21.10.1960
Efri deild: 8. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (27)
5. mál, happdrætti fyrir Ísland
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Eins og fram kemur í grg. frv. þess, sem hér liggur fyrir, er tilefni þess það, að stjórn happdrættis Háskóla Íslands hefur farið þess á leit, að hlutatala happdrættisins verði hækkuð frá því, sem nú er, en hlutatalan hefur til þessa verið ákveðin með lögum. Í stað þess að hækka hlutatöluna frá því, sem nú er, og setja um það ný lög, er hins vegar lagt til í frv., að sá háttur verði hér eftir tekinn upp, að hlutatala happdrættisins verði ákveðin með reglugerð, svo að ekki þurfi að breyta lögum í hvert skipti, sem hlutatalan breytist. Þessi háttur er nú þegar hafður á, hvað snertir happdrætti dvalarheimilis aldraðra sjómanna, eins og fram kemur í grg. fyrir frv.
Fjhn. hefur haft þetta frv. til meðferðar, og samkomulag er um það í n. að mæla með því, að frv. þetta verði samþ. N. er sammála um að fallast á, að sá háttur verði upp tekinn varðandi þetta atriði, sem frv. gerir ráð fyrir.