22.02.1961
Sameinað þing: 41. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 915 í D-deild Alþingistíðinda. (2894)

106. mál, heildarskipulag Suðurlandsundirlendis

Flm. (Unnar Stefánsson):

Herra forseti. Till. til þál. á þskj. 118 um heildarskipulagningu landssvæðis felur í sér tilmæli til hæstv. ríkisstj. um, að hún láti gera uppdrátt að heildarskipulagi Suðurlandsundirlendis, miðað við 10–15 ár fram í tímann. Skipulagsnefnd ríkisins sé falið að annast þetta verk í samráði við sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum. Skal með slíkum uppdrætti í tillöguformi að því stefnt, að fjárfesting hins opinbera leiði af sér sem hagkvæmasta nýtingu orkulinda og annarra lands- og sjávargæða.

Slík fyrir fram heildarskipulagning sem hér er gert ráð fyrir er að erlendri fyrirmynd. Ríkisstjórnirnar hafa í hinum ýmsu löndum átt frumkvæði að heildarskipulagningu lítt numinna landssvæða og byggt þau upp samkvæmt fyrirframgerðri áætlun og þá að undangengnum rækilegum hagfræðilegum, tæknilegum og félagslegum rannsóknum. Þykja slík byggðarlög víða hafa tekizt með afbrigðum vel og eru talin til fyrirmyndar um alla gerð. Er oft vitnað til Ísrælsríkis að þessu leyti. En mörg önnur ríki hafa lagt mikla áherzlu á slíka skipulagningu, ekki aðeins á skipulagningu borga, heldur einnig þéttbýlis í dreifbýli, ef svo má að orði komast. Verulegur skriður komst á þessa hlið skipulagmáls eftir síðari heimsstyrjöld, þegar byggja þurfti frá grunni heilar borgir. Í Þýzkalandi hefur t.d. mest áherzla verið lögð á uppbyggingu borga og bæja, en þó einnig héraða og þá eftir frjálsri ákvörðun héraðsstjórna. Svíþjóð hefur verið skipt í 101 skipulagsumdæmi eftír landfræðilegum og atvinnulegum skilyrðum.

Það fyrirkomulag skipulagsmálanna, sem Íslendingum mundi henta bezt, er skipan Norðmanna. Í hverju fylki í Noregi er skipulagsnefnd og starfandi skipulagsstjóri. Vel mætti hugsa sér, að slíkur skipulagsstjóri starfaði í hverju hinna nýju kjördæma hér á landi eða á öðrum þeim svæðum, sem mundu afmarkast saman af landfræðilegum og félagslegum aðstæðum. Skipulagsstjóri mundi eftir hinni norsku fyrirmynd jafnframt verða byggingafulltrúi byggðarlaganna. Hann mundi viða saman upplýsingum varðandi atvinnuhætti, nýtingu vinnuafls, möguleika á uppsetningu nýrra atvinnugreina, miðað við náttúruauðlindir. Skipulagsstjóri mundi aðstoða við hagrannsóknir, sem nauðsynlegt er að gera raunhæfari en verið hefur hið fyrsta. Hann mundi verða fjárveitingavaldinu, Alþingi og ríkisstj., til ráðuneytis, gera tillögur um skiptingu atvinnuaukningarfjár, á meðan þess gerist þörf. Hann mundi verða bönkum og fjármálastofnunum til ráðuneytis um arðsemi einstakra fyrirtækja. Hann mundi verða sveitarstjórnum til ráðuneytis um fjáröflun og skipulagsstjóra ríkisins ráðgjafi um hin stærri mál, gera tillögur um staðsetningu nýrra bæjarstæða o.s.frv.

Skipulagsmálum hér á landi hefur hvergi nærri verið nægur gaumur gefinn. Núgildandi skipulagslög, lög um skipulag kauptúna og sjávarþorpa, eru frá árinu 1921 og löngu úrelt. Frv. til nýrra skipulagslaga hefur þrisvar sinnum verið lagt fyrir Alþ., en ekki fengið afgreiðslu. Því var seinast árið 1958 vísað til þáv. Ríkisstj. á þeirri forsendu, að eðlilegt væri að steypa saman í einn lagabálk lögum um skipulagsmál og byggingarlöggjöf, sem er reyndar frá árinu 1905 og því fyrir löngu langt á eftir tímanum.

Með till. þeirri, sem hér liggur fyrir, er svo ráð fyrir gert, að nú þegar verði hafizt handa um einn veigamikinn þátt skipulagsmála, héraðaskipulag. Tekið verði fyrir greinilega afmarkað landssvæði. sem er tiltölulega lítt numið, auðugt að orkulindum og öðrum landsgæðum, sem eru grundvallarundirstaða að myndun þéttbýlís. Má líklegt telja, að umrætt landssvæði vaxi að íbúafjölda örar en aðrir landshlutar í náinni framtíð vegna sinna ríkulegu landkosta. bæði hveraorku og vatnsorku, enda þótt engin bein afskipti komi þar til. Hins vegar má færa mjög sterk rök að því, að ríkisvaldið ætti beinlínis að stuðla skipulega að aukningu íbúafjölda á þessu ákveðna svæði vegna þess, hve vel það er til búsetu fallið. Það væri samfélaginu mun hagkvæmara að sjá fólkinu í landinu fyrir nauðsynlegri þjónustu, ef ríkisvaldið hefði hönd í bagga um það, hvar það nemur sér búsetu. Hitt er þó miklu veigameira, að ef undangengnar rannsóknir leiða í ljós, að hagvöxtur gæti orðið örari á einum stað í landinu en öðrum, þá er vert að gefa því gaum.

Hér mætti gjarnan minna á þá öru fjölgun fólks, sem nú á sér stað í landinu. Mannfjöldaútreikningar gefa til kynna, að landsmönnum fjölgi um allt að 2% árlega. Með slíkri fjölgun verður þjóðin í heild í lok þessa nýbyrjaða áratugs, árið 1970, nálega 200 þúsundir, áratug síðar, árið 1980, fjórðungur milljónar, og um næstu aldamót, eftir rétta fjóra áratugi, kringum 370 þúsundir eða meira en tvöfalt fleiri en Íslendingar eru í dag. Hvernig þessi íbúaaukning skiptist milli hinna einstöku landshluta, er allsendis ófært um að spá með vissu. Hitt verður að teljast eðlilegt, að ríkisvaldið, sem á að hafa forustuna í baráttu landsmanna fyrir betri lífskjörum, hafi hönd í bagga um, hvar allt þetta nýja starfsfólk í þjóðarbúinu tekur sér samastað. Eðlilega leitar uppvaxandi kynslóð til þeirra staða, sem geta boðið upp á bezt og öruggust lífsgæði. Það má gizka á, að allt að helmingur landsmanna búi um næstu aldamót í Reykjavík og næsta nágrenni hennar. Á því svæði hefur greinilega komið í ljós, hvað getur kostað þjóðarbúið síðar meir að kasta höndum til skipulagningar. Það eru ekki nema 30 ár frá því, að framsýni forráðamanna Reykjavíkurbæjar náði ekki út fyrir núverandi Hringbraut. Nýverið hefur borgarstjórnin í Reykjavík lagt fram áætlun um stórátak á þessu sviði með því að Láta gera heildarskipulag á svæði, sem nú nær yfir 6 sveitarfélög og ætla má að byggist á næstu 40-50 áruan. Er jafnvel gert ráð fyrir hugmyndasamkeppni innanlands og utan um skipulag á slíku svæði 50 ár fram í tímann og miðað við íbúatölu nálægt 300 þúsundum eða meira en fjórföldun íbúanna frá því, sem nú er.

Nú er þeirri skoðun oft á lofti haldið, að rétt væri í fámennu þjóðiélagi að sporna gegn slíkri myndun stórborgar. Hins vegar hafa þær framkvæmdir, sem gerðar hafa verið með það fyrir augum að stuðla að svokölluðu „jafnvægi í byggð landsins“, alls ekki náð tilætluðum árangri. Þetta kjörorð lætur því í eyrum eins og innantómt slagorð. Tilviljanakennt fálm í fjárfestingu hefur vafalaust átt mikinn þátt í þeim seinagangi, sem verið hefur undanfarin ár á hagvexti í landinu. Fyrirhyggjuleysið er þá orðið nokkuð dýrt. Ein raunhæfasta leiðin til að leita mótvægis við ofvexti einnar borgar er einmitt að stuðla að vexti annarrar borgar eða þéttbýlis í byggðarlagi, sem þannig er búið að landkostum, að ;það geti boðið upp á meiri lífsþægindi en nokkur annar staður á landinu. Ýmsir spá því, að Suðurlandsundirlendi með Þorlákshöfn sem hafnarbæ muni einmitt geta gegnt slíku hlutverki, og þessi möguleiki kallar óneitanlega á rækilega skipulagningu.

Einhver kynni nú að segja sem svo, að hér sé um að ræða mjög athyglisverða hugmynd, sem sjálfsagt sé að athuga vel í framtíðinni. Ég vil því leggja áherzlu á, að afgreiðsla þessarar till. ætti einmitt að vera verkefni þessa þings og framkvæmd hennar verkefni allra næstu missira. Jafnvel mætti með nokkrum rétti segja, að ýmsir þættir málsins beinlínis bíði eftir þeim niðurstöðum, sem fást við framkvæmd tillögunnar. Til skýringar er rétt að geta um þrjú atriði og varpa fram nokkrum spurningum, sem mundu verða teknar til athugunar.

Mikilvægasta framfaramál á Suðurlandi er hafnarbætur. Hafnleysið hefur staðið byggðarlaginu mjög fyrir þrifum. Við suðurströnd landsins eru engin viðunandi hafnarskilyrði á svæði, sem nær frá Höfn í Hornafirði að Grindavík á Reykjanesskaga, sem hvorugur getur komið að nokkru gagni í þessu sambandi. Fjarlægðin milli þessara tveggja staða er ámóta löng og milli Þórshafnar á Langanesi og að Horni á Vestfjörðum. Nú stendur fyrir dyrum að ráðast í hafnarbætur í Þorlákshöfn, og hefur Alþingi á .hinu fyrra ári veitt neimild til lántöku í þessu skyni. Nýverið hefur Alþingi samþykkt tillögu tveggja hv. alþm. Sunnl. um athugun möguleika á hafnarstæði á tveim öðrum stöðum við suðurströndina, við Dyrhólaey í Skaftafellssýslu og við Þykkvabæ í Rangárvallasýslu. Hvað vakir fyrir hinu háa Alþingi með samþykkt slíkrar tillögu hvað peningaútlát snertir, skal ósagt látið, en ýmsum mundi þykja skynsamlegra að verja því fjármagni, sem tiltækilegt er í þessu skyni, til þess að fullgera höfn á einum stað, áður en farið er að dreifa kröftunum á marga staði samtímis. Að vísu má segja, að austurhluti Suðurlands eigi, eins og nú háttar, ógreiðar samgöngur á landi við Þorlákshöfn. en því til svars vil ég benda á till., sem liggur fyrir hinu háa Alþ. um athugun á brúarstæði yfir Ölfusá á Óseyrarnesi, sem mundi ráða verulega bót á þessum vanda.

Í öðru lagi vildi ég geta um skipun heilbrigðismála í þessu héraði. Nýlega tók til starfa lítið sjúkrahús á Selfossi, sem nú þegar er orðið allt of lítið til þess að geta innt af hendi nauðsynlegustu læknishjálp fyrir íbúa einnar sýslu, Árnessýslu, hvað þá stærra svæði. Alþingi hefur þrásinnis hafnað þeirri hugmynd að viðurkenna Fjórðungssjúkrahús á þessum stað. Nú er vert að spyrja: Er rétt að reisa á einum stað á öllu Suðurlandi stórt fjórðungssjúkrahús, eða væri heilbrigðismálum héraðsins ef til vill betur borgið með því að reisa þrjár eða fjórar minni heilsuverndarstöðvar fyrir sama fé nálægt fólkinu? Úr þessu verður heilbrigðisstjórn og Alþingi og viðkomandi héraðsstjórnir að skera innan mjög skamms tíma. Handahófskenndar framkvæmdir á þessu sviði geta leitt af sér vandamál síðar, sem unnt hefði verið að komast hjá með því að kryfja málin til mergjar, meðan enn gefst tími til.

Afleiðingu skipulagsleysisins má sjá í byggingu félagsheimila á Suðurlandi, og þá er ég kominn að þriðja og síðasta dæminu. Á seinasta áratug hafa í tveimur sýslum. Árnes- og Rangárvallasýslu, risið upp 10 stór félagsheimili, sem hafa kostað á annan tug milljóna króna. Staðsetning þessara húsa er samkvæmt ákvörðunum hreppsnefnda, og því miður vill brenna við, að þær séu oft gerðar meira af kappi en fyrirhyggju, að því er ýmsir þeirra telja nú, sem að slíkum mannvirkjum hafa staðið. Enn eru í smíðum tvö slík stórhýsi, og ekki færri en 8 félagsheimili eru nú í undirbúningi eða verður byrjað á innan mjög skamms tíma.

Nú má spyrja: Hefði ekki verið æskilegra að skipuleggja byggingu samkomuhúsa um allt Suðurlandsundirlendi í einu lagi? Komi þá til greina að reisa verulega stór samkomuhús, tvö eða fleiri, sem gætu tekið á móti sinfóníuhljómsveit, stórum leikflokkum og jafnvel notazt til sögusýninga og vörusýninga, og svo á hinn bóginn minni hús, sem nægðu hinum einstöku hreppum til venjulegra fundarhalda. Það er ekki of seint að taka þessi mál fyrir, því enn má koma í veg fyrir mistök, sem kunna að eiga sér stað hér eftir. Ég bendi á, að hér er um að ræða um 20 stór félagsheimili, en læt hv. þd. eftir að reikna út, hvað Þessar stórbyggingar kosta, en þau kosta að meðaltali ekki minna en 2 millj. kr., þau sem síðast hafa verið byggð, og ekki má þess vænta, að kostnaðurinn lækki.

Í þessu sambandi hlýtur að koma fram sú spurning, hver hlutdeild sveitarstjórnanna skuli verða að tillögugerð um heildarskipulag og staðsetningu hinna ýmsu mannvirkja.

Ég vil ekki skilja svo við þetta mál, að ég láti ekki þá skoðun í ljós, að ríkisstj. ætti hið fyrsta að setja á fót nefnd sérfróðra manna til að athuga. hvort ekki væri hagkvæmt að breyta verulega hreppaskipan í landinu og gera tillögur um nýja skipan, sem gerði ráð fyrir fækkun hreppa um allt að þriðjung eða meira eftir landfræðileguan aðstæðum. Skipting landsins í sveitarfélög á rót sína að rekja allt aftur í Grágás eða enn þá lengra, aftur í heiðni. Hún er mótuð og miðuð við, að hrepparnir séu innfærslusvæði þurfamanna, umdæmi göngumanna við þess tíma staðhætti og félagslegar aðstæður.

Eftir að framfærslumálum hefur nú nýlega að mestöllu leyti verið létt af sveitarfélögunum, væri þá ekki ástæða til að athuga hvort ekki fengist aukið hagræði fyrir landsmenn við það að hafa hreppsfélögin allmiklu færri og stærri en þau eru nú? Fyrir þessu má færa mjög veigamikil rök. T.d. mætti benda á núverandi skipan skólahéraða, sem eru miklu stærri en hreppsfélögin, aðstöðu til rekstrar sameiginlegra félagsheimila, félagssvæði ræktunarsambanda og síðast, en ekki sízt sveitarstjórnina sjálfa.

Að lokum vil ég láta í ljós þá skoðun, að hér sé á ferðinni mjög mikilvægt mál. Skipulagsmálum landsmanna verður að sinna miklu meira en gert hefur verið á undanförnum árum. Undir þessa athugun munu falla mörg önnur verkefni, sem vissulega væri ástæða til að ræða alveg sérstaklega hér á hinu háa Alþingi, svo sem, hvernig rétt sé að nýta þær dýrmætu auðlindir, sem eru í Hveragerði, hvort þeim stað á að ráðstafa fyrir iðnaðarhverfl, fyrir raforkuver og efnaiðnað eða hvort á að einskorða hann við heilsuhæli og baðstaði fyrir innlenda sjúklinga og erlenda ferðalanga. Og þannig mætti lengi spyrja. Ég legg áherzlu á, að samþykkt þessarar till. yrði tímabær fyrirhyggja, og vænti þess, að hún fái meðferð samkvæmt því. Ég legg til, að umr. verði frestað og tillögunni vísað til allshn.