01.02.1961
Sameinað þing: 35. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í D-deild Alþingistíðinda. (2567)
145. mál, framfærslukostnaður námsfólks
Flm. (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Samkvæmt núv. skipan tryggingamála hér á landi hætta fjölskyldubætur vegna barna, við 16 ára aldur. Í skattamálum og á ýmsum fleiri sviðum eru mörk dregin við Þennan sama aldur skattgreiðendum í óhag. Þeir, sem hafa á framfæri sínu námsfólk yfir 16 ára að aldri. vita þó af reynslu, hversu ósanngjarnt þetta aldurstakmark getur verið. Ýmsum finnst, að einmitt um 16 ára aldurinn verði kostnaður vegna námsfólksins meiri en nokkru sinni fyrr.
Það er tilgangur þessarar till. að fá kannað, hvernig bæta megi úr því óréttlæti, að menn missi fjölskyldubætur og skattafrádrátt vegna barna, þegar þau í raun og veru verða fjölskyldunni dýrust. Þegar niðurstöður slíkrar athugunar liggja fyrir, má væntanlega velja um leiðir til úrbóta.
Í öðrum löndum er vandamál þetta mjög vel þekkt, og hafa verið farnar ýmsar leiðir til leiðréttingar, Í ársskýrslu framkvæmdastjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, ILO, fyrir 1960, sem hv. þm. hafa fengið senda í norskri þýðingu og nefnist þar „Ungdom og Arbeid“, segir m.a. svo:
„Venjulega hætta fjölskyldubætur vegna barna við aldur milli 15 og 18 ára. Þar sem skyldunám tíðkast, eru ávallt greiddar bætur fram til þess tíma, er viðkomandi börn ná lægsta aldri til að hætta námi. Í nokkrum löndum, svo sem Kanada og Frakklandi, má ekki greiða bætur, nema barn sæki reglulega skóla. Í flestum löndum skapa reglur grundvöll til áframhaldandi bóta fram yfir meðalaldur barna í framhaldsskólum. Þetta á þá við börn, sem stunda reglulega dagskóla til framhaldsnáms, bóknáms eða verknáms, sem iðnnemar eða á annan hátt. Slíkar framhaldsbætur gilda venjulega í 2–3 ár.“
Till. þessi fer fram á það, að Alþingi feli ríkisstj. að rannsaka, hvernig hægt sé að taka réttlátt tillit til framfærslukostnaðar námsfólks yfir 16 ára að aldri í trygginga- og skattalöggjöf landsins.
Herra forseti. Ég legg til, að umr. um málið verði frestað og till. vísað til hv. allshn.