02.11.1960
Sameinað þing: 9. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 797 í D-deild Alþingistíðinda. (2771)
58. mál, útboð opinberra framkvæmda
Alfreð Gíslason læknir:
Herra forseti. Ég stend ekki upp til þess að andmæla þessari till. og tel rétt, að það mál, sem hún fjallar um, verði gaumgæfilega athugað. Ég vil aðeins benda á, að sú hugmynd, sem felst í till., er ekki nema að mjög litlu leyti framkvæmanleg. Það er bent á það í grg., að ýmsir opinberir aðilar, svo sem vegamálaskrifstofan og vita- og hafnarmálaskrifstofurnar, hafa í umsögnum sínum ráðið frá því, sem er aðalatriðið í þessari till., útboðum á verkum hins opinbera. Það eru líka ýmis önnur atriði, sem koma til mála og ég fer ekki út í nú. En ég skal benda á, að í lok till. segir: „Og verði þeim aðilum, sem hagstæðust tilboð gera, falið að annast framkvæmdirnar.“ Nú er það alls ekki víst, að það reynist ríkinu hagkvæmt á hverjum tíma að taka lægstu tilboðum. Þetta hefur m.a. Reykjavíkurbær mátt reyna, að það er ekki alltaf hagkvæmt. Lægstu tilboð eru oft gefin af mönnum eða aðilum, sem kannske eru sízt færir um að fullgera verkið, og hefur það iðulega komið fyrir, að slíkir menn, sem boðið hafa lágt í opinber verk, hafi ekki getað staðið við gerða samninga eða farið á höfuðið og hinn aðilinn farið illa út úr því fjárhagslega. Það er í sjálfu sér mjög mikils virði, eins og segir í grg., að ríkið geti fengið verkin unnin á sem ódýrastan hátt. En þó skiptir það ekki öllu máli. Það, sem skiptir mestu máli, er, að verkin séu vel unnin. Reykjavíkurbær hefur líka mátt reyna það við útboð á vinnu, að þannig hefur verið gengið frá verki af verktaka hálfu, að algerlega óviðunandi hefur verið, og síðan hefur það lagzt á bæjarfélagið að standa undir þeim kostnaði, sem af þessu hefur leitt, greiða skaðabætur og annað þess háttar, t.d. í sambandi við húsbyggingar á vegum bæjarfélagsins.
En sem sagt, ég vildi aðeins benda á þetta, að það eru sjálfsagt einhverjir kostir í þessu og þess vegna rétt, að málið sé athugað ofan í kjölinn. en það eru áreiðanlega margir ókostir, ef á að gera útboð að almennri reglu.