25.01.1961
Sameinað þing: 34. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í D-deild Alþingistíðinda. (2673)

149. mál, jafnvægi í byggð landsins

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég hafði ekki ætlað mér að ræða efnislega þessa till., sem liggur hér fyrir á þskj. 257, einkum og sér í lagi vegna þess, að það hefur verið lagt til, að henni verði vísað til allshn., hvar ég á sæti. En út af ummælum frá hv. 4. þm. Vestf. um, hverjir hafi brugðizt þessu máli á sínum tíma. þykir mér rétt að gefa réttar og sannar upplýsingar um það atriði. Ég átti þá ekki einasta sæti hér á Alþingi, heldur og, í þeirri nefnd í hv. Ed., sem frv. var í, sem var fjhn. Ed.

Þetta frv. var til umr. á þinginu 1955 og afgr. um vorið 1956, rétt fyrir —kosningarnar. Það fékk þá engar undirtektir hjá stjórnarandstöðuflokkunum. M.a. barðist hv. 4. landsk. þm. (HV) mjög gegn frv. og hélt, að hann gæti drepið það með því að kalla það litlu gulu hænuna, þetta væri lítið annað en litla gula hænan fyrir þjóðfélagið. En sannleikurinn í málinu er sá, að eftir að málið hafði verið afgr. í hv. Ed. og sent hv. Nd., og, þegar það var þar við síðustu umr., þá sveik Framsfl. þetta mál. Hann sveik það fyrst þannig, að hann hleypti í gegn hér í þessari hv. deild till. frá kommúnistafl., sem gereyðilagði frv., og það var ekki af því, að hann væri andvígur málinu út af fyrir sig, heldur var það af því, að þá gekk form. Framsfl. hér á biðilsbuxum um þingsalina til þess að mynda nýja ríkisstj. eftir þær kosningar, sem fram fóru vorið 1956, og voru honum sett þau skilyrði. m.a. af hv. 4. Landsk. þm., að þetta mál yrði stöðvað, ef tala ætti yfirleitt um samstarf eftir kosningarnar til að mynda ríkisstj. Þetta er sannleikurinn í málinu. Eysteinn Jónsson, hv. 1. þm. Austf., tjáði hins vegar okkur stjórnarsinnum þá, að hann gæti ekki undir neinum kringumstæðum fellt sig við að samþykkja þá eðlilegu skipun á stjórn sjóðsins, að fimm manna nefnd yrði kosin á Alþingi, af því að þá fengi hv. samþingismaður hans, sem nú er orðinn hálfbróðir hans að skoðun, Lúðvík Jósefsson, sjálfsagt þar aðstöðu, og það gæti hann ekki fellt sig við, sízt af öllu fyrir kosningar þær, sem fram undan væru. Hann mundi hafa þar of mikið vald. sem hann mundi geta beitt í kosningunum, tryggt með því kosningu sína á Austurlandi. En það var andstætt því, er hv. 1. þm. Austf. vildi, sem þá vildi halda áfram samstarfi við sjálfstæðismenn um stjórnarmyndun í landinu. Hv. 1. þm. Austf., Eysteinn Jónsson, lýsti því alveg ákveðið yfir á fundi r Bjarkalundi vorið 1956, að þetta frv. yrði aftur flutt af framsóknarmönnum og þeir mundu beita sér fyrir því, að það yrði gert að lögum, ef þeir yrðu í stjórn eftir kosningar. En allt þetta var svikið. Og þetta veit hv. 4. þm. Vestf. vel. Það hefur svo oft verið rætt um það á fundum í Barðastrandarsýslu með þessum hv. þm., þar sem hann hefur reynt að bera af sér og flokknum þennan blett. Hann skýrir því ekki rétt frá, er hann segir, að hann viti ekkert um þessi mál. Hann er bara ekki maður til þess að viðurkenna sannleikann í málinu. Það er allt og sumt. En þetta eru staðreyndirnar um afdrif þessa máls.

Þegar á svo að fara að semja um þetta við vinstri stjórnina, rís Alþb. upp gegnmálinu, kannske einnig að einhverju leyti Alþfl., og þess vegna kemur það aldrei á dagskrá, meðan vinstri stjórnin er við völd. En undireins og hún er farin frá, þýtur Framsfl. til og ber fram frv., gerir það að sínu máli á öllum framboðsfundum, m.a. í útvarpsumræðunum á Ísafirði, sem hv. 4. þm. Vestf. tók þátt í, og þar var hann allur af vilja gerður og harmaði það mjög, að málið hefði ekki náð fram að ganga, og gleymdi, að flokkur hans átti alla sökina á því, að málið náði ekki fram að ganga, þegar það var hér til meðferðar vorið 1956.

Þetta þótti mér rétt að láta koma fram í málinu, úr því að farið var að tala um, hver ætti sök á því, að málið hefði ekki náð fram að ganga. Um efni málsins sjálfs mun ég geyma mér að ræða. þar til það kemur aftur úr allshn., sem ég vænti að verði mjög bráðlega.