14.12.1960
Efri deild: 37. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 399 í B-deild Alþingistíðinda. (281)
130. mál, söluskattur
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Ég hef ekki tekið þátt í umr. um þetta mál og ætlaði mér ekki að gera, en mér fannst koma fram nokkuð nýstárlegt í ræðu hv. síðasta ræðumanns. Það hefur verið á það drepið, að hann mundi hafa átt hlut að kaupkröfum til ríkisins á þingi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Ég hélt, að þetta væri missögn. Nú kemur það á daginn, að hann staðfestir það, að hann hefur átt þátt í slíkum kröfum, slíkum samþykktum, og mér kemur þetta ókunnuglega fyrir sjónir eftir ræðuna, sem hann hélt í gær. Þá var hann að kenna okkur þm. það, að verkföll og kauphækkanir væru til tjóns, væru til bölvunar, ekki aðeins fyrir þjóðina í heild, heldur fyrir verkafólkið sjálft. Þetta hefði sýnt sig og mundi alltaf verða svona, ef ekki yrði sams konar framleiðsluaukning hjá þjóðinni, sem gæti skilað þessari kauphækkun. Nú kemur það í ljós, að frsm. meiri hl. fjhn., sá sem stendur kannske einna fastast með öllum ráðstöfunum hæstv. ríkisstj. í efnahagsmálum, hann á sjálfur þátt í því að vera að gera núna kaupkröfur til ríkisins. Og hann reyndi að rökstyðja þetta, ekki með því, að það hafi orðið framleiðsluaukning hjá þjóðinni, heldur með hinu, að það eigi sér stað hærri laun erlendis hjá prófessorum og slíkum mönnum, en sjálfur er hann prófessor. Er þá ekki alveg sjálfsagður hlutur, að Íslendingar reyni að hækka verkalaun hér í landinu til samræmis við það, sem er í öðrum löndum? Eiga verkamenn þá ekki alveg jafnmikla kröfu til þess hér á Íslandi að hafa hliðstæð laun og verkamenn í öðrum löndum? Ég vil nefna það, að fyrir ekki löngu var það upplýst, að í Bandaríkjunum væri lágmarks verkamannakaup 1 dollari á klukkutíma. Vill þá þessi hv. þm. styðja að því, að verkamenn á Íslandi fái 38 kr. á klukkutíma? Þetta er erlendis. — (ÓB: Ef þeir bættu kjör sín með því.) Ef þeir bættu, — nú, hvað eru prófessorarnir þá að tala um að fá hækkuð launin sín, ef þeir telja ekki, að þeir fái með því bætt kjör? Ef það er nóg að vitna í eina stétt um laun í öðrum löndum, þá hlýtur það líka að vera hægt um verkamenn. Nei, ég tel það merkilegt, að hv. frsm. meiri hl. fjhn. skuli nú koma með þessa speki fram hér.
Þá sagði hann, að kröfur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja væru við þetta miðaðar. Það væri almenn endurskoðun á þessum launakjörum. Ég held, að þetta sé alls ekki rétt. Ég veit ekki betur en ein krafan sé sú að þurrka út tvo neðstu launaflokkana, 13. og 14. launaflokk, svo að þeir, sem nú eru í þeim flokkum, fái laun eins og þeir, sem eru í 12. flokki, m.ö.o., þeir, sem verst eru launaðir í landinu, geta ekki lengur lifað af þessum launum, af því er farið fram á þetta.
Ég skal nefna annað dæmi. Þeir fara fram á það, að aldursuppbæturnar komi á 2 árum í staðinn fyrir 4. Þetta er líka að bæta kjör þeirra lægst launuðu. Af hverju? Af því að fólkið getur ekki lifað á þessum launum. En hvað skeður hjá almennu verkafólki, — og bændurnir fylgja því lögmáli, — ef aukavinnan dregst nú saman eða hverfur úr sögunni?
Hvernig ætli kjör þess fólks verði? Ekki minnkar aukavinna hjá þeim, sem ekki hafa nema föstu launin sin, eins og prófessorar og aðrir slíkir. Ekki þurfa þeir að fara að kvarta um samdrátt aukavinnu. En það er vitað mál, að almennt verkafólk hér á landi hefur lifað að verulegu leyti á aukavinnu. Það er vitað mál, að í ýmsum kaupstöðum hafa verkamenn að undanförnu haft allt upp í 2 tíma aukavinnu á dag allt árið um kring, og þessir tveir tímar á dag að meðaltali yfir allt árið gefa um 18600 kr. í tekjur. Nú er farið að herða svo að, að þessi aukavinna er óðum að hverfa úr sögunni, og telst þó verkamaður hafa fulla atvinnu, ef hann vinnur 8 tíma á dag, fulla vinnu, ekki vera háður neinu atvinnuleysi. Samt geta tekjur þeirra minnkað, sem þessu nemur. Ég ætla svo ekki að nefna hitt fyrirbrigðið, sem farið er að skjóta upp kollinum, að það er að verða atvinnuleysi á einstaka stöðum. Þetta bendir til þess, að eitthvað megi verkafólkið segja, ef þessi nauðsyn er, eins og hv. ræðumaður var að nefna, hjá opinberum embættismönnum, og tek ég þó undir það með honum, að opinberir embættismenn þurfa launabætur, þeirra laun eru svo lág hjá þeim, sem eru lægra launaðir, að þeir þurfa hækkunar með.
Ég gat ekki á mér setið að mínna á þessa afstöðu, þegar þessi skoðun kemur hér fram. Að öðru leyti ætla ég ekki að fara að ræða þetta mál almennt.