12.12.1960
Efri deild: 34. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í B-deild Alþingistíðinda. (264)
130. mál, söluskattur
Frsm. 1. minni hl. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Ég sat hjá, þegar greidd voru atkv. um afbrigði fyrir þessu máli, og það var vegna þess, að mér þótti nokkuð hratt farið með ekki þýðingarminna mál. Mér virðist, að það sé viðeigandi að gefa eðlilegt tóm, þegar um svona mál er að ræða, til þess að nál. geti legið fyrir, — en eins og menn vita, þá er ekki unnið í prentsmiðjunni að prentun þskj. um helgar, og nál., sem ég samdi og skilaði í morgun, er ekki komið enn, og sama virðist mér vera um nál. hv. 5. þm. Norðurl. e. (BjörnJ). En þegar svona er unnið, þá er aðeins hægt að láta liggja fyrir, að mér skilst, nál., sem er álíka mikið að fyrirferð og nál. meiri hl. eða hálf þriðja lína.
Þó vil ég ekki láta hjá líða að segja nokkur orð um þetta mál. Að vísu fóru fram myndarlegar umr. af hálfu stjórnarandstöðunnar um málið við 1. umr. Þá var t.d. rækilega sýnt fram á það, hvað annar stjórnarflokkurinn, Alþfl., er orðinn mikill umskiptingur, þegar hann stendur að svona frv. Ég minni á þetta, en endurtek það ekki, því að mér sýndist við 1. umr., að ekki mundi verða líklegt, að hægt væri að fá móðurina til að sækja hann og skila rétta barninu aftur. Hv. 3. þm. Norðurl. v. hristi hann allverulega til, en móðirin lét ekki á sér kræla, og verið getur náttúrlega og er ekkert ólíklegt, að hún sé orðin svo gömul, að hún skipti sér ekki lengur af honum, — eða máske er hún fallin frá, og mætti kannske gizka á það eftir því, að þær skoðanir, sem þessi flokkur fylgir nú, eru frá löngu liðnum tímum. Það er gamla íhaldsstefnan, sem hann er tekinn að styðja.
Allt annað mál er þó og miklu eðlilegra, að Sjálfstfl. vilji hafa söluskatt. Samkvæmt vitaðri stefnu hans er honum geðfellt, að sá efnaði borgi ekki meira til hins opinbera en hinn efnalitli, en það er höfuðregla, ef tekna er aflað með söluskatti.
Um síðustu kosningar sagði Sjálfstfl. að vísu, að leiðin til bættra lífskjara væri að kjósa sig. Má vera, að svo reynist hinum raunverulega ríku, og ég held það líka. En leið Sjálfstfl. er almenningi þyrnibraut, eins og gjörla hefur í ljós komið í þessari stjórnartíð hans, í samræmi við það, sem var áður þekkt. Þetta frv. um framlengingu viðbótarsöluskattsins er enn eitt dæmið um, að hann heldur sig við hina gömlu stefnu.
Þegar lög nr. 10 frá 20. marz 1960, um söluskatt, voru sett, lét ríkisstj. liggja í loftinu, —- ég segi, að hún hafi látið liggja í loftinu, að ákvæðið um viðbótarsöluskattinn, 8% til viðbótar 7%, af allri innfluttri tollvöru, að viðbættum aðflutningsgjöldum, og áætluð væri álagning 10%, yrði ekki látið gilda lengur en til loka þess árs, sem nú er að líða. Ákvæðið um söluskattsviðaukann var sett meðal fjögurra annarra ákvæða undir fyrirsögninni: „Ákvæði til bráðabirgða“ — og öll þessi fjögur ákvæði ljúka gildi á þessu ári.
Í grg. fjárlagafrv. fyrir 1960 hafði ríkisstj. áður sagt orðrétt: „Ekki er áformað að breyta núgildandi söluskatti af innflutningi:' En þegar síðar var lagt fram frv. um söluskattinn, þá segir ríkisstj. í grg. þess, að m.a. af því, að almenni söluskatturinn, 3%, sem var upp tekinn, komi ekki til framkvæmda fyrr en nokkuð er liðið af árinu, þá sé fyrirsjáanlegt, að með honum einum saman fáist ekki sú fjárhæð, sem frv. til fjárlaga gerir ráð fyrir. „Hefur því verið horfið að því,“ segir orðrétt í grg., með leyfi hæstv. forseta, „að afla þess, sem á vantar, með viðbótarsöluskatti á innfluttar vörur. Er áætlað, að til þess þurfi að hækka núgildandi innflutningssöluskatt um 8%, eða úr 7% í 15%, og er lagt til, að sú hækkun gildi til ársloka 1960. Eins og áður getur, hefur skammur tími verið til athugunar og undirbúnings máls þessa, og því er sú leið, sem hér er farin, að nokkru leyti bráðabirgðaleið. Verður unnið áfram að málinu og væntanlega unnt að leggja fyrir næsta Alþingi tillögur um frambúðarlausn þess.“
Þegar þetta er skoðað, þá er kannske hægt að segja eins og hæstv. fjmrh., að ekkert hafi beint verið sagt um afnám eða niðurfellingu skattsins við næstu áramót. En þar er svo mikið óbeint sagt um það, að rétt er að komast þannig að orði, að loforð hafi legið í loftinu. Og áreiðanlegt var það, að fólki var af stuðningsliði stjórnarinnar beinlínis talin trú um, að þessi 8% söluskattur stæði ekki lengur en til ársloka 1960. Og maður varð þess var, að margir treystu því. Menn héldu, að þá mundi fara að rætast það, að þetta væri leiðin til bættra lífskjara, og það kæmi í ljós m.a. með því, að ekki þyrfti að framlengja þennan skatt við áramótin 1960–61. Að vísu voru margir vantrúaðir, og ég var einn á meðal þeirra. Ég sagði í nál, um þennan söluskatt 12. marz 1960, að ég teldi, að engar líkur væru til, að ríkisstj. mundi að árinu loknu telja sig mega missa þennan skatt. Ég minnist þess, að þetta þótti óvinsamlega mælt í garð ríkisstj. En mér virtist það blasa við, að stefna stjórnarinnar öll fæli í sér, að þessi spá hlyti að rætast. Nú hefur ríkisstj, líka lagt fram frv. þetta um framlengingu skattsins, sem verður í framkvæmd 8.8% til aukningar á vöruverði til almennings, og nú segist ríkisstj. gera þetta af því, að stefna sín sé að afgreiða hallalaus fjárlög án þess að leggja nýja skatta eða aðflutningsgjöld á þjóðina. Á síðasta ári var gripið til skattsins af því, að innheimta nýrra skatta gat ekki orðið nema þrjá fjórðunga ársins. Nú, þegar sú ástæða er ekki lengur fyrir hendi, segist ríkisstj. ætla að endurtaka viðbótarskattinn allan allt árið til þess að hlífa þjóðinni við nýjum sköttum eða aðflutningsgjöldum. Þetta er sannarlega einkennilegur orðaleikur, og vægast sagt er hann mjög vandræðalegur. En hvað gildir svo þessi skattur fyrir almenning? Hann er áætlaður skv. fjárlagafrv. tæpar 170 millj. kr. í heild. Sú áætlun er, eins og hv. 5. þm. Austf. sýndi fram á við 1. umr., ekki í samræmi við áætlunina eins og hún er orðin nú um 7.7% söluskattinn. Hann var færður upp við 2. umr. fjárlaga. En af því að grundvöllur fyrir þessum tveim sköttum er hinn sami, má telja, að þessi hefði átt að hækka líka til samræmis. En segjum nú, að hann sé 170 millj., og þá má segja, eins og tekið var fram í umr. við 1. umr. málsins, að hann sé til jafnaðar 1000 kr. á hvert mannsbarn í landinu.
Til frekari glöggvunar og betri tel ég rétt að leiða vitni, sem á að vera óhlutdrægt og a.m.k. ekki stjórnarstefnunni óvinveitt um það, hvað þessi skattur gildir og hvernig á hann er litið af fræðimanni, sem á að vera a.m.k. óhlutdrægur. Hingað til lands kom í sumar sem leið norskur hagfræðingur, Per Dragland. Hann var fenginn til að athuga íslenzkt efnahagslíf eða efnahagsmálin íslenzku. Stjórnarblöðin birtu álitsgerð hans og létu vel yfir henni. Þau töldu hana stefnu stjórnarinnar í vil. En þegar álitsgerðin er lesin með aðgát, eru þar bendingar, sem sýna, að manninum hafa þótt efnahagsráðstafanir ríkisstj. uggvænlegar. Ríkisstj. hefur viljað halda því fram, að efnahagsráðstafanir sínar skertu lítið kjör almennings, en Per Dragland segir í álitsgerð sinni: „Um er að ræða aðgerðir, sem stefna að tilfinnanlegri rýrnun lífskjara. Þetta segir hann orðrétt. Og á öðrum stað í álitsgerðinni segir hann líka: „Ráðstafanirnar fela í sér svo mikla kjaraskerðingu, að tilfinningar mínar gera mér örðugt að mæla með þeim.“ Það er ekki stjórnarandstaðan, sem er þarna að tala, það er ráðunautur, sem fenginn hefur verið til að gefa holl ráð og segja álit sitt á því, sem er að gerast. Um vaxtaokrið svonefnda farast honum þannig orð, að segja má, að hann fordæmi það. Um söluskattsviðbótina, sem við erum hér að ræða, hvort eigi að framlengja eða ekki, þá segir hann sérstaklega, með leyfi hæstv. forseta:
„Er hækkun söluskatts í innflutningi úr 7.7 í 16.5 skoðuð sem bráðabirgðaráðstöfun. Þegar hægt verður að lækka skattinn aftur, mun það eftir þeim upplýsingum, sem ég hef fengið, hafa í för með sér 3% sparnað fyrir vísitölufjölskylduna. Slík lækkun ætti að mínum dómi að ganga fyrir, jafnskjótt og hægt er að framkvæma hana, ekki sízt vegna þess, að eftir gengislækkunina situr Ísland uppi með óvenjuháa tollvernd, sem ekki aðeins gerir vörurnar dýrari, heldur getur einnig hvatt til framleiðslu og atvinnurekstrar, sem hvorki í bráð né lengd er hagkvæmur fyrir heildina. Á sama tíma sem bæði útgerðina og fiskvinnslustöðvarnar skortir vinnuafl ber að forðast, eins og unnt er, að opna leiðir fyrir atvinnurekstur, sem aðeins getur þrifizt í skjóli hárra tolla.“
Þarna upplýsir Per Dragland, að þessi viðbótarskattur valdi meðalstórri fjölskyldu 3% kjaraskerðingu og þá auðvitað fjölmennari fjölskyldu meiri kjaraskerðingu. Honum hefur verið sagt, að skattaukinn eigi að skoðast aðeins til bráðabirgða. Enn er það látið liggja í loftinu, þegar hann er hér, að skatturinn eigi ekki að vera nema stutta stund. Hann telur, að lækka eigi skattinn, jafnskjótt og hægt er að framkvæma lækkunina, og nefnir ástæður um óheilbrigði skattsins fyrir atvinnulífið auk kjaraskerðingarinnar. Þarna er það ekki stjórnarandstaðan, sem talar um viðbótarsöluskattinn, heldur erlendur hagfræðingur, ráðunautur stjórnarliðsins.
En nú segir ríkisstjórnin: Ég má ekki, þegar til kastanna kemur, missa viðbótarsöluskattinn. — Haldi hún því til streitu, viðurkennir hún sjálf það, sem að vísu flestir skilja nú orðið, að hún er komin út í fen með efnahagsmálin. En hvers vegna vill hún ekki snúa aftur, heldur sullast áfram beint af augum lengra út í kviksyndið, dýpra og dýpra með sjálfa sig og efnahagsmál þjóðarinnar? Mér þykir það furðulegt, og sérstaklega þykir mér það furðulegt af því, að ég er alveg sömu skoðunar og hv. frsm. meiri hl. um það, að í raun og veru ætti að mega ganga út frá því, að hver ríkisstj. vildi, bæði sjálfrar sín vegna og þeirra verkefna, sem hún hefur tekið að sér, komast sem bezt frá sínu starfi.
Með skírskotun til þess, sem norski hagfræðingurinn, ráðunauturinn, segir, þá hika ég ekki við að leggja til, að frv. þetta, sem hér liggur fyrir, verði fellt. En ég heyrði vel, hvað hv. frsm. meiri hl. fjhn. sagði áðan. Hann var að tala um það, að ekki hefði örlað á neinum till. um gjaldasparnað eða tekjuöflun, sem ætti að koma í staðinn, ef frv. þetta ætti ekki að ná fram að ganga. Og það virðist vissulega vera eðlilegt, að spurt sé eftir slíku. En samt sem áður er það svo, eins og sakir standa, að ég tel ekki, að mér beri skylda til að gera till. um það, hvernig fyllt verður skarð það, sem höggvið yrði í tekjur fjárlagafrv., eins og það er nú eftir 2. umr., ef skattur þessi yrði ekki látinn gilda áfram. Ég tel mér það ekki skylt. Og það er vegna þess, að ríkisstj. heldur leyndu fyrir Alþingi öllu því, er hún getur, um raunverulegar fyrirætlanir sínar í efnahagsmálum sem öðru. Hún felur það innan við múra þingflokka sinna. Enn þá hefur hún t.d. ekki fengizt til að leggja fram á Alþingi eða í fjvn. fullgilda áætlun um gjaldeyrismálin 1961, svo sem vera ber, af því að þar er ein aðalundirstaðan um afkomu ríkissjóðs. Og ég tel það furðu frekt, ef hv. frsm. meiri hl. eða hæstv. ríkisstj. gerir kröfu til þess, að þeir, sem eru á móti þessum skatti og vilja, að ríkisstj. standi við þau fyrirheit, sem hún lét liggja í loftinu, þegar hann var settur, komi með till. um það, hvernig eigi að byggja upp það skarð, eins og ég sagði áðan, sem yrði, ef skatturinn yrði tekinn út af tekjuhlið fjárlaganna, meðan eins mikilsverðum atriðum er haldið leyndum eins og því, hvað ríkisstj. ætlast fyrir í gjaldeyrismálum. Og enn má geta þess, þó að það komi ekki beint þessu við, að hún hefur ekki heldur gefið neina skýrslu um fyrirætlanir sínar, að því er erlendar lántökur snertir. Það kemur ekki þessu beint við, en það má nefna það, af því að það er líka fjárhagsmál. Einmitt þetta gerir það að verkum, að stjórnarandstæðingur hefur hvorki aðstöðu né skyldu til að lýsa frá sinni hendi tekjuöflunartill. eða gjaldalækkunartill. vegna ríkissjóðs, um leið og hann leggur til, að frv., sem hér um ræðir, verði fellt. Leyndin bak við múrana leggur þá skyldu alla á herðar ríkisstj. og flokka hennar. En þó að þessi skylda hvíli ekki á stjórnarandstöðunni, geti ekki hvílt á henni, eins og mál eru rekin hér, þá er ekki létt af henni þeirri skyldu að vara við og vera á móti því, sem komið er með út fyrir múrana, ef hún telur það skaðlegt og rangt, eins og þetta frv.
Ég tel ekki ástæðu til þess að gera fjölorðari grein fyrir afstöðu minni til frv. Ég hef vitnað í þann ráðunaut, sem sóttur var til athugunar á þessum málum og lét sérstaklega uppi álit sitt á söluskattsviðaukanum, — álit, sem er í fullu samræmi við það að leggja nú til, að viðaukinn sé felldur niður.
Að lokum svo aðeins þetta: Það var einu sinni maður, sem steig ofan á höndina á sjálfum sér og meiddi sig illa. Hönd rétti fyrirheit að þjóðinni í fyrra um, að söluskattsaukinn, 8.8%, yrði aðeins til ársins. Með því að framlengja söluskattinn stígur ríkisstj. ofan á þá hönd, höndina á sjálfri sér, og meiðir sig illa.