25.01.1961
Sameinað þing: 34. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 591 í D-deild Alþingistíðinda. (2676)

149. mál, jafnvægi í byggð landsins

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Mér þykir nú gott að eiga orðastað við hv. 3. þm. Norðurl. e. bæði um þessi mál og önnur, því að í okkar viðskiptum hér á Alþ. hef ég aldrei mætt neinni ósanngirni. og mér þótti enn fremur vænt um, að hann einmitt viðurkenndi, að ég hefði farið hér með rétt mál. Hann sagði, að frv. hefði verið breytt hér í Nd. og síðan hefði ekki hæstv. þáv. forsrh. viljað taka við málinu með þeim breyt., og með því að komið hefði verið að þinglokum, hefði frv. dagað uppi. Þetta er hárrétt. En hverjir stóðu að breyt., sem gerð var í Nd. til þess að láta málið daga uppi? Vill hv. þm. fletta upp í þskj. og sjá, hverjir það voru, sem studdu þær tillögur, sem þá voru settar fram, til þess að málið næði ekki fram að ganga í þinglokin? Það voru framsóknarmenn og engir aðrir en framsóknarmenn. Og það var þannig, sem þeir brugðust í málinu. Ef þeir hefðu haldið fast við samningana um, að málið ætti að ná fram að ganga óbreytt, eins og búið var að semja um, þá hefðu þeir aldrei stutt tillögu skemmdarvarganna, sem fluttu hana beinlínis í þágu formanns Framsfl., til þess að ná möguleikum á vinstri samvinnu eftir kosningarnar, eins og einnig varð. Þetta er sannleikurinn í málinu. Hins vegar hefur ekki Framsfl. haft neitt afl til þess síðan að rétta hlut sveitanna í þessu máli. Hann gat ekki rétt hlut sveitanna í þessu máli, á meðan hann var í vinstri stjórninni. því að það var sett að skilyrði frá þeim mönnum, sem kölluðu frv. „litlu gulu hænuna“, að þessi réttur væri aldrei gefinn bændunum í landinu eða þeim öðrum, sem byggju í dreifbýlinu. Það var beinlínis sett að skilyrði, og þess vegna höfðu þeir aldrei vald til þess að geta komið málinu fram.

Hitt atriðið, að það sé eðlilegri háttur að samþykkja frv. eins og Það liggur fyrir í Ed., er að sumu leyti alveg rétt, ef hægt er að ná samkomulagi um málið, eins og það liggur fyrir nú. En það hefur ekki tekizt í Ed. enn. Ég skal ekkert segja um, hvernig það yrði hér. En í sambandi við það vildi ég gjarnan spyrja hv. 3. þm. Norðurl. e.: Hvers vegna báru ekki hv. flm., sem standa að frv. í Ed., það fram eins og Framsfl. gekk frá því í Nd. 1956? Er það ekki sönnun fyrir því, að það sé rétt, sem ég er að segja? Það var ekki gert að ástæðulausu hjá þeim framsóknarmönnum að skemma þetta mál. Þeir áttu um það að velja að svæfa málið eða að glata því tækifæri að mynda vinstri stjórn, og það varð þyngra á metaskálunum, að Framsfl. skyldi mynda þá stjórn, sem bakaði þjóðinni það böl og þá erfiðleika, sem núverandi stjórn er að glíma við til þess að geta rétt við fjárhag þjóðarinnar. Þeim framsóknarmönnum, sem stóðu að því máli, þótti það heppilegra en láta dreifbýlið ná sínum rétti í sambandi við jafnvægi í byggð landsins.