09.12.1960
Efri deild: 33. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í B-deild Alþingistíðinda. (255)
130. mál, söluskattur
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Í lögum nr. 10 frá 22. marz 1960 er m.a. ákvæði um bráðabirgðainnflutningssöluskatt, 8 af hundraði. Um hann er svo ákveðið, að hann skuli innheimtur til ársloka 1960. Við undirbúning og meðferð fjárlaga fyrir árið 1961 er það ljóst, að til þess að afgreiða hallalaus fjárlög fyrir það ár er ekki unnt fyrir ríkissjóð að sleppa þessum 8% innflutningssöluskatti, og þar sem það hins vegar er stefna ríkisstj. annars vegar að afgreiða fjárlög hallalaus og hins vegar að leggja ekki á nýja skatta eða innflutningsgjöld, er flutt þetta frv. um að framlengja þennan söluskatt til ársloka 1961.
Ég legg til, að frv. þessu sé vísað til 2. umr. og hv. fjhn.