22.03.1961
Sameinað þing: 55. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í D-deild Alþingistíðinda. (2645)

188. mál, alþingishús

Gísli Jónsson:

Herra forseti Ég hygg, að megin ágreiningurinn á milli mín og þeirra hv. tveggja þm., sem hafa talað hér í sambandi við þetta mál. stafi aðallega af því, að þeir hugsi allt öðruvísi í landsmálum en ég geri. Ég lít alls ekki á forseta Alþingis sem sérstakar pólitískar stærðir, sem eigi eingöngu að vinna pólitískt. Ég geri það ekki og hef aldrei gert. Og ég hef aldrei orðið var við það í minni þingtíð, að þeir forsetar, sem hafa verið kosnir hér, hafi beitt sínu forsetavaldi þannig, að það sé pólitískt, jafnvel ekki þeir forsetar, sem hafa verið kosnir af Framsfl. Þessir hv. þm. virðast lita svo á, að forsetar almennt, sem kosnir eru af meiri hl. þings, séu bara pólitísk verkfæri í höndum flokkanna. Þetta er alger misskilningur. Það eru nefnilega takmörk fyrir því frá mínu sjónarmiði, hvað langt má ganga í því að rýra virðingu Alþ., og það er eitt af því að rýra virðingu Alþ. að vantreysta forsetum til þess að gera hluti, sem liggja í þeirra valdi, eins og þetta mál. Það er beinlínis að rýra virðingu Alþingis, og því er ég á móti. Ég tel, að forsetar Alþingis séu embættismenn þingsins, og þeir hafa jafnan sýnt það, að þegar í harðbakkann slær, gegna þeir starfi sínu sem embættismenn, en ekki sem neinir sérstakir flokksmenn.

Það er ekki þar með sagt, þó að mín till. sé samþykkt, að hæstv. forsetar geti ekki m.a. skipað sjálfir sérstaka n. til þess að vinna að þessu máli og ákveða, á hve löngum tíma það skuli vera leyst. Ég veit, að hvorki hv. þm. almennt né heldur forsetar hafa alla þá þekkingu, sem þarf til þess að gefa nauðsynlegar upplýsingar í sambandi við þessi mál. svo sem kostnaðaráætlanir eða gerð teikninga o.s.frv. Um það verða þeir að leita til sérfræðinga, m.a. til húsameistara ríkisins. En ég veit líka, að undir stjórn fyrrv. allmargra forseta hafa þessi mál verið athuguð og rædd, og það liggja fyrir gögn frá þeim tímum, sem gefa allmiklar upplýsingar í málinu. Mín till. fer því ekki inn á neitt annað en að þetta mál sé ekki tekið úr höndum forseta, heldur vinni þeir að málinu á þann hátt, sem þeir telji heppilegast og fljótlegast, og ég vil ítreka það, að ég tel alveg nauðsynlegt, að þessu máli sé hraðað, og tel, að það þurfi síður en svo að tefja málið, þó að það sé ekki tekið úr höndum forsetanna.

Ég hygg, að þetta sé nægileg skýring á því, sem hv. flm. till. gerði fsp, til mín um. En það kann vel að vera, vegna þess að ég er orðinn hér aldursforseti þessa þings, að mér sé það meira tilfinningarmál en mörgum öðrum að láta á engan veg minnka virðingu Alþ. eða virðingu forseta, og ég tel, að þessu máli sé bezt komið með því, að það sé ekki tekið úr þeirra höndum.