30.11.1960
Sameinað þing: 20. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 850 í D-deild Alþingistíðinda. (2805)

83. mál, framleiðslu- og framkvæmdaáætlun þjóðarinnar

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það er svo sjaldan, að það gefst hér tækifæri til þess að ræða með rökum um þau vandamál sem fyrir liggja í okkar efnahagslífi, að það er rétt, einmitt vegna þeirrar ræðu, sem hv. 11. þm. Reykv. (ÓB) ná hélt, að taka þátt í þessum umr. Það er alltaf gott við hann að ræða um þessi mál og mætti hæstv. ríkisstj. taka ofur lítið meira tillit til þess, sem hann hefur að leggja til málanna, heldur en hún yfirleitt gerir.

Það er vel farið, að einmitt þessi tillaga, sem hér hefur komið fram, verður til þess, að líka af hálfu fylgjenda stjórnarinnar sé rætt nokkuð almennt um þau mál, sem fyrir liggja. Og um leið og ég lýsi því yfir, að í þessari till., sem hér liggur fyrir, er að mínu áliti margt gott, þó að okkur gæti greint nokkuð á um það. á hvern hátt væri bezt að framkvæma þá hugsun sem þarna liggur, þá vildi ég nota tækifærið, út af einmitt ræðu síðasta ræðumanns, til að athuga nokkuð betur um þessi mál

Hv. 11. þm. Reykv. vildi halda því fram, að allar tilraunir launþega til þess að bæta sín kjör á undanförnum árum hefðu verið árangurslausar, og vitnaði þar m.a. til þeirrar töflu, sem ég hef birt með frv., sem liggur fyrir í Nd. og ég hef flutt um áætlunarráð ríkisins. Þarna gætir nokkurs misskilnings. Ef við vildum orða þetta nákvæmlega, mundum við segja þetta svo, að árangurinn af kaupgjaldsbaráttu launþega síðustu 18 ár hafi ekki orðið til að hækka hinn raunverulega kaupmátt launanna, heldur hafi þeir þurft að eyða allri sinni orku einvörðungu til þess að halda honum við og vart tekizt það. Ég vil taka þetta fram vegna þess, að það er nauðsynlegt, að þetta sé alveg greinilega skilgreint, af því að það er stundum verið að segja með þessu móti, að árangurinn af kaupgjaldsbaráttu, t.d. verkfallsbaráttu verkamanna, sé litill. Það er alveg þvert á móti, hann er alveg stórkostlegur. Svo fremi sem þessi verkfallsbarátta hefði ekki verið, hvar mundi þá kaupið vera? Það væri ekki 20% fyrir neðan, eins og það var kamið 1955, þegar lagt var út í stóra verkfallið, það væri 30–40% undir því, sem var 1942. M.ö.o.: eina rökrétta afleiðingin, sem hægt er að draga af þessu, að kaupgjaldsbarátta verkalýðsins á 18 árum hafi ekki orkað meira en varla að viðhalda kaupgjaldinu, er, að kaupgjaldsbaráttan hefði þurft að vera miklu meiri, verkföllin miklu tíðari og kauphækkanirnar miklu meiri

til þess að viðhalda þessu. Hins vegar mundi það, þegar allt væri athugað, ekki heldur vera rétt, vegna þess að sannleikurinn er sá, að það hefur ekki verið hægt að knýja fram raunverulega hækkun á kaupgjaldinu á þessum tíma og tryggja það með verkföllunum einvörðungu, hve tíð sem þau hefðu verið, svo fremi sem verkalýðurinn samtímis hefði ekki fengið veruleg áhrif á ríkisvaldið sjálft og þar með þá pólitík, sem rekin væri viðvíkjandi verðlagi og öðru slíku.

Það er alger misskilningur, sem fram kom hjá hv. 11. þm. Reykv., að í sambandi við ráðstafanir vinstri stjórnarinnar haustið 1956 hefði verið framkvæmd raunveruleg kauplækkun. Það sést alveg greinilega, hvernig orðið hefur um alla þróunina í þessum efnum og líka einmitt hvern árangur sjálf baráttan, sem verkfallið 1955 flutti með sér, bar, að fram að 1955 er vísitala kaupmáttar tímakaupsins frá 84.7 upp í 90. miðað við 1945 sama sem 100, en eftir 1955 er hún 97.3. 97.2, 95.8, 96.8, hún er alltaf í kringum 96–97, og hækkar svo við verkföllin aftur 1958 og kaupgjaldshækkunina þá, þannig að það var ekki tekið neitt til baka þar, sem unnizt hafði 1955. Það eru aðeins þær sveiflur, sem verða í sambandi við verðlagsbreytingarnar. Það er þess vegna fjarri því, að verkföll hafi verið gagnslaus á þessum tíma, heldur hitt, að þau hefðu sem sé þurft að vera miklu meiri, ef með þeim einum saman hefði átt að vera hægt að áorka þessu.

En þá komum við líka um leið að því, sem var líka aðalinntakið í ræðu hv. 11. þm. Reykv., og það er, hvaða orsakir væru þarna raunverulega að verki, sem hefðu valdíð því, að kjör launþega hefðu ekki batnað eins mikið og þeir þó hafa barizt, og þar rakti hann í fyrsta lagi því væri haldið fram, að það væri illvilji stjórnarvalda, sem sé að þau með verðbólgu hefðu valdið því, að mikið hefði verið tekið þarna af launþegum. Við skulum nú skilgreina þessa orsök með hóflegum orðum. Það er rétt hjá honum, það er ekki illvilji stjórnarvalda endilega. Það er annað fyrirbrigði, sem þarna er að verið. Það fyrirbrigði er gróðalöngun stóratvinnurekenda. Löngunin til gróða, viðleitnin til þess að græða fé, er ein höfuðuppistaða í rekstri hjá einkaaðilunum í okkar þjóðfélagi. Og þessi viðleitni hjá þeim, sem út frá því þjóðfélagi, sem við lifum í, verður að álítast mjög eðlileg, kemur fram í því, að þegar verkamenn fá hækkað sitt kaup, þá leitast þessir atvinnurekendur við að halda sínum gróða eða jafnvel auka hann engu að síður. Vald þessara stóratvinnurekenda hefur ekki nægt til þess, að þeir gætu aukið sinn gróða með því beinlínis að lækka kjör eða kaupgjald verkalýðsins, lækka kaupgjald hans. Þeir hafa ekki heldur sýnt þann dugnað að auka gróða sinn með því að skipuleggja atvinnurekstur sinn betur eða reka hann í stærri stíl, fella saman smáfyrirtæki í stórfyrirtæki, eins og mjög er títt fyrirbrigði í þróun þess kapítalistíska þjóðfélags. Þeir hafa yfirleitt farið inn á eina leið, leið verðbólgunnar, jafnóðum sem verkamaðurinn eða launpeginn hefur fengið sitt kaup hækkað í peningum, hafa þeir rýrt gildi peninganna, skekkt mælikvarðann að sama skapi. Þetta hafa þeir einvörðungu getað gert í krafti þess, að þeir hafa haft valdið, ríkisvaldið og valdið yfir bönkunum. Og eins og ég hef oft bent á, af hverju hafa ekki útilendir atvinnurekendur farið inn á þessa leið, sem íslenzkum stóratvinnurekendum er svona gjörn? Af hverju fer ekki enskur kapítalismi inn á þessa leið? Vegna þess, — og það er grundvallarmunur, sem ég held einmitt að okkar hagfræðingar og líka okkar hagfræðiprófessorar áttu að athuga, ættu að rannsaka, — að lánsfé, sem í veltu er, t.d. í Bretlandi, er að mun miklu meira leyti en hér eign auðmannanna sjálfra. Auðmennirnir eiga bankana. Það, að sterlingspundið falli í verði, það er frá þeirra sjónarmiði alveg óþolandi fyrirbrigði. Það, að þeirra eigin mælikvarði í þessu sé falsaður, kemur vart til hugar. og það er slíkt neyðarúrræði, — a.m.k. alveg þangað til þeir grípa til slíks neyðarúrræðis, þá neita þeir því, að þeir muni nokkurn tíma gera slíkt. Auðmaðurinn í Bretlandi, sem á bankann og lánar út sína peninga, vill fá jafngóða peninga aftur. Auðmannastéttin sjálf gætir þess því, að peningarnir rýrni ekki í verði, heldur séu henni borgaðir til baka jafngóðir peningar og þeir, sem hún lánaði út. Hér á Íslandi gegnir þarna alveg gersamlega öðru máli. Sú auðmannastétt, sem hér á hlut að máli og er ein sterkasta valdastétt þjóðfélagsins, ræður bönkum, sem eru ekki hennar eign, heldur eign ríkisins. Í þessum bönkum er fyrst og fremst annars vegar það fé, sem ríkið leggur til sem veltufé og útvegar með sínu lánstrausti, og hins vegar sparifé almennings, þannig að þegar stóratvinnurekendavaldið hefur aðstöðu til þess að lána fé úr þessum bönkum, þá er það að lána fé, sem er annarra manna. Stóratvinnurekendurnir hafa þess vegna ekki höfuðáhuga fyrir því. að það séu jafngóðir peningar, sem þeir fá til baka, eins og þeir, sem þeir lánuðu út, því að þeir eru að lána út fé almennings í landinu og ríkisins, en ekki sitt eigið nema alveg í hverfandi mæli. Þess vegna hefur íslenzk auðmannastétt meira heldur en nokkur önnur auðmannastétt í okkar nágrannalöndum farið inn á þá leið að rýra með verðbólgu í sífellu gildi peninganna. Og ég held, að okkar hagspekingar og þeir, sem rannsakað hafa okkar hagsögu á þessum undanförnu árum, hafi allt of lítið skilgreint þessi fyrirbrigði og þessar orsakir.

Hitt spursmálið, um illvilja stjórnarvalda, það er náttúrlega hægt að segja sem svo frá sjónarmiði eins verkamanns. sem er búinn að standa í sex vikur í baráttu til að fá sitt kaupgjald hækkað, — maðurinn, sem í hans augum ber ábyrgðina á því, að þetta er gert, það er máske viðkomandi ráðh. Verkamaðurinn skilgreinir máske ekki endilega þessi þjóðfélagslegu lögmál og þessa hagsmuni, sem þarna eru að verki, og honum finnst það illa gert að taka af sér part af kaupgjaldinu, sem hann hefur verið að vinna sér fyrir með harðri baráttu og mikilli vinnu. svo að það er ekkert undarlegt. þó að honum finnist það stundum, — alveg eins og okkar gömlu, góðu skáld í gamla daga voru oft að skrifa um það og yrkja mergjað, hve auðmennirnir væru vondir. Það er ákaflega eðlilegt, að menn leggi oft og tíðum fyrst og fremst siðferðilegan mælikvarða á einn verknað, í stað þess máske að fara að athuga næstum vísindalega ræturnar að því, að menn skuli breyta svona, eins og t.d. auðmannastéttin gerir.

Þess vegna held ég, að fyrsta orsökin, ef við vildum halda okkur við þær orsakir, sem hv. 11. þm. Reykv. taldi upp, sé gróðalöngun atvinnurekendanna og sú aðferð, sem þeir hafa getað beitt vegna sinnar sérstöku aðstöðu hér heima til þess með verðbólgunni að ná aftur nokkru af því, sem þeir hafa tapað í verkföldunum.

Svo kom hv. 11. þm. Reykv. inn á aðra höfuðorsök, sem haldið væri fram, og það væri skipulagsleysið. Og, það er alveg rétt hjá honum, að þar er um mjög þýðingarmikinn þátt að ræða, eins og við höfum oft verið sammála um. Hv. þm. sagði í því sambandi, að núv. ríkisstj. hefði á prjónunum áætlun í þessu efni og það stæði í hennar stefnuskrá, að áætlun um þessa hluti skuli gerð. Já, hún hefur nú verið fljótari að framkvæma aðrar áætlanir og önnur fyrirheit í sinni stefnuskrá en að gera áætlun um uppbyggingu í landinu. Og bágt á ég með að trúa því, að það sé fyrst og fremst skortur á upplýsingum, sem hefur staðið henni þar fyrir þrifum. Mér sýnist, að þá hagspekinga, sem hún hefur haft til að styðja sig við, hafi ekki skort upplýsingar um alla mögulega hluti, en hitt má vera, að þeir hafi ekki haft eins mikinn áhuga á að tína fram þær upplýsingar, sem gætu orðið til þess að undirbyggja og finna frekari rök en þegar hafa verið fundin fyrir áætlunarbúskap í landinu með heildaráætlunum um uppbyggingu atvinnulífsins. Svo mikið er víst, að stefna ríkisstj. hefur verið svo langt frá því að undirbúa að einhverju leyti slíka heildarstjórn á fjárfestingunni eða í þjóðarbúskapnum, að hennar stefna hefur þvert á móti verið sú að auka skipulagsleysið. Undir yfirskini hins fagra orðs, frelsis, hefur skipulagsleysið verið aukið, samtímis því hins vegar, að á vissum sviðum hafa framkvæmdir þó verið mjög bundnar og hertar, ekki aðeina með lánsfjárskort og lánsfjárbanni, heldur með beinu eftirliti og yfirstjórn ríkisins, sem beitt hefur verið algerlega neikvætt.

Ég held þess vegna fyrir þá hér á Alþ., sem væru á því. að nauðsynlegt væri að búa til heildaráætlun og framfylgja henni, þurfi satt að segja að breyta til ekki aðeins um stjórnarstefnu, heldur um ríkisstjórn. Heildaráætlun um uppbyggingu íslenzks þjóðarbúskapar er gífurlegt verkefni, sem fyrir liggur, og það verkefni verður ekki unníð hér á Íslandi án þess, að allir sterkustu kraftar, sem til eru hjá þjóðinni, taki höndum saman um það. Það er alveg óhugsandi að lyfta því grettistaki öðruvísi. Og í eina skiptið, sem það hefur verið gert á nokkurn verulegan máta, þá hefur það líka verið þannig.

Við skulum gera okkur ljóst, að það er alger stefnubreyting frá því, sem nú er, sem þarf með ef á að taka upp heildaráætlun um íslenzkan þjóðarbúskap og framfylgja því, og það hefur hvergi borið á því, að hæstv. ríkisstj., sú sem nú situr að völdum, hafi sýnt neinn áhuga í þá átt. Mér kemur í hug, þegar talað er um, að slíkt standi í hennar stefnuskrá, það, sem maður lærði í kverinu í gamla daga: Slíkir hafa á sér yfirskin guðhræðslunnar, en afneita hennar krafti. — Ég er hræddur um að það geti verið svo hjá slíkri ríkisstj., að hún vilji flíka e.t.v. með slíku, líka til þess að reyna að sætta ofur lítið þá menn við hana, sem sjá, í hvert óefni sé stefnt, en alvara verði ekki nein úr slíku.

Mér sýnist satt að segja allt stefna í þá átt hér, að hlutverk þessarar ríkisstj. muni verða það, ekki aðeins að rýra lífskjörin, eins og nú þegar hefur verið gert, setja íslenzka atvinnurekendur á hausinn, eins og nú er verið að gera. Ég sá í Morgunblaðinu í morgun, að þar var einn sá maður, sem talinn hefur verið einn ríkasti maður landsins og átt hefur hér um tíma sæti hjá okkur á Alþ., þar var hann að auglýsa til sölu einn nýjasta og stærsta togara Íslendinga, sem er bein afleiðing af efnahagsráðstöfunum ríkisstj. Eins og við munum allir, sem eigum sæti í fjhn. beggja d., var því beinlínis lýst yfir af efnahagsráðunaut ríkisstj., þegar gengislækkunarlögin voru samþ.. að þar væri reiknað með öllu því verðfalli, sem orðið væri á mjöli og lýsi, og reiknað með þeim nýju skipum, sem væru að koma til landsins, og að þau gætu borið sig, þannig að engin afsökun, sem fram hefur verið borin út af slíkum breyt., er valdandi þess, að þessir menn hafa orðið að selja skipin. Það eru einvörðungu ráðstafanir ríkisstj. sjálfrar og gengislækkun og annað slíkt. Ég fæ ekki betur séð en að með þessum ráðstöfunum ríkisstj. sé beinlínis verið að leggja svo og svo mikið af öllum íslenzkum atvinnurekstri í rúst, og ég er hræddur um, og sérstaklega hef ég styrkzt í þeirri hugmynd eftir að hafa lesið síðustu Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins, að tilgangurinn — tilgangurinn segi ég — með þessu sé, að þegar búið sé að leggja höfuðatvinnuvegi Íslendinga í rúst, þá eigi amerískt auðmagn að koma hér sem sá frelsandi engill sem bjóðist til að hagnýta orkuna úr okkar fossum, til þess að koma hér upp stórfelldri útlendri stóriðju, og að þá muni það eiga að verða viðkomandi amerískir auðhringar, alúmíníumhringarnir eða aðrir, sem búa til áætlun um, hvað verða muni um þróunina hér á Íslandi, en ekki íslenzk stjórnarvöld. Ég held, að ef á að afstýra því, að stjórnarstefnan haldi áfram að bera þann árangur — eða frá mínu sjónarmiði þær hörmulegu afleiðingar, sem þegar hefur á borið, þá verði að brjóta í blað nú, breyta um stefnu, taka upp áætlunarbúskap og yfirvinna þannig galla þess skipulagsleysis, sem verið hefur, og raunar þarf fleira til.

Það er alveg rétt hjá hv. 11. þm. Reykv., það er ekki nóg með áætlunarbúskap einn saman í slíkum efnum. það þarf fleira. Hann kom inn á í síðari hluta ræðu sinnar, að það væri þrennt, sem fært hefði þá hluti úr skorðum hér á Íslandi, sem væru eðlilegir og væru forsendur, að því er hann áleit, fyrir eðlilegri þróun.

Í fyrsta lagi rakti hann þar, að verðlagið hefði verið úr skorðum fært. Það er rétt. Með því verðlagi og verðlagsbreytingum, sem verið hafa á undanförnum áratugum, hefur verið ákaflega erfiður grundvöllur fyrir menn að reikna á þann venjulega kapítalistíska máta. Það hefur verið hægt að gera fyrst og fremst tvennt með þessu móti. Annars vegar hefur ríkið getað ráðizt í hluti út frá því sjónarmiði, að það vær þjóðarþörf hvort sem væri, hvernig svo sem allt verðlag væri í landinu, þjóðarþörf á því, að við keyptum togara, þjóðarþörf á því, að við keyptum mótorbáta, þjóðarþörf á því, að við kæmum upp áburðarverksmiðju, sementsverksmiðju eða öðru slíku. M.ö.o.: menn urðu að hugsa fyrir þjóðarheildina til þess að leggja út í þetta. En að einu leyti skulum við þó minnast þess, að þrátt fyrir alla galla verðbólgunnar, og vil ég sízt mæla henni bót, hefur hún samt gert eitt, hún hefur ýtt undir fjárfestingu, — sú fjárfesting hefur oft og tíðum verið ákaflega ópraktísk. — en hún hefur m.a. ýtt ákaflega mikið undir fjárfestingu einstaklinga í sínum íbúðarhúsum og ýtt undir það, að menn ynnu eins gífurlega mikið og menn hafa unnið á undanförnum árum og bókstaflega húsuðu landið eins mikið og þeir hafa gert á undanförnum áratugum, og það er ekkert smáræðis afrek, sem hefur verið unnið í því efni.

En sem sé, það þarf ekki verðbólgu til þess að gera slíkt, þó að hún hafi ,þær afleiðingar að ýta undir menn með þess háttar og setja sparifé þannig frekar í að byggja sér íbúðarhús heldur en leggja það í banka, og henni er ekki að neinu leyti mælandi bót. En við skulum samt sem áður minnast þess, að þetta sama tímabil sem verðbólgan þannig hefur staðið, hefur verið mesta framfaratímabil Íslendinga fyrr og síðar. Það er ekki verðbólgunni að þakka, en það er ekki heldur alveg hreint þrátt fyrir hana, hún hefur á vissan hátt ýtt ofur lítið á í þessu. En engu að síður, það er rétt, eins og maður mælir ekki með því, að einn maður noti eiturlyf eða helli í sig brennivini, þó að hann kunni að vera eitthvað ofur lítið sterkari eða kröftugri eða honum liði á einhvern hátt betur eitt augnablik á meðan.

Þá er það í öðru lagi uppbótakerfið. Við skulum ekki heldur vera að mæla uppbótakerfinu bót. Það, sem hv. 11. þm. Reykv. var að rekja í þessu sambandi, gefur manni þó ástæðu til þess að íhuga mjög alvarlega þessi mál. Nú kvað eiga að segja við menn, atvinnurekendur t.d.: Þið fáið ekki uppbætur. — Hver er afleiðingin af því, að við segjum þetta við þá? Afleiðingin er, að svo og svo mikið af atvinnurekendum hættir, hættir bókstaflega, gefst upp, svo og svo mörg hraðfrystihús loka, svo og svo margir bátar eða togarar verða boðnir upp, og þeir sem hugsa um þetta á yfirborðinu, segja: Þetta er vegna þess, að við höfum ekki þann eðlilega kapitalistíska grundvöll hér, þar sem menn verða frá upphafi að hugsa þessa hluti og skipuleggja þá án þess að búast við uppbótum. Við prófuðum þetta á vissu skeiði í okkar sögu, og ég man þann tíma mjög vel. Við prófuðum þetta 1920–30. Engar uppbætur, svo að segja engar kauphækkanir, engin afskipti hins opinbera af atvinnurekstrinum, og þeir dugmiklu menn fengu að reyna sig sjálfir. Hver var afleiðingin? Afleiðingin var, að þorri atvinnurekenda úti um allt land fór á höfuðið.

Það er eitt, sem við verðum að athuga og horfast í augu við. Það er ekki auðvelt að byggja Ísland og skapa á Íslandi aðstöðu til þess að lifa mannsæmandi lífi, og það verður ekki gert með venjulegum kapítalísktískum háttum. Það, sem meira eða minna hefur ríkt í okkar þjóðfélagsskipulagi, jafnvel eftir að auðvaldsskipulagið verður höfuðgrundvöllur þess er meira eða minna samhjálp mannanna og samhjálp eða hjálp frá hálfu ríkisins til þess að gera mögulegt að byggja landið. M.ö.o.: það hefur verið settur inn í okkar atvinnulíf þáttur, sem er alls ekki af þeim kapítalistíska toga spunninn. Menn hafa reynt að hjálpa hver öðrum. Menn hafa í sínum bæjarfélögum reynt að koma upp bæjarútgerðum, þegar einstaklingarnir og þeirra einkarekstur brást, af því að menn hafa verið að reka svo og svo mikið af öllum atvinnureksbri á Íslandi til þess að lifa, en ekki til þess að græða. M.ö.o.: menn hafa ekki verið að reka út frá kapítalistísku sjónarmiði, út frá sjónarmiði gróðans, heldur til þess að draga fram lífið. Það hafa verið önnur lögmál að verki en eru grundvöllur kapítalismans.

Þetta hefur ekki verið gert vitandi vits. Menn hafa ekki ve,rið að gera þetta — við skulum segja út frá sjónarmiði sósíalismans. Menn hafa ekki verið að byggja upp þjóðfélag, — þar sem mönnum var ljóst, að það var ópraktískt, óeðlilegt fyrir mennina yfirleitt að reka þannig sitt þjóðfélag, — frá því sjónarmiði að vera fyrst og fremst að skapa gróða handa einhverjum einstökum mönnum, heldur að það væri eðlilegt, að menn rækju sitt þjóðfélag frá því sjónarmiði að hjálpa hver öðrum. Menn hafa ekki nekið það sem sé frá sósíalistísku sjónarmiði, og þess vegna hafa menn verið í vissum vandræðum og verið að baksast með þetta alla þessa áratugi. Menn hafa verið með einstaka þætti, sem samsvara sósíalisma. Menn hafa verið að reyna með bæjarútgerðir, ríkisfyrirtæki í þjóðfélagi, sem í höfuðatriðum er kapítalistískt. Menn hafa í öllu trúað meira eða minna á þau kapitalistísku lögmál. Menn hafa rekið ríkisbankana út frá þeirra sjónarmiðum, og það hefur orðið að berjast við ríkisbankana í hvert skiptí, sem gerðar hafa verið ráðstafanir til þess að hjálpa almenningi eða hjálpa jafnvel einstökum atvinnurekendum. eins og t.d. með því að setja vextina niður í 21/2%.

Það er ekki aðeins, að menn hafi verið að reyna að reka íslenzkt þjóðfélag frá öðru sjónarmiði en sjónarmiði gróðans. Menn hafa verið að reka það, eins og ég var að minnast á, frá sjónarmiði samhjálpar. Menn hafa líka verið að reka það frá öðru sjónarmiði. Menn hafa verið að reyna að reka það frá því sjónarmiði að viðhalda byggð í landinu á sem flestum stöðum. Það hefur verið gagnvart bændastéttinni framkvæmd löggjöf, sem frá hreinu ökonómísku sjónarmiði mætti oft segja, að væri mjög ópraktísk, en hefur miðað að því hins vegar að viðhalda bændastétt í landinu, sem er hins vegar frá okkar þjóðernislega sjónarmiði hin brýnasta þörf. Alveg sama hefur verið viðvíkjandi byggð landsins hér og hvar, þar sem erfitt er að búa, þar sem menn hafa kannske mikið verið að tínast í burtu, en þar sem þó flestir munu vera sammála um, að það eigi að reyna að viðhalda byggð, þótt það sé kannske fjárhagslega óhagkvæmt. En ef það fólk, sem vex upp í þessu byggðarlagi, heldur ekki áfram að vaxa upp þar og koma þaðan þeir harðgerðu menn, sem eru stofninn í okkar þjóð, þá verður íslenzk þjóð allt önnur en sú, sem hefur verið á undanförnum öldum. M.ö.o.: við byggjum land, sem er erfiðara að byggja en fjöldi annarra landa, við erfiðari skilyrði, og við reynum að skapa í þessu landi betri skilyrði fyrir fólk en í flestum öðrum löndum. Það þýðir, að við þurfum ekki aðeins að hjálpast betur að með þetta, við þurfum líka að vera skynsamari í öllum okkar rekstri, við þurfum líka frá því ökonómíska sjónarmiði að hugsa praktískar.

Uppbótakerfið með öllum þess stórkostlegu göllum, — og ekki er ég að leggja til að taka það upp aftur, — það hefur verið víss viðleitni í þessa átt. Það hefur verið viðleitni til þess að viðhalda þeim atvinnuvegum, sem þjóðin hefur byggt á, landbúnaði og sjávarútvegi, vegna þess að það væri ekki hollt okkar þjóð, hvað sem verða kann á næstu öld, þá væri það ekki hollt okkar þjóð í allri þeirri deiglu, sem hún er í núna, að þessir atvinnuvegir hættu að vera okkar aðalatvinnuvegir. Ég býst við, að það væri hver einasti þingmaður sammála um, að það væri ekki hollt okkar þjóð að við á þessum áratug hættum að stunda landbúnað eða sjávarútveg og að þeir 30 þús. verkamenn, sem í landinu eru, — og bændurnir bættust þar máske við, um 6 þús., — yrðu verkamenn hjá einu stóriðjufyrirtæki. Við skulum þess vegna gera okkur ljóst, svo klaufalegt sem uppbótakerfið er, svo fjölmargir gallar sem á því eru, þá var það skapað í vandræðum, út frá viðleitni til þess að viðhalda atvinnuvegum landsins, þessum gömlu atvinnuvegum þess, tryggja þá. Það er engin tilviljun, að uppbótakerfið byrjaði með því, að við ákveðum verðíð á fiskinum á Íslandi og ríkið tryggir hann, og allir þm. nema einn voru sammála um það. Ég held að þetta verðum við að athuga. Og af hverju þurfum við að athuga þetta? Af því að afleiðingin af því að framkvæma kapítalismann á Íslandi með sínum harðvítugu gróðalögmálum getur aðeins orðið eitt af tvennu: annaðhvort að hér kemur upp útlend stóriðja og Íslendingar verða hennar þrælar, eða hitt, að svo og svo mikið af mannfólkinu flyzt burt af landinu. Við skulum gá að því, að nú þegar fyrir tilstilli núv. hæstv. ríkisstj. eru launakjör á Íslandi orðin mun verri en á Norðurlöndum, launakjör fagmanna jafnvel stundum helmingi verri. Og það er þegar að verða svo, að nokkuð af mönnum er að flytjast burt úr landinu til þess að stunda vinnu annars staðar út af launakjörum. Atvinnuleysi, sem jafnvel sumir hv. þm. hafa haldið að væri órar hjá mér, er byrjað úti á landi og er að byrja í Reykjavík. Það er nægt að snúa sér til vissra fagfélaga hér í Reykjavík og fá þar á skrá fyrstu atvinnuleysingjana, sem skráðir eru í Reykjavik nú. Og afleiðingin af áframhaldandi stefnu þeirri sem nú hefur verið tekin upp, mundi verða sú, að fleira og fleira fólk færi að flytjast burt af landinu.

Sannleikurinn er sá, að Ísland verður ekki byggt með neinum venjulegum kapítalistískum máta. Ef menn eiga að búa hér eins og fjöldinn mun gera kröfur til, við betri lífskjör eða a.m.k. eins góð lífskjör og annars staðar þá þarf að beita til þess í fyrsta tagi betri og í öðru lagi skynsamlegri háttum í framleiðslunni en kapítalisminn er. Við skulum þess vegna gera okkur ljóst, að gallarnir, sem verið hafa á þjóðfélaginu á undanförnum árum, hafa verið gallar til þess að bæta úr meinsemdum kapítalismans, vegna þess að kapítalísminn var að fara með Ísland á hausinn.

Mér þykir eiginlega slæmt, að menn skuli ekki fást til að ræða þá staðreynd hér, sem öllum mönnum, sem kynna sér hagsögu Íslands, á þó að vera ljós, að 1930, 1931–1932, þá fer kapítalisminn á hausinn á Íslandi. Þeir, sem kynna sér vel skuldaskilasjóðina, bæði útvegsmanna og bændanna frá þeim árum, vita, hvernig stóð. En voldugustu og sterkustu fyrirtæki, sem í landinu voru, þau voru ekki sett á hausinn, þau fyrirtæki, sem höfðu jafnvel 90% af öllum útflutningnum? Af hverju? Af því að þá hefði Landsbankinn líka farið á hausinn. Og hver afstýrir því, að þetta sé gert? Núv. hæstv. forsrh., sem sjálfur sem ráðh. í desember 1932 lætur taka ríkiseinokun á öllum útflutningnum til þess að bjarga fiskhringnum og til þess að bjarga Landsbankanum, af því að þetta hefði allt saman farið á hausinn. Kapítalisminn á Íslandi hefði farið á hausinn. Síðan er búið í 30 ár að vera að reyna að dytta að þessu hrófatildri, finna út allar mögulegar aðferðir, verðbólgu, uppbótakerfi, gengislækkanir, allt mögulegt, vegna þess að kapítalisminn getur ekki lifað á Íslandi. En menn hafa hins vegar ekki viljað stíga það spor að koma hér á sósíalisma. Það, sem nú er gert með stefnu núv. hæstv. ríkisstj., er að ætla sér að reyna að framkvæma það, sem gert var á árunum 1920–30, en bara loka augunum fyrir því, að þessi tilraun mistókst og var að setja þjóðfélagið á hausinn í kreppunni 1930.

Það er þess vegna hverju orðinu sannara, að einmitt skipulagsleysið í þessu öllu saman, sem hæstv. ríkisstj. nú hefur tekið upp, leiðir ekki til neins góðs í þessu efni. Það þarf heildarstjórn í þjóðarbúskapnum, heildarstjórn a.m.k. á fjárfestingunni, og það er raunverulega á móti eðli kapítalismans, þess frjálsa kapítalisma, og verður aðeins framkvæmt á tvennan hátt, annaðhvort af einum auðhring, sem stjórnar landinu, og slíkt alræði auðvaldsins held ég að fæstir vildu nú sætta sig við hér á Íslandi, — eða þá af þjóðfélaginu sameiginlega, með því að allir leggist á eitt, öll sterkustu öfl þjóðarinnar.

Þá talaði hv. 11. þm. Reykv. um skattamálin. Þriðja atriðið, sem hann benti á, voru skattamálin, það hefði verið slæmt á undanförnum árum, að þau hafi verið í slíku ólagi, skattarnir svo þungir, að það væri ekki von, að auðmagn hefði fengizt hingað eða auðmagn skapazt hér. Mundi það nú raunverulega tryggja okkar afkomu? Við höfum prófað áður að gefa auðmagninu þannig meira frelsi. Við sáum, í hvað það lagði. Það lagði ekki. þegar frelsið var innleitt hér 1950, í neitt það, sem þjóðfélagsbúinu gat að haldi komið. Ríkið varð að leggja í áburðarverksmiðjuna og sementsverksmiðjuna, sem var táknið á vissan hátt fyrir þau ár, 1950–58. Og einstaklingarnir lögðu sína peninga fyrst og fremst í bílana, það var það einkennandi, ekki togarana, það var ekki fyrr en eftir 1956, að farið var að gera gangskör að því aftur. Jafnvel bátaflotanum fór frekar aftur. Og hvernig er núna, eftir að það nýja frelsi er gefið? Iðjufyrirtæki, sem áttu að rísa upp hér inn frá, niðri við sjóinn, rétt hjá Fúlutjörn, það eru innréttaðar í þeim brennivínsbúðir. Einstaklingarnir leggja í það, sem þeir halda að þeir geti grætt á. Ég býst við, að það seljist nokkurn veginn jafnmikið út úr áfengisverzluninni hvort sem er, þjóðfélagið hefur ekkert sérstaklega gott af þessu. Það eykst ekki framleiðslan. En þetta er tilhneigingin.

Það, sem þarf að gera á Íslandi, til þess að þjóðinni vegni vel, er það stórt, krefst það mikils átaks, að þjóðfélagsheildin verður að leggja í það sameiginlega, öðruvísi verður það ekki gert. Allt, sem afkastar verulega miklu nú á tímum, þarf að reka í stórum stíl. Það þýðir, að annaðhvort verður þjóðfélagsheildin að vera þarna að verki með því að samtvinna öfl hennar eða þá að voldugir auðhringar verða að framkvæma það. Það er eðli fyrst og fremst iðnrekstrarins nú á tímum að krefjast yfirleitt slíks stórrekstrar. Ég er þar með ekki að segja, þegar ég tala um, að þjóðfélagsheildin þurfi að gera þetta, að það sé útilokað, að einstaklingar eigi þetta með. Við vitum, að það er þjóðfélagsheildin, sem gerir það, t.d. þegar á nýsköpunartímunum togararnir eru keyptir, þeir eru seldir einstaklingum og hlutafélögum, en þeim er lánað frá ríkinu 75% af andvirði þeirra með 21/2% vöxtum til 20 ára. Það er þjóðfélagsheildin, sem gerir átakið, þó að hún kjósi að hafa það í því formi, að það séu einstaklingar að sumu leyti, að það séu bæjarfélög og að sumu leyti e.t.v. ríkið sjálft. Við erum það lítið þjóðfélag, Íslendingar, að ef við ætlum að halda okkar þjóðfélagskerfi, þannig að það geti gefið þegnum okkar þjóðfélags eins góð kjör eða jafnvel betri en annars staðar í veröldinni, þá þurfum við að sameina kraftana svolítið, við þurfum að skipuleggja þetta svo vel, að það er ekkert annað kerfi en slíkt kerfi samhjálpar, sem getur átt við fyrir okkur. Sá frjálsi almenni kapítalismi hefur brennt sig á Íslandi, og hann hefur orðið gjaldþrota. Og allt það, sem hefur verið misstigið á þeim árum og kemur til með að verða misstigið á þeim árum, sem menn ekki stíga það eðlilegasta spor, frá kapítalisma til sósíalisma, það er vegna þess, að menn eru að bauka við þetta gamla skipulag, en reyna bara að hafa það svo að segja allt öðruvísi en kapítalisminn er í öðrum löndum. Og ég hef sjálfur tekið þátt í að gera þetta, og ég álít, að við eigum að vera ósmeykir að gera það, meðan þjóðin, meiri hluti hennar, fellst ekki á að taka upp sósíalístískt þjóðfélag, sem ég álít það skynsamlegasta í þessu. En hitt aftur á móti, að gera þá tilraun, sem nú er verið að gera með að stíga sporið aftur á bak, gera svona tilraun með frjálsan kapítalisma, Það skapar ekkert annað en hörmungarástand í okkar landi, sem þegar er að byrja.

Af þessum ástæðum þótti mér vænt um það, sem hv. 11. þm. Reykv. ræddi einmitt um skipulagsleysið sem böl í slíku sambandi, um nauðsynina á áætlun. — en vil um leið benda honum á, að hæstv. ríkisstj., sem hann einmitt styður, virðist ekki hafa mikinn áhuga á að stíga spor í þá átt, og fer raunar að verða of seint fyrir hana. Ég er hræddur um, að atvinnuleysið og glundroðinn verði komið á, áður en meira að segja þær hugmyndir, sem kunna að vera í hennar kolli um áætlanir í þessum efnum, sjái dagsins ljós. Og fái hún að halda lengi áfram enn þá, þá verða það aðrir en hún, sem slíkar áætlanir gera.

Ég vil þess vegna taka undir með þeirri hugsun, sem í þessari till. til þál. felst, og álít, að það væri heppilegt, að sú nefnd, sem hana fær til athugunar, ráðgist um það, á hvern máta væri bezt fyrir okkur að leysa þessi vandamál. Heppilegast áliti ég satt að segja, að sú hugsun, sem í þessari þáltill. felst, væri stigin með löggjöf á þessu þingi og að Alþingi Íslendinga reyndi að sameina sína krafta um að hefja nú þegar á þessu þingi slíkum áætlunarbúskap, koma á slíkri heildarstjórn á þjóðarbúskapnum, að við forðum okkur frá þeim hörmungum, sem nú blasa við ef haldið er áfram með þeirri stjórnarstefnu, sem upp hefur verið tekin.