14.03.1961
Sameinað þing: 53. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í D-deild Alþingistíðinda. (2736)

206. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Stjórnarandstöðuflokkarnir, Alþb. og Framsfl., hafa borið fram vantraust á ríkisstj. Í þessum umr, er sjálfsagt að líta yfir farinn veg stjórnarinnar. Hefur hún gengið til góðs, eða hefur hún máske stefnt í öfuga átt? Hafa höfuðatvinnuvegir þjóðarinnar, sjávarútvegur og landbúnaður, blómgazt undir góðri og viturlegri stjórn? Nei, hvor tveggja atvinnuvegurinn er lamaður eins og eftir eitursprautu eða misheppnaðan uppskurð, segja sjálfir oddvitar í röðum sjálfstæðismanna. Hefur grundvöllur atvinnulífsins almennt orðið traustari og atvinnuöryggi í landinu þannig aukizt? Öðru nær. Sölutregða í viðskiptum og vaxtaokur ríkisstjórnarinnar hefur lagt sína lamandi hönd yfir allt. Hefur hagur hinna fjölmennu launastétta þá batnað? Nei, hamingjan hjálpi okkur. Lífskjörum þeirra hefur verið hrundið niður á stig sárrar fátæktar. Hvernig hefur þá tekizt um að lækka skuldabyrði ríkisins erlendis? Hún hefur nálega tvöfaldazt á síðustu tveimur árum. Hefur gjaldeyrisstaða Íslands gagnvart öðrum löndum batnað? Nei, einnig hún hefur stórversnað. Og hvernig hefur ríkisstj. Íslands staðið sig í sjálfu landhelgismálinu? Þar segist hún sjálf hafa unnið stærsta stjórnmálasigur íslenzkrar sögu. En er það þá ekki skrýtið, að hún skyldi fella það að leggja afrek sitt undir þjóðardóm með Þjóðaratkvæðagreiðslu? Jú, víst er það nú dálítið skrýtið, mundu ýmsir mæla, að með þeirri neitun hafi hún og stjórnarliðið raunar samþykkt vantraust á sjálfa sig. Er þetta góð stjórn, sem eigi skilið traust og tiltrú alþjóðar? Nei, þetta er óhappastjórn, sem á öllu hefur níðzt, sem henni var trúað fyrir. En verst af öllu og sorglegust eru þá svik hennar í landhelgismálinu. Þegar um þau var vitað, var tafarlaust borin fram vantrauststillaga sú, sem hér er til umræðu.

Verkalýðs- og kaupgjaldsmál hafa oft verið mikil ágreinings- og átakamál í íslenzkum stjórnmálum, þó sennilega aldrei fremur en nú. Árum saman var á því stagazt, að sífelldar kauphækkanir leiddu af sér verðhækkanir og svo koll af kolli. En þetta var falskenning. Verðlagið var ávallt á undan í för. Kaupið kom á eftir. Og nú sést bezt hið sanna í málinu: aldrei meiri verðhækkanir en einmitt á seinustu tveimur árum. En kaupið? Fyrst var það lækkað með lagaofbeldi, og síðan hefur það staðið óbreytt. „Hverju reiddust goðin?“ var eitt sinn spurt. Hvað veldur verðhækkunarflóði seinustu tveggja ára? Ekki er það kaupið, svo mikið er víst. Stefnan hefur verið: Kaupið niður, verðlagið upp. — Og verkalýðshreyfingin hefur látið þessa vitfirrtu stefnu ganga sér til húðar. Og nú hefur hún gert það. Launastéttir Íslands taka því einróma undir vantraust á ríkisstj.

Morgunblaðið hamrar sífellt á, að laun hinna hæst launuðu verði að hækka, nefnir þar sérstaklega til ráðherra og hæstaréttardómara. En jafnframt æpa stjórnarflokkarnir báðir í kór: Almennt kaup láglaunastéttanna má ekki hækka.

Hæstv. menntmrh., Gylfi Þ. Gíslason, útmálaði það átakanlega í ræðu sinni í gærkvöld, hvílíkur voði væri á ferðum, ef kaup skyldi nú hækka, og ekki stóð heldur á hv. 9. landsk. þm., Jóni Þorsteinssyni, að útmála þá ógæfu, ef verðlagið yrði nú sprengt upp, eins og hann komst að orði, með óhóflegum kaupkröfum. Já, þvílík ógn og þjóðarógæfa, ef vikukaup verkakonunnar kynni nú að hækka úr 770 kr. og verkamannsins úr 990 kr. Er það ekki nokkurn veginn auðsætt mál, að slíka rausn þyldi okkar þjóðfélag ekki?

Stjórnarflokkarnir halda því fram, að uppi séu tvær stefnur í kaupgjaldsmálum, önnur góð, hin vond. Forsvarsmenn hinnar góðu stefnu vilji kjarabætur án verkfalla. Forsprakkar hinnar vondu stefnu vilji fyrst og fremst verkföll. Hvort þau leiði til kjarabóta eða til tjóns fyrir verkafólkið, liggi þessum þrælmennum hins vegar alveg í léttu rúmi. Hvað er nú rétt í þessu?

Þessi skipting í réttláta og rangláta innan verkalýðshreyfingarinnar er alger tilbúningur. Hver einasti maður vill auðvitað umfram allt ná fram kjarabótum án verkfalla og verkfallsfórna, sé þess nokkur kostur. Á sama hátt vill hver einasti verkamaður fyrst og fremst tryggja sér raunverulegar kjarabætur, aukinn kaupmátt launanna á hverjum tíma. Miklu minna er af launamönnum lagt upp úr kaupupphæðinni sjálfri í krónutölu. Það, sem máli skiptir hverju sinni er auðvitað það, hvað hægt sé að kaupa af lífsnauðsynjum fyrir vinnulaunin. Þeir, sem öðru halda fram um stefnu íslenzkra verkalýðssamtaka í launamálum, fara með bein ósannindi eða þá að þeir vita ekkert hvað þeir eru að tala um.

Til þess að sanna útvarpshlustendum, að kjarabarátta án verkfalla og fyrir raunverulegum kjarabótum sé hin yfirlýsta stefna Alþýðusambandsins, vil ég nú, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp lokamálsgrein þeirrar samþykktar um launamál, sem gerð var á seinasta Alþýðusambandsþingi, en þar segir:

„Þingið leggur höfuðáherzlu á, að nýir kjarasamningar tryggi verkafólki raunverulegar launabætur, og krefst þess, að gerðar verði slíkar breytingar á efnahagskerfi því, sem nú ríkir, að atvinnuvegir þjóðarinnar geti með vitlegum rekstri borið þær launahækkanir sem óumflýjanlegar eru, til þess að alþýða manna fái lifað menningarlífi. Jafnframt lýsir þingið yfir því, að það telur kjarabætur, sem nást kynnu fram með breytingum á efnahagsmálum, er væru þess eðlis, að kaupmáttur launa ykist, ákjósanlegustu kjarabæturnar, og lýsir samtökin reiðubúin til þess að meta allar slíkar hugsanlegar aðgerðir, sem boðnar kynnu að verða fram, til jafns við beinar kauphækkanir.“

Er hægt að tala skýrara máli eða túlka ákveðnar, hver sé stefna verkalýðssamtakanna í þessum málum? En hér er ekki heldur um innantóm orð að ræða. Snemma í haust, fyrir einum 5 mánuðum. ritaði Alþýðusambandið ríkisstj. bréf og spurðist fyrir um, hvort hún treystist til að gera einhverjar ráðstafanir til lækkaðs verðlags, svo sem með skattalækkunum, t.d. niðurfellingu á 8.8% söluskatti í tolli, vaxtalækkun, útsvarslækkun á almannatekjum, tollalækkun á nauðsynjavörum, eða einhverjum öðrum ráðstöfunum, sem lækkað gætu almennt verðlag í landinu. Í þessu bréfi lýsti Alþýðusambandið því yfir, að sérhverjar slíkar ráðstafanir gætu orðið til lækkunar þeim kröfum, sem fram hefðu verið settar til kauphækkana. Var óskað viðræðna við ríkisstj. um þessi mál.

Nú skyldu menn ætla, að áhuginn fyrir kjarabótum án verkfalla hefði komið í ljós. En það er öðru nær. Eftir langan biðtíma boðaði ríkisstj. til eins viðræðufundar við nefnd Alþýðusambandsins.

Ekkert gerðist á fundinum, en gert var ráð fyrir framhaldsviðræðum. Síðan hefur stjórnin enga viðræðufundi boðað. Nú hefur það hins vegar gerzt, að samninganefndir Dagsbrúnar og Hlífar og Vinnuveitendasambands Íslands hafa sameiginlega snúið sér til ríkisstj. og óskað eftir svörum um það, hvort nokkurs sé að vænta úr þeirri átt til verðlækkana, sem hægt væri að meta sem kjarabætur til jafns við beinar kauphækkanir. Undirtektir hafa vægast sagt verið daufar allt til þessa. Og svo þykjast þessir herrar vilja komast hjá verkföllum. Til þess bendir reynsla seinustu vikna sannarlega ekki.

Þegar stofnað var til landssamninga s.l. haust um kjarasamninga sjómanna, var sú staðreynd kunn, að framleiðslutekjur þjóðarinnar hefðu á seinustu fimm árum, árunum 1955–59. aukizt um 6.3% að meðaltali á ári, eða um 31.5%, nálega um þriðjung, á 5 ára tímabili, — ég endurtek: um 31.5% eða nálega þriðjung á 5 ára tímabili. Hvað lá nú beinna við með þessa staðreynd í huga en að útgerðarmenn hefðu sagt sem svo: Sjómenn verða að fá kjarabætur vegna hinnar gífurlegu dýrtíðar, sem á þeim og þeirra fólki bitnar eins og öðrum. Þeir eiga líka rétt á miklum kjarabótum vegna hinnar miklu aukningar framleiðsluteknanna. Úr henni verða sjómennirnir að fá sinn hlut. Þegar þeir bera fram kröfur sínar, skulum við því verða við þeim án verkfalla. Þetta er svo sanngjarnt og sjálfsagt, og með því sleppur útgerðin líka við tjón af völdum verkfallsbaráttunnar. Sá herkostnaður er betur kominn í bættum kjörum sjómanna. — Þetta hefði verið álitleg aðferð og æskileg. En hvað gerðist nú, þegar sjómenn báru fram kjarabótakröfur sínar? Urðu undirtektirnar þær, sem að framan greinir? Nei, því miður. Fyrstu boð útgerðarmanna voru um óhagkvæmari kjör en áður til handa sjómönnum, og lengi stóðu þeir á því sem prinsipatriði, að ekki yrði samið um neinar kjarabætur miðað við s.l. ár. Það var ekki fyrr en verkfallsvopnið stóð á þeim og verkfall hafði staðið í 10 daga, að samningar tókust um 15–25% kjarabætur. Leið þó miklu lengri tími, þar til sjómenn á einstökum stöðum höfðu fengið þá samninga, sem þeir sjálfir vildu sætta sig við.

Og hvað gerðist í Vestmannaeyjum? Áttu verkamenn og konur í Eyjum kost á svipuðum kjarabótum án verkfalls og þeim, sem sjómenn höfðu fengið með sinum nýju samningum? Nei, aftur stóðu atvinnurekendurnir fastir á sama prinsipinu: Enga kauphækkun frá því í fyrra. — Það var fyrst eftir mikið samningapróf og fimm vikna verkfall. sem þeir sömdu við verkafólkið um 15% kauphækkun til verkamanna og 19–32% kauphækkun til verkakvenna.

Þessi dæmi og öll fyrri reynsla virðist benda til þess, að Vinnuveitendasambandið og atvinnurekendur hafi alltaf þá óskynsamlegu afstöðu að semja aldrei um neinar kjarabætur til verkafólks, fyrr en atvinnurekendur eru til neyddir með hörðum og langvinnum verkföllum. Við spyrjum því: Hvaða kjarabætur vilja atvinnurekendur semja um án verkfalla? Þær þurfa a.m.k. að bæta það upp, að kaupmáttur tímakaupsins hefur hrapað úr 1.09 í ársbyrjun 1959 í 84, eða um 25%, auk rýrnandi atvinnu. Minnumst þess líka, að framleiðslutekjur þjóðarinnar hafa, eins og ég áðan sagði vaxið um þriðjung. Skilyrði eiga því að vera fyrir hendi til verulegra kauphækkana, án þess að verðbólga skapist. En fæst slík réttlát kauphækkun án verkfalla? Engir mundu fagna því meir en verkafólkið sjálft og forráðamenn verkalýðssamtakanna, ef svo væri. Væri t.d. hægt að fá viðurkennt launajafnrétti kvenna og karla án verkfalla?

Blaðamaður, sem starfað hefur við Alþýðublaðið um áratugi og mótaðist því á baráttudögum Alþfl., gat ekki orða bundizt á dögunum, þegar Alþýðublaðið gekk jafnvel lengra en Morgunblaðið fram í því að ófrægja og níða verkafólkið í Vestmannaeyjum, meðan það stóð í hinni hörðu og tvísýnu baráttu sinni fyrir bættum kjörum. Þá sagði blaðamaðurinn: „Ég hef oft gert kröfur til Alþfl. Og nú geri ég enn eina. Ég krefst þess, að hann gleymi því ekki, að verkfallið er hið eina vopn, sem eignalaus alþýða á sér til varnar og til sóknar. Menn spyrja, kannske, hvað ég eigi við,“ segir blaðamaðurinn. Og hann svarar sjálfum sér og segir: „Ég á við það, að Alþfl. virðist óttast það svo mjög, að launakröfur og verkföll sprengi lífsnauðsynlegar efnahagsráðstafanir í loft upp, að hann tekur jafnvel skilyrðislausa afstöðu gegn öllum launakröfum og öllum verkföllum. En með því að taka afstöðu á móti öllum verkföllum er Alþfl. að gefa í skyn, að hann sé á móti launabarátta hinna fátækustu.“ — Hver getur skilið þennan flokk öðruvísi? — „Láglaunaverkafólk með 8–9 klst. vinnu á dag,“ segir blaðamaðurinn enn fremur, „sem ekki getur fengið laun sín bætt án verkfalls, hlýtur að grípa til verkfallsvopnsins, þegar allt annað þrýtur. Barátta þessa fólks á skilið að njóta fyllsta stuðnings.“

Þessi blaðamaður og ég erum mótaðir í sama gamla skólanum, og við þessi orð hans hef ég í rauninni engu að bæta.

Ég lýk því þessum kafla ræðu minnar með því að segja: Kauphækkanir til verkafólks, opinberra starfsmanna og launafólksins í iðnaði og verzlun eru óumflýjanlegar. Sjómenn hafa brotið bann ríkisstjórnar og atvinnurekenda við kauphækkunum. Verkafólkið í Vestmannaeyjum bar líka sigur af hólmi við ofstæki kaupníðslustefnunnar. Kauphækkanir nú eru réttlætiskrafa, sem þjóðin öll styður og á því sigurinn vísan. Semjið strax um kjarabætur án verkfalla. Það væri ykkar vitið meira.

Ég vík þá aftur að sjálfri stjórnarstefnunni og vil þá fyrst vekja athygli hlustenda á því, að gengislækkunar-, okurvaxta-, samdráttar- og kaupníðslustefna sú, sem núv. ríkisstj. Ólafs Thors tók upp fyrir ári og hefur leitt bölvun fátæktarinnar inn á flest heimili landsins, er úrelt stefna, — stefna, sem hver þjóðin á fætur annarri er nú að yfirgefa. Þetta er amerísk stefna, grundvölluð á amerískum hugsunarhætti, amerískum fyrirmælum, á amerískum hagfræðikenningum. En nú eru einmitt þessar hagfræðikenningar stimplaðar í móðurlandi sínu sem villukenningar í efnahagsmálum. Það sé aukin framleiðsla og aftur enn meiri framleiðsla, sem sé hinn eini trausti grundvöllur og undirbygging skynsamlegra efnahagsmálaaðgerða, segja spekingarnir þar vestur frá nú. Kennedy Bandaríkjaforseti hefur verið ómyrkur í máli um það, að stefna Eisenhower-sérfræðinganna hafi verið röng stefna í meginatriðum, hún hafi leitt til kyrkings og samdráttar í atvinnu- og viðskiptalífi og valdið ægilegu atvinnuleysi. sem sjá má á því, að í Bandaríkjunum eru nú 5.7 milljónir manna atvinnulausir. Kennedy segir, að of háir vextir hafi ásamt ýmsu öðru átt sinn stóra þátt í því að lama framleiðsluna. Hann segir, að of lágt kaup, — takið eftir: of lágt kaup hafi lamað svo kaupgetu fjöldans, að þar sé að finna höfuðorsök þeirra þrenginga, sem bílaiðnaðurinn í Bandaríkjunum og ýmsar fleiri þýðingarmestu greinar stóriðnaðarins eigi þar nú við að stríða. Kennedy Bandaríkjaforseti segist því ætla að láta það verða eitt af sínum fyrstu verkum að lækka vextina til þess að örva atvinnulífið. Hann hefur þegar lagt fyrir Bandaríkjaþing frv. til laga um að hækka lágmarkskaup verkamanna úr einum dollar — 38 kr. — á klst., sem það er nú, og í 1.15 dollara — eða í 45 kr. — á klst. Hér er kaup karlmanns aftur hálfur dollar. Hefur hann varað þingið við að fella þetta frv. Og þingið hefur eftir seinustu fréttum fallizt á skoðun forsetans. Bandaríkjaforsetinn nýi segist jafnvel ætla að beita ríkisafskiptum og ríkisaðstoð einkaframtakinu til styrktar, en þetta einkaframtak hafi heldur brugðizt. Það var sannarlega nýstárlegt að sjá þennan boðskap Kennedys forseta feitletraðan og innrammaðan á forsíðu Morgunblaðsins: Bandaríska þjóðin hefur engin efni á því, að nokkur stétt búi við of lágt kaup. Slíkt leiðir til lamaðrar kaupgetu, tregðu og deyfðar í viðskiptalífinu, samdráttar, gjaldþrota og atvinnuleysis. Þetta gat að líta í Morgunblaðinu fyrir nokkru.

Þannig var þá 7 ára reynslan af samdráttarstefnunni í sjálfri Ameríku. Og nákvæmlega hin sama er reynslan hér, það sér hver maður á eins árs framkvæmd hennar. Nú er það boðskapurinn, sem út gengur frá Ameríku, að Eisenhower-stefnan hafi verið röng. Henni verði að kasta á hauga, eins og ónýtu skrani. Framleiðslustefnan verði þegar í stað að leysa hana af hólmi.

Augljóst er, að alveg það sama þarf að gerast hér. Hin ranga og úrelta stefna Eisenhower-hagfræðinganna, sem hér ríður enn þá húsum eins og mögnuð forynja, verður að víkja. Hún hefur sett allt á hausinn á einu ári og mundi þó leika þjóðina enn verr, ef hún fengi að halda áfram.

Áður en ég lýk máli mínu, má ég til með að víkja nokkrum orðum að fáeinum atriðum, sem fram hafa komið í þessum umræðum.

Það væri synd að segja, að það væri rismikil ræðan, sem hæstv. forsrh. hélt hér í gærkvöld. Hann minnti helzt á kampavínsflösku, hávaði og mikil froða, eins og oft áður. Hvers vegna hafnaði stjórnin þjóðaratkvgr.? Það var hugsun, sem sótti fast að hæstv. ráðh., en á því gat hann samt enga skýringu gefið, og það skilur þjóðin ekki heldur. Eða þá afrekin í húsnæðismálunum. Var það nú ekki fullmikil kampavínsfroða að guma af því, þegar allir vita, að dýrtíðarófreskjan hefur gert allan hag húsbyggjenda margfalt verri en nokkru sinni fyrr og þeim fækkar óðum, sem áræða yfirleitt að ráðast í byggingu íbúðarhúsnæðis?

Það situr einn klerkur hér á Alþingi. Hann talaði fyrir Sjálfstfl. í gærkvöld. Ræða hans sannaði eitt, svo að ekki verður um villzt, nefnilega þetta, að helvítiskenningin er ekki enn þá aldauða á Íslandi.

Fyrir Alþfl. talaði lögfræðingurinn Jón Þorsteinsson, hv. 9. landsk. þm. Hann færðist mikið í fang. Hann þóttist sanna, að af kommúnistum stafaði þjóðfélaginu mestur voði vegna sóknhörku þeirra í kaupgjaldsmálum. En jafnframt fullyrti hann, að þar sem þeir réðu stéttarfélögum, væru kjörin lökust og kaupið lægst. Hina rökföstu og yfirgripsmiklu ræðu Finnboga R. Valdimarssonar ofgreiddi þessi hv. þm. með því að hrópa bara: lygi, vísvitandi lygi. Og sjálfsagt hefur honum fundizt það vera fullnægjandi afgreiðsla, þar með væri þessi ræða að engu ger. Og að lokum: úr þinghelginni leyfði þessi hv. þm., Jón Þorsteinsson, sér að bera þjófnaðarbrigzl á nafngreindan utanþingsmann. Slíkur botnlaus ódrengskapur lýsir bezt ræðumanninum sjálfum, en sá, sem sökum var borinn, stendur jafnréttur eftir.

Herra forseti. Tími minn er nú þrotinn. En að lokum vil ég segja þetta: Stefna hæstv. stjórnar er á öllum sviðum samdráttar- og uppdráttarstefna. Hún er stefna landssölu og afsals landsréttinda. Íslenzk landssvæði hafa þegar verið seld á leigu á Suðurnesjum, í Hvalfirði, við Hornafjörð, á Langanesi, við Aðalvík og á Snæfellsnesi. Nú hefur lögsaga vor á landgrunni Íslands verið seld í hendur Bretum og erlendum dómstóli. Hvað gerist næst? Verður það ekki það að selja á leigu íslenzkt fossaöfl og jarðhita, opna allar flóðgáttir fyrir amerísku auðmagni, selja því hræódýrt vinnuafl Íslendinga fyrir hálfan dollar eða svo á tímann, láta landbúnað og sjávarútveg lönd og leið og gera Íslendinga að vesælum verksmiðjuþrælum amerískra auðhringa? Er það ekki auðséð, að einmitt í þessa áttina er nú stefnt af hæstv. ríkisstj. Íslands? Góðir hlustendur. Nýtur slík stefna trausts íslenzkra kjósenda? Nei, ég fullyrði, að hún á fyllsta vantrausti að mæta hjá meginþorra allra Íslendinga. — Góða nótt.