14.12.1960
Efri deild: 37. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í B-deild Alþingistíðinda. (279)
130. mál, söluskattur
Frsm. 2. minni hl. (Björn Jónsson):
Herra forseti. Hæstv. fjmrh. heiðraði mig hér í lok umr. í gær með alllangri ræðu, sem að mestu leyti snerist um nál. mitt á þskj. 199 og þá sérstaklega þá mynd, sem þar var m.a. með samanburðartölum dregin upp af þeim gífurlegu skattahækkunum, sem orðið hafa í stjórnartíð núv. hæstv. ríkisstj. Og eftir að hafa rennt sínum glöggu augum yfir þessa mynd, var hann ekki lengi að komast að þeirri niðurstöðu, að ég væri hvort tveggja í senn blygðunarlaus talnafalsari og hefði þar að auki greindarvísitölu, sem gæfi litlar vonir á barnaprófi. Og ráðherranum svall móður, — að því er mér er sagt, því að sjálfur var ég ekki staddur hér í d., meðan hann talaði, en hef kynnt mér síðan efni úr ræðu hans, — í viðureign sinni við alla þessa botnlausu heimsku og blygðunarleysi.
Mig undrar það auðvitað ekkert, að hæstv. ráðh. ógni að sjá það tölulega sannað, hverjum árangri hann hefur náð og hæstv. ríkisstj. hans í viðreisnarherferð sinni í skattamálum. En varla verða bornar á mig sakir af því tilefni. Hann sjálfur og þeir flokkar, sem hafa stutt hann upp í ráðherrastólinn og veitt honum brautargengi til verka, hafa í öllum atriðum sjálfir — og engir aðrir — bakað sér sökina, þá þungu sök, sem þeir hljóta fyrr eða siðar að þurfa að standa og svara fyrir frammi fyrir allri þjóðinni. Og þá mun það vissulega ekki skipta miklu máli, hvert mat hæstv. ráðh. hefur á mínum málflutningi, og enn síður, hvernig hann metur mína greindarvísitölu, enda mun ég ekki deila við hann um það, því að ég veit líka, að fullyrðingar hans um þá hluti standa aðeins í nákvæmlega réttu hlutfalli við bágindi hans við að hafa uppi sæmilega rökréttan málflutning og eru ekki sterkari en þær raunir hans gefa tilefni til. En að hinu hlýt ég að víkja og rekja örlítið í sundur, í hverju ráðh. telur að meintar falsanir mínar í útreikningunum á þskj. 199 séu fólgnar, og þá síðan, á hve gildum stoðum þær falsásakanir á hendur mér eru reistar.
Fyrsta og stærsta ásökunin er þá sú, að ég hafi ekki haft réttar samanburðartölur frá árinu 1959 né heldur frá 1960 við fjárlagafrv. fyrir árið 1961. Það er auðvitað alveg rétt, að það er grundvallaratriði, að farið sé með hliðstæðar tölur, þegar slíkur samanburður er gerður. En einmitt til þess að þessu grundvallarskilyrði væri fullnægt, valdi ég að gera annars vegar samanburð á skattheimtunni, eins og hún var ráðgerð í fjárlagafrv. fyrir árið 1959, og hins vegar, eins og hún er ráðgerð í fjárlagafrv. fyrir árið 1961, eins og það liggur fyrir. Ég verð að segja það, að á ýmsu gat maður átt von í sambandi við málflutning hæstv. ráðherra, en ég bjóst sannarlega ekki við því að fá stóryrtar ásakanir fyrir að velja einu samanburðartölurnar, sem gat ekki staðið nein deila um að væru algerlega hliðstæðar. Við höfum ekki fyrir okkur nú fjárl. fyrir árið 1961, og ég hygg, að enginn hv. þingmanna eða jafnvel ráðherra geti nú sagt um það með fullkominni vissu, allra sízt í smáatriðum, hverjar endanlegar tölur verða þar festar á blað. Vel má vera og er reyndar sennilegt, að áætlunartölur verði hækkaðar frá þeirri gerð, sem frv. er nú í. Það hefur t.d. verið flestum þm. óskiljanlegt, að áætlun um 7% skattinn, sem var við 2. umr. fjárlaganna hækkuð um 8.5 millj. kr., skuli hafa verið hækkuð um þessa upphæð, en 8% viðbótarskatturinn látinn standa í stað.
Ef áætlunarhækkunin á 7% skattinum er rétt, hlýtur 8% skatturinn, sem innheimta á sem viðbót við hann, einnig að eiga að hækka tilsvarandi, eða um 9–10 millj. Það er líka ljóst, að ríkisstj. lætur fjvn. hækka áætlunartölur, m.a. áætlunartölur um skattinnheimtuna, eftir því sem til þarf, til þess að jöfnuður náist, með réttu eða röngu. Það er því auðsjáanlegt, að ekki var mögulegt að miða við fjárlög 1961, meðan þau eru ekki fullbúin. Auðvitað er svo enn fráleitara að miða við ríkisreikning fyrir 1959 annars vegar og hins vegar við fjárlagafrv. 1961, því að enginn maður, ekki einu sinni hæstv. fjmrh„ getur neitt um það sagt, hver munur kann að verða á fjárlagafrv. næsta árs og ríkisreikningnum fyrir það sama ár eða hvort meira eða minna skakkar þar á en í fjárlagafrv. 1959 og ríkisreikningnum fyrir það ár. Það kann að skakka meira en 1959, og það kann líka að skakka minna. En báðir erum við, hæstv. ráðherra og ég, alls ófærir um það að hafa uppi nokkrar fullyrðingar um það. Hér ber því allt að sama brunni, að ef gera átti samanburð eftir þeim gögnum, sem fyrir hendi liggja, eins réttan og kostur var á, varð að velja þær einu hliðstæður, sem fyrir hendi voru, þ.e. fjárlagafrumvörpin, sem liggja fyrir, fyrir bæði árin. Hafi ég því að þessu leyti farið með falsanir, hefur það aðeins getað orðið með þeim hætti, að farið væri rangt með sjálfar tölur fjárlagafrv. fyrir 1959. En jafnvel hæstv. fjmrh. hefur ekki sakað mig um það, enda þar óhægt um vik. Hins vegar verð ég að viðurkenna og biðjast afsökunar á því, að mér hafði sézt yfir breytingu, sem nú er orðin á fjárlagafrv. fyrir 1961, þ.e.a.s. að áætlunin um verðtoll er nú upp á 9.4 millj. kr. hærri upphæð en talin var á þskj. 199. En ekki bætir sú leiðrétting samanburðinn fyrir hæstv. ráðherra, heldur öfugt.
Þetta er þá fyrsta stórásökunin á málflutning minn af hendi hæstv. ráðherra, að ég skyldi velja þær einu samanburðartölur, sem voru algerlega hliðstæðar.
Næst er þá sú, að ég hafi ekki í samanburðinum reiknað til frádráttar skattabyrðinni, eins og hún er nú áætluð af stjórnarliðinu sjálfu, söluskattinn, sem áður rann í útflutningssjóð, en sá hlutinn mun hæst hafa numið rúmlega 70 millj. kr. á ári. Með því að reikna þetta mér til falsana fær svo hæstv. ráðherra söluskatt ársins 1959 upp í á þriðja hundrað millj. kr. og reiknar skattaklyfjar sínar niður um 92 millj.
Hér í hv. þd. og hér á hv. Alþingi yfirleitt hefur oft verið sannað og nú t.d. nýverið mjög skilmerkilega af hv. 5. þm. Austf., að það sé villandi og jafnvel alrangt að taka þennan skatt inn í dæmið. Þetta hefur verið gert svo rækilega, að mér er ekki þörf á að endurtaka þær sannanir, enda eru þær svo augljósar og auðskildar. Eða er kannske þörf á því að minna hv. stjórnarsinna á það, til hvers þeir sögðust vera að framkvæma sjálfa viðreisnina eða sjálfa gengisfellinguna? Var það ekki gert til þess að losna við útflutningssjóðinn og alla bölvun uppbótakerfisins? Til hvers hækkuðu þeir verð alls gjaldeyris um hundruð millj. umfram það, sem allar tekjur útflutningssjóðs námu? Var það ekki gert til þess að láta almenning borga bæði gömlu yfirfærslugjöldin og alla skattana, sem runnu í útflutningssjóð, í hækkuðu vöruverði, jafnt rekstrarvara sem annarra vara, og þá raunar hundruð millj. kr. að auki? Nei, vissulega borgar almenningur enn í dag margfaldlega jafnvirði þess hluta söluskattsins, sem áður rann í útflutningssjóð, í verðhækkunum, sem gengisfellingin skapaði. Það væru því hreinar falsanir að meta hann til frádráttar, þegar skattabyrðarnar nú eru vegnar. Þessi ásökun hæstv. fjmrh. er því ekki síður klámhögg en aðrar.
Þá er það þriðja ásökun hæstv. ráðh., að ég hafi gengið fram hjá því, að þær tæplega 100 millj., sem hann viðurkenndi þó að skattabyrðarnar hefðu aukizt um, væru fengnar með þeim hætti, að óbreyttir skattstofnar mundu hafa gefið meiri tekjur í ríkissjóð nú en áður. Þessa upphæð beri því ekki heldur að skoða sem aukningu álaga. Þetta kynni með fullum rétti að vera hægt að segja og styðja nokkrum líkum, ef svo væri ástatt, að gjaldþol þeirra, sem skattana greiða, yxi að sama skapi og gjaldheimtan. Ef almenningur, ef heimili launafólks í landinu hefðu jafnmikið eftir til þarfa sinna að sköttunum greiddum og hefðu jafnmikla kaupgetu og áður, eftir að þeir hefðu verið borgaðir, þá væri hægt að styðja þessa fullyrðingu ofur litlum líkum. En er sú óhjákvæmilega forsenda fyrir hendi nú? Nei, ég held, að hún sé það áreiðanlega ekki. Jafnvel stjórnarliðið verður nú að viðurkenna það, nauðugt eða viljugt, að kjör hinna lægst launuðu eru orðin slík, að ekki verður lifað af þeim mannsæmandi lífi. Það er mjög athyglisvert í þessu sambandi, að sjálfur hv. frsm. meiri hl. fjhn. þessarar deildar, kjaraskerðingarmeistari margra ríkisstjórna, hefur nú alveg nýverið rökstutt kaupkröfur, sem hann hefur staðið að, einmitt nákvæmlega með þessum orðum, sem ég nú viðhafði. Og þeir hv. þm., sem vildu taka á sig það ómak að ganga í næsta herbergi í þinghúsinu, geta lesið þessi ummæli hans þar, þar sem liggur fyrir erindi, sem hann hefur staðið að á þingi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, til fjvn., þar sem gerðar eru kröfur til hækkaðra launa fyrir verulegan hluta opinberra starfsmanna. Hv. formaður fjvn. hefur lýst ástandinu svo, að gjaldþoli almennings sé nú svo komið, að með engu móti verði þyngri álögur lagðar á, nema stefnt sé út í nýjar ófærur. Þannig komst hann að orði í framsöguræðu sinni fyrir fjárlagafrv. nú. Það verður því með hverjum deginum ónauðsynlegra að sækja staðfestingar á því, hvað gjaldþoli almennings liði eftir eins árs viðreisn, í ummæli okkar stjórnarandstæðinga einna. Ég held því, að það geti ekki verið neitt deiluatriði, að allar hinar stórfelldu auknu skattheimtur, sem hæstv. ríkisstj. hefur stofnað til og lagt á bök almennings, verða menn nú að þola með síminnkandi getu, með skertum kjörum, með lækkuðum launum og jafnvel með atvinnuleysi. Forsendan fyrir því, að unnt sé að rökstyðja það, að aukin skattheimta herði ekki frekar en áður að kjörum almennings, er því áreiðanlega ekki fyrir hendi. Og það er í raun og veru fjarstæðara en orðum taki að því að eyða að halda slíku fram, eins og hæstv. fjmrh. var að reyna að gera. En við er svo því að bæta, sem margoft hefur verið sýnt fram á, bæði af mér og öðrum við þessar umr., að skattstofnarnir hafa breytzt, og það er eitt höfuðatriði málsins. Þeir hafa breytzt á þann veg, að hver, sem matar neytir, klæðist fötum eða býr í húsi, er tilneyddur, alveg án tillits til getu sinnar, að borga í hítina miklu. Af því leiðir óhjákvæmilega, að hin hreina tölulega hækkun viðreisnarskattanna gefur mildari mynd af þeim drápsklyfjum, sem þeir nú eru orðnir, heldur en efni standa til, því að jafnvel alveg óbreyttir skattar, tölulega óbreyttir skattar, væru nú þungbærari en áður.
Sú tölulega mynd, sem ég dró upp af aukningu skattaálaga síðan fyrir viðreisn eða þó öllu heldur nokkrum hluta hennar, er því sízt of sterkum dráttum dregin. Þvert á móti hef ég tekið meira tillit en réttmætt er til þess frádráttarliðar í útreikningunum, sem leiðir t.d. af greiðslum til sveitarfélaganna, en það er einn stærsti frádráttarliðurinn, sem þar kemur til greina. Ég hef í þessum útreikningum tekið þær að öllu leyti til frádráttar, þó að hitt sé fullsannað, að þar er miklu fremur um sýndarmennsku að ræða heldur en nokkra raunverulega lækkun á útsvörum, enda er það staðreynd, að þessar greiðslur hafa ekki gert bæjarfélögunum kleift að lækka heildarupphæð útsvaranna, þó að þau hafi lækkað á hátekjumönnum eins og hæstv. fjmrh. Viðreisnin hefur séð fyrir því að hækka útgjöldin hjá bæjarfélögunum meira en endurgreiðslum söluskattsins nemur. Það væri þess vegna miklu nær sanni að ásaka mig fyrir það; að ég hefði hlífzt við að sýna myndina, sem hæstv. ráðh. hefur brugðizt svo reiður við, nægilega slæma fyrir hann og fyrir hæstv. ríkisstj., og kemur þó þar enn fleira til en ég hef rætt um:
Eins og ég sagði áður, lagði t.d. hæstv. fjmrh. áherzlu á, að auðvitað ætti, eins og hann komst að orði, að setja dæmið þannig upp að reikna með því, hvað hinir niðurfelldu skattar hefðu gefið óbreyttir, og taka þá þannig til frádráttar. En ég vil þá spyrja: Er þá ekki jafnnauðsynlegt að reikna út, hvað þessir nýju skattar mundu hafa gefið við sömu aðstæður og voru fyrir viðreisnina, til þess að samanburðurinn verði réttur, ef hann er gerður á þennan hátt? Ég kom ofur lítið inn á þetta hér við 1. umr. málsins, og ég tel ekki þörf á að endurtaka það, sem ég sagði þá um þetta atriði. En ég fullyrði hins vegar, að ef þetta væri gert, þá kæmi í ljós, að munurinn á skattheimtunni nú og fyrir viðreisnina reyndist miklu meiri en nokkrar tölur, sem enn hafa verið sýndar um þetta, gefa hugmynd um. Þetta veit hæstv. fjmrh. áreiðanlega flestum öðrum betur, og þess vegna lætur hann sér nægja að breyta dæminu, sem um er að ræða, aðeins í því tilfellinu, sem hann telur sér hagstætt, en gleymir vísvitandi að taka þeim rökréttu afleiðingum af þeirri breytingu að því leyti, sem það er honum til óhagræðis. En þetta heita víst ekki falsanir á hans máli.