16.12.1960
Sameinað þing: 25. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í D-deild Alþingistíðinda. (2754)

108. mál, brú yfir Ölfusá hjá Óseyrarnesi

Flm. (Unnar Stefánsson):

Herra forseti. Í grg. með till. þessari um undirbúning brúargerðar á Ölfusá hjá Óseyrarnesi eru rakin helztu rökin fyrir mikilvægi þess, að hið allra fyrsta fari fram fullnaðarathugun á möguleikum á slíkri framkvæmd. Ég vil þó aðeins stikla á þeim stærstu atriðum, sem gera þessa framkvæmd nauðsynlega.

Fyrirhuguð höfn í Þorlákshöfn hefur fyrst og fremst gildi sem útgerðarhöfn. Smábátaútgerð frá slíkum stað, sem liggur rétt við fengsælustu fiskimiðin, mun fljótlega verða til þess, að þar risi upp stór bær á skömmum tíma. Þar af leiðir mjög mikla atvinnu að vetrarlagi, en lítil skilyrði eru þar til fjölbreyttrar atvinnu að sumarlagi. Í tveimur þorpum handan Ölfusár, Eyrarbakka og Stokkseyri, sem telja yfir þúsund íbúa, eru mikil atvinnutæki, sem snerta útgerð, en mundu verða óstarfhæf að mestu, ef upp risi útgerðarstaður í Þorlákshöfn, en ekki væri byggð brú. Brúin yfir ósinn mun hvort tveggja í senn skapa skilyrði til aukinnar útgerðar í Þorlákshöfn, án þess að þar þyrfti að ráðast í geipilega fjárfestingu í atvinnutækjum, með því að nota þau, sem fyrir eru á Eyrarbakka og Stokkseyri, og gera íbúum Þorlákshafnar kleift að reka mikla atvinnu á sumrin við garðrækt á blómlegum svæðum handan árinnar. Í öðru lagi er Þorlákshöfn mikilvæg sem vöruflutningahöfn. Með tilkomu brúar mundi leiðin milli Þorlákshafnar og verzlunarmiðstöðvar héraðsins, Selfoss, styttast verulega, og skapast aukin hagkvæmni af þeirri vegagerð. Í þriðja lagi er rétt að benda á, að með tilkomu brúar er sennilegt, að Þrengslavegur, sem nú er unnið að, verði ekki lagður áfram austur að Selfossi eftir þeirri leið, sem nú er fyrirhuguð samkv. lögum frá 1947, heldur komi hann þá yfir þá brú á Ölfusárósi. Vafasamt er, að menn geri sér grein fyrir því, að sú leið er eigi nema 2 km lengri en sú braut, sem fyrirhuguð er samkv. þeim lögum, sem nú eru í gildi.

Þessi rannsókn á möguleikum brúargerðar yfir Ölfusárós er mjög nauðsynleg með tilliti til íbúanna í byggðarlögunum handan árinnar, Eyrarbakka og Stokkseyri, og þeirra framtíðaráætlana. Þeir telja sig eiga rétt til að fá að vita, hvort hugsanleg brúargerð þar muni verða á næstu árum eða ekki, því að við það hljóta þeir að miða allar sínar athafnir.

Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að umræðunni verði frestað og till. vísað til fjvn.