28.03.1961
Sameinað þing: 59. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 579 í D-deild Alþingistíðinda. (2662)
221. mál, úthlutun listamannalauna 1961
Frsm. minni hl. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. frá meiri hl. fjvn. á þskj. 701, var fjvn. ekki sammála um afgreiðslu þessa máls. Fulltrúi okkar í menntmn. Nd., hv. 4. þm. Sunnl. (BFB), lagði fram brtt. um, að n. yrði skipuð fjórum mönnum, en ekki fimm, eins og till. gerði ráð fyrir. Grein fyrir þeirri brtt. var gerð hér af hv. 5. þm. Austf. (PÞ) við umr. í dag. Ég þarf þess vegna ekki að gera frekari grein fyrir afstöðu okkar, því að hún er í samræmi við það, sem sá þm. greindi réttilega frá. Við leggjum til á þskj. 702, að tillgr. orðist eins og þar segir, að Alþingi álykti að kjósa fjögurra manna n. til þess að skipta fjárveitingu til listamanna á 14. gr. B. XIII í fjári. fyrir árið 1961, og gerum það að till. okkar, að sá háttur verði á hafður.