25.01.1961
Sameinað þing: 34. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 587 í D-deild Alþingistíðinda. (2672)

149. mál, jafnvægi í byggð landsins

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Hv. frsm. talaði um það, að nauðsyn bæri til að koma á reglum um úthlutun atvinnuaukningarfjár og um þær framkvæmdir, sem gerðar eru fyrir það fé. Ég er honum sammála um þetta. Það er nauðsynlegt, það er satt. En þær koma ekki með neinni þáltill. Og Þar sem fram hefur komið frv. frá sumum þeirra, sem flutt hafa þessa till., fæ ég ekki skilið, hvers vegna það frv. er ekki jafnframbærilegt nú og það var þá, ef áhugi er á því að setja þessar reglur. Það er kannske til of mikils mælzt, að hv. stjórnarflokkar vilji fallast á það frv., sem liggur fyrir þinginu frá okkur framsóknarmönnum um þetta efni. Þeir geta sannarlega komið sínum brtt. við það, en þeir hafa ekki viljað það. Hitt þykir mér merkilegra, að þeir skuli ekki vilja flytja sitt eigið frv. um þetta efni, og það get ég ekki samræmt því að flytja nú þáltill.

Hv. frsm. taldi, að það væri útilokað að auka framleiðslu og jafnvægi í byggð landsins nema með viðreisnarstefnunni, þ.e.a.s. þegar hún er búin að njóta sín, eins og þeir kalla, það, eða heppnast. Þeir tala oft um það, hafa þann fyrirvara: ef hún heppnast. Hefur hún ekki heppnazt? Hver hefur spillt fyrir viðreisnarstefnunni það ár, sem er að líða? Hafa ekki bæði guð og menn látið ríkisstjórnina a.m.k. í friði fram á þennan dag? Ég held það. Er þá ekki atvinnuaukning orðin mikil í landinu, síðan hún kom til? Eða hvað þarf langur tími að líða enn, til þess að þjóðin fái einhverja hugmynd um, hvort viðreisnin heppnast eða heppnast ekki, — eða getur hún nokkurn tíma heppnazt öðruvísi en hún er orðin nú? Er nokkurn tíma nokkurs árangurs af henni að vænta, annars en þess, sem nú er augljós allri þjóðinni? Er hún ekki komin að fullu til framkvæmda? Og ef svo er, hvar er þá atvinnuaukningin, hvar er framleiðsluaukningin, hvar er jafnvægið í byggð landsins, sem skapazt hefur þetta ár sem liðið er? Þetta er það, sem ég fæ ekki skilið. Og því get ég ekki tekið undir orð hv. frsm. um það, að viðreisnarstefnan sé nokkur grundvöllur fyrir framleiðsluaukningu í landinu. Þvert á móti, það er einmitt hún, sem hefur drepið hana alla niður og fært hlutina til baka.

Hv. frsm. talaði um. að það væru víst ekki nema 10 millj., atvinnuaukningarfé á fjárlögum núna. Jú, það er rétt. Það var drepin till. frá framsóknarmönnum um að hafa það 20 millj. En hann nefndi 4 millj. til vegagerða. Hingað til hafa stjórnarsinnar talið framlögin til vegagerða, bæði þær 4 millj. og hinar tæpar 16, sem eru á fjárlögunum. Ef hægt er að telja, fé, sem lagt er til vega, kannske til brúa og hafna, sem atvinnuaukningarfé, þegar því er að skipta, þá er hægt að fá þó nokkuð háar upphæðir. En það eru bara ekki nema 10 millj. á fjárlögum eða helmingi minna en ætti að vera, ef það væri jafnt því, sem var á árum vinstri stjórnarinnar.

Hv. frsm. sagði, að það væri fyrsta skilyrðið, að atvinnuvegirnir væru á öruggum grundvelli, — það er alveg rétt hjá honum, — að framleiðslutæki séu rekin hallalaust og atvinnuvegirnir reknir á heilbrigðum grundvelli. Þetta er rétt. Eru þeir það núna, eftir eins árs viðreisn? Eru þeir nær því að vera það núna en þeir voru fyrir ári? Og hvað þarf að líða langur tími, þangað til séð er fyrir endann á því?

Hv. frsm. vitnar í, að framsóknarmenn hafi brugðizt einhverju 1954. Já, það var vissara að vitna í 1954, því að þá átti ég ekki sæti á þingi, svo að ég get ekki borið um það. En það er kannske einhver hér, sem hefur hugmynd um það, hvað hefur gerzt 1954 eða síðar, að það stöðvaðist frv., sem var að mörgu leyti merkt frv. og vel undirbúið hjá Þeim hv. þm. Gísla Jónssyni og Gísla Guðmundssyni. Það er rétt, að það stöðvaðist. En ég hef ekki heyrt það fyrr, að það hafi verið framsóknarmenn, sem hafi stöðvað það. Mig minnir, að ég hafi heyrt, að hæstv. þáv. forsrh. hafi ekki verið ánægður með frv. og að það hafi af þeim ástæðum stöðvazt og það hafi á einhvern hátt verið í sambandi við togaraútgerð. Mig minnir það. (Gripið fram í.) Ætli það hafi ekki verið eitthvað minnzt á togaraútgerð í því frv.? En hitt held ég að sé rangminni hjá hv. frsm.

Nei, það Eru engin spor framsóknarmanna, sem hræða í þessu máli, og ég er alveg viss um það, að hv. frsm. þessa máls veit það, að ég hef einmitt áhuga á þessu máli. og ég er ekki að tortryggja. að hann hafi það. En hann er bara háður viðreisninni, en ég ekki. Það eru engin spor, sem hræða. Atvinnuaukningarféð var helmingi meira hjá vinstri stjórninni en Það er núna. Þar að auki veitti vinstri stjórnin stórkostleg, lán til alls konar kaupa á framleiðslutækjum, bæði á landi og sjó, svo að milljónatugum nam, og greiddi fyrir framleiðslunni á margan annan hátt. Það er því allt aðra sögu að segja af þeim málum en nú. Svo þurfa þeir hv. flm. þessarar till. engin spor að láta hræða sig, því að þeir eiga þriggja ára gamalt frv. um framleiðsluaukningarsjóð, sem þeir gætu flutt, ef þeir vildu nú koma skrið á þetta mál. og þarf enga þáltill. til.