22.03.1961
Sameinað þing: 55. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í D-deild Alþingistíðinda. (2643)
188. mál, alþingishús
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Út af ummælum hv. 1. þm. Vestf. um það, að hæstv. forsetar einir ættu að hafa um þetta mál að segja, vil ég segja það. að ef sá háttur væri hafður á skipun forseta hér á hv. Alþ., að minni hl. þingsins hefði þar eitthvað um að segja, þá væri sú hugsun, sem kom fram hjá hv. þm., miklu eðlilegri en þegar á það er litið, að það er aðeins naumur meiri hl., sem ræður öllum forsetunum. Ég er ekki að kasta neinni rýrð á hæstv. núv. forseta og vil þó segja það, að ég tek þar engan fram yfir annan. Og t.d. út af orðum hv. 1. þm. Vestf. vil ég segja það, að ég treysti alveg eins vel þeim forseta, sem stýrir Nd., þeirri d., sem ég á sæti í, eins og, hinum til þess að hafa góð áhrif ámálið. En ég vil samt ekki fela þeim einum að fjalla um það og láta 27 af 60 þm. vera þar raunverulega áhrifalausa. Það er mjög óeðlilegt, að sá háttur sé á hafður, að Alþingi megi sjálft ekkert um málið segja í heild, aðeins sá meiri hluti, sem ræður skipun forsetanna.
Hér er um mál að ræða, sem er mikil nauðsyn að nái fram að ganga. því að aðbúnaður við öll störf hér á hv. Alþ. er slíkur, að það þarf ekkert að ræða það. Hann er í alla staði óviðunandi og tími þingmanna fer oft og tíðum til lítils, vegna þess að þeir hafa enga möguleika til þess að starfa hér í húsinu. Þess vegna álít ég, að þessi tillaga sé hin mesta nauðsyn, og treysti því, að hv. Alþ. afgreiði hana einmitt nú fyrir þingslit og það mætti svo verða til þess að hrinda málinu fram. Till. er ekki á neinn hátt flutt sem vantraust á hæstv. forseta, heldur aðeins til þess að hrinda þessu máli áleiðis og með þann skilning fyrir augum, að það sé eðlilegt, að Alþingi allt hafi áhrif á málið.