem þegar er sýnilegt að ekki verður komizt hjá að steypa eða malbika á næstunni. nemur væntanlega hundruðum milljóna króna. Slíkt stórátak verður að sjálfsögðu að undirbúa vel og vandlega og láta vegamálastjóra og aðra færustu sérfræðinga fjalla um það. Og málið þolir ekki mikla bið. Það þarf þess vegna að miða að því, að frumvarp um þetta efni verði lagt strax fyrir næsta hv. Alþingi.

Frv. hv. 3. þm. Vesturl. o.fl., sem flutt var hér á þessu þingi, á þskj. 76, stefndi mjög í rétta átt, þó að mér virðist fulllitil áherzla lögð þar á þann þátt vegamálanna, sem ég er hér sérstaklega að gera að umræðuefni, en þar er stefnt að því að láta umferðina um vegina borga þá. Það er þannig meðal margra annarra þjóða, að það þykir eðlilegt, að innflutningsgjöld af bifreiðum og af benzíni og af öðrum rekstrarvörum bifreiða séu sérstaklega tekjustofn fyrir vegamálin. Og þannig hefur raunar verið litið á til skamms tíma líka hér á landi, því að fram til ársins 1956 stóðust tekjur af þessum tekjustofnum nokkurn veginn á við útgjöld til vegamála, en síðan hefur það hlutfall raskazt mjög verulega.

Samkvæmt athugun, sem Félag íslenzkra bifreiðaeigenda hefur látið gera, nema tekjur af þessum tekjustofnum, sem ég nefndi. á árinu 1960 talavert á þriðja hundrað millj., og eru þá ótalin innflutningsgjöld af varahlutum til bifreiða. En útgjöld til vegamála voru á sama ári áætluð innan við 100 millj. kr. Af þessu má það vera ljóst, að í rauninni eru til eðlilegir tekjustofnar fyrir mjög umfangsmiklar framkvæmdir í vegamálum. En það þarf að koma þessum málum þannig fyrir, að áætlun um þessar framkvæmdir sé gerð til nokkurs tíma í einu, allmargra ára. Það yrði auðvitað að leggja höfuðáherzlu á að steypa eða malbika þá vegi, þar sem umferð er mest og þar sem kostnaðurinn við umferðina hefur mest áhrif á verðlag neysluvaranna í landinu.

Það hagar víða svo til, að fjölfarnir þjóðvegir liggja þvert í gegnum kauptún og þorp, og það er auðvitað nauðsynlegt, að ríkið annist kostnað af slíkum vegum. En það hefur ekki alltaf legið laust fyrir. Kannske eitt bezta dæmið um slíkt er þjóðvegurinn í gegnum Selfoss, sem er einn fjölfarnasti þjóðvegur landsins og liggur þvert í gegnum mitt þorpið. Það er ekki hægt að ætlast til, að hreppsfélagið geti annazt þær framkvæmdir, sem gera þarf á þessum vegarkafla. Þar verður ríkið vissulega að koma til. En það er einnig nauðsynlegt, að ríkið styrki bæjar- og sveitarfélög til þess að gera varanlegar götur. Ekki sízt ef inn á þá braut verður farið, sem ég tel að hljóti að verða gert, að láta umferðina standa undir kostnaði við vegi, þá er ekki eðlilegt, að ríkið taki til sín tekjustofnana, en láti bæjarfélögin standa undir öllum útgjöldum af sínum götum, og þetta, þarf auðvitað að hafa í huga, um leið og um þetta mál er fjallað.

Ég álít, að þetta mál sé veigamikið, og þar sem gera má ráð fyrir því, að um þetta verði fjallað á næsta hv. Alþingi og það talið til hinna stærri mála, þá þætti mér það ekki óeðlilegt, arð Alþingi kysi sjálft nefnd til þess að undirbúa þessi mál fyrir næsta hv. Alþingi. Ég vil þess vegna mæla eindregið með því, að brtt. á þskj. 511 verði samþykkt.