27.03.1961
Sameinað þing: 56. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í D-deild Alþingistíðinda. (2601)

162. mál, brottflutningur fólks frá Íslandi

Frsm. meiri hl. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Till. þessi er þess efnis, að athugað verði nákvæmlega, hversu mikill brottflutningur fólks frá Íslandi hefur verið undanfarin ár, og rannsakað eftir föngum, hvers vegna fólk flyzt búferlum til annarra landa. Hugmyndin er sú að fá með þessu upplýsingar um þessi mál, sem hægt er að byggja á ákvarðanir um það, hvort ástæða er til að gera einhverjar ráðstafanir í sambandi við brottflutning, ef hann reynist of mikill, eins og ýmsir ætla, og að fyrir liggi sem nákvæmastar upplýsingar um málið.

Nefndin leitaði umsagnar Hagstofu Íslands og Bandalags háskólamanna um till., og mæltu báðir aðilar með samþykkt hennar. Í nefndinni vildu 4 nm. samþykkja till. með orðalagsbreytingu, eins og getið er á þskj. 594, nema hvað rannsóknin er látin ná til 10 ára í staðinn fyrir 5. Einn nefndarmanna greiddi atkv. á móti till., en hefur ekki skilað sérstöku áliti, og annar sat hjá. Með till. allshn. um breytingu mundi tillgr. hljóða svo:

Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta gera nákvæma skýrslu um brottflutning fólks frá Íslandi síðustu 10 ár og rannsaka eftir föngum ástæður fyrir brottflutningi til annarra. landa. Skýrslan og niðurstöður rannsóknarinnar verði lagðar fyrir Alþingi.