22.02.1961
Sameinað þing: 41. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í D-deild Alþingistíðinda. (2589)

155. mál, ákvæðisvinna

Flm. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Á þskj. 272 flyt ég till. til þál. um rannsókn á hagkvæmni aukinnar ákvæðisvinnu. Till. þessi felur það í sér, að rannsókn verði látin fram fara á því, hvort ekki séu möguleikar á aukinni ákvæðisvinnu, þ.e. í fleiri starfsgreinum en nú er framkvæmt, með hliðsjón af reynslu nágrannaþjóða okkar í þeim efnum. Rannsókn þessi verði látin fara fram með aðild og í fullri samvinnu við Alþýðusamband Íslands og Vinnuveitendasamband Íslands. Verði niðurstaða þessarar rannsóknar sú, að aukin ákvæðisvinna verði talin æskileg, er ríkisstj. heimilað að kosta nauðsynlegan undirbúning að útfærslu ákvæðisvinnunnar á grundvelli rannsóknarinnar og í samráði við fyrrgreinda aðila.

Þegar rætt er um að breyta til frá því, sem um langan tíma hefur þótt sjálfsagt og eðlilegt, eru það mannleg viðbrögð að draga fram kosti og galla þess, sem lagt er til að við taki. Till. sú, sem hér um ræðir, er einungis um rannsókn og athugun á því, hvort hagkvæmt muni að taka upp ákvæðisvinnufyrirkomulag í fleiri starfsgreinum en nú á sér stað og þá að sjálfsögðu í hvaða starfsgreinum.

Allt frá því að fyrstu kjarasamningarnir tóku gildi hér á landi á síðustu árum 19, aldarinnar, hafa slíkir samningar að langmestu leyti gert ráð fyrir því, að verkafólk við störf í landi seldi vinnu sína miðað við verð hverrar klukkustundar. Þetta tímakaup hefur á síðari árum einnig verið lagt til grundvallar við samningagerð um vikukaup og þar áður einnig varðandi mánaðarlaun. Á sama hátt er tímakaupið grundvöllur að setningu fyrstu ákvæðisvinnuverðskrárinnar, sem samþykkt var á fundi Múr- og steinsmiðefélags Reykjavíkur 1. marz 1903 og endurnýjuð aftur 26. maí 1907. Síðan hefur á ýmsu gengið um ákvæðisvinnulaun eins og aðra þóknun hinna vinnandi handa. Þegar óáran hefur verið í atvinnu- og kjaramálum, hefur það bitnað á öllum launagreiðslum. Um nokkur árabil hafa ákvæðisvinnulaunin ekki verið í gildi vegna svipu atvinnuleysisins, rétt eins og á stundum hefur brunnið við, að umsamið tímakaup hefur ekki haldið gildi sínu af sömu ástæðum.

Hjá allmörgum verkalýðsfélögum eru nú í gildi samkv. samningum við atvinnurekendur ákvæðisvinnuverðskrár um hluta starfsgreina, en nokkuð mismunandi mikinn hluta. Ég fullyrði, að öll þau verkalýðsfélög, sem náð hafa samningum um ákvæðisvinnuverðskrár að einhverju eða öllu leyti, mundu telja það stórlega afturför, ef farið yrði að hrófla við þessum samningalega árangri þeirra. Ein slík tilraun hefur verið gerð með tilkynningu verðlagsstjóra 13. júli 1943, þar sem auglýst var lækkun á ákvæðisvinnuverðskrá múrara. Þó að þá ríkti ekki sérstakur áhugi innan verkalýðshreyfingarinnar fyrir ákvæðisvinnu, stóð Alþýðusamband Íslands einhuga með múrurum í baráttu þeirra fyrir að fá þessu gerræði hrundið, og það tókst á þann hátt, að ekki mun talið fýsilegt til eftirbreytni. Því minnist ég á þetta atriði hér, að í kjölfar þessara átaka fór eins konar ákvæðisvinnualda um byggingariðnaðinn. Upp frá þessu var stórum vikkaður sá hringur. þar sem eingöngu var unnið í ákvæðisvinnu.

Hver er þá reynslan, sem fengin er af ákvæðisvinnu þessara starfsgreina? 1) Er ekki byggingarkostnaður hærri vegna ákvæðisvinnunnar? 2) Er ekki vinnan verr af hendi leyst? 3) Verða ekki elztu verkamennirnir út undan í þeim aukna vinnuhraða, sem hlýtur að fylgja ákvæðisvinnu? Þessum spurningum er eðlilega oft varpað fram í sambandi við hugleiðingar manna um þessi mál, og í umræðum um þau hafa menn ekki verið á eitt sáttir.

Samkv. útreikningi hins margnefnda vísitöluhúss verður ekki séð, að hlutur þeirra starfsgreina, þar sem ákvæðisvinna er mest unnin, sé óhagstæðari húsbyggjendum en aðrar starfsgreinar. Raunveruleikinn er og oftast sá, að hin óvissu útgjöld bygginganna koma mest á óvart og eru lævísust og þess vegna ekki nægilega vel með þeim reiknað í upphafi.

Árekstrar vegna vinnuvöndunar hafa reynzt sízt meiri en jafnan er, þó að um tímavinnu sé að ræða. Í byggingariðnaðinum hefur þessum vanda verið mætt með sérstökum matsnefndum, skipuðum fulltrúum beggja aðila og oddasæti frá byggingaryfirvöldunum, sem hlutaðeigandi húsbyggjendur geta kært mál sín fyrir. Þess ber að gæta, að slíkum umkvörtunum væri mun verra að koma við, ef viðkomandi vinna væri ekki unnin í ákvæðisvinnu.

Almennur starfsaldur verkafólks mun oftast áætlaður frá 16–65 ára. Nú hefur að vonum margur spurt, hvort aðstaða elztu starfshópanna mundi ekki stórum versna, ef ákvæðisvinna yrði aukin, og tekjumismunur þeirra aukast miðað við yngri starfshópana og starfssvið þeirra jafnframt þrengjast. Ekki hafa orðið neinir teljandi árekstrar um verkaskiptingu t.d. í fimm greinum byggingariðnaðarins, sem mest er nú unnið að eftir ákvæðisvinnu. Þótt ákvæðisvinna verði stórum aukin innan hinna ýmsu starfsgreina, er öllum ljóst, að þar getur aldrei orðið um algera breytingu að ræða frá því, sem nú er. Þannig verður afram um fjölda verkefna að ræða, sem er ekki mögulegt að koma ákvæðisvinnu við og munu áfram verða unnin í tímavinnu. Hættan á stórum tekjumismun frá því, sem nú á sér stað, er einnig ekki stórvægileg, þegar haft er í huga, að tekjumismunur er ávallt nokkur milli þessara aldursflokka, þótt um tímavinnu sé að ræða. Yngri menn, karlar og konur, með óskerta starfsorku hafa óneitanlega meiri tekjumöguleika í ákvæðisvinnu, en það hafa þeir einnig með núverandi tímavinnufyrirkomulagi, sé á annað borð eftirspurn eftir vinnuafli. þ.e.a.s. næg atvinna sé fyrir hendi.

Kostir ákvæðisvinnu fyrir hinar vinnandi stéttir umfram aukna tekjumöguleika eru að mínu áliti fyrst og fremst þeir, að verkafólki er frjálsara við sín störf og ekki eins háð atvinnurekandanum, sem sannast m.a. á því, hve þau verkalýðsfélög, sem náð hafa samningum þar um, halda fast á þessum rétti sínum. Atvinnurekandinn á aftur á móti auðveldara með að gera sínar fyrirframáætlanir um kostnað af störfum verkafólks síns heldur en þegar um tímavinnu er að ræða.

Ekki eru allar starfsgreinar jafnvel fallnar til ákvæðisvinnu, og veldur þar margt um, sem of langt yrði upp að telja hér. En reynsla nágrannaþjóða okkar, eins og Noregs, Danmerkur og Englands, á að geta verið okkur nokkur hjálp við væntanlega athugun þessara mála, þó að aðstæður séu ekki með öllu sambærilegar. Hjá þessum þjóðum hafa þegar verið gerðar ýtarlegar rannsóknir í þessum efnum, sem síðan hafa orðið grundvöllur að nýrri samningagerð. Þá hafa stórþjóðirnar, eins og Bandaríki Norður-Ameríku og Sovétríkin, langa reynslu í þessum málum í mörgum starfsgreinum, þó sérstaklega Sovétríkin, en öll viðmiðun við þessar þjóðir mun þó vart möguleg, svo mjög sem allt atvinnulíf er þar stórkostlegra í sniðum og ólíkt okkar aðstöðu.

Þegar um er að ræða svo víðfeðma og þýðingarmikla athugun, sem þáltill. þessi heimilar, ef samþykkt verður, er eðlilegt, að það opinbera beri kostnaðinn þar af í einu eða öðru formi, enda hljóta niðurstöður rannsóknarinnar, hverjar sem þær verða, að snerta fjölmennan hóp verkafólks og vinnuveitenda og þá um leið atvinnulíf þjóðarinnar í heild. Ég vænti þess, að hv. þm. geti orðið mér sammála um, að nauðsyn sé á að leiða í ljós, svo sem frekast er unnt með athugun, hvert þjóðhagslegt gildi það gæti haft, að ákvæðisvinna verði aukin í þeim starfsgreinum, sem bezt reynast til þess fallnar.

Herra forseti. Ég óska eftir, að þessari umr. verði frestað og málinu vísað til hv. allshn.