13.03.1961
Sameinað þing: 51. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í D-deild Alþingistíðinda. (2718)
206. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Þegar rædd er till. sú til þál., sem hér liggur fyrir um vantraust á ríkisstj., verður ekki hjá því komizt að líta nokkuð til baka og gera sér grein fyrir þróun mála hér á landi nú hin síðustu ár.
Þegar stjórn Ólafs Thors lét af völdum og stjórn Hermanns Jónassonar, hin svokallaða vinstri stjórn, tók við að afloknum kosningum á miðju ári 1956, tók sú stjórn vissulega við blómlegu búi. Tveir þeirra flokka, sem að vinstri stjórninni stóðu, höfðu gefið mörg loforð og stór fyrirheit í kosningabaráttunni þá um sumarið, og eftir stjórnarmyndunina gerðu margir vinstri sinnaðir menn sér vonir um, að nú væri setzt að völdum sterk stjórn, sem lengi mundi sitja. Ég ætla ekki að eyða mörgum orðum að því, hvernig um þessa stjórn fór. Þjóðinni er það enn í fersku minni og því óþarfi að vera um það margorður. Hún endaði daga sína, eins og kunnugt er, með yfirlýsingu forsrh. hennar á Alþingi hinn 4. des. 1958, þegar hann tilkynnti stjórnarslitin, sem hann rökstuddi með því, að skollin væri yfir verðbólgualda og engin samstaða eða úrræði væru innan stjórnarinnar til þess að stöðva þessa háskalegu þróun.
Ég held, að formaður Framsfl., þáv. forsrh., hafi á þeirri stundu verið raunsær. Og hvort sem hann hefur gert sér það ljóst eða ekki, mun hann aldrei hafa unnið þjóð sinni meira gagn en þegar hann með stjórnarslitunum viðurkenndi mistök sín, eftir að honum var orðið ljóst, að stjórnarstefna hans hafði leitt efnahagsmál þjóðarinnar fram á hengiflug óðaverðbólgunnar og fram af því hengiflugi yrði stigið, ef haldið yrði áfram um eitt skref á þeirri braut, sem stjórnarstefna hans hafði markað.
Þegar þess nú er gætt, að tveir af þeim flokkum, Framsfl. og Alþb., sem að vinstri stjórninni stóðu, bera fram það vantraust, sem hér liggur fyrir, og hjá flm. hlýtur að vera tilraun til þess að ná aftur stjórnartaumunum í sínar hendur, hlýtur að vakna sú spurning, hvort sá möguleiki sé til í lýðfrjálsu landi, að slíkt geti tekizt. Ég hef þá trú á dómgreind íslenzkra kjósenda, að svo sé ekki. Þessir flokkar, Framsfl. og Alþb., sem fyrir aðeins rúmum tveimur árum viðurkenndu hér á hinu háa Alþingi, að þeir væru þess vanmegnugir að hafa stjórnarforustuna í sínum höndum, geta ekki vænzt þess, að þeir á þeim stutta tíma, sem síðan er liðinn, hafi aftur öðlazt trúnað þjóðarinnar.
Þegar stjórn sú, sem nú situr, var mynduð fyrir rúmu ári, lá það ljóst fyrir, að forsrh. vinstri stjórnarinnar hafði vissulega haft rétt fyrir sér, þegar hann við stjórnarslitin í des. 1958 tilkynnti þingheimi, að öll efnahagsmál þjóðarinnar væru komin á yztu nöf og róttækra aðgerða væri þörf, ef bjarga ætti málunum við. Núv. ríkisstj. gerði sér ljóst, að hér þýddi ekkert hálfkák. Segja varð þjóðinni sannleikann um, hvernig málum væri komið, og gera þær ráðstafanir, sem gerðar voru, þó að þær í fyrstu gætu orðið óvinsælar. Annað var ekki til bjargar. Útflutningsframleiðslan hafði of lengi verið rekin á fölskum forsendum. Uppbótakerfið, sem hafði magnazt og margfaldazt í tíð vinstri stjórnarinnar, var gengið sér til húðar. Ekki kom til greina annað en að skrá gengi krónunnar opinberlega eins og það raunverulega var orðið og láta útflutningsframleiðsluna standa á eigin fótum án beins fjárhagsstuðnings frá ríkinu.
Árangur þessara ráðstafana er þegar farinn að koma í ljós. Allur almenningur hefur öðlazt skilning á nauðsyn þeirra, og mun stjórnarandstaðan óttast það mest, að sú ríkisstj., sem hafði dug og þor til þess að leiða þjóðina út úr þeim ógöngum, sem hún var komin í, í efnahagsmálunum, muni öðlast traust hennar og stuðning. Stjórnarandstaðan veit það eins vel og aðrir, að allur almenningur var orðinn þreyttur á og hræddur við stanzlausar víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags, sem viðstöðulaust rýrðu gildi sparifjár landsmanna og hefðu gert það verðlaust með öllu, ef haldið hefði verið áfram á þeirri braut, sem vinstri stjórnin undir forustu Framsfl. hafði markað í efnahagsmálum.
Launþegum er þetta ekki síður ljóst en öðrum. Víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags eru þeim ekki hagstæð þróun. Fyrir þá hlýtur atvinnuöryggi og vaxandi kaupmáttur launa að vera aðalatriðið. Og það er einmitt það, sem stefnt er að með því efnahagskerfi, sem við nú búum við.
Vantrauststill. þá, sem umr. þessar snúast um, bar stjórnarandstaðan fram í tilefni af þáltill. ríkisstj. um lausn fiskveiðideilunnar við Breta. Mál þetta var rætt hér á hv. Alþingi mestalla síðustu viku. Í þeim umr. kom það berlega í ljós, að fyrir hv. fulltrúum Alþb. hér á Alþingi vakir það fyrst og fremst að halda áfram deilunni við Breta. Þetta þarf engum að koma á óvart. Þeir hafa frá byrjun viljað nota þetta mál til þess að skapa ágreining milli vestrænna þjóða innan Atlantshafsbandalagsins og Sameinuðu þjóðanna. Þess vegna var áframhaldandi deila milli Íslendinga og Breta þeim mjög að skapi. Afstaða hv. fulltrúa Framsfl. er aftur á móti torskilin. Þeir hafa fram að þessu talið sinn flokk fylgjandi vestrænni samvinnu, en því miður nú ánetjazt svo kommúnistum í stjórnarandstöðunni, bæði í sambandi við þetta mál og önnur, að þar virðist enginn skilsmunur vera á orðinn.
Ég tel, að eftir umr. hér á hv. Alþingi liggi málið alveg ljóst fyrir. Annars vegar var um það að ræða að halda áfram deilunni við Breta með þeim geigvænlegu afleiðingum, sem það gat haft í för með sér, eða að leysa deiluna á grundvelli þess samkomulags, sem ríkisstj. lagði fyrir Alþingi og óneitanlega er þjóðinni miklu hagstæðara en nokkurn hafði órað fyrir að til greina kæmi. Með samkomulaginu, sem nú hefur hlotið staðfestingu Alþingis, er úr sögunni erfitt og viðkvæmt deilumál Íslendinga og Breta og hefur á ný skapazt eðlilegt samband á milli þessara tveggja gömlu viðskiptaþjóða, og er viðurkenning Breta á útfærslu grunnlínanna og á 12 mílna fiskveiðimörkunum stór ávinningur og sókn í landhelgismálinu af hálfu Íslendinga.
Ég veit ekki, hvort landsmenn hafa gert sér ljóst, hversu geysilega þýðingu útfærsla grunnlínanna hefur fyrir landsmenn alla.
Á helztu veiðisvæðunum eru nú 6 mílna mörkin frá hinum nýju grunnlínum langt fyrir utan það, sem 12 mílna mörkin voru áður. Bretar eru nú eftir útfærslu grunnlínanna algerlega útilokaðir frá sumum helztu veiðisvæðunum, en athafnasvæði Íslendinga einna hefur stækkað að sama skapi. Þennan ávinning, þessa sókn í landhelgismálinu, leyfa hv. stjórnarandstæðingar sér að kalla undanhald.
Á þeim stöðum, þar sem samkomulagið gerir ráð fyrir að Bretar fái að fara inn að 6 mílna mörkunum næstu þrjú árin, verður engin breyting á frá því, sem áður var. Íslendingar hafa hingað til orðið að nýta þessi mið í samkeppni við Breta, sem allt fram að þessu hafa ruðzt inn á veiðisvæði batanna, allt inn að 4 mílna mörkunum, þegar þeim hefur boðið svo við að horfa, og þá ávallt fyrst og fremst þar og á þeim tíma, sem einhver aflavon hefur verið. Ég tel það sjálfsblekkingu að ætla, að á þessu hefði orðið nokkur breyting, ef samkomulag hefði ekki náðst.
Samkomulagið tryggir einnig, að eftir aðeins 3 ár er allt svæðið innan 12 mílna markanna, þar með talin þau þýðingarmiklu svæði, sem viðurkenning Breta náðist fyrir með útfærslu grunnlínanna, orðið athafnasvæði Íslendinga einna — og Íslendinga einna að gera ráðstafanir til að firra þau ofveiði, ef þörf þykir. Erlend skip eða erlendir aðilar koma þar ekki til greina lengur.
Samkomulagið í heild er alveg ótvírætt svo mikilvægt fyrir Íslendinga, að íslenzka ríkisstj. hefur að mínum dómi alveg óvefengjanlega unnið mikið og þarft verk fyrir þjóðarheildina með því samkomulagi um lausn fiskveiðideilunnar við Breta, sem hún lagði fyrir Alþingi til staðfestingar. Og ég er sannfærður um, að hún með því hefur aflað sér trausts og virðingar allra hugsandi þegna þjóðfélagsins. — Og þó að stjórnarandstaðan sé nú svartsýn og það svo mjög, að reyndir og mætir menn innan hennar líki ástandinu hér á landi í dag við það, þegar móðuharðindin gengu yfir landið, þá er það ekkert að óttast.
Ég tel, að íslenzka þjóðin hafi aldrei getað litið framtíðina bjartari augum en einmitt nú. Landsmenn hafa á undanförnum árum aflað sér nýrra og stórvirkra atvinnutækja, bæði til lands og sjávar. Skapa þessi atvinnutæki aðstöðu til stóraukinnar framleiðslu útflutningsverðmæta og aukinnar atvinnu fyrir þjóðarheildina. Sérhver einstaklingur, sem vinnufær er, á að geta haft örugga atvinnu, hvort heldur er í sveit eða við sjó. Þjóðfélag, sem þannig er ástatt um, þarf vissulega engu að kvíða.
Ríkisstj. Ólafs Thors, sem nú fer með völd í landinu, hefur tekið þjóðmálin föstum tökum og sýnt sig færa um að ráða fram úr þeim vanda, sem að höndum hefur borið. Það er því gersamlega vonlaust verk hjá hv. stjórnarandstæðingum að bera fram þá vantrauststill., sem hér liggur fyrir. Þeir, sem að henni standa, fengu sitt tækifæri, er vinstri stjórnin var mynduð, árið 1956. Þeir tóku þá við blómlegu þjóðarbúi úr höndum þeirrar stjórnar, sem þeir tóku við af, en tókst þó á aðeins 2½ ári að koma efnahagsmálum þjóðarinnar í slíkt ófremdarástand, að þeir stóðu ráðalausir uppi og sáu þann kost einan að hlaupast burt frá vandanum. „Til þess eru vítin að varast þau,“ segir gamalt máltæki. Og vonandi er þess langt að bíða, að þeim hv. stjórnarandstæðingum, sem vantrauststill. bera fram, verði aftur falin yfirstjórn á málefnum þjóðarinnar, svo dýrkeypta reynslu sem þjóðin af þeim hefur. — Góða nótt.