27.03.1961
Sameinað þing: 56. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í D-deild Alþingistíðinda. (2592)

155. mál, ákvæðisvinna

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins nota þetta tækifæri til þess að lýsa því yfir, að ég er þeirri breytingu samþykkur, sem allshn. hefur gert á niðurlagi till., þar sem ekki er um efnisbreytingu að ræða. Jafnframt þakka ég nefndinni góða afgreiðslu málsins og vona, að sú rannsókn, sem skorað er á ríkisstj. að láta fram fara, fari fram hið allra fyrsta.