08.02.1961
Sameinað þing: 37. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 907 í D-deild Alþingistíðinda. (2885)

103. mál, rannsókn fiskverðs

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Þegar þetta mál var hér síðast til umræðu, var það flutt af hv. fyrri flm., hv. 6. þm. Sunnl., og ég svaraði þá þeim meginatriðum, sem hann rakti í sinni framsöguræðu, og sýndi fram á það, að þessi verðmismunur, sem talinn er vera á milli norska verðsins og hins íslenzka, væri raunverulega alls ekki til staðar, þegar öll kurl kæmu til grafar og málið væri athugað ofan í kjölinn. Nú kemur hv. 4. þm. Austf. og telur sig ekki hafa verið viðstaddan þá. — ég man það ekki glöggt, hvort hann var viðstaddur, en það má vel vera, að hann hafi ekki Verið það, — og kemur enn með nákvæmlega sömu fullyrðingarnar og hv. meðflm. hans gerði um þetta mál, sem kannske er ekki óeðlilegt, vegna þess að hann var hér ekki viðstaddur og hlustaði á þau rök, sem fram komu í málinu. Ég get nú ekki verið að því að endurtaka á ný það, sem ég sagði, þegar þetta mál var hér síðast til umr., en skal aðeins stikla á stóru.

Því er haldið fram í grg. þessarar till., að hjá meðalstóru frystihúsi, eða frystihúsi, sem vinni úr 3000 lestum hráefnis sé verðið 31/2 millj. kr. lægra hér á Íslandi heldur en tilsvarandi verð mundi vera í Noregi, enn fremur, að Verómismunur á vertíðarbát fyrir aflann sé eftir íslenzka verðinu 6–7 hundruð þús. kr. lægra en vera mundi fyrir tilsvarandi afla í Noregi. Og hv. frsm. málsins hér síðast gekk raunar svo langt að segja, að ef hægt væri að færa þennan mismun á verði til rétts vegar á Íslandi, þá mundi allur vandi útgerðarinnar á Íslandi vera leystur. Þetta fullyrti hann. Hér kemur svo enn hv. 4. þm. Austf. og fullyrðir, að verðmismunurinn hér og í Noregi sé gífurlega mikill og meiri en tilfærður sé í till. Þetta er nú að stangast svo við staðreyndir og þvert ofan í upplýsingar, sem fyrir liggja í málinu, að ég get varla verið að elta ólar við að svara því. Ég sýndi fram á í minni síðustu ræðu um málið, að fiskverðið í Noregi hefði að meðaltali verið, að vísu er það ekki nú á þessari vertíð, heldur verið að meðaltali 82 norskir aurar á kg. Það er samkvæmt skýrslu, sem ég hefi um það mál fengið frá Fiskifélagi Íslands, sem hefur verið sett sérstaklega til að athuga þetta, og er dagsett í nóvemberlok s.l. Hitt verðið, sem í till. þessara hv. flm. er nefnt, 85–90 aurar á kg, hefur aldrei komið til framkvæmda í Noregi, — aldrei. Það er kröfuverð frá norska Ráfisklaget, sem var sett fram 19. sept. í haust, en hefur ekki enn komið til framkvæmda.

Þegar hv. þm., sem talaði hér síðast, er að fullyrða, að fiskverðið í Noregi í ár sé miklu hærra en það hafi verið að undanförnu, þá kemur fram í síðustu skýrslu, sem ég hef um málið fengið og dagsett er 25. jan. s.l., með leyfi hæstv. forseta : „Enn hefur ekki verið samið um neitt fiskverð í Noregi fyrir yfirstandandi ár.” Þetta er skrifað 25. jan. s.l., og það má því vera fljótt að verið, ef hv. þm. hefur komizt í eitthvert nýtt verð, sem ákveðið hefur verið eftir þennan dag.

Það, sem ég vildi aðeins láta koma fram, er, að það, sem er raunverulegt fiskverð, greitt fyrir fyrsta flokks fisk í Noregi. var á árinu sem leið 82 aurar á kg. Þetta verð er svo borið saman við það verð, sem greitt var hér á landi á sama tíma, takandi ekki með í reikninginn, að norska verðið er verð á fyrsta flokks fiski, flokkuðum á svipaðan hátt og þó strangar sennilega en nú er ætlunin að gera á Íslandi. Það, sem við höfum borgað hér á Íslandi að undanförnu, hefur nánast verið meðalverð. Það verð, sem vitnað er í í Noregi, hefur verið hámarksverð. Þegar þetta hámarksverð norska er borið saman við það verð, sem nú hefur verið ákveðið sem íslenzkt hámarksverð, þá er mismunurinn ekki mikill og hann er áreiðanlega ekki svo mikill að það megi leysa allan vanda íslenzkrar útgerðar með því að jafna metin, og það kannske alveg sérstaklega þegar í ljós kemur, að íslenzka verðið er, það lítið það er, hærra en norska verðið. Þegar þetta norska verð, 82 aurar norskir, er borið saman við íslenzka verðið, þá er fyrst að athuga, að í Noregi eru greiddar verðuppbætur af hálfu hins opinbera. Í grg. fyrir till. var þess hvergi getið, að um slíkar verðuppbætur væri að ræða, og hvergi látið að því liggja, að þær væru til, en verðuppbæturnar, sem greiddar eru í Noregi og þetta 82 aura verð er miðað við, eru frá 5–17 aurar á kg af þorski fyrir fyrsta flokks vöru. Það, sem ég gerði þá, var að taka meðaltal af þessum 5 og þessum 17 aurum, sem eru 11 aurar norskir, og draga það frá þessu raunverulega hámarksverði, sem greitt var, eða 82 aurum, og verða þá eftir 71. Þegar svo enn bætist við, að norski fiskurinn er talinn hauslaus, en sá íslenzki með haus, þá kemur í ljós, að það þarf enn að draga frá norska verðinu til að jafna þau met. Þegar búið er að gera það, þannig að kominn er samanburðargrundvöllur, þá kemur í ljós um norska verðið, sem greitt hefur verið, að frádreginni verðuppbótinni og að frádregnu því. sem reikna verður frá, vegna þess að íslenzki fiskurinn er talinn með hausnum, að tilsvarandi íslenzkt verð hefði átt að vera kr. 3.02, en hefur nú verið ákveðið ekki kr. 3.02, heldur kr. 3.11. Mér sýnist þess vegna ekki, að þó að einhver mikil rannsókn yrði sett í gang til þess að rannsaka þessi mál mundi koma út úr því nein björgun á íslenzkum sjávarútvegi. Það er eitt, sem er víst: Það má gera eitthvað þarfara við tímann en setja slíka rannsókn í gang.

En auk þess ber að athuga, eins og ég líka minntist á þegar málið var síðast hér til umr. að það eru ýmsar aðstæður í Noregi, sem eru mjög miklu hagstæðari Norðmönnum en tilsvarandi aðstæður hér eru okkur Íslendingum, og það er alveg sérstaklega það, sem hv. síðastí ræðumaður minntist á, aðataðan til markaðanna, möguleikarnir til þess að selja meiri óunninn fisk ísaðan á innlendan mankað og á erlendan, en það er vitað mál að sá fiskur selst jafnan á miklu hærra verði en unninn fiskur, og það er sá mikli aðstöðumunur, sem hefði átt að geta gefið Norðmönnum möguleika á því að greiða hærra verð fyrir fiskinn en greitt er hér á Íslandi. Meira kemur til, sem ég líka hef áður tekið fram og skal ekki endurtaka.

Ég skal ekki beita mér gegn því, að þetta mál fari í nefnd, en ég tel það upplýst af ýtarlegum skýrslum, sem ég hef fengið um það úr a.m.k. tveim áttum, og það mörgum skýrslum úr annarri áttinni, frá Fiskifélagi Íslands. Ég held, að það muni ekki mikið nýtt koma í ljós umfram það, sem í þessum skýrslum stendur. En eins og ég segi, ég tel, að það megi gjarnan fara í nefnd hér í þinginu og athugast þar, og þá getur n. gert upp við sig, hvað hún telur rétt í málinu að gera. En ég tel, að það liggi þegar fyrir svo miklar upplýsingar um fiskverðið á Íslandi og í Noregi og þann mismun, sem reynt hefur verið að gera á því verði, að það þurfi ekki langa né ýtarlega, rannsókn til þess að finna, í hverju sá verðmismunur liggur, umfram það, sem þegar er hér fram komið.

Ég veit náttúrlega ekki, hvað hefur vakað fyrir þessum hv. flm. við flutning till., og sérstaklega ekki, hvað fyrir þeim hefur vakað með því að flytja málið eins og þeir hafa flutt það, því að það hefur verið bæði í framsögu og grg. látið undir höfuð leggjast að geta ýmissa atriða, sem höfðu úrslitaþýðingu og látið að því liggja að aðstæður væru svipaðar í Noregi og hér, þannig að bera mætti saman þetta, sem við höfum fengið í meðalverð, og það, sem Norðmennirnir fengu sem hámarksverð, og þannig fenginn út mismunur, sem alls ekki er raunverulegur. Ég held, að kannske væri eitthvað af þessu skýranlegt með því, eins og kom fram hjá hv. þm., sem síðast talaði hér, að það væru vextirnir, sem öllu mundu valda um þann verðmismun, sem væri hér og þar, en ég fullyrði, að sá vaxtamunur veldur ekki neinum úrslitum. Hann getur valdíð nokkrum aurum á kg, en hann veldur ekki neinum úrslitum. Og þegar það hefur nú komið fram, að þessi verðmismunur, sem er á milli norska fisksins og þess íslenzka, er heldur á þann veginn, ef rétt er staðið að samanburðinum, að sá íslenzki er greiddur nú hærra verði en sá norski hefur verið greiddur, þá tel ég enga þýðingu, að setja verði á fót milliþinganefnd til þess að athuga málið. En hitt má gjarnan, að málið sé athugað í nefnd hér í þinginu, sem væntanlega verður þá allshn., og skal ég þá leggja fyrir n. þær upplýsingar, sem ég hef um málið.