16.01.1961
Sameinað þing: 30. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 881 í D-deild Alþingistíðinda. (2840)

91. mál, hlutdeild atvinnugreina í þjóðarframleiðslunni

Bjartmar Guðmundsson:

Herra forseti. Hv. 9. landsk. lét þá skoðun í ljós, að tilgangur með flutningi þessarar till. væri ekki sá. sem í henni feist og sagt er að sé tilgangurinn. Þessu neita ég algerlega. Hins vegar get ég játað það, að till. hans, þessa hv. þm., um rannsókn á styrkjum til landbúnaðarins kom okkur flm. á stað með það að ef rannsókn færi fram á því atriði í þjóðarbúinu, þá þyrfti að rannsaka fleira til þess að fá rétta mynd út úr þeirri rannsókn, sem hann vildi láta fram fara á þessu vissa atriði.

Það er að sjálfsögðu algerlega út í hött, að það sé ekki hægt að rannsaka hlutdeild fleiri atvinnugreina í þjóðarbúskapnum, eins og þetta eina atriði, sem hann vill láta rannsaka viðvíkjandi styrkjum til landbúnaðarins, og þegar á að fara að kveða upp úr um það, hvers landbúnaðurinn njóti í styrkjum, þá er ákaflega margt, sem á verður að líta í sambandi við það t.d. það, hvað eru styrkir til landbúnaðarins. Um það mætti tala mjög langt mál en ég sé ekki ástæðu til þess. En um leið og farið væri að athuga um það, hvers landbúnaðurinn njóti í styrkjum, þá er eðlilegt, að einnig sé athugað um það, hvaða styrkir ganga til annarra atvinnugreina í landinu, t.d. sjávarútvegsins. Það er mjög flókið mál vegna þess að styrkir til sjávarútvegs koma ekki eftir jafnbeinum leiðum og þeir styrkir, sem landbúnaðurinn nýtur, sem aðallega eru jarðræktarstyrkir og örlítill byggingarstyrkur til íbúðarhúsa eftir núgildandi lögum og byggingarstyrkur til nýbýla. Ég veit ekki til að landbúnaðurinn njóti beinna styrkja annarra fram yfir aðra atvinnuvegi. Eins

og ég sagði í minni framsöguræðu, tel ég það eðlilegast, ef fá á rétta mynd af þessum málum. að athugun fari fram á öllum þessum greinum, en ekki aðeins einni, eins og hv. 9. landsk. vill vera láta. Og ég þarf varla að endurtaka það, að ég óska eftir því, að till. verði athuguð í nefnd og það liggur á bak við hana fullkomin alvara um það, að þessi rannsókn fari fram á öllum þeim greinum, sem á er bent í greinargerðinni.