27.03.1961
Sameinað þing: 56. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í D-deild Alþingistíðinda. (2612)
114. mál, varnir gegn landspjöllum af völdum Dyrhólaóss
Frsm. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Fjvn. hefur fjallað um það mál. sem hér er á dagskrá, en það er till. til þál. um varnir gegn landspjöllum af völdum Dyrhólaóss í Mýrdal.
Dyrhólaós hefur valdið allmiklum spjöllum á grónu landi í sveitum í Vestur-Skaftafellssýslu, svo sem allmörgum alþm. mun kunnugt um, því að hér hefur áður verið fjallað um það mál. Á sínum tíma var gerð á því nokkur rannsókn, hverjar umbætur væri hægt að gera til þess að draga úr þessum vandkvæðum, og hefur á vegum vitamálastjórnarinnar öðru hverju verið grafinn út ósinn, þannig að vatni hefur verið hleypt burt, sem annars hefur staðið uppi. Í umsögn vitamálastjóra um þetta mál kemur hins vegar fram, að ýmsar athuganir eru mjög hugsanlegar og líklegar til þess að geta borið árangur, til þess að frekar megi draga úr landspjöllum en orðið er, og hefur fjvn. með tilliti til þeirra athugana orðið sammála um að leggja til, að þessi þáltill. verði samþ. með þeirri breytingu, sem greind er á þskj. 596, að till. orðist á þessa leið:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta athuga nánar en gert hefur verið, hvað tiltækilegast sé að gera til að hindra frekari landspjöll af völdum Dyrhólaóss í Mýrdal.“
Mælir nefndin með samþykkt till. þannig breyttrar.